Tíminn - 18.04.1990, Blaðsíða 14

Tíminn - 18.04.1990, Blaðsíða 14
14 Tíminn Miðvikudagur 18. apríl 1990 MINNING Gunnar Jónsson frá Breiðabólstað, Reykholtsdal Fæddur 2. janúar 1927 Dáinn 9. aprfl 1990 Páskahelgin er tími vonar og til- beiðslu í hugum allra kristinna manna. Fráfall nákomins vinar í páskavikunni ber því að á þeim tím þegar atburðir páskahclgarinnar í Jerúsalem minna okkur einmitt á það enn einu sinni hvemig við öll, vegna pínu og upprisu Jesú Krists, eigum fyrirheit um eilíft líf þcgar veraldarvafstrinu lýkur. Gunnar Jónsson fæddist að Breióa- bólstað í Reykholtsdal 2. janúar 1927. Hann átti sín æskuspor í fögr- um sveitum sögufrægra Borgarfjarð- ardala, á heimili foreldra og systra á landnámsjörðinni I Reykholtsdal. Bærinn stendur hátt i hlíð þar sem sést til flestra bæja í dalnum. Þar er sumardýrðin ólýsanleg á björtum og kyrrum sumarkvöldum. Reykir stíga hátt til lofts frá heitum hverum, grænar grundir og grónir hálsar. Fljótið liðast um dalinn, en blá fjöll í (jarska, og hvítir jökulkollar mynda umgjörö þetta dýrðlega listaverk náttúrunnar. Og kyrrð þessara ljúfu, björtu sumarkvölda dalsins er oft svo algjör að heyra má hljómkviðu búpeningsins og mannamál vítt og breitt um dalinn. A slíkum kvöldum verða örlög Is- landssögunnar lifandi vettvangur í Reykholtsdal. Enn rýkur úr lauginni hans Snorra, þar sem íslenskur hér- aðshöfðingi færði í letur atburði í lífi þjóðar sinnar og gaf að auki frænd- þjóð okkar Norðmönnum homsteina í þeirra sögu. Sagnfræði og heimildir Reykholtsbóndans eru afreksverk sem mölur og ryð fá ekki grandað. Heimskringlu hans geta ungir Reyk- dælir enn þann dag í dag notað sem leiðsögubók í Miklagarði. Gunnar Jónsson varð þeirrar gæfu aðnjótandi að fæðast og alast upp og lifa sín manndómsár í faðmi þessara fögru sögufrægu byggða. Hann ólst upp í foreldrahúsum ásamt tveimur eldri systrum sínum. Foreldrar hans voru Jón óðalsbóndi Ingólfssonar Guðmundssonar kirkjusmiðs og bónda að Breiðabólstað og konu hans Valgerðar Erlendsdóttur frá Sturlureykjum í Reykholtsdal. Eftir- lifandi systur Gunnars eru Unnur Jónsdóttir, húsfreyja, Deildartungu í Reykholtsdal, og Sigrún Jónsdóttir, húsfreyja í Reykjavík. Gunnar ólst upp við trausta búskap- arhætti forfeðra sinna og tók við búsforráðum er faðir hans dró sig í hlé. Gunnar var traustur bóndi sem rak bú sitt með fyrirhyggju og af dugnaði og reglusemi. Hann, eins og faðir hans áður, íylgdist vel með öll- um nýjungum i búskapargreinum, nýtti sér það besta sem tæknin bauð á hverjum tíma. Hélt hann áfram traustu samstarfi við nágrannana, skólastjóra og kennarabændur í Reykholti, enda liggja túnin saman. Ríkti þar skemmtileg samvinna um nýtingu dýrra landbúnaðarvéla sem faðir hans hafði tekið upp með Reykholtsbændum og byggðist það samstarf á langri og traustri vináttu. Gunnar hélt ungur í héraðsskólann í Reykholti sem jafnan hefur reynst ungu fólki drjúg og haldgóð mennta- braut. Gunnar giftist 30. desember 1965 eftirlifandi eiginkonu sinni, Sigríði J. Valdimarsdóttur, og gekk í föður- stað tveim, þá ungum, sonum henn- ar, Brynjólfi og Valdimar, og tengd- ist einnig bömum þcirra innilegum „afa“-böndum. Fyrir um það bil fimmtán árum fór heilsa Gunnars að gefa sig og líkam- legir burðir