Tíminn - 30.03.1990, Blaðsíða 3

Tíminn - 30.03.1990, Blaðsíða 3
Föstudagur 30. mars 1990 Tíminn 3 Forsætisráðherra segir beiðni Litháa um að Islendingar haldi samningafundi á milli þeirra og Sovétmanna staðfesta framgang okkar í þessu máli: „Höfum gengið lengra en nokkur önnur þjóð“ Litháar hafa borið upp við íslendinga, Norðmenn og Dani, hvort til greina komi að friðar- og samningafundir fari fram á milli Litháa og Sovétmanna í einhverju þessara landa. íslend- ingar hafa svarað beiðninni játandi og Steingrímur Hermanns- son forsætisráðherra segir beiðni Litháa staðfestingu á því að þessar þjóðir hafi gengið hvað lengst fram í stuðningi við sjálf- stæðisbaráttu þeirra. Steingrímur tók fram í samtali við Tímann í gær að Alþingi hefði verið fyrsta þjóðþingið sem sendi Litháum heillaóskir vegna yfirlýsingar sinnar um sjálfstæði og íslendingar auk þess fyrstir meðal vestrænna þjóða til þess að skora á Sovétmenn að grípa ekki til vopnavalds í Litháen. „Eg vil leggja áherslu á að við höf- um í þessum efnum, gengið lengra en nokkur önnur þjóð,“ sagði Stein- grímur. Forsætisráðherra sagði augljósar skýringar liggja að baki því hiki, sem Svíar og flest lönd NATO, með Bandaríkin í fararbroddi, hafi sýnt varðandi málefni Litháen. „Ögrun gæti orðið til þess að þama kæmi til vopnaviðskipta og það yrði til þess að verulegt þakslag yrði í allri fram- kvæmd perestrojkunnar og allri við- leitni Gorbatsjofs sem er ákaflega mikilvæg fyrir vestrænar þjóðir," sagði forsætisráðherra. „Mér finnst þeirra afstaða skiljanleg, þó að ég sé afar ánægður með það að við íslend- ingar höfum gengið jafnlangt og ffekast er unnt í þessum málum.“ Sendinefndin frá ríkisstjóm Litháen gekk í fyrradag á fund Haraldar Kröyer, sendiherra íslands í Osló, og bar þar formlega upp fyrirspum til íslenskra stjórnvalda um hvort ís- lendingar vildu bjóða upp á fundar- stað undir áðumefndar samningavið- ræður. Sams konar fyrirspurn var komið til norsku ríkisstjórnarinnar. Neíhdin fór síðan í gær til Danmerk- ur, þar sem hún lagði fyrir dönsk stjómvöld sams konar beiðni og ís- lensk og norsk stjómvöld. Islending- ar og Norðmenn hafa nú þegar svar- að erindi Litháa játandi. í svari frá utanríkisráðuneytinu segir að ríkis- stjórn íslands sé reiðubúin til að annast milligöngu til að greiða fyrir ffiðsamlegri lausn deilunnar, þannig að komið verði til móts við réttmæt- ar óskir litháísku þjóðarinnar um frelsi og sjálfstæði. Ríkisstjómin sé þess vegna reiðubúin, svo framar- lega sem báðir aðilar óska eftir því, að bjóða Reykjavík fram sem fund- arstað, þar sem viðræður samnings- aðila gætu farið fram. Steingrímur Hermannsson sagðist þeirrar skoðunar að þó svo að við yrðum við þeirri beiðni að halda umræddan samningafund yrði það að vera í nánu samráði við sam- bandsríki okkar í Atlantshafsbanda- laginu. Hvort liklegra væri að fund- urinn yrði haldinn hér en annars staðar, ef af honum verður, vildi for- sætisráðherra ekki segja til um, en benti þó á að Island hefði unnið sér ákveðinn sess á þeim vettvangi með leiðtogafundinum í Reykjavík 1986. Hjá sendinefndinni kom ffam stað- festing á því að í þeirra augum lægi ljós fyrir staðfesting íslendinga á sjálfstæði landsins allt frá 1923. Þá Steingrímur Hermannsson lætur neíndin einnig I ljós þakklæti til íslendinga fyrir að hafa gengið hvað ákveðnast fram í málefnum Litháa. Þetta viðhorf kemur jafn- framt fram í bréfinu til forseta ís- lands frá \fytautas Landsbergis, for- seta Æðsta ráðs Litháen. Talið er líklegt að Danir muni fara að dæmi Islendinga og Norðmanna og lýsa sig reiðubúna til að halda samningafund á milli Sovétmanna og Litháa. Næstu skref í málinu byggjast á viðbrögðum sovéskra stjómvalda við beiðni Litháa. Tals- menn rússneska sendiráðsins á ís- landi sögðust ekki geta tjáð sig um þetta mál í gær, en þeir hefðu fyrst heyrt um beiðni Litháa í hádegis- fféttum útvarps. - ÁG I Z/reymir þig stundum um að viiina miiljónir? UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.