Tíminn - 23.02.1990, Blaðsíða 5
Föstudagur 23. febrúar 1990
Tímínn 5
Forsendna kjarasamninganna gætt sem sjáaldurs augna:
Verðíagseftirlit
verkalýðs byrjað
„Verðlagseftirlit Dagsbrúnar og fleiri verkalýðsfélaga tek-
ur til starfa í dag og mun verða við lýði næstu þrjá mánuði.
Bækistöð þess verður hér á skrifstofu Dagsbrúnar að
Lindargötu 9 og hefur sérstakan síma sem er 62 42 30. í þeim
síma verður tekið á móti kvörtunum og fyrirspurnum milli kl.
9 og 12 alla virka daga,“ sagði Guðmundur J. Guðmundsson
formaður Dagsbrúnar í gær.
Auk Dagsbrúnar standa að þessu
framtaki nú í byrjun; Iðja, félag
verksmiðjufólks, Framsókn, Starfs-
mannafélagið Sókn, Félag íslenskra
rafvirkja, en búist er við að þorri
verkalýðsfélaga í Reykjavík og
BSRB muni eiga aðild að eftirlitinu
þegar fram í sækir.
Einn starfsmaður hefur verið ráð-
inn vegna eftirlitsins. Hann heitir
Leifur Guðjónsson en honum til
aðstoðar verða tveir viðskiptafræð-
ingar; annar frá ASÍ en hinn frá
BSRB. Náið samstarf verður haft
við Neytendasamtökin, verðlags-
stjóra og viðskiptaráðuneytið. Auk
þess er ætlunin að a.m.k. tveir menn
frá hverju verkalýðsfélagi taki að sér
ásamt fjölskyldum sínum að fylgjast
með almennu verðlagi út frá eigin
heimilishaldi og miðli þeim upplýs-
ingum til eftirlitsins sem mun grípa
til ráðstafana verði tilefni til.
„Við munum einnig fylgjast náið
með ýmsum þjónustuliðum jafnt hjá
opinberum stofnunum og einkaaðil-
um auk þess að fylgjast með vöru-
verði í smásölu ogheildsölu. Upplýs-
ingar eru þegar farnar að berast -
t.d. um mjög mismunandi verð á
þjónustu tannlækna og annarra sér-
fræðinga,“ sagði Guðmundur J.
Guðmundsson í gær.
Stjórn BSRB samþykkti í gær
ályktun um þessi mál og í henni segir
m.a. að sú samstaða sem náðst hafi
í þjóðfélaginu um þau meginmark-
mið kjarasamninganna að tryggja
kaupmátt launa, draga úr fjármagns-
kostnaði og minnka verðbólgu, hafi
þegar leitt til þess að víða hafi verið
dregið úr fyrirhuguðum hækkunum
eða þær felldar niður.
Þá hvetur BSRB alla landsmenn
til þess að taka þátt í aðhaldi og
verðgæslu og minnir ríkisvald,
sveitastjórnir og atvinnurekendur á
skuldbindingar þeirra í tengslum við
kjarasamningana. Þá er og mótmælt
óeðlilegum hækkunum á bygginga-
vísitölu.
í gær var einnig gerð eftirfarandi
samþykkt í Verðlagsráði:
„Óheimilt er að hækka taxta
vegna hvers kyns útseldrar vinnu
eða þjónustu tengdri henni frá því
sem var 31. desember 1989 hjá
eftirfarandi starfs- og atvinnugrein-
um:
Endurskoðunarþjónustu, tölvu-
þjónustu og þjónustu kerfisfræð-
inga, tæknifræðinga, arkitekta,
rekstrarráðgjafa, múrara, trésmiða,
veggfóðrara, pípulagningarmanna,
málara og verkamanna í byggingar-
iðnaði.
Taxtar eins og þeir voru 31. des-
ember 1989 vegna útseldrar vinnu
og þjónustu ofangreindra aðila skulu
frá og með deginum í dag (22.
febrúar) gilda sem hámarkstaxtar.