þessa hrausta og gjörvi- lcga manns urðu aldrei samir eftir það. Lét Gunnar fljótlega af búskap- arstörfum og stundaði eftir það störf við verslun og þjónustu, þar til fyrjr fáum áram, eftir að þau hjónin fiuttu til Reykjavíkur, að hann ásamt konu sinni tók að sér gæslu og umsýslu- störf við dvalarheimili aldraðra við Bólstaðarhlíð í Reykjavík. Þeim störfum sinnti Gunnar eins og öðrum af alúð og árvekni sem eldri borgar- ar þessarar fjölmennu byggðar kunnu vel að meta. Gunnar kunni vel við sig í „borginni við Sundin“ en oft mun hugurinn hafa reikað upp til Borgarfjarðardalanna, og þá ylj- uðu ljúfar minningar bjartra sumar- daga og vetrarkyrrðar og góðra stunda í byggðum og upp til heiða. Gunnar kenndi skyndilega hjarta- meins á pálmasunnudag og var þá fluttur á Borgarspítalann þar sem hann lést að kvöldi næsta dags. Ætt- ingjar og vinir Gunnar Jónssonar syrgja og sakna hins góða drengs við skyndilega brottför hans. Þeir eru þakklátir fyrir samverustundirnar með Gunnari því framkoma hans og viðmót og vammlaus drengskapur á öllum sviðum hafði mannbætandi áhrif á alla þá er áttu því láni að fagna að eiga með honum samleið. gþ- „Félagsbróðir, granninn góði, greiði ég þér i smáum óði hlýja kveðju hinsta sinn. Lít égyfir lif til baka litið meir en næturvaka sýnist forni ferillinn. “ Þetta erindi úr ljóðinu Sigurður Gíslason frá Kletti eftir Kristleif á Stóra Kroppi vildi ég gera að mínum orðum þegar ég er nú sestur niður til að minnast vinar og nágranna míns, Gunnars á „Breiða“. í raun og veru segir þetta erindi allt sem segja þarf og því e.t.v. best að hafa þessi orð ekki fleiri. En þar sem vinátta og samstarf okkar Gunnars var með nokkuð sérstæðum hætti langar mig til að bæta nokkrum orðum við. Gunnar var fæddur á Breiðabólstað í Reykholtsdal 2. janúar 1927, sonur hjónanna Jóns Ingólfssonar bónda þar og konu hans Valgerðar Erlends- dóttur. Ingólfur Guðmundsson, bóndi á Breiðabólstað, faðir Jóns, var frá Helludal í Biskupstungum en kona hans var Halla Pálsdóttir frá Koti á Rangárvöllum. Erlendur Gunnarsson, bóndi á Sturlureykjum, faðir Valgerðar, var frá Geirshlíð í Flókadal. Erlendur var tvíkvæntur. Seinni kona hans hét Andrea Jó- hannesdóttir frá Akranesi og var hún móðir Valgerðar. Báðir afar Gunnars voru annálaðir hagleiks- og dugnað- armenn og kappsfúllir að hveiju sem þeir gengu. Hér verður ætt Gunnars ekki rakin frekar. Það verða aðrir mér færari að gera. Gunnar ólst upp ásamt tveimur systrum sinum, Unni og Sigrúnu, hjá foreldrum sínum á Breiðabólstað og átti þar heima til ársins 1984 að hann flutti til Reykjavíkur og stund- aði þar ýmiss konar vinnu til hinsta dags. Ekki hef ég trú á að Gunnar hafi kunnað vel við sig á mölinni, til þess var hann of mikið bam sveitar- innar. Grunur minn er sá að hugur- inn hafi ærið oft hvarflað upp í Dal- inn þó að hann segði það ekki berum orðum, enda ekki hans máti að flíka tilfinningum sínum eða bera þær á borð fyrir aðra. En hvenær og hvar sem fundum bar saman barst talið fljótlega að afkomu manna á æsku- stöðvunum, högum þeirra og hátt- um, tíðarfari og afkomu, svo auð- fundið var hvar hugurinn dvaldi. Einkum var þetta áberandi þegar vora tók og loftið fylltist gróðurilmi. Þá munu vafalaust hafa liðið um huga hans