Tíminn - 30.03.1990, Side 16
AUOLÝSINOASÍMAR: 680001 — 686300 |
RfKlSSKiP
NÚTÍMA FLUTNINGAR
Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu.
S 28822
PÓSTFAX Ét»o'BILAsr0
TÍMANS ÞRðSTUR
687691 685060
VANIR MENN
Tíniinn
FÖSTUDAGUR 30. MARS 1990
Bjartari horfur í efnahagsmálum var yTirskríftin á flölmennum fundi Framsóknarfélags Reykjavíkur á
Hótel Sögu í gærkvöldi. Steingrímur Hermannsson var aðalræðumaður kvöldsins og kom víða við í máli
sínu, en rauði þráðurínn í málflutningi hans var þó þau straumhvörf í efnahagsmálum sem orðið hafa í tíð
núverandi ríkisstjómar. Forsætisráðherra benti þó á að þótt horfumar væm góðar yrðu menn að vera á
varðbergi gagnvart þenslu, sem auðveldlega gæti stefnt efnahagslegum stöðugleika í tvísýnu. Nánar verð-
ur fjallað um fundinn í blaðinu á morgun. Tímamynd: Ámi Bjama
Ekkert samkomulag í sjónmáli milli ísals og starfsmanna álversins:
Gírað niður í nótt?
Nú stefnir í verkfall í álverinu og
ágreiningsefnið er núll komma núll
eitthvað af hagnaðarhlutdeild síðasta
árs, eins og einn starfsmaður álvers-
ins orðaði það í gær. Fundur var með
deiluaðilum hjá sáttasemjara í gær
og miðaði ekkert í átt til samkomu-
lags. Því stefnir í vinnustöðvun og
verður að líkindum byrjað að hægja
á starfseminni á miðnætti.
Sérstakt samkomulag frá árinu
1986 milli ísal og starfsmanna ál-
versins er i gildi um framkvæmd
vinnustöðvunar. Þar er tíundað
hvemig hægja skuli á álbræðslunni
og stöðva hana á 14 dögum svo ker-
in og búnaður þeirra skemmist ekki.
Af hálfú starfsmanna er talið að allir
starfsmenn álversins skuli vinna þá
fjórtán daga sem tekur að stöðva ál-
verið. —sá
Það óhapp varð við Gullinbrú í
Reykjavík síðdegis í gær að drasl,
sem var aftan á vörubílspalli, fauk á
annan vöruflutningabíl sem kom úr
gagnstæðri átt. Eins og sjá má á
myndinni skemmdist vöruflutninga-
bíllinn talsvert Ökumaöur hans mun
þó ekki hafa orðiö fyrir miklum
meiðslum. Tfmamynd Pjetur
íslenskur körfuknattleiksmaður varð banda-
rískur meistari með háskólaliði sínu:
Herfoert meistari
á sínu fyrsta ári
Keppni háskólaliðanna í Banda-
ríkjunum, svokölluð NCAA-
keppni, stendur nú sem hæst og á
morgun hefjast undanúrslit. Þar
mætast lið Arkansas og Duke ann-
ars végar og hins vegar UNLV Las
Vegas og Georgia Tech. Keppni í
2. deild NCAA-keppninnar er hins
vegar lokið. Lið Kentucky Wesley-
an háskólans varð háskólameistari
eftir 93-79 sigur á Bakersfield
State frá Kaliforníu í úrslitaleik.
Herbert Amarson, tvítugur körfu-
knattleiksmaður úr IR, leikur sem
nýliði með þessu liði og er því
bandarískur háskólameistari 1990.
Herbert hafði áður lcikið í 3 ár
með menntaskólaliði frá Madison-
ville í Kentucky, en áður en hann
hélt til Bandaríkjanna lék hann
með yngri flokkum ÍR. Með ÍR
vann Herbert nokkra íslandsmeist-
aratitla og bikarmeistaratitla og nú
hefúr hann bætt bandaríska meist-
aratitlinum í safn sitt.
