Tíminn - 12.04.1990, Blaðsíða 21
Fimmtudagur 12. apríl 1990
Tíminn 21
Alfreð Þorsteinsson, annar maður á lista Framsóknarflokksins í Reykjavík:
íhaldið misnotar að-
stöðu sína í Reykjavík
Hin eiginlega kosningabarátta týrir borgarstjómarkosningamar
í Reykjavík hefst tæplega fýrr en undir mánaðamótin apríl-maí.
Það má því búast við stuttri en snarpri kosningahríð hér í
Reykjavík, en sem kunnugt er fara kosningamar fram laugar-
daginn 26. maí.
Skoðanakannanir undanfarið
benda til yfirburðastöðu Sjálfstæðis-
flokksins. Hefur honum verið spáð
yfir 70% fylgi og allt að 12 borgar-
fulltrúum. Reynslan hefur hins vegar
sýnt að fylgið við flokkinn er alltaf
töluvert minna þegar á hólminn er
komið. Væringar á vinstri kantinum
að undanfömu hafa leitt til þess að
Sjálfstæðisflokkurinn hefur fitnað
eins og púkinn á fjósbitanum.
Ósennilegt er hins vegar að sjálf-
stæðismenn nærist meira á þeirri
sundmngu eftir að Alþýðuflokkur-
inn og hluti Alþýðubandalagsins
hafa komið sér saman undir merkj-
um „Nýs vettvangs“.
Erfiðleikar í þjóðfélaginu
En Sjálfstæðisflokkurinn hefur
nærst á fleim en sundmngu á vinstri
vængnum. Sem helsta stjómarand-
stöðuaflið á Alþingi hafa sjálfstæðis-
menn fært sér í nyt þá erfíðleika sem
víða hafa steðjað að í þjóðfélaginu
hjá einstaklingum og fyrirtækjum.
Víða gengur illa hjá fjölskyldum að
láta enda ná saman. Staða margra
fýrirtækja er þannig að nauðsynlegt
hefúr reynst að draga saman seglin.
Það hefur þýtt minni yfirvinnu og
þar af leiðandi minni ráðstöfunar-
tekjur. Þá hafa fyrirtæki einnig
neyðst til að loka og segja fólki upp
störfum. Er satt að segja ömurlegt
ástand víða vegna samdráttar og lok-
unar fyrirtækja. Einkum er erfitt fyr-
ir fólk á miðjum aldri að verða sér
úti um atvinnu á nýjan leik.
Ábyrgð
Sjálfstæðisflokksins
Sem betur fer virðast mestu erfið-
leikamir að baki. Ýmsar ráðstafanir
ríkisstjómarinnar til bjargar atvinnu-
fyrirtækjum, svo og hækkandi verð-
lag á afurðum okkar valda því að
bjartara er framundan.
Hinu má ekki gleyma að Sjálfstæð-
isflokkurinn ber verulega ábyrgð á
þeim vandamálum sem íslenska
þjóðin hefur átt við að glíma að und-
anfomu. Okurvextir, sem hafa verið
að sliga almenning og fyrirtæki í
landinu, eru fyrst og fremst verk
frjálshyggjupostulanna í Sjálfstæðis-
flokknum. Ábyrgð þeirra á gjald-
þroti einstaklinga og fyrirtækja er
mikil, og komist þessir aðilar affur
til valda mun markaðshyggjan ná
völdum á nýjan leik. Stefna Sjálf-
stæðisflokksins hefúr illu heilli leitt
V
f rjjnrl ■
OT *«•»» % ■»L J
xi •m
íj » '
mmm mm jt \
* 11 P
1—mÁ K* fci , i.
L* ' ffl
til misskiptingar auðs í þessu þjóðfé-
lagi. Þannig hafa þeir ríku orðið rík-
ari og hinir fátæku fátækari.
Vörumerki ættanna 15
Auðsöfnun ættanna 15 er lýsandi
dæmi um þróunina sem hér hefur
orðið. Verðandi formaður Sjálfstæð-
isflokksins, Davíð Oddsson borgar-
stjóri, er eins konar vörumerki fyrir
ættimar og fær þá virðingarstöðu að
vera fúndarstjóri á aðalfundi móður-
skipsins, Eimskipafélags íslands.
Aðstöðu sína sem borgarstjóri notar
hann til ýmiss konar fyrirgreiðslu til
þessara aðila. Ljótasta dæmið var
fyrirgreiðslan til ísbjarnarins og
upphaf og endir Granda hf. fyrir
Reykjavíkurborg. Þar vom ijármunir
borgarbúa beinlínis færðir á milli i
því skyni að bjarga gjaldþrota einka-
fyrirtæki.
Of mikil völd spilla
Undanfarið hefur almenningur á
Vesturlöndum fylgst grannt með
þeim breytingum sem orðið hafa í
Austur- Evrópu, þar sem einræði
kommúnismans hefur beðið skip-
brot.
Nú væri út í hött að líkja einræðinu
í Austur-Evrópu við einræði Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjavík eða að
líkja borgarstjóranum i Reykjavík
við fallinn einræðisherra í Rúmeníu.
