Tíminn - 30.03.1990, Síða 10

Tíminn - 30.03.1990, Síða 10
10 Tíminn, Föstudagur 30. mars 1990 Tilkynning um fflgatnagerðargjöld 'I/í Reykjavík Að gefnu tilefni er vakin athygli á ákvæðum reglugerðar nr. 511, 1988 varðandi gatnagerðar- gjöld í Reykjavík og breytingu á þeim, sem verður 1. júlí 1990. Til 1. júlí n.k. ber samkvæmt reglugerðinni að greiða hálft gatnagerðargjald af nýbyggingum og stækkunum húsa á eignarlóðum og leigulóðum, sem borgarstjórn Reykjavíkur úthlutaði fyrir 4. maí 1984, nema sérstakir samn- ingar leiði til annars. Grundvöllur gatnagerðar- gjalds er samþykkt byggingarnefndar á teikningum og miðast ofangreint því við, að teikningar af nýbyggingum eða stækkun húsa hafi verið sam- þykktar í byggingarnefnd Reykjavíkur fyrir 1. júlí 1990. Eftir þann dag ber að greiða fullt gatnagerð- argjald af byggingum á öllum lóðum í Reykjavík, sem ekki eru sérstaklega undanþegnar með samningum eða á annan hátt. Athygli er vakin á því, að því fyrr, sem teikningar eru lagðar fyrir byggingarnefnd, er líklegra, að unnt verði að afgreiða þær fyrir 1. júlí n.k. Borgarstjórinn í Reykjavík. F.h. Innkaupanefndar sjúkrastofnana o.fl. er óskaö eftir tilboöum í eftirfarandi: 1. Bleiur fyrir börn og fullorðna. 2. Undirlegg. 3. Dömubindi. 4. Fæöingabindi. Útboösgögn eru afhent á skrifstofu vorri Borgartúni 7, Reykjavík qeqn greiöslu kr. 500,- Tilboð veröa opnuð á sama stað þriðjudaginn 26.04. 1990 í viðurvist viðstaddra bjóðenda. INIMKAUPASTOFIMUIM RÍKISINS ________BORGARTUNI 7. 105 REYKJAVIK Kl' TRYGGINGASTOFN U aiJ RÍKISINS Breyttur afgreiðslutími Frá aprílmánuði 1990 verður afgreiðsla vor í Tryggvagötu 28 opin frá kl. 8.15 til 15.00 daglega. DAGBÓK Leikstjóri og leikarar á æfingu NFFA á gamanleikritinu IMYNDUNARVEIKINNI. ffL—1 FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ Á AKUREYRI Staða reynds aðstoðarlæknis við geðdeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri er laus til umsóknar. Staðan veitist frá 1. jún í 1990. Umsóknarfrestur er til 20. apríl 1990. Umsóknum, ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf, sendist yfirlækni deildarinnar, Sigmundi Sigfússyni,semjafnframtveitirnánari upplýsingar. Viljum ráða í stöðu hjúkrunarfræðings á 10 rúma lyflækningaeiningu, sem opin er frá mánudegi til föstudags. Á einingunni fer fram hjúkrun sjúklinga með meltingarfærasjúkdóma og annarra, sem þurfa skamma innlögn. Um er að ræða 80% starf og er æskilegt að viðkomandi geti hafið starf í byrjun apríl. Nánari upplýsingar gefur Sonja Sveinsdóttir, hjúkr- unarframkvæmdastjóri. Laus er til umsóknar 50% staða læknafulltrúa I við gjörgæsludeild. Umsóknir sendist skrifstofustjóra F.S.A., Vigni Sveinssyni, fyrir 10. apríl nk. Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri sími 96-22100. - Cl AiriTCCT A rkvnngg ■ m ni- | Keflavík Fundur verður um kosningastarfið laugardaginn 31. mars kl. 11.00 í Félagsheimilinu, Hafnargötu 62. Allir velkomnir. Stjórnin. AUGLÝSING UMINNLAUSNARVERÐ VERÐTRYGGÐRA SPARISKÍRTEINA RlKISSJÓæ FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* ÁKR. 100,00 1980-1. fl. 15.04.90-15.04.91 kr. 2.598,14 ‘Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbót. Innlausn spariskírteina ríkissjóðs ferfram í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þarjafnframt frammi nánari upplýsingar um skírteinin. Reykjavík, mars 1990 SEÐLAB ANKIÍSLANDS /----------------------S Gód rád eru tíhi ím eftír þeim! Eftir einn -ei aki neinn Það er þetta með bilið milli bíla... Leikklúbbur Nemendafélags Fjölbrauta- skóla Vesturlands á Akranesi sýnir: ÍMYNDUNARVEIKINA eftir Moliére Laugardagskvöldið 31. mars kl. 20:30 frumsýnir Listaklúbbur Nemendafélags Fjölbrautarskóla Vesturlands á Akranesi (NFFA) gamanleikritið ÍMYNDUNAR- VEIKINA eftir franska leikritaskáldið Moliére. Leikstjóri er Helga Braga Jónsdóttir og yfirumsjón með búningum og leikmynd hefur Helena Guttormsdóttir. Forstöðumenn sýningarinnar segja: „Uppsetningin er frábrugðin öðrum upp- setningum á þessu leikriti að því leyti, að við höfum kosið að halda okkur ekki við neinn tíma, og því er „tímaleysi" ráð- andi.