Tíminn - 01.05.1990, Blaðsíða 7

Tíminn - 01.05.1990, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 1. maí 1990 Tíminn 7 VETTVANGUR Jónína Jónsdóttir: GUFUNES Ekki þurfti símastaurinn heima við bæinn á Gemlufalli að verða grænn aftur til að halda uppi margtóna- söng með vírum sínum og kúlum. Hægt var að vita hver vindáttin var með því að hlusta á það samspil, þar átti Norðri gamli hæsta tóninn. Ókunnugum fannst þessi söngur jafnvel óþolandi. „Af hverju látið þið ekki færa staurinn?" Þetta var nú þá, við undum þessu tækniundri ágætlega, síminn, þvílíkt undur, pabbi minn gat talað við bróður sinn í Reykjavík. Kannske munaði nokkrum fetum á stöðu símastaursins svo allt hefði verið hljótt. En þvílíkir smámunir. Var það ekki svona með verk- smiðjuna í Gufunesi? Datt nokkr- um í hug að nærvera hennar við höfuðborgina, sem þá var bara mátulega stór fyrir landið ísland, yrði seinna ógnvaldur, jafnvel í stærra hlutfalli en svartidauði eða bólan mikla voru á sínum tíma, nei, alveg örugglega ekki. Nú eru allir staurar símans horfnir úr landareigninni á Gemlufelli, móðir jörð hylur nú þá strengi sem áður sungu og boðuðu vindáttir. Dæmin um breytta stöðu eru mis- stór. Ég var komin á tvitugsaldur þegar fyrsti bíllinn kom í hlaðið á Gemlufalli, það var álíka undur og þegar faðir minn fékk þriggja hest- afla mótor í bátinn sinn. Þau ósköp skýrði hann fyrir okkur, fávísum bömum sínum, með kennisetningu sem hljóðaði svo: „Það sem tapast í tíma, vinnst í krafti, það sem tap- ast í krafti, vinnst í tíma,“ og það var auðvelt að útfæra það með spil- inu sem við settum upp bátinn hans með, ef vindan var höfð öll á ann- an veginn var léttara að snúa spil- inu en við þurftum að fara stærri hring og svo öfugt, ef hringurinn varð styttri varð átakið meira. Hestaflaeyðslan í Gufunesi stytti tímann við að vinna völlinn á vorin og erfiðið var úr sögