Tíminn - 30.03.1990, Qupperneq 4
4 Tíminn
Föstudagur 30. mars 1990
FRÉTTAYFIRLIT
MOSKVA — Varnarmála-
ráðuneyti Sovétríkjanna lýsti
þvi yfir að allir þeir Lithaugar
er yfirgáfu herdeildir sínar í
sovéska hernum í kjölfar
sjálfstæðisyfirlýsingu þings
Lithaugalands hljóti fulla sak-
aruppgjöf, svo fremi þeir snúi
afturtil herþjónustu. Þá fengu
Lithaugar stuðningsyfirlýs-
ingu frá þinginu í Úkraínu.
Sovésk yfirvöld segjast reiðu-
búin til að ræða sjálfstæðis-
málin við Lithauga.
BEIRÚT — Kristnir menn
berjast nú hatrammlega í
fjöllunum austur af Beirút og
eru bardagarnir þeir hörðustu
í mánuð.
HONG KONG — Hundruð
manna voru handtekin á
portúgölsku nýlendunni
Macau, sem liggur rétt við
Hong Kong og Kína, eftir að
átök brutust út milli ólöglegra
innflytjenda.
PRAG — Upp hafa komið
deilur milli Tékka og Slóvaka
um það hvað kalla skuli ríkið
Tékkóslóvakíu eftir að
kommúnismanum var kastað
fyrir róða þar á bæ.
LYON — Franskir gyðingar
hafa keypt afskekkt bónda-
býli þar sem gestapóforing-
inn Klaus Barbie handtók 44
gyðingabörn er síðar létu lífið
í útrýmingarbúðum nasista í
Auschwitz.
AUSTUR-BERLÍN — Sífellt
fleiri sögur heyrast nú um
grimmdarverk öryggislög-
reglu Stalíns í Austur- Þýska-
landi á eftirstríðsárunum eftir
að tvær fjöldagrafir fundust
og fólk á ekki á hættu að fá
heimsókn frá hinni illræmdu
Stasi öryggislögreglu ef það
leysir frá skjóðunni um
grimmdarverkin.
PEKING — Hermenn sem
sérþjálfaðir eru til að takast á
við hryðjuverkamenn eru nú
komnir til Peking þar sem
undirbúningur fyrir Asíuleik-
ana, sem fram fara í septem-
ber, er í fullum gangi. Þá hef-
ur lögreglan aukið
öryggisvörslu til að koma í
veg fyrir mótmælafundi
námsmanna.
IUTLOND
Verkamannaflokkurinn í Ástralíu
hélt velli í þingkosningunum sem
fram fóru þar í landi um helgina.
Mun Bob Hawke, formaöur flokks-
ins, því verða áfram forsætisráðherra
Ástralíu, en Andrew Peacock, for-
maður Frjálslynda flokksins, sem
leiddi kosningabandalag flokksins og
Þjóðarflokksins, hefur sagt af sér for-
mennsku.
Mjótt var á mununum í kosningun-
um eins og hafði verið alla kosninga-
baráttuna sem var mjög hatrömm.
Hægri menn höfðu gert sér vonir um
að komast til valda eftir þriggja kjör-
tímabila stjóm Verkamannaflokks-
ins, en sú von brást.
Ekki er að fullu ljóst hve marga
þingmenn Verkamannaflokkurinn
hlaut, en að líkindum er aðeins
tveggja þingsæta munur á flokknum
og kosningabandalagi Frjálslynda
flokksins og Þjóðarflokksins. Hefur
hann því tapað tuttugu þingsætum frá
því í kosningunum árið 1987.
Peacock skýrði frá ósigri sínum á
sérstökum blaðamannaíundi í gær og
sagðist mundi tilkynna skuggaráðu-
neyti sínu afsögn sína á fyrsta þing-
flokksfiindi.
Bob Hawke, forsætisráðherra Ástralíu, fagnar fjórða kosningasigri Verkamannaflokksins undir hans stjóm,
ásamt Hazel eiginkonu sinni.
Peacock hefur verið harðlega gagn- hafa komið sér hjá því að segja ist takast á við skuldabagga og við-
rýndur í kosningabaráttunni fyrir að hvemig skuggaráðuneyti hans hygð- skiptahalla Ástralíu.
Verkamannaflokkurinn
í Ástralíu hélt velli
Blökkumannaleiðtogarnir Nelson Mandela og Mongosuthu Buthelezi
hittast í fyrsta sinn:
Ræða blóðug átök
Zúlúmanna í Natal
Tveir áhrifamestu blökkumannaleið-
togar Suður-Afríku, þeir Nelson
Mandela leiðtogi Afríska þjóðarráðs-
ins og Mancosuthu Buthelezi Ieið-
togi Inkatha hreyfingarinnar í Natal-
héraði, ætla nú að hittast og ræða
leiðir til að stöðva innbyrðis átök
Zúlumanna í Natal.
