Tíminn - 30.03.1990, Side 8
8 Tíminn
Föstudagur 30. mars 1990
Föstudagur 30. máré 1990
Tíminn 9
Listahátíð í Reykjavík 1990 fer fram dagana 2. til 16. júní:
List dreift um götur og garða
Listahátíð í Reykjavík verður haldin dagana
2. til 16. júní næstkomandi. Þetta er í cllefta
sinn sem Listahátíð í Reykjavík er haldin, en
um svipað leyti verða liðin tuttugu ár frá því að
fyrsta Listahátíðin var sett, 20. júní 1970. Heið-
ursgestur Listahátíðar að þessu sinni er afríski
rithöfúndurinn Wole Soyinka, sem hlaut bók-
menntaverðlaun Nóbels 1986.
Það hefúr verið yfirlýst markmið Listahátíð-
ar að kynna alþjóðlega, norræna og íslenska
listsköpun. Á þeirri Listahátíð sem fram fer í
sumar eru sautján atriði sem telja má alþjóðleg,
þijú norræn atriði og íslensku atriðin eru sautj-
án talsins. Af þessum þrjátíu og sjö atriðum eru
um tuttugu og fimm þeirra að öllu leyti eða að
hluta á vegum Listahátiðar, en önnur atriði telj-
ast hluti af dagskrá hátíðarinnar, þó til þeirra sé
stofnað af öðrum aðilum.
Samkvæmt kostnaðaráætlun sem gerð hefur
verið er áætlað að kostnaður við Listahátíð í
Reykjavík 1990 verði á bilinu 25 til 30 milljón-
ir króna. Ríki og Reykjavíkurborg veita til
Listahátíðar á þessu ári 7 milljónum króna hvor.
Að auki munu íyrirtæki styrkja hátíðina á einn
eða annan hátt. Aðgangseyrir á síðan að koma
til grciðslu á því sem eftir stendur, en gert er ráð
fyrir að miðaverð á einstaka atriði verði á bilinu
1000 til 2000 krónur. Inga Björk Sólnes, fram-
kvæmdastjóri Listahátíðar, sagðist ekki telja að
verið sé að taka of mikla áhættu hvað kostnað-
inn varðar. „Ég held að við endum með að hafa
þetta innan velsæmismarka," sagði Inga Björk.
Ef litið er á megindrætti þeirrar dagskrár
sem Listahátíð býður upp á að þessu sinni,
kemur í ljós að hlutur erlendrar leiklistar verður
veglegur. Hingað til lands koma þrjú útlend
leikhús sem eiga það sameiginlegt að sýningar
þeirra byggjast mikið á hreyfingum, sviðsbún-
aði og tónlist, en síður á flutningi texta. Þessi
skipan ætti þvi ekki að valda Islendingum veru-
legum tungumálaerfiðleikum. Leikhópar þessir
koma frá Póllandi, Finnlandi og Hollandi.
Sá leikhópur sem kemur frá Kraká í Pól-
landi heitir Cricot 2 og hefur á að skipa um þijá-
tíu leikurum, undir stjóm Tadeusz Kantor. Sýn-
ingar leikhópsins á leikritinu „Ég kem ekki
aftur“ verða í Borgarleikhúsinu 5. og 8. júní. í
tengslum við uppfærsluna verður væntanlega
sýning á teikningum eftir Kantor og ferill hans
og fyrri verk kynnt á myndbandi. Frá Finnlandi
kemur Lilla Teatem. Leikhópurinn hefúr áður
sýnt á Listahátíð hér á landi og er einn Islend-
ingur þar á meðal leikenda, Borgar Garðarsson.
Leikritið heitir Leikhús Nikitas eftirlitsmanns
og verður það sýnt í íslensku óperunni 3. og 4.
júní. Þriðji leikhópurinn, „Mexíkanskur hund-
ur“, ffá Hollandi verður með leiksýninguna
Norðurbærinn. Þar blandast saman rokktónlist,
leikur sviðsmynd, lýsing og alls kyns uppátæki
önnur. Sýningar þessa hóps verða 15. og 16.
júní.
Sem fyrr er sígild tónlist burðarás í dagskrá
Listahátíðar og koma þar við sögu bæði inn-
lendir og útlendir flytjendur. Listahátíð bendir á
að í heild er meðalaldur flytjenda almennt ekki
ýkja hár og þrátt fyrir að flestir hinna væntan-
legu listamanna séu ungir að ámm, þá hafi þeir
getið sér gott orð á alþjóðlegum vettvangi. Má
þar m.a. nefna rússneska píanóleikarann Andrej
Gavrilov sem leika mun á tónleikum með Sin-
fóníuhljómsveit íslands 2. júní. Þá mun einhver
efnilegasta sópransöngkona, ítalska stúlkan Fi-
amma Izzo d’Amico, syngja á tónleikum með
Sinfóníuhljómsveitinni og kór íslensku óper-
unnar þann 7. júní. Vínardrengjakórinn verður
einnig á meðal þeirra sem halda tónleika á
Listahátíð. Tvennir tónleikar með Vínar-
drengjakómum verða í Reykjavík dagana 3. og
4. júní, en að auki syngur kórinn á Akureyri
þann 2. júní. Hér em aðeins taldir upp nokkrir
af þeim flytjendum klassískrar tónlistar sem
koma fram á hátíðinni.
Af islenskri tónlist verður einnig nokkuð.