“ Þetta er 11. uppsetning NRRA og er áhugi á leiklist mikill í skólanum. Alls hafa um 40 manns staðið að uppsetningu verksins, sem er vönduð í alla staði. Frekari upplýsingar og miðapantanir eru í síma 93 - 12744 eftir kl. 18:00 sýningardagana. Fyrstu þrjársýningar á ímyndunarveik- inni eru: Frumsýning: laugardag 31. mars 2. sýning mánud. 2. apríl og 3. sýning þriðjud. 3. apríl. Allar þessar sýningar eru kl. 20:30. Fundur Kvenfélags Háteigssóknar Kvenfélag Háteigssóknar heldur fund þriðjudaginn 3. apríl kl. 20:30 í Sjó- mannaskólanum. Gestur fundarins verð- ur biskupsfrúin Ebba Sigurðardóttir og mun hún segja frá ferð þeirra hjóna sl. haust til Brasilíu. Þá verða kaffiveitingar. Ulli og Jonni í Logskeranum eru leiknir af Hjálmari Hjálmarssyni og Steini Ármanni Magnússyni Örleikhúsið sýnir L0GSKERANN á Hótel Borg Örleikhúsið sýnir um þessar mundir leikritið Logskerann eftir Svíann Magnús Dahlström, en frumsýning fór fram á Litla-Hrauni fimmtud. 29. mars. Örleikhúsið er atvinnuleikhópur sem stofnaður var í janúar sl. Aðstandur Logskerans eru: Finnur Magnús Gunn- iaugsson, leikstjóri, Hjálmar Hjálmars- son og Steinn Ármann Magnússon, leikarar, Alma Guðmundsdóttir fram- kvæmdastjóri og Kjartan Árnason, þýð- andi leiksins. Leikmynd gerði Kristín S. Reynisdóttir, skúlptúrlistamaður. Logskerinn (Skárbrannaren) var sam- inn 1985 í tengslum við leikritasamkeppni Fria Pro leikhússins í Svíþjóð og hlaut þar fyrstu verðlaun sem besta frumraun. Logskerinn hefur verið settur upp víða á Norðurlöndum, bæði sem vinnustaðasýn- ing og á sviði. Leikritið hefur einnig verið flutt í sænska sjónvarpinu. Örleikhúsið sýnir Logskerann á Hótel Borg þriðjudags- og fimmtudagskvöld út leikárið. fdag, föstud. 30. mars verður 2. frumsýning í hádeginu á Hótel Borg. Frá 14. apríl verða hádegissýningar þar virka daga kl. 12:00 með léttum hádegisverði. Sýningartími er um 45 mínútur. Kvöldsýningar verða í samvinnu við Bjartmar Guðlaugsson, alþýðuskáld, sem mun flytja sérstaka tónlistardagskrá að lokinn leiksýningu. Samtímis verður verkið sýnt á vinnu- stöðum. Seinna verður farin leikför í alla landsfjórðunga. Skemmtikvöld Félags eldri borgara í Kópavogi Félag eldri borgara í Kópavogi heldur skemmtikvöld föstudaginn 30. mars í Félagsheimili Kópavogs og hefst það kl. 20:00. Spiluð verður félagsvist, hálft kort, en síðan verða gamanmál: tónlist og dans til miðnættis. Skemmtinefndin Ráðstefna um hlutverk háskólans í umhverfismálum Föstud. 30. mars kl. 13:45 verður haldin í Odda, húsi Háskóla íslands, ráðstefnan Hlutverk háskólans í umhverf- ismálum. Jafnframt verða verkefni og starfsemi hins nýja umhverfisráðuneytis kynnt og rætt um með hvaða hætti háskólinn með rannsóknum sínum getur orðið ráðuneytinu að liði í störfum þess. Rektor Háskóla íslands, Sigmundur Guðbjarnason prófessor, flytur ávarp og Júlíus Sólnes umhverftsráðherra ræðir um umhverfísráðuneytið og starfsemi þess. Sex fyrirlesarar frá háskólanum skýra hver verkefni háskólans eru og hafa verið á sviði umhverfismála. Einnig verður rætt hvert þjónustur og rannsóknarhlutverk háskólans getur orðið á þessu sviði í framtíðinni.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.