Hins vegar eiga þessir aðilar eitt
sameiginlegt — þeir hafa haft mikil
völd. Og það er alkunna að of mikil
völd leiða oft og tíðum til misbeit-
ingar þeirra og hvers kyns spillingar.
Og eftir þvi sem menn hafa verið ör-
uggari með sig, því hálla verður
þeim á svellinu.
Lóðabrask í Reykjavík
Það er opinbert leyndarmál að
lóðabrask hefur viðgengist í Reykja-
vík um langt skeið.
Líta má á lóðir til einstaklinga og
Alffeð Þorsteinsson.
fyrirtækja sem nokkurs konar hlunn-
indi til þeirra sem úthlutun fá, eink-
um og sér í lagi ef lóðir eru vestan
við Elliðaár. Hjá byggingameistur-
um ganga slíkar lóðir kaupum og
sölum. Sama má segja um fjölbýlis-
húsalóðir þegar eflirspumin er miklu
meiri en framboðið.
Á þessu sviði hefur Sjálfstæðis-
flokkurinn látið til sín taka. Skrif-
stofa borgarverkfræðings hefúr verið
eins konar fyrirgreiðslustofnun eða
banki — og yfirbankastjóri lóða-
bankans er sjálfur borgarstjórinn í
Reykjavík.
Lóðabraskarar
verðlaunaðir
Á sl. ári kom upp allsérstætt mál í
sambandi við lóðabrask sem tengdist
einum af borgarfúlltrúum Sjálfstæð-
isflokksins. Ekki einasta hafði við-
komandi borgarfulltrúi fengið út-
hlutað lóð fyrir fyrirtæki sitt á eftir-
sóttum stað í borginni heldur hafði
skipulagi verið breytt honum í hag
og lóðinni úthlutað án auglýsingar.
Til viðbótar gerðist það að viðkom-
andi borgarfulltrúi seldi meginhluta
reksturs fyrirtækis síns og lét hafa
eftir sér í viðtali að nú hygðist hann
snúa sér af fúllum krafti að borgar-
málefúum.
Forsenda lóðarúthlutunarinnar var
þar með brostin og eðlilegast að
borgarfulltrúinn skilaði lóðinni til
baka. En það gerði hann ekki, enda
taldi hann sig vera með mikil verð-
mæti í höndum. Raunar er komið
verðmætamat á lóðina síðan, því að
síðar auglýsti Reykjavíkurborg mjög
hliðstæða lóð til sölu og seldi hana á
14 milljónir króna fyrir utan gatna-
gerðargjöld.
I öllum siðuðum þjóðfélögum hefði
viðkomandi borgarfulltrúi orðið að
draga sig í hlé. En hinn sterki maður
í Sjálfstæðisflokksins, borgarstjórinn
Reykjavík, brást öðruvísi við. I
stað þess að taka máiið föstum tök-
um, ákvað hann að gera þetta lóða-
brask að sínu rnáli og beitti sér síðar
fyrir því að viðkomandi borgarfúll-
trúi væri verðlaunaður með því að
setja hann ofar á framboðslista
flokksins.
Bifreiðamál borgarstjóra
Uppákomur af þessu tagi eru ekki
traustvekjandi. En af því að of mikil
völd hafa safnast á fáar hendur leyfa
valdhafar sér ýmislegt sem þeir
gerðu annars ekki.
Bifreiðamál borgarstjóra eru dæmi-
gerð að þessu leyti. Umfram alla
ráðherrana, sem löngum hafa legið
undir gagnrýni vegna bifreiðamála,
eyrnamerkir borgarstjóri sér tvær
bifreiðar til eigin nota. Enginn borg-
arstjóri, fyrr eða síðar, hefúr leyft sér
slíkan munað, enda hefúr núverandi
borgarstjóri ekki getað gefið neinar
haldbærar skýringar á þessu fram-
ferði sinu.
Reykvíkingar vilja gera vel við
borgarstjóra sinn í launum og eðli-
legum fríðindum. En í þessu máli
hefur núverandi borgarstjóri orðið
uppvís að dómgreindarleysi sem
enginn í eigin flokki hefur þorað að
benda honum á.
EIGNARHALDSFÉLAGIÐ
Alþyöubankínn hf
Framhaldsaðalfundur
í samræmi við ákvörðun aðalfundar Eignarhaldsfélagsins Alþýðu-
bankinn hf., sem haldinn var hinn 27. janúar s.l., er hér með boðað
til framhaldsaðalfundar í félaginu, sem haldinn verður í Átthagasal
Hótel Sögu, Reykjavík, sunnudaginn 29. apríl n.k. og hefst kl. 15.00.
Dagskrá:
Aðalfundarstörf skv. ákvæðum greinar4.06 í samþykktum félagsins.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum eða umboðs-
mönnum þeirra í íslandsbanka hf., Laugavegi 31,3. hæð, frá 25.
apríl n.k. og á fundarstað. Ársreikningur félagsins ásamt tillögum
þeim, sem fyrir fundinum liggja, verða hluthöfum til sýnis á sama stað.
Tillögur, sem hluthafar vilja leggjafyrirfundinn, þurfa að hafa borist
stjórn félagsins í síðasta lagi 20. apríl n.k.
Reykjavík, 3. apríl 1990.
Stjórn Eignarhaldsfélagsins
Alþýðubankinn hf.