Við opnun Listahátíðar í Borgarleikhúsinu
frumflytur Sinfóníuhljómsveitin tónverk eftir
Lcif Þórarinsson og þann 6. júní verður dagskrá
helguð Magnúsi Blöndal Jóhannessyni. Þá mun
Mótettukórinn undir stjóm Harðar Áskelssonar
flytja fimm mótettur eftir Bach í Langholts-
kirkjuþann 10. júní.
Eflir
Agnar
Óskarsson
Það sem einkanlega vekur athygli er að ekki
em famar troðnar slóðir, þegar komið er að
djass og dægurtónlist á hátíðinni. Djassinn
kemur að þessu sinni frá Sovétríkjunum og
dægurtónlistin frá Frakklandi, auk þess kemur
17 manna hljómsveit frá Afríku sem fært hefúr
sér tækni Vesturlanda í nyt og býður upp á
„tæknivædda Aftíkutónlist". Á síðustu Listahá-
tíðum hefur að jafhaði verið boðið upp á þekkt-
ari hljómsveitir, en af því verður ekki nú.
Ástæðan er fyrst og fremst kostnaður sem því
fýlgir. Egill Helgason, blaðafúlltrúi Listahátíð-
ar, sagði að þessi mál hafi verið könnuð og þeir
kostir sem í boði hafi verið þóttu ekki fýsilegir,
m.a. í ljósi þess að á síðustu Listahátíð varð
mikið tap á popptónleikunum sem þá vom
haldnir. Þess ber að geta að tónleikar frönsku
hljómsveitarinnar og þeirrar aftísku fara fram á
Hótel Islandi sem hefúr í för með sér að aldur-
stakamark verður í fullu gildi og því hafa ung-
lingar ekki tækifæri á að heyra í þessum hljóm-
sveitum.
Af dansi á Listahátíð verður líklega eitthvað
fyrir alla. Helgi Tómasson og San Francisco
ballettinn munu halda tvær sýningar. Ráðist
hefúr verið í að kaupa til landsins sérstakt dans-
Leikhópurinn Cricot 2 frá Kraká í Póllandi heldur tvær sýningar hér á landi á vegum Listahátíðar. Leikritið heitir „Ég kem ekki aftur“.
gólf, þar sem hér á landi er ekki til neitt dans-
gólf sem fullnægir gæðakröfúm atvinnudans-
ara, hvað mýkt varðar. Dansgólfið er keypt af
Listahátíð og Islenska dansflokknum og er um
„faranddansgótf* að ræða, sem hægt er að setja
upp svo til hvar sem er. Fyrir bömin efhir Is-
lenski dansflokkurinn til sérstakrar sýningar og
Maria Gísladóttir, aðaldansari við Richmond
ballettinn í Bandaríkjunum, mun dansa við opn-
un Listahátíðar.
Ur heimi myndlistar og höggmynda verður
einnig margt á boðstólum. Eitt það athyglis-
verðasta er að myndhöggvarinn Richard Serra
ætlar að setja upp landslagsverk úr íslensku
stuðlabergi sem staðsett verður á norðvestur-
hluta Viðeyjar. Listaverkið sem samanstendur
af 18 stuðlabergssúlum er gjöf listamannsins,
en sett er það skilyrði að stofnaður verði sjóður
til styrktar ungum íslenskum myndhöggvurum.
Fjöldi myndlistarsýninga verður í sýninga-
sölum víðs vegar í Reykjavík. Sem dæmi má
nefna að á Listasafhi íslands verður sett upp
sýning á verkum franska málarans André Mass-
ons og á Kjarvalsstöðum verður yfirlitssýning
íslenskrar höggmyndalistar. Það sem eflaust á
eftir að koma fólki mest á óvart er sérstök sýn-
ing sem Nýlistasafnið stendur fyrir í görðum og
á götum úti I Þingholtunum. Þessi sýning sem
gerð er í samvinnu við íbúa í Þingholtunum er
liður í að færa listina úr sýningasölum út undir
bert loft. Listamönnunum eru lítil takmörk sett
og má því búast við fjölbreyttum uppákomum,
gjömingum, höggmyndum, dansi og tónlist í
Þingholtunum á meðan Listahátíð stendur yfir.
Þá daga sem Listahátíð fer fram verður efnt
til svokallaðrar Grasrótarhátíðar, þar sem sköp-
unarkraftur, lýðræði og veður verða allsráðandi.
Grasrótarhátíðin fer fram í miðbæ Reykjavíkur,
í Austurstræti, á Lækjartorgi, í garði Hressing-
arskálans og innandyra í Café Hressó. Þeir sem
leið eiga um stræti og torg hátíðardagana mega
því eiga von á hljóðfæraslætti, dansi, ljóðalestri,
leik og söng.
Sérstök bamadagskrá verður í Gerðubergi,
sem byggirað mestu leyti á sumamámskeiðum
sem halda cru undir yfirskriftinni „Gagn og
gaman". Gert er ráð fyrir að bömin verði sjálf
flytjendur og skaparar, en ekki þiggjendur.
Fiamma Izzo d'Amico, sópransöngkona
Yuzoko Horigome, fiðluleikari
Helgi Tómasson, balletdansari
Gunter Schuller, hljómsveitarstjóri
María Gísladóttir, dansari
Leifur Þórarinsson, tónskáld
Tadeuz Kantor, leikhúsmaður