minningar um iójagræn tún, grænkandi móa og lömbin hoppandi á þúfnakollunum. Já, Gunnar var svo sannarlega bam sinnar sveitar þótt örlögin höguðu því svo að hann flutti burtu. Það fcnnir í fomar slóðir, götumar sem áður vora fljótfamar gróa upp, hverfa og gleymast en minningamar lifa. Það var ekki löng leið eftir gömlu götunni sem lá upp túnið í Reykholti og skáhallt upp hálsinn að Breiðabólstað. Þessa götu gekk ég oft þegar ég var bam og ekki lengd- ist leiðin við að finna að á Breiða- bólstað var maður alltaf velkominn. Atti það eftir að sannast betur síðar. Það mun hafa verið nokkm fyrir jól árið 1941 að skarlatssótt kom upp í Héraðsskólanum í Reykholti. Eg vann þá við íþróttakennslu víða um land á vegum U.M.F.I. en Steini bróðir minn var í skóla í Reykjavík. Ekki kom til mála að við færum heim um jólin og ættum síðan á hættu að bera veikina út um allt land. Vissum við bræður varla hvar við vildum helst eyða jólunum. Fengum við þá skilaboð um að okk- ur væri velkomið að vera á Breiða um jólin og eftir það kom enginn annar staður til greina, a.m.k. ekki í mínum huga. Dvöldum við svo þar um jólin og fram yfir áramót og voru móttökurnar þannig að mér fannst ég vera orðinn einn af Qöl- skyldunni. Slíkur vinargreiði verður seint fúllþakkaður. Tíminn líður. Ár- ið 1947 fer ég að búa með föður mínum í Reykholti og nokkmm ár- um síðar fer Gunnar að búa með föður sínum á Breiða. Gott sam- komulag ríkti alla tíð milli þessara bæja og samstarf var mikið. Þegar vélvæðingin hélt innreið sína í ís- lenskan landbúnað var mikið kapp- hlaup um að ná í þær fáu dráttarvélar sem í boði vom. Var þá bmgðið á það ráð að Breiðabólstaður og Reyk- holt keyptu eina dráttarvél saman og stóð þá ekki á afgreiðslu. Var það stór stund er gripurinn kom. En nú fjölgaði bæði dráttarvélum og tækj- um smátt og smátt, einkum hey- vinnutækjum, og samtímis fór sam- vinna okkar við heyskapinn vaxandi,. sérstaklega við hirðingu. Við sáum að með því að vinna saman nýttust tækin mun betur og um leið sparað- ist tími. Var fyrst farið með öll tækin á annan bæinn og síðan á hinn og ekki hirt um að halda bókhald þótt unnið væri einum eða tveimur tím- um lengur á öðmm bænum en hin- um og er sá reikningur því óupp- gerður. Um slíkt var ekki hugsað heldur aðeins að ná sem mestu heyi á sem stystum tíma. Vagnamir þutu fram og aftur allan daginn og árang- urinn minni á gömlu þjóðsöguna „Heim í garð til Sæmundar“. Þetta vom vinnubrögð sem Gunnari líkaði og í fúllu samræmi við áhuga hans og kapp. Eitt atvik er mér sérstak- lega minnisstætt frá þessum ámm. Góður þerrir hafði verið í nokkra daga og mikið hey þurrt á báðum bæjunum, ýmist flatt eða í beðjum. Ákveðið var að fara í hirðingu dag- inn eftir, enda veðurspá góð. Byrjað var á Breiða um morguninn og allt gekk vel eins og venjulega. Um há- degi fór þó veðurútlit að verða tví- sýnt svo búast mátti við síðdegis- skúmm. Vildi Gunnar þá ólmur að við flyttum okkur I Reykholt svo að við næðum einhverju inn þar líka ef illa færi. Við aftókum það með öllu að eyða tíma í að fiytja „vélaher- deildina", eins og við kölluðum tæk- in okkar í milli, milli bæja og vomm sannfærð um að við myndum sleppa. Svo varð þó ekki því að næstum á sama tíma og heyið af síðasta vagn- inum var komið inn i hlöðu á Breiða gerði mikla rigningargusu svo auð- séð var að ekki yrði meira hirt dag- inn þann. Tækin vom þó flutt yfir að Reykholti og allir í góðu skapi nema Gunnar. Greinilegt var að hann var ekki ánægður með árangur dagsins en það breyttist næsta dag. Var þá komið glampandi sólskin og besti þurrkur. Annaðhvort hefur Gunnar farið snemma á fætur eða gleymt að mjólka kýmar sínar morguninn þann því að hann var mættur með sitt lið fyrir allar aldir í Reykholt til að ryðja úr blautum beðjum og snúa því heyi sem flatt var. Er ekki að orð- lengja það að um kvöldið var allt hey af Reykholtstúni komið inn í hlöðu og nú var enginn kátari en Gunnar. Hann hafði greitt skuldina frá deginum áður, jöfnuður var kom- inn á. Þetta atvik lýsir betur en mörg orð manninum Gunnari á Breiða. Það skaðast enginn af samstarfi við slíkan nágranna. Fyrstu árin eftir að Gunnar hóf bú- skap bjó hann með ýmsum bústýram en árið 1965 kvæntist hann Sigriði Valdimarsdóttur sem ættuð var vest- an af Skógarströnd. Þeim Gunnari og Sigriði varð ekki bama auðið en Sigríður á tvo syni af fyrra hjóna- bandi, Brynjólf og Valdimar Einars- syni. Brynjólfúr býr nú á Breiðaból- stað en Valdimar í Grindavík. Það var aldrei ætlun mín að rekja ævisögu Gunnars hér. Aðeins að geta nokkurra atriða úr margra ára vináttu og samferð og verða þessi orð því ekki fleiri. Nú þegar Gunnar er horfinn yfir móðuna miklu, lagður upp í þá för sem okkur er öllum áskapað að fara fyrr eða síðar, þökkum við hjónin margra ára vináttu og tryggð og sendum Sigríði eiginkonu hans, systrunum Unni og Sigrúnu svo og öllum öðmm vandamönnum hans og vinum innilegar samúðarkveðjur og er ég viss um að ég mæli fyrir munn allra systkina minna og bama okkar hjóna. Þó að maðurinn hverfi lifir minn- ingin um góðan dreng. Jón Þórisson t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi Andrés Kristjánsson, fyrrv. ritstjóri Digranesvegi 107 Kópavogi verðurjarðsunginnfrá Kópavogskirkju föstudaginn 20. apríl kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hans er vinsamlegast bent á Landgræðslu eða líknarfélög. Þorgerður Kolbeinsdóttir Guðrún Helga Andrésdóttir Gunnar Emilsson Heiðveig Andrésdóttir Kristján Andrésson Kolbeinn Andrésson Halldveig Andrésdóttir og barnabörn. Pétur Guðmundsson Rósa Marinósdóttir Snjólaug Arnardóttir Kransar, krossar, kistu- skreytingar, samúðarvendir og samúðarskreytingar. Sendum um allt land á opnunartíma frá kl. 10-21 alla daga vikunnar Miklubraut 68 @13630 RISIÐ Borgartúni 32 Sjáum um erfisdrykkjur Upplýsingar í síma 29670 í\ RAFMAGNSVEITA REYKJAVIKUR Rafmagnsveita Reykjavíkur óskar eftir að ráða til starfa byggingatæknifræðing til að annast land- mælingar í hnitakerfi fyrir jarðstrengjalagnir, götu- Ijósastólpa og loftlínur, ásamt eftirliti með bygg- ingaframkvæmdum. Umsækjandi þarf að hafa góða þekkingu og reynslu í meðferð tölva og landmælingartækja. Upplýsingar um starfið veita starfsmannastjóri og/eða deildarstjóri byggingadeildar. Umsóknum skal skilað til starfsmannastjóra Raf- magnsveitunnar fyrir 5. maí n.k. Rafmagnsveita Reykjavíkur Suðurlandsbraut 34 S.686222 Hey til sölu Pakkaðar heyrúllur til sölu. Sími 98-66675.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.