Tíminn - 13.02.1990, Qupperneq 3
Þriðjudagur 13. febrúar 1990
Tíminn 3
Fjörutíu og átta krona gjald a hvern gang, sé miðað
við sex gata skeifur, til þess að kosta sérstaka
reiðvegi fyrir hestamenn:
Tvær krónur
á hvert gat
Átta þingmenn Framsóknarflokksins með Guðmund G.
Þórarinsson þingmann Reykvíkinga í broddi fylkingar, leggja
til að lagt verði sérstakt gjald á hóffjaðrir til að standa straum
af kostnaði við lagningu reiðvega. Gert er ráð fyrir að gjaldið
verði tvær krónur á hverja selda hóffjöður og skal það fylgja
vísitölu byggingarkostnaðar.
Alls leggja þingmennirnir fram
þrjú þingskjöl vegna hinnar nýju
reiðvegaáætlunar. Frumvarp um
fjáröflun, þar sem tiltekið er gjald á
hóffjaðrir. Frumvarp um breytingar
á vegalögum, þar sem gert er ráð
fyrir sérstakri reiðvegaáætlun í sam-
vinnu við Vegagerð ríkisins og loks
tillögu til þingsályktunar um sjálfa
áætlunina.
Þar mælir fyrir um að ráðherra
skuli í samvinnu við sveitarfélög og
samtök hestamanna, skipa nefnd er
geri áætlun um reiðvegi til fjögurra
ára í senn. Nefndin skal vinna í
náinni samvinnu við ýmis félaga-
samtök og stofnanir er málið varðar,
svo sem Náttúruverndarráð, Land-
græðsluna, Skógrækt ríkisins, skipu-
lagsstjórn, Ferðaþjónustu bænda,
sveitarfélög og einstaka landeigend-
ur. Þá skuli unnið að því að bæta
aðstöðu hestamanna á þjóðvegum
og haga þannig að sem minnstar
hættur verði á slysum, og umferð
ríðandi manna viðurkennd í raun
sem hluti af samgöngum lands-
manna.
Tekið er fram í greinargerð með
þingsályktunartiliögunni að mikil-
vægt sé að gera sér grein fyrir því að
íslenski hesturinn geti orðið mikil-
vægur þáttur í uppbyggingu ferða-
mannaiðnaðar hér á landi í framtíð-
inni. Þar þurfi eigendur veitinga-
staða víða að gera hestamönnum
kleift að njóta þeirrar þjónustu sem
þeir hafa á boðstólum, t.d. með því
að koma upp hrossaréttum og að-
stöðu til fóðrunar og brynninga fyrir
hesta. Ferðaþjónusta bænda þurfi
að geta veitt hestamönnum fyrir-
greiðslu af ýmsu tagi, ekki aðeins
geta leigt mönnum hross, heldur
einnig haft hagbeit til sölu. Sveitar-
stjórnir og upprekstrarfélög víða um
land, eigi í mörgum tilfellum góða
skála á fjöllum, sem nýta mætti
betur og leigja ferðafólki. Slíkir
skálar gætu fallið vel inni í ferðir
ríðandi manna um landið.
„Þannig mætti hugsa sér eins kon-
ar net náttstaða á hálendinu, en hey
þyrfti að vera til sölu á sem flestum
stöðum svo gróður spillist ekki,“
segir í greinargerðinni.
Tillaga til þingsályktunarum áætl-
un um gerð reiðvega var flutt á
Alþingi árið 1986, af þingmönnun-
um Páli Péturssyni og Ólafi Þ. Þórð-
arsyni. Sú tillaga fékkst ekki út rædd.
- ÁG
Félag heyrnarlausra og forlagið Fjölsýn:
Bók um heyrnar-
lausa á íslandi
Felag heyrnarlausra hefur gefið út í samvinnu við Fjölsýn
Forlag, bókina Heyrnarlausir á íslandi, sögulegt yfirlit. Bókin
er gefin út í tilefni af þrjátíu ára afmæli Félags heyrnarlausra,
sem stofnað var 11. febrúar 1960. Bryndís Guðmundsdóttir
og Guðmundur Egilsson höfðu umsjón með útgáfuna.
I bókinni er gerð grein fyrir upp-
hafi heyrnleysingjakennslu í heimin-
um og sagt frá fyrstu heyrnleysingja-
skólunum. Sögð er saga heyrnleys-
ingjakennslu á fslandi og rakin saga
Félags heyrnarlausra. í lok ritsins er
listi yfir stjórnir Félags heyrnar-
lausra og æviárgrip heyrnarlausra á
íslandi sem fæddir eru eftir 1973.
f formála bókarinnar segir:
„Saga heyrnarlausra er um margt
saga samtímans. Áður fyrr ein-
kenndust viðhorf manna til heymar-
lausra af fáfræði á eðli heymarleysis
og hvaða afleiðingar það hefði.
Sterkar skoðanir voru uppi um að
greind og hugsun væru forsendur
þess að menn gætu talað. Þeir sem
vom „mállausir“ höfðu því sam-
kvæmt þessari kenningu ekki mikla
greind úr því þeir gátu ekki tjáð sig
á töluðu mali. Heyrnarlausir höfðu
því litla samúð og voru því sem næst
réttlausir."