Urslitaleikurinn fór fram á mánu-
dagskvöld í Springfíeld í Massac-
husetts, en á sunnudaginn sigraði
lið hans lið North Dakota háskóla
101-92 í undanúrslitum keppninn-
ar. Bakersfield vann þá Morehouse
85-60 og komst í úrslitaleikinn
gegn Kentucky Wesleyan.
Arangur Kentucky liðsins í vetur
var frábær, liðið vann 31 leik og
tapaði aðeins 2. Þetta er í sjötta
sinn sem þessi skóli sigrar í 2.
deild NCAA-keppninnar, skólinn
vann 1966, 1967, 1968, 1973,
1987 og nú. Enginn háskóli í
Bandaríkjunum hefúr oftar orðið
háskólameistari í körfuknattleik,
hvorki í 1. né 2. deild.
Herbert, sem eins og áður segir er
á sínu fyrsta ári í skólanum, kom
inn á undir lokin og skoraði
þriggja stiga körfú. Hann fékk all-
Tvö stig í uppsiglingu hjá Herbert f
metfeiknum gegn NKU fyrr í vetur
erliðið sigraði 117-47.
mörg tækifæri í leikjum liðsins í
vetur og var með um 6 stig að
meðaltali í leik og 3 ffáköst.
Fyrr í vetur setti Kentucky W. lið-
ið nýtt skólamet er liðið sigraði
Northern Kentucky University
með 70 stiga mun 117-47. I þeim
leik skoraði Herbert 17 stig og var
næststigahæsti leikmaður liðsins.
BL
Forstjóri Arnarflugs segir lokun ávísana-
reikningsins hjá íslandsbanka ástæðulitla:
Höfum góðar
tryggingar
„Það er auðvitað hið versta mál
að mennirnir skyldu gera þetta.
Bankinn er hins vegar ekki í
vondum málum vegna okkar ef
þú spyrð um það. Hafi ég ein-
hvern tímann séð banka sem er
gulltryggður fyrir sínum við-
skiptum þá er það í þessu tilfelli.
Hann hefur ekki eina einustu
krónu í hættu okkar vegna,“
sagði Kristinn Sigtryggsson, for-
stjóri Arnarflugs, í gær.
Þau tíðindi gerðust fyrir skömmu
að Islandsbanki, viðskiptabanki
Amarflugs, lokaði tékkareikningi
.Arnarflugs og búist var við að
hann innkallaði ávísanir siðustu tíu
daga. Astæðan mun hafa verið yf-
irdráttur umfram heimild.
Kristinn sagði að félagið hefði
undanfarið verið að bíða eftir fyrir-
greiðslu frá Framkvæmdasjóði. Því
hefði verið tjáð að viss fjárupphæð
myndi verða lögð inn á reikning
þess eftir að ákveðnum formsatrið-
um hefði verið fullnægt. Síðan
hefðu tæknilegir annmarkar komið
í ljós og innborgunin tafist.
Hlutafé Amarflugs var aukið um
200 milljónir fyrir skömmu og
mun félagið hafa farið fram á að
Framkvæmdasjóður snaraði út
þessum 200 milljónum eða allt að
því og ábyrgðust nýju hluthafamir
lánið gagnvart Framkvæmdasjóði.
„Eftir þau góðu samskipti sem
við höfum átt við Islandsbanka og
áður Utvegsbankann þá komu okk-
ur harkalegar aðgerðir bankans á
óvart og fínnst þær í það harðasta,"
sagði Kristinn.
Arnarflug er nú án nokkurrar
millilandaflugvélar þar sem eig-
endur sænsku vélarinnar, sem fé-
lagið hefur haft á leigu frá degi til
dags að undanfomu, tóku vélina í
önnur verkefni. Kristinn sagði að
búið væri að leysa flugvélarmálið
og kæmi ný vél til starfa frá Bret-
landi á morgun sem yrði notuð
fram til 1. maí þegar félagið fær
vél til ffambúðar. -sá