Tíminn - 28.02.1990, Blaðsíða 1
Hugvit héðan gegn
mengun í A-Evrópu
Á þingi Norðurlandaráðs í gær gerði
Steingrímur Hermannsson, forsæt-
isráðherra mengunarmál í löndum
Austur-Evrópu að umtalsefni og benti
m.a. á nauðsyn þess að Norðurlanda-
þjóðirnar iegðu sitt af mörkum við að
draga úr þeirri gífurlegu loftmengun
sem fylgir mikilvægum orkugjöfum
þessara landa, brúnkolum. Benti hann
á að íslensk þekking á virkjun jarðhita
virtist geta nýtst þessum þjóðum til að
beisla hreinan eða mengunarlítinn
orkugjafa. Hjá fyrirtækinu Virkir-
Orknit, sem fæst við útflutning á þekk-
ingu á jarðhitavirkjun til landa í Austur-
Evrópu fengust þær upplýsingar að
einmitt þessa dagana væri verið að
Ijúka hagkvæmnisathugunum á fjar-
varmaveitum í Ungverjalandi sem
myndu stórlega draga úr loftmengun.
• Blaðsíða 5 huiitruar hlyoa íbyggnir á máltlutning á þingi Noröurlandaráös í gær.
Tímamynd: Pjetur
Heimsmeistarakeppnin í handknattleik hetst í dagog evrópskirveðmangararspáokkur6.-8.sæti:
STADANIVEÐBÖNKUH:
ÍSLAND1 Á MÓTI20
Heimsmeistarakeppnin í handknattleik hefst í
dag í Tékkóslóvakíu. Tíminn fylgir keppninni úr
hlaði með sérstöku handboltablaði þar sem
finna má allar helstu upplýsingar um iið,
leikmenn og skipulag keppninnar. Auk þess er
umfjöllun um keppnina á íþróttasíðu. Við
könnuðum í gær stöðuna hjá evrópskum veð-
möngurum og í einum stærsta bankanum voru
möguleikar íslands á að vinna keppnina taldir
1 á móti 20. Helst er veðjað á sovéskan sigur
en íslenska liðið er í 6-8 sæti.
• Blaðsíða 5
Forsætisráðherra gerir mengunarmál að umræðuefni á Norður-
landaráðsþingi og bendir á áþreifanleg dæmi um úrbætur: