Tíminn - 01.05.1990, Blaðsíða 11
10 Tíminn Þriðjudagur 1. maí 1990 Þriðjudagur 1. maí 1990 Tíminn 11
.. -..... ................... 1 ...... —........................................ ......... ..............................................................i----——............................. — _____
Borgarfulltrúar Framsóknarflokksins hafa kært til félagsmálaráðherra staðsetningu sorpböggunarstöðvar í Gufunesi;
SORPBOGGUNARSTOÐ SKA
Sigrún Magnúsdóttir borgarfúlltrúi og
Alfreð Þorsteinsson varaborgarfulltrúi og
fúlltrúi í Skipulagsnefnd Reykjavíkur hafa
kært til félagsmálaráðuneytis þau vinnu-
brögð, sem borgarstjóm Reykjavíkur og
önnur stjómvöld borgarinnar hafa viðhaft í
sambandi við undirbúning að byggingu og
rekstri svonefndrar flokkunar- og móttöku-
stöðvar á lóð Áburðarverksmiðjunnar í
Gufunesi. Þau krefjast þess að byggingar-
leyfi það, sem bygginganefnd veitti og stað-
fest var í borgarstjóm verði fellt úr gildi, þar
sem með því er brotið í bága við fjölda laga-
ákvæða.
Á sínum tíma kom til tals að staðsetja
sorpböggunarstöð í Árbæjarhverfi, en hofið
var frá því eftir að íbúar hverfisins höfðu
mótmælt því harðlega. Vífilfell, ffamleið-
andi kók á íslandi, hótaði m.a. að flytja starf-
semi sína úr Reykjavík ef sorpstöðin yrði
staðsett í nágrenni við verksmiðjuna. Fram-
sóknarfíokkurinn barðist mjög hart fyrir þvi
að hætt yrði við byggingu sorpböggunar-
stöðvar í Árbæjarhverfi. Flokkurinn hyggst
beita sér að alefli gegn byggingu slíkrar
stöðvar í Gufúnesi. Framsóknarflokkurinn
hefur markað skýra stefnu um að sorpstöðv-
ar eigi ekki að byggja í nágrenni íbúða-
byggðar.
Sorpböggunarstöðvar
eiga ekki að vera í
nágrenni við íbúðabyggð
Alfreð Þorsteinsson varaborgarfulltrúi
var spurður nánar út í stefnu Framsóknar-
flokksins í þessum málaflokki.
„Það er mitt álit og raunar stefna Fram-
sóknarflokksins að sorpböggunarstöðvar
eigi ekki að reisa í nágrenni íbúðabyggðar,
enda er nægilegt landrými fyrir slíka starf-
semi annars staðar. Slík starfsemi er líka í
andstöðu við nútímaleg viðhorf í umhverfis-
málum. Það rikti góður friður um þau áform
að sorpböggunarstöð yrði reist í iðnaðar-
hverfi í Hafnarfirði. Hafnarfjarðarbær var
búinn að samþykkja það fyrir sitt leyti, sem
hefði þýtt að sorpurðun hefði farið fram í
Krísuvík. Illu heili sætti borgarstjórinn í
Reykjavík sig ekki við þá lausn og kaus að
kaup Álfsneslandið á Kjalamesi undir sorp-
urðun og samdi við Áburðarverksmiðjuna
um land undir sorpböggunarstöð í Gufunesi.
Þessi ákvörðun hefur valdið óróa í þremur
sveitarfélögum, Reykjavik, Mosfellsbæ og
Kjalamesi, enda út í hött að ógna íbúða-
byggð með starfsemi af þessu tagi.“
Fylgir starfsemi af þessu tagi ekki óhjá-
kvæmilega vemlegur óþrifnaður?
Árlega verður ekið með
100 þúsund tonn af sorpi í
gegnum Grafarvogshverfið
„Jú, það er ljóst að starfsemi sorpböggun-
arstöðva fylgir alltaf einhver óþrifnaður
þrátt fyrir góðan vilja um að koma í veg fyr-
ir slíkt. Það er því deginum ljósara að sorp-
böggunarstöðin í Gufúnesi kemur til með að
skaða íbúðabyggðina í Grafarvogi. Aka
verður með allt sorp í gegnum hverfið, fyrst
til böggunar og síðan til urðunar. Ibúamir í
Grafarvogshverfum vom blekktir, því að
þessi starfsemi er ákveðin í trássi við aðal-
skipulag sem gerði ráð fyrir að sorphaugam-
ir í Gufunesi myndu hverfa á þessu ári. Það
kemur hvergi fram í aðalskipulaginu að
sorpböggunarstöð eigi að taka við af sorp-
haugunum i Gufunesi og að aka eigi með
100 þúsund tonn af sorpi árlega í gegnum
hverfið. Slíkum flutningum fylgir óhjá-
kvæmilega óþrifnaður og viss hætta af eitur-
efnum. Þessu höfúm við Framsóknarmenn
mótmælt í Skipulagsnefnd og borgarstjóm
og nú síðast með kæm sem við höfúm sent
félagsmálaráðherra, en í henni er þess krafist
að byggingarleyfið sé afturkallað.“
Davíð Oddsson borgarstjóri í Reykjavík
hefúr tekið þessari kæm óstinnt upp og farið
um hana háðungarorðum eins og hans er von
og vísa. Hvað vilt þú segja um þá gagnrýni
hans að kæmfrestur í þessu máli sé útrunn-
inn?
„Það er rétt borgarstjóri hefur gert at-
hugasemdir við kæmna og þá einkum að
kæmfrestur sé útmnninn. I kæm okkar til fé-
lagsmálaráðherra vitnum við i 14. grein
byggingarlaga þess efnis að byggingarleyfi
„veiti ekki heimild til framkvæmda sem
bijóta í bága við skipulag og ákvæði laga og
reglugerða og rétt annarra.“
Mótmæli okkar beinast því að þeirri lög-
leysu sem viðhöfð hefur verið í málinu en
ekki vegna þess að brotið hafi verið á rétti
okkar sem einstaklinga, en í því tilfelli gæti
þriggja mánaða kæmfrestur átt við. Svo
virðist sem borgarstjóri bresti minni til þess
að málefni sorpböggunarstöðvarinnar vom
síðast til umræðu í borgarstjóm 15. mars síð-
GRAFARVOGI
astliðinn vegna afgreiðslu Bygginganefndar
á teikningum verksmiðjunnar. Að þeirri
ástæðu einni framlengdist kæmffestur sá
sem borgarstjóri gerir að aðalatriði þessa
máls til 15. júnl næstkomandi.“
Verið er að koma aftan að
íbúum Grafarvogshverfis
Vissu íbúar Grafarvogshverfi ekki ósköp
vel að hveiju þeir gengu þegar þeir ákváðu
að byggja í hverfinu?
„Nei, það gerðu þeir ekki. Ég lít svo á að
verið sé að koma aftan að fólki þegar tekin er
ákvörðun um að staðsetja sorpböggunarstöð
Efstu menn B-listans í Reykjavík kynna kæru sína á blaðamannafundi. F.v. Alfreð Þorsteinsson, annar maður á listanum, Sigrún Magnúsdóttir, fýrsti maður á lista og Hallur Magnússon, þriðji maður á lista.
í Grafarvogshverfi eftir að fólk hefúr flutt í
hverfið. Annað mál er ef að slík stöð er reist
á landi þar sem ekki var búið að úthluta lóð-
um undir íbúðarhús því að þá veit fólk að
hveiju það gengur. í þessu tilviki vissi fólk
ekki að hveiju það gekk þegar það hóf að
byggja í hverfinu. 1 því felst okkar gagn-
rýni.“
Sýna ekki útreikningar að það er hag-
kvæmt að velja sorpstöðinni stað í Grafar-
vogshverfi?