-sá
Reiðubúinn
að gefa út
reglugerð
Utanríkisráðherra segist vera til-
búinn til að gefa út reglugerð um
aflamiðlun, ef stjórn hennar er skip-
uð einum fulltrúa frá hverjum hags-
munaaðila og oddamanni sem aðilar
eru sammála um. Þetta kom fram
hjá ráðherra á fundi í Ólafsvík í
fyrrakvöld. Samkvæmt þessu kæmi
einn aðili frá eftirtöldum aðilum,
þ.e. útgerðarmönnum, sjómönnum,
fiskvinnslu, fiskverkafólki.
Á fundinum kom fram sú tillaga
að í stað aflamiðlunar þá yrði ákveð-
inn hlutur í aflaheimild báts útflutn-
ingskvóti og að sá hlutur væri fram-
seljanlegur. Utanríkisráðherra tók
undir þessa tillögu en sagði að hún
gæti ekki komið til framkvæmda fyrr
en öll fiskiskip væru komin á afla-
rnark. -ABÓ
Prófkjörá
Selfossi
Laugardaginn 3. mars nk. kl.
10-21 verður Framsóknarflokkurinn
á Selfossi með opið prófkjör um
skipan sæta á B-listanum við bæjar-
stjórnarkosningarnar í vor. Kosið
verður að Eyrarvegi 15.
Olíuleki:
Rannsókn
er lokið
Rannsóknarlögregla ríkisins hefúr
lokið rannsókn á olíulekanum sem
varð úr olíutönkum á Gunnólfsvík-
urfjalli og verður málið sent ríkis-
saksóknara í dag. Bogi Nilsson rann-
sóknarlögreglustjóri vildi ekkert
segja til um hvað rannsóknin hefði
leitt í ljós. Málið yrði að skoðast hjá
ríkissaksóknara sem síðan tæki frek-
ari ákvarðanir í málinu. -ABÓ
3 geðsjúkir
vistaðir
ífangelsum
Þrír aðilar sem dæmdir hafa verið
til vistar á viðeigandi stofnunum
vegna geðveilu afplána dóma sína í
fangelsum hér á landi. Þetta kom
fram í svari Óla Þ. Guðbjartssonar
dómsmálaráðherra í gær, við fyrir-
spurn Guðrúnar Agnarsdóttur urn
félagslegar aðgerðir fyrir fanga.
í ræðu dómsmálaráðherra kom
fram að færa mætti rök að því að
samkvæmt núgildandi lögum um
refsivist geðsjúkra afbrotamanna,
væri ekki ætlast til að þeir væru
vistaðir á sérstökum stofnunum. Það
kom einnig fram í máli ráðherrans
að ekki er gert ráð fyrir á fjárlögum
þessa árs, verði heimilað að kaupa
húsnæði er leysi hegningarhúsið við
Skólavörðustíg af hólmi. Aðbúnað-
ur á Skólavörðustígnum er mjög
slæmur, en húsið var í upphafi byggt
sem bílageymsla, eða bílaþvottastöð
fyrir lögregluna.
Að sögn dómsmálaráðherra er
unnið að því að finna lausn á þessu
vandamáli, en verði af kaupum á
öðru húsnæði verður að gera það-í
samráði við fjárveitinganefnd Al-
þingis. Hámarkstala fanga sem hægt
er að vista í hegningarhúsinu við
Skólavörðustíg er 25, en þess eru
dæmi að þar hafi setið inni 30 manns
í einu. - ÁG
Blysför á65ára skátaafmæli
Skátafélagið Hraunbúar í Hafnar- hætti. Farin var blysför frá Frí- var í blysförinni, enda skátastarf Hraunbúum var formlega afhent
firði hélt upp á 65 ára afmæli sitt í kirkjunni að Álfafelii (íþróttahús- ávallt verið öflugt í Hafnarfirði og ný lóð undir félagshcimili á Víði-
gærkvöldi með eftirminnilegum inu við Strandgötu) Góð þátttaka ekki virðist ætla að verða lát á því. staðasvæðinu. Tímamynd Pjetur