Tíminn - 30.03.1990, Síða 14
14 Tíminn
Föstudagur 30. mars 1990
Eyfirðingar
Konur og sveitarstjórnarmál
Fundurá Hótel KEA laugardaginn 31. mars nk. kl. 15.00.
Frummælendur: Unnur Stefánsdóttir, formaöur Landssambands
framsóknarkvenna. Valgerður Sverrisdóttir, alþingismaöur. Úlfhildur
Rögnvaldsdóttir, bæjarfulltrúi á Akureyri. Guðlaug Björnsdóttir, bæjar-
fulltrúi á Dalvík. Kolbrún Þormóösdóttir, varabæjarfulltrúi á Akureyri.
Að framsöguerindum loknum fara fram almennar umræður.
Konur fjölmennum.
Framsóknarkonur við Eyjafjörð
i
Inga Þyrí
Kjartansdóttir
Viðtalstími LFK
Inga Þyrí Kjartansdóttir, 2. maður á lista framsóknarmanna í
Kópavogi, verður til viðtals föstudaginn 30. mars n.k. kl. 12 til 13 í
Nóatúni 21.
Allir velkomnir.
LFK
Hafnarfjörður - Kosningaskrifstofa
Kosningastarfið í fullum gangi.
Opið hús að Hverfisgötu 25 alla virka daga milli kl. 17 og 19,
laugardaga frá kl. 10 til 13.00. Sími 51819.
Allir velkomnir, alltaf heitt á könnunni.
Framsóknarfélögin
Keflavík - Fram-orðið
Frambjóðendur flokksins til bæjarstjórnarkosninganna verða til viðtals
á hverju kvöldi fram að kosningum að Hafnargötu 62, Keflavík.
Keflvíkingar eru hvattir til að koma og kynna sér stefnu flokksins og
ræða málin.
Frambjóðendur
Kópavogur - Framsóknarvist
Framsóknarvist verður spiluð að Hamraborg 5, Kópavogi sunnudag-
inn 1. apríl n.k. kl. 15.00. Góð verðlaun karla og kvenna.
Fyrsti dagur í þriggja daga keppni.
Mætum vel og stundvíslega.
Framsóknarfélögin í Kópavogi
Skrifstofa kjördæmissambands
framsóknarmanna á Vestfjörðum
Skrifstofa kjördæmissambands Framsóknarmanna á Vestfjörðum,
Framsóknarfélags ísafjarðar og ísfirðings að Hafnarstræti 8 á ísafirði
verður fyrst um sinn opin frá mánudegi til föstudags frá kl. 13 til kl.
17. Síminn er 94-3690.
Kjördæmissamband Framsóknarfélaganna á Vesturlandi:
Ráðstefna
um sveitarstjórnarmál
Borgarnesi 31. mars 1990
1. Kl. 10.00 Ráðstefnan sett
Erna Einarsdóttir, formaöur KSFV.
2. Kl. 10.10 Kosningaundirbúningurinn
Eiríkur Valsson,.Reykjavík.
Kl. 10.30 Fyrirspurnir.
3. Kl. 10.45 Staöa Framsóknarfiokksins í kjördæminu
og sveitarstjórnarkosningarnar 1990.
Guðmundur Guðmarsson, Borgarnesi.
4. Kl. 11.00 Umræðuhópar um undirbúning fyrir sveita-
stjórnarkosningarnar 1990.
Kl. 12.00 Hádegisverður.
5. Kl. 12.30 Verkaskipting ríkis og sveitarfélaga
Alexander Stefánsson, alþingismaður.
6. Kl. 12.45 Fjórmál og fjórfestingar sveitarfélaga
Ingibjörg Pálmadóttir, Akranesi.
Kl. 13.00 Fyrirspurnir.
7. Kl. 13.20 Hópstarf.
8. Kl. 15.10 Framsögur úr umræðuhópunum.
Kl. 15.40 Fyrirspurnir og umræður.
Kl. 16.00 Ráðstefnuslit.
Alllr stuðningsmenn velkomnir.
Illlllllllllllllllllllllllll MINNING llllllllllllllllllllllllllllllll
Guðrún Jónasdóttir
Ólafur, bóndi í Litla-Dal, fæddur
21. desemberárið 1892, dáinn 1936,
kvæntur Hallfríði Björnsdóttur frá
Bessastöðum í Miðfirði. Þriðja í
systkinaröðinni var Guðrún, þá Sig-
urbjörg, fædd 6. ágúst 1895. Hún var
lengst af heima í Litla-Dal eða
þangað til Ólafur bróðir hennar dó,
en eftir það réðst hún sem ráðskona
að Stóru-Giljá í Þingi. Nú dvelst hún
á Héraðshælinu á Blönduósi. Yngst
af systkinunum var Ásta, fædd 10.
júlí 1904.
Guðrún gekk í Kvennaskóiann á
Blönduósi um tvítugsaldur og eftir
það fékkst hún nokkuð við barna-
kennslu en lengst af var aðalatvinna
hennarsaumaskapur. Árið 1941 flyst
Guðrún til Reykjavíkur. Er hún þá
komin til sæmilegrar heilsu. Þar búa
þær Ásta systir hennar saman í
næstum 50 ár. í fyrstu búa þær í
leiguíbúðum en árið 1953 ráðast þær
í að kaupa íbúð. Fyrst í Þverholti 18
en síðan á Grettisgötu 55.