„Það er fráleitt að láta hagkvæmnis sjón-
armið ráða algerlega ferðinni þegar tekin er
ákvörðun um staðsetningu svona starfsemi. I
dag dytti engum mann í hug að staðsetja
áburðarverksmiðju á þeim stað þar sem hún
er núna jafnvel þó að hægt sé með einhveiju
móti að reikna út að það sé þjóðhagslega
hagkvæmt að staðsetja hana í Gufúnesi. Það
er því fáránlegt að staðsetja sorpstöðina
þama og ber raunar vott um mikla skamm-
sýni,“ sagði Alfreð að lokum.
Má staðsetja sorpstöð
í merktu iðnaðarhverfi?
Svæðið þar sem sorpstöðin á að rísa er á
aðalskipulagi auðkennt sem iðnaðarsvæði
(athafnasvæði, industrial area, á landnotkun-
arkorti aðalskipulags). Bygging og rekstur
sorpstöðvar getur þó alls ekki talist iðnaður,
því að í 1. grein iðnlaga nr. 42/1982 segir:
„Lög þessi taka til rekstrar hvers konar
iðnaðar í atvinnuskyni. Til iðnaðar telst bæði
handiðnaður og verksmiðjuiðnaður, hvaða
efni eða orka, vélar eða önnur tæki sem not-
uð em og hvaða vömr eða efni sem fram-
leidd em. Heimilisiðnaður skal undanskilinn
ákvæðum laganna.“
í orðabók Menningarsjóðs segir að orðið
iðnaður þýði: „1. Skipulögð framleiðsla
vamings úrhráefnum. 2. handiðnaður...“
í greinargerð með kæmnni segja borgar-
fúlltrúamir að það sé lágkúmlegt sjónarspil
þegar reynt sé að halda því fram að móttaka
og innpökkun á sorpi til urðunar sé iðnaður.
Reynt sé að komast hjá því að leggja fram
tillögu um breytingu á aðalskipulagi svo að
almenningi, ekki síst íbúum í nágrenni, gef-
ist ekki kostur á að tjá sig um málið.
I skipulagsreglugerð nr. 318/1985 er
mælt svo fyrir, að á aðalskipulagi skuli „auð-
kenna svæði fyrir sorphauga og sorpeyðing-
arstöðvar“. Af hálfú borgaryfirvalda hefúr
verið bent á að fyrirhuguð sorpstöð i Gufú-
nesi sé hvorki sorphaugur né sorpeyðingar-
stöð. í greinargerð með kæmnni segir að
engum hafi dottið í hug árið 1985 að sorp-
stöð sem nú er rætt um að byggja yrði byggð
í íbúðarbyggð. Spurt er hvort slík sorpstöð
með öllu sem henni fylgir hefði þá frekar
verið flokkuð með sorphaugum og sorpeyð-
ingarstöðvum eða þá iðnaði eins og hann er
skilgreindur í lögum og daglegu tali?
Ekkert deiliskipulag
til af svæðinu
Til þess að bygginganefnd sé heimilt að
veitta byggingarleyfi er henni skylt að ganga
Timamynd: M.Þ.
úr skugga um, að bygging, sem um er sótt sé
i samræmi við aðalskipulag. Bygginga-
nefndin þarf líka að ganga úr skugga um, að
byggingin sé í samræmi við samþykkt deili-
skipulag. Um þetta em skýlaus ákvæði í
byggingarreglugerð, byggingarlögum og
skipulagslögum. Þessi ákvæði hafa algerlega
verið sniðgengin. Ekkert deiliskipulag hefúr
verið gert að þessu svæði. I greinargerð með
kæmnni segir að þetta sé gert til að koma í
veg fyrir að málið fái formlega meðferð
samkvæmt skipulagslögum. Markvisst sé
reynt að koma í veg fyrir að fólk geti fengið
að tjá sig um sorpstöðvarmálið.