Bókin er 311 blaðsíður. Margar
myndir eru í henni. Fjölmörg fyrir-
tæki hafa styrkt útgáfu bókarinnar.
-EÓ
Akureyri:
Hekla sjófær á ný
Strandferðaskipið Hekla var
á fímmtudag afhent eigendum
sínum eftir umfangsmiklar við-
gerðir í Slippstöðinni á Akur-
eyri. Eins og kunnugt er laskað-
ist skipið í október sl. eftir að
hafa fengið á sig brotsjó. Kostn-
aður vegna viðgerðarinnar var
ríflega 40 milljónir króna. Við
reynslusiglingu reyndist allt eðli-
legt og fór Heklan í áætlun á
fímmtudagskvöld áleiðis til
Grtmseyjar.
Samkvæmt upplýsingum Jóns Ing-
ólfssonar, skipstjóra á Heklunni,
var skipt um nánast öll tæki í brú og
allar raflagnir í skipinu voru endur-
nýjaðar. Jón sagði að staðið hefði til
að selja skipið áður en slysið varð en
úr því hefði ekki orðið. Þess í stað
var ákveðið að ráðast í þessa viðgerð
og tækifærið notað til að breyta og
bæta ýmislegt um borð. Megnið af
áhöfn skipsins var á Akureyri meðan
viðgerð stóð yfir og vann að viðhaldi,
svo sem bolviðgerðum. sandblæstri
og málun á botni. íbúðir og stýrishús
voru endurskipulögð og húsgögn og
búnaður endurnýjuð. M.a. voru
smíðaðar nýjar innréttingar í eldhús
og íbúðir og var það gert hjá Aðal-
geiri og Viðari hf. á Akureyri.
Þegar Tíminn hafði samband við
Hekluna á föstudagsmorgun var
skipið statt við Horn. Jón skipstjóri
Dómsmálafáðherra hefur hafnað
beiðni um skipun sérstaks setusak-
sagði að óneitanlega væru mikil
viðbrigði að sigla skipinu eftir breyt-
ingu. Maður er ekki búinn að finna
rétta punktinn til að standa á ennþá.
En það kemur nú fljótlega. Sam-
kvæmt áætlun átti skipið að hafa
fyrstu viðkomu í Grímsey en vegna
hvassviðris var ekki hægt að leggjast
að eynni og var því haldið áfram
austur fyrir land.
HIÁ - Akureyri
sóknara í máli fyrrum fulltrúa hjá
Ríkisendurskoðun, til að rannsaka
atriði tengd brottvikningu fulltrú-
ans, Inga B. Ársælssonar úr starfi
snemma árs 1984. Beiðni um skipun
sérstaks setusaksóknara, birtist í
opnu bréfi til dómsmálaráðherra í
Tímanum fimmtudaginn 18. janúar
sl. ogundirritaðaflögmanni IngaB.
Fram kemur í bréfinu að fulltrúinn
fyrrverandi telji ríkissaksóknara
ekki hæfan til að annast rannsókn
málsins, þar sem hinn skipaði ríkis-
saksóknari er undir Ríkisendurskoð-
un settur vegna fjármálalegs eftirlits.
Einnig vegna þess að fulltrúinn telur
að misbrestur hafi orðið við starf-
rækslu ríkissaksóknaraembættisins,
þegar þurft hefur að vinna í málum
sem tengjast skylduliði skipaðs ríkis-
endurskoðanda, eins og segir í opna
bréfinu.
Stórveisla
bókamanna
Hinn árlegi útsölumarkaður
Bókvörðunnar í Hafnarstræti 4
hófst síðastliðinn fimmtudag og
stendur í tvær vikur. Markaðurinn
er opinn alla daga vikunnar.
Á bókamarkaðinum er boðið
upp á mikið magn eldri bóka og
verða yfir 20 þúsund titilar til sölu.
Um er að ræða íslenskar bækur og
erlendar úr flestum greinum bók-
menntanna. Allar íslenskar bækur
kosta 100-200 krónur, aldur og
stærð eða innihald skipta ekki máli
og allar erlendar bækur kosta að-
eins 50 krónur.
Hafnar skipun
setusaksóknara
Skil á staðgreiðslufé
EINDAGINN
ER 15.
HVERS MÁNAÐAR
Launagreiðendum ber að skila afdreg-
inni staðgreiðslu af launum og reikn-
uðu endurgjaldi mánaðarlega. Skilin
skulu gerð eigi síðar en 15. hvers mán-
aðar.
Með skilunum skal fylgja greinar-
gerð á sérstökum eyðublöðum, „skila-
greinum“, blátt eyðublað fyrir greidd
laun og rautt fyrir reiknað endurgjald.
Skilagrein ber ávallt að skila einnig þó
svo að engin staðgreiðsla hafi verið
dregin af í mánuðinum.
Allar fjárhæðir skulu vera í heil-
um krónum.
yz&0,
Skf,Ö9reiðsií>
^rein^Pinb,
enaUl
r9jaia&
inrn,^1 inna a/ h
, e'ðJ \ ^'nmönn JJ^nm
Gerið skil tímanlega
RSK
RlKISSKATTSDÓRI