Tíminn - 28.02.1990, Qupperneq 4
4 Tíminn
Miðvikudagur 28. febrúar 1990
LUSAKA - Blökkumanna-
leiötoginn Nelson Mandela
kom til Zambíu þar sem tekið
var á móti honum sem hetju.
Er þetta fyrsta ferð Mandela
frá Suður-Afríku frá því árið
1962, enda hefur hann dúsað
í dyflissu síöan þá. Á móti
honum tók Kenneth Kaunda
forseti Zambíu og aðrir afrískir
leiðtogar.
LONDON - Njósnasérfræð-
inaar í Bretlandi segja að full-
yrðingar sovéska njósnarans
Olegs Gordievsky um að KGB
hefði náð árangri í að ná
tökum á breskum þingmönn-
um, hafi ekki við rök að
styðjast.
MOSKVA - Átta milljónir
manna ganga atvinnulausir í
Sovétríkjunum. Þetta er niður-
staða sérfræðinga áætlunar-
nefndar Sovétríkjanna, en op-
inberar tölur segja að tvær
milljónir manna séu atvinnu-
lausir.
JAPAN - Toshiki Kaifu var
endurkjörinn forsætisráðherra
Japan í nýkjörinni neðri deild
japanskaþingsins á sérstökum
fundi í dag. Kaifu tók við for-
sætisráðherraembættinu og
formannsembætti i Frjálslynda
lýðræðisflokknum í ágústmán-
uði þegar Sosuke Uno þurfti
að segja af sér vegna kynlífs-
sambands við geishu. eftir
kjörið sendurskipaði Kaifu
utanríkisráðherra og fjármála-
ráðherra Japans í trássi við
voldugustu leiðtoga stjórnar-
flokksins.
FRÉTTAYFIRUT
JERÚSALEM - Yitzhak
Rabin varnarmálaráðherra
Israel segist þess fullviss að
ísraelar muni samþykkja nýj-
ustu friðaráætlun Bandaríkja-
manna sem miða að beinum
viðræðum ísraela og Pales-
tínumanna. Á meðan voru sjö
Palestínumenn á Gazasvæð-
inu særðir skotsárum í átökum
þeirra við ísraelska lögreglu.
NÝJA DELHI — Að minnsta
kosti 60 manns voru drepnir í
ofbeldisöldu sem reið yfir Bihar
hérað, en þar fara nú fram
héraðsþingskosningar.
UTLOND
Juan Ponce Enrile fyrrum varnarmálaráðherra Filipseyja í miðið. Enrile er nú í fangelsi sakaður um að hafa skipulagt byltingatilraunina gegn
Aquino forseta í desembermánuði og auk þess sem hann er ákærður um morð. Honum á hægri hönd er Gregorio „Gringo“ Honasan fyrrum
aðstoðarmaður Enriles. en hann er einnig sakaður um að eiga aðild að uppreisnartilraun hersins í desember, en Honasan hefur verið viðriðin
nokkrar uppreisnartilraunir gegn Aquino.
Corazon Aquino forseti Filipseyja leggur til atlögu við andstæðinga sína:
Enrile sakaður um aoild
að desemberuppreisninni
Corazon Aquino forseti Filipseyja hefur nú lagt atlögu viö
andstæðinga sína í kjölfar hinnar blóöugu uppreisnar hluta
filipeyska hersins í desember. í gær var Juan Ponce Enrile
fyrrum varnarmálaráðherra Filipseyja handtekinn sakaður
um að hafa skipulagt desemberuppreisnina og fyrir morð.
Hefur filipeyski herinn verið settur í viðbragðsstöðu vegna
þess, en stjórnvöld eiga jafnvel von á að stuðningsmenn
Enriles innan hersins kunni að taka til sinna ráða.
Enrile sem var varnarmálaráð-
herra í 17 ár undir stjórn Marcosar
fyrrum forseta Filipseyja hefur verið
helsti leiðtogi stjórnarandstæðinga á
filipeyska undanfarin ár. Hann
studdi Corazon Aquino til valda
fyrir fjórum árum síðan, en sneri
fljótt við henni bakinu að nýju og
hefur síðan gagnrýnt forsetann ít-
rekað.
Enrile hélt ræðu í þinginu áður en
hann var handtekinn þar sem hann
segist saklaus af ákæruatriðum ríkis-
saksóknara um morð og aðild að
desemberuppreisninni. Enrile hélt
því fram að Aquino og ríkisstjórn
hennar hefðu soðið saman ákæruna
til að losna við þá gagnrýni sem hann
hefur haft uppi í þinginu að undan-
förnu. Sagði hann handtöku sína
vera skref í átt til harðstjórnar á
Filipseyjum. Undir þetta tóku aðrir
leiðtogar Þjóðernisflokksins, helsta
stjórnarandstöðuflokksins á Filips-
eyjum.
Enrile veitti ekki neina mótstöðu •
ur til yfirheyrslu hjá rannsóknarlög-
reglunni, en Enrile mun dúsa í
stofufangelsi á skrifstofu Alfredo
Lim, rannsóknarlögreglustjóra fyrst
um sinn. Enrile á yfir höfði sér
ævilangt fangelsi ef hann verður
fundinn sekur um ákæruatriðin.
Varaforseti Filipseyja, Salvador
Laurel, heimsótti Enrile í stofufang-
elsið, en á sínum tíma benti Aquino
forseti á þá undarlegu staðreynd að
Laurel hafi ætíð yfirgefið Manila
rétt áður en herinn hefur reynt
byltingatilraunir. Gaf Aquino í skyn
að Laurel, sem einnig er harður
andstæðingur hennar, hafi einnig
vitað um desemberuppreisnina.
Hins vegar eru litlar líkur á að við
Laurel verði hreyft, enda nýtur hann
friðhelgi sem varaforseti.
Annar þekktur andstæðingur
Aquinos var einnig ákærður fyrir
aðild að uppreisninni í desember. Sá
er Gregorio „Gringo“ Honasan, en
hann hefur áður leitt uppreisnartil-
raunir gegn Aquino og fer nú huldu
höfði. Honasan var áður helsti að-
stoðarmaður Aquinos forseta og er
nú leiðtogi „Umbótahreyfingar
hersins". Þau samtök voru drifkraft-
urinn í byltingunni gegn Marcosi á
sínum tíma og berjast nú gegn
Aquino, sem samtökin telja að hafi
svikist um að berjast gegn spillingu
þeirri er alla tíð hefur ríkt innan
hersins. Aquino sé því ekkert betri
en Marcos á sínum tíma. Hefur
ríkisstjórn Aquinos sett 22 þúsund
dali til höfuðs Honasans.
Þá var Felix Brawner fyrrum hers-
höfðingi sakaður um aðild að des-
.emberuppreisnartilrauninni, en í
henni féllu 113 manns.
Æðsta ráðið:
Vðld forsetans
aukin til muna
Forseti Sovétríkjanna mun í
framtíðinni verða kjörinn í þjóðar-
atkvæðagreiðslu og munu völd
hans verða svipuð og völd Banda-
ríkjaforseta. Æðstaráð Sovétríkj-
anna samþykkti þetta á fundi sín-
um í gær og hefur Mikhaíl Gorba-
tsjof núverandi forseti Sovétríkj-
anna því að öllum líkindum náð að
koma hugmyndum sínum í fram-
kvæmd, þrátt fyrir mikla og óvænta
andstöðu. Nú á fulltrúaþing Sovét-
ríkjanna einungis eftir að fjalla um
málið og eru allar líkur á að það
samþykki breytinguna.
í umræðum um frumvarpið kom
fram hörð gagnrýni frá róttækum
umbótasinnum sem segja hættulegt
að koma. svo miklum völdum á
einar hendur og benda á hvaða
afleiðingar ofurvald Stalíns hafði á
Sovétríkin.
Fulltrúaþing Sovétríkjanna mun
verða boðað á aukafund 12. og 13.
mars til að ræða og afgreiða þetta
mál.
Litið er á þessa ákvörðun sem
mikinn sigur fyrir Gorbatsjof sem
að líkindum verður kjörinn forseti
Sovétríkjanna, en með því að
tryggja forsetanum meiri völd
tryggir hann sig gegn harðlínu-
mönnunum á flokkþingi kommún-
istaflokksins sem boðað hefur ver-
ið í júní.
Níkaragva:
Táragasi beitt
á kosningaslag
Óeirðalögreglan í Managva beitti
táragasi til að leysa upp kosningaslag
ungra stuðningsmanna Sandínista og
stuðningsmanna Þjóðlega andstöðu-
bandalagsins í gær. Hópunum laust
saman þegar hópur ungmenna sem
veifaði flöggum Sandínista réðust að
sigurglöðum stuðningsmönnum
Þjóðlega andstöðubandalagsins sem
sigruðu Sandínista svo glæsilega í
kosningunum í Níkaragva á sunnu-
daginn.
Óeirðalögreglan greip inn í slag-
inn þegar hópamir hófu að kasta
grjóti á hvom annan. Mikil spenna
ríkti í Managva eftir að átökin
brutust út og er lögreglan í við-
bragðsstöðu ef upp úr síður.
Þess má geta að Sovétmenn hafa
lýst ánægju sinni yfir kosningunum í
Níkaragva og segja að úrsht þeirra
sé stórt skref í átt til lýðræðis í
Mið-Ameríku. Sovétmenn hafa stutt
Sandínista dyggilega síðasta áratug-
inn.
Þá berast þær fréttir frá Banda-
ríkjunum að Bandaríkjastjórn
aflétti efnahagsþvingunum sínum á
Níkaragva einhvern næstu daga.
UMSJÓN:
Hallur
Maqnússon
BLAÐAMAÐyg^;^ Sk