Tíminn - 28.02.1990, Blaðsíða 14
22 Tíminn
Miðvikudagur 28. febrúar 1990
Laugardagur kl.14: 55
9, LEIKV IKA- 3. man »1990 11X m
Leikur 1 Charlton Norwich
Leikur 2 Man. Utd. Luton
Leikur 3 Nott. For. Man. City
Leikur 4 Q.P.R. Arsenal
Leikur 5 Sheff. Wed. - Derby
Leikur 6 Southampton - Chelsea
Leikur 7 Tottenham C. Palace
Leikur 8 Wimbledon - Everton
Leikur 9 Blackburn Woves
Leikur 10 Briqhton Oldham
Leikur 11 Middlesbro - West Ham
Leikur 12 Watford Leeds
Allar upplýsingar um getraunir vikunnar hjá : LUKKULÍNUNNI s. 991002
ÞRI EFALDU POTTU R !! ,
kSRARIK
^ RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
Útboð
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í
eftirfarandi:
RARIK-90002: Háspennuskápar, 11 og 19 kV,
fyrir aðveitustöð Rangárvöllum og Smyrlu.
Opnunardagur: Fimmtudagur 22. mars 1990, kl.
14.00.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna
ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, fyrir
opnunartíma og verða þau opnuð á sama stað að
viðstöddum þeim bjóðendum er þess óska.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofum Rafmagns-
veitna ríkisins við Laugavegi 118, 105 Reykjavík,
frá og með fimmtudeginum 1. mars 1990 og kosta
kr. 500,- hvert eintak.
Reykjavík 27. febrúar 1990
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
HRarik
RAFMAGNSVEITUR RlKISINS
Útboð
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í að
byggja aðveitustöðvarhús við Rimakot í Austur-
Landeyjum.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofum Rafmagns-
veitna ríkisins við Dufþaksbraut 12, Hvolsvelli og
Laugavegi 118, Reykjavík frá og með fimmtudeg-
inum 1. mars 1990 gegn kr. 10.000 skilatryggingu.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna
ríkisins á Hvolsvelli fyrir kl. 14.00, miðvikudaginn
14. mars 1990 og verða þau þá opnuð í viðurvist
þeirra bjóðenda, sem þess óska.
Tilboðun séu í lokuðu umslagi, merktu „RARIK
90001 aðveitustöð við Rimakot.“
Reykjavík 22. febrúar 1990
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
Matsmann
vantar á fiskiskip.
Upplýsingar í síma 92-68128.
ÍÞRÓTTIR
Körfuknattleikur - Úrvalsdeild:
IR endar í 7. sæti
íslenskar getraunir:
Síðasti skiladagur
í handboltatippinu
- sölukerfinu fyrir aukaleik 4
verður lokað kl. 17.55 í dag
- ( úrvalsdeildinni - Njarðvíkingar unnu á Sauðárkróki
ÍR-ingar unnu slaka Valsmenn
67-57 að Hlíðarenda í gærkvöld í
úrvalsdcildinni í körfuknattleik og
tryggðu sér þar með 7. sætið í
deildinni. Það er sami árangur og
liðið náði ■ fyrra, en hafa ber í huga
að marga menn vandar frá því þá.
Valsmenn lenda nú í 8. sæti deildar-
innar, sem er þeirra lakasti árangur
í manna minnum.
Dregið í bikarnum
Dregið hefur verið í undanúrslit-
um bikarkeppninnar. Njarðvíkingar
mæta Haukum og Keflvíkingar leika
gegn KR-ingum. Leikið verður á
sunnudag og fimmtudag í næstu
viku.
í bikarkeppni kvenna leika ÍR
gegn ÍBK og Haukar gegn Njarðvík.
BL
Aukaseðill íslenskra Getrauna,
þar sem tippað er á úrslit í 12 leikjum
í riðlakeppni HM í handknattleik í
Tékkóslóvakíu, rennur sitt skeið í
dag og verða tipparar að hafa komið
seðlum sínum í tölvukassana fyrir kl.
17.55 í dag.
Kl. 18.00 hefst bein útsending frá
leik no. 2 á seðlinum, leik Islands og
Kúbu í C-riðli.
Yfirferð verður laugardaginn 3.
mars og líkur henni um kl. 22.30.
BL
íslenskar getraunir:
Þrefaldur pottur
ÍR-ingar tóku leikinn í sínar hend-
ur þegar í upphafi í gær, komust í
7-25, en Valur náði að minnka fyrir
hlé, 30-38. f síðari hálfleik komust
Valsmenn meira að segja yfir 45-44,
en á lokakaflanum tryggðu ÍR-ingar
sér öruggan sigur 57-67.
Thomas Lee var bestur hjá ÍR,
ásamt Birni Steffensen, en liðið lék
á köflum illa; var til að mynda með
30% vítanýtingu. Hjá Val var Chris
Behrends skástur.
Stigin Valur: Behrends 23, Svali
12, Matthías 9, Ragnar 5, Einar 4,
Hannes 2 og Guðni 2. ÍR: Lee 26,
Björn S. 16, Jóhannes 10, Eggert 5,
BjömB. 4,Gunnar4ogSigurður2.
UMFN sigur
Njarðvíkingar sigmðu Tindastóls-
menn á Sauðárkróki með 98 stigum
gegn 88.
Engin röð kom fram með 12
leikjum réttum í 8. leikviku íslenskra
getrauna um síðustu helgi, aðra
helgina í röð. Potturinn verður þvi
þrefaldur um næstu helgi.
Úrslit vom nokkuð óvænt og að-
eins 1 seðill kom fram með 11
réttum. Sá sem þann seðil á er
gamall KR-ingur sem í hverri viku
tippar á opinn seðil með 4-7 tvítrygg-
ingum. Hann sagðist að þessu sinni
hafa byrjað á að merkja leikina eins
og hann hélt að þeir fæm, en sfðan
snúið þeim flestum við. Það bar
þann árangur að hann fær 357.827
kr. fyrir seðil sem kostaði 1.280 kr.
Leikimir sem komu hvað mest á
óvart vom no. 1 þar sem Aston Villa
tapaði fyrir Wimbledon, no. 6 þar
sem Manchester City tapaði á
heimavelli fyrir Charlton, no. 7 þar
sem Millwall tapaði fyrir QPR á
heimavelli, no. 8 þar sem Leeds
tapaði heima fyrir WBA í 2. deild-
inni.no. 11 þar sem Sheffield United
gerði jafntefli við Newcastle og no.
12 þar sem Wolves og Watford
gerðu jafntefli. Búist var fastlega við
hiemasigri í tveimur síðustu leikjun-
um.
Skipting merkjanna á seðlinum
var óvenjuleg, 3-6-3.
BL
Jóhann Ingi Gunnarsson um væntingar til landsliösins:
Bjartsýni á rökum reist
Jóhann Ingi Gunnarsson er einn
virtasti handknattleiksþjálfari sem
íslendingar eiga á að skipa. Hann er
sá maður sem hefur fyrir flestar
stórkeppnir sem landsliðið hefur
tekið þátt í, varað við of mikilli
bjartsýni. En hver er tónninn í
Jóhanni Inga fyrir heimsmeistara-
keppnina í Tékkóslóvakíu?
„Liðið er gífurlega sterkt. Við
erum með leikreyndasta iandslið í
heimi. Strákamir vita orðið um sinn
styrk og sálfræðilega skiptir það
miklu máli. Fleira spilar inn í þetta.
íslenska landsliðið verður ekki að
leika útileiki í Tékkóslóvakíu. Við
verðum í vinsælu hlutverki í keppn-
inni. Við spilum skemmtilegan
handbolta og leikum með hjartanu.
Þá skiptir það gríðarlega miklu máli
að hafa unnið B-keppnina í Frakk-
landi. Þá urðu strákamir þess
áskynja hvers megnugir þeir eru.
Meðal annars vegna þessa hefur
sjálfstraust leikmanna aldrei verið
meira. Leikreynslan og breiddin eru
til staðar, þannig þegar menn spá
góðum árangri er það ekki eingöngu
bjartsýni, heldur bjartsýni á rökum
reist,“ sagði Jóhann Ingi.
Hefur þú mótað þér skoðun varð-
andi gengi liðsins?
„Ég tel alveg ömggt að íslenska
liðið leikur um 5.-6. sæti. En gangi
allt upp er raunhæfur möguleiki á að
þeir spili um bronsið. Svipuðum
árangri var spáð fyrir keppnina 1978,
en þá var um mikla bjartsýni að ræða
sem var ekki á rökum reist. Þá hafði
landsliðið ekki gengið í gegnum
þann skóla sem liðið hefur að baki
nú.
Ef við förum nánar í gegnum
þetta þá held ég að við vinnum
okkar riðil, en leikurinn á móti
Júgóslavíu mun verða erfiðastur.
Með Spánverjana kemur tvennt
til. f fyrsta lagi vantar á þá hvatn-
ingu, þar sem þeir eru ömggir með
sæti á næstu olympíuleikum í Barce-
lona, sem gestgjafar," sagði Jóhann
Ingi.
I öðm lagi taldi hann ljóst að
metnaður íslenska landsliðsins yrði
mikill, þar sem þrír leikmenn leika
með félagsliðum á Spáni. „Þetta
verður svipað og leikurinn gegn
V-Þjóðverjum í Frakklandi í fyrra.
Þá léku flestir strákarnir í Bundeslig-
Jóhann Ingi Gunnarsson.
unni og vildu sína þýskum félögum
sínum í tvo heimana. Nú má í raun
segja að Bundesligan hafi flust til
Spánar. Leiknum verður sjónvarpað
beint til Spánar og því verða okkar
menn einnig að verja orðstír sinn
sem atvinnumenn,“ sagði Jóhann
Ingi.
Hann telur að leikurinn við Júgó-
slava geti ráðið úrslitum um það
hvort við leikum um 3ja eða 5ta
sætið í Tékkóslóvakíu. Jóhann Ingi
dregur ekki dul á það að Júggamir
em sterkir um þessar mundir.
Annað athyglisvert atriði sem
hann nefndi er það mikla umrót sem
hefur verið í A-Evrópu upp á síð-
kastið. „Það hefur komið los á
undirbúning hjá flestum austan-
tjaldsþjóðunum, nema Rússum.
Þetta kemur okkur til góða, þar sem
við höfum getað haldið okkar striki
við undirbúninginn.
Hvað sýnist þér um gang mála í
hinum riðlunum?
„Það er kannski full mikil bjart-
sýni en ég hef verið að gæla við þá
von að við spiluðum um bronsið við
Svíana.
Tékkar eru á heimavelli og það
hjálpar þeim, en þeir voru alls ekki
sannfærandi þegar þeir léku á íslandi
um daginn.
Ekki má afskrifa Rúmena. Þeir
eru með reynslumikið lið. Annars er
mun erfiðara að spá um hinn milli-
riðilinn.
Mér virðist, ef litið er til nýlegs
árangurs, að S-Kóreumenn séu með
slakt lið. Þeir töpuðu með fimmtán
mörkum einum leiknum. Þeir virð-
ast hafa byggt upp nýtt lið eftir Seoul
og mér sýnist að það sé langt í að það
blómstri." sagði Jóhann Ingi.
Við sendum landsliði íslands í handknattleik okkar kveðjur og óskum því góðs
gengis í heimsmeistarakeppninni í Tekkóslóvakíu
Kaupfélag Austur-Húnvetninga Blönduósi
Kaupfélag Vestur-Húnvetninga Hvammstanga
Kaupfélag Skagfiröinga Sauöárkróki