Árin þeirra systra í Reykjavík
hafa verið góð. Heimili sitt ráku þær
af rausn og myndarskap. Voru þær
mjög félagslyndar og höfðu þær
gaman af að umgangast fólk. Guð-
rún var mjög söngvin, hafði góða
söngrödd og spilaði á orgel og
kenndi nokkuð að spila á það hljóð-
færi. Hún fylgdist vel með þjóðmál-
um og hafði ákveðnar skoðanir.
Börn eignaðist Guðrún ekki en
bræðrabörnum sínum reyndist hún
frábærlega vel og börnum þeirra var
hún sem besta amma.
Að síðustu get ég þess að Guðrún
var heittrúuð kona og veit ég að hún
á góða heimvon. Að lokum vil ég
þakka þessari frænku minni alla þá
vináttu og tryggð sem hún hefur
auðsýnt mér og fjölskyldu minni í
gegnum árin sem við höfum átt
saman.
Elín Ólafsdóttir
DACUR JARÐAR 22. APRÍL
Móðirjörðáundir
högg að sælqa
Átt þú góða hugmynd sem getur nýst henni?
Umhverfisvernd skiptir meira máli nú en nokkru sinni fyrr.
Ef maðurinn heldur áfram að misnota jörðina mun hann á endanum
gera hana óbyggilega.
Við þurfum að snúa vörn í sókn - með sameiginlegu átaki. Til þess þarf
góðar hugmyndir. Því hefur umhverfismálaráð Reykjavíkurborgar
ákveðið að setja á stofn hugmyndabanka vegna „DAGS JARÐAR“,
alþjóðlegs umhverfisverndardags 22. apríl næstkomandi. Þar gefst
borgarbúum tækifæri til að koma á framfæri hugmyndum sínum,
tillögum og ábendingum um úrbætur sem geta orðið til að bæta
umhverfi okkar.
Með hugmyndabankanum vill umhverfismálaráð Reykjavíkur kalla á
jákvæðar og framsýnar hugmyndir um úrbætur í nánasta umhverfi
borgarbúa. Umhverfismálaráð mun fara ítarlega yfir allar tillögur sem
skilað verður í hugmyndabankann og hrinda í framkvæmd eftir því sem
kostur er og nánar verður ákveðið.
Hugmyndum og tillögum skal skila fyrir 22. apríl merktum:
Dagur jarðar
Hugmyndabanki
Skúlatúni 2,
105 Reykjavík.
|J| UMHVERFISMÁLARÁÐ REYKJAVÍKUR
Fædd 22. nóvember 1893
Dáin 23. mars 1990
í dag er til moldar borin Guðrún
Jónsdóttir frá Litla-Dal. Hún var
fædd að Ásum í Svínavatnshreppi,
Austur-Húnavatnssýslu. Guðrún
var dóttir hjónanna Elínar Ólafs-
dóttur frá Guðrúnarstöðum í
Vatnsdal og Jónasar B. Bjarnasonar
frá Þórormstungu í sömu sveit. Á
þeim árum lá ekki jarðnæði á lausu
í Vatnsdal þar sem foreldrar Guð-
rúnar hefðu helst viljað búa svo þau
fluttu austur í Svínavatnshrepp vorið
1892. Þá um veturinn, þann 22.
nóvember fæddist þeim hjónum
dóttirin Guðrún sem kvödd er í dag.
Eins og sjá má er vegferð litlu
stúlkunnar orðin löng, en lífshlaup
hennar var einnig giftusamlegt. Þó
bar töluverðan skugga á þau árin
sem Guðrún var um þrítugt og fram
eftir fertugsaldri. Hún átti við heilsu-
leysi að stríða og þurfti að dvelja á
sjúkrahúsi árum saman. Æskuár
Guðrúnar munu hafa verið góð,
enda var fjölskyldan samhent. Móð-
ir Guðrúnar var góður fulltrúi hús-
mæðra í sveitum landsins á fyrstu
áratugum aldarinnar. Jónas faðir
hennar var greindur maður og fé-
lagslyndur. Hafði hann aflað sér
meiri menntunar en almennt gerðist
um bændasyni þeirra tíma. Stundaði
hann nám í Flensborg í Hafnarfirði.
Árið 1906 flutti fjölskyldan að Litla-
Dal í Svínavatnshreppi og var löng-
um kennd við þann bæ.
Systkini Guðrúnar voru Bjarni,
fæddur árið 1891, lengi kennari,
bóndi og ættfræðingur í Blöndudals-
hólum í Austur-Húnavatnssýslu,
kvæntur Önnu Sigurjónsdóltur;
Reykjavík
Létt spjall á laugardegi
lllf
Finnur
Ingólfsson
Finnur Ingólfsson mun ræða kosningaundirbúninginn
í vor laugardaginn 31. mars n.k. kl. 10.30 í Nóatúni 21
Allir á framboðslista framsóknarmanna í Reykjavík
mæta á fundinn. Allir velkomnir
Fulltrúaráðið.