Blóðug átök undanfama tvo daga,
A-Þýskaiand:
Samsteypu-
stjórn í
deiglunni
Samsteypustjóm kosningabanda-
lags hægri manna og Jafnaðar-
mannaflokksins er nú í deiglunni í
Austur-Þýskalandi. Viðræður
milli leiðtoga þessara aðila hófú
stjómarmyndunarviðræður í gær
og er gert ráð fyrir að ný rikis-
stjóm verði mynduð á breiðum
gmndvelli fyrir miðjan aprilmán-
uð.
í fyrstu neituðu jafnaðarmenn að
taka þátt í samsteypustjóm með
hægri mönnum, en nú hefúr orðið
stefnubreyting þar á bæ.
Stjómarmyndunarviðræður þess-
ar falla nokkuð í skuggann af
þeirri staðreynd að einhverjir
hinna nýkjömu þingmanna þess-
ara flokka vom að líkindum á
mála hjá hinni illræmdu Stasi.
Vegna mikils þrýstings almenn-
ings hefúr þingið ákveðið að
greiða atkvæði um það hvort rann-
saka skuli bakgrann allra þing-
manna í Volkskammer með tengsl
við Stasi í huga eða ekki.
þar sem átján manns hafa fallið og
hundmð manna orðið heimilislausir,
urðu til þess að mælirinn fýlltist og
Ieiðtogamir ákváðu að reyna ná sam-
komulagi eftir samningaleiðinni. Á
þriðja þúsund manns hafa fallið í irin-
byrðis átökum Zúlúmanna í Natal
undanfarin þrjú ár. Greinir Zúlúmenn
á um það hvemig binda eigi enda á
aðskilnaðarstefnuna í Suður- Afríku.
Inkathahreyfingin vill halda í ættar-
veldi og hefðir Zúlúmanna í eigin
heimalandi, óháð öðmm hlutum Suð-
ur-Afríku, og hins vegar vinstri sinn-
uð samtök er tengjast Afríska þjóðar-
ráðinu sem berjast fyrir sameinaðri
Suður- Afríku án heimalandanna.
16 falla í
Srinagar
Að minnsta kosti sextán manns, flestir
óbreyttir borgarar, féllu í skotbardög-
um indverskra herlögreglumanna og
skæruliða múslíma í Srinagar í Ka-
smírhéraði í gær. Skotbardagar brutust
út á að minnsta kosti sjö stöðum í
þessari fomu borg. I það minnsta sex
herlögreglumenn og sex óbreyttir
borgarar særðust alvarlega að auki.
Átökin bruúrst út í byijun fjögurra
klukkustunda tímabils þar sem fólki er
leyft að vera á ferli í boiginni, en ann-
ars ríkir algert útgöngubann í Srinagar.
Réðust vopnaðir skæruliðar Þjóðfrels-
isfýlkingar Jammu og Kasmir á varð-
stöðvar herlögreglu. í yfirlýsingu
þeirra kom ffam að á meðal árasar-
mannanna væru tólf skæruliðar sem
flúðu úr fangelsi um helgina.
Armenía:
Byggja nýja borg
fyrir fórnarlömb
jarðskjálftanna
Stjómvöld í Armeníu munu hefja bygg-
ingu nýrrar borgar sem hýsa skal stóran
hluta fómarlamba jarðskjálftanna miklu
í Armeníu. Borgin, sem hljóta skal nafn-
ið Europolis, mun hýsa 200 þúsund
manns, en alls urðu 700 þúsund manns
heimilislausir i jarðskjálftunum miklu.
Europolis mun verða byggð 40 km suð-
írakar:
Neita smygltilraun
íröksk stjómvöld hafa neitað þvi
staðfastlega að eiga nokkum þátt í
smygltilraun þriggja starfsmanna ír-
akskra ríkisflugfélagsins sem hand-
teknir vom á Heathrowflugvelli
með tæknibúnað sem nauðsynlegur
er til þess að koma af stað kjam-
orkusprengju.
Hins vegar fullyrðir ritstjóri her-
málaritsins Jane’s Defence Weekly
að írakar verði búnir að framleiða
kjamorkusprengju innan fimm ára.
austur af Jerevan, höfúðboig Armeníu,
utan virkustu jarðaskjálftasvæðanna í
Armeníu. Er gert ráð fýrir að það taki tíu
ár að byggja borgina og munu frarn-
kvæmdir hefjast 7.desember, tveimur ár-
um eftir að jarðskjálftamir miklu dundu
yfir Armena með þeim afleiðingum að
minnsta kosti 25 þúsund manns fórust.
Engar byggingar munu verða hærri en
þriggja hæða í þessari framtíðarborg.
Alþjóðasamtök munu leggja fram 500
milljónir dollara til að reisa boigina og
mun Hollendingurinn Robert Nieland
verða verkefnisstjóri.
-Þetta er ömggasta svæðið í Armeníu,
sagði Nieland á blaðamannafúndi er
haldinn var í gær vegna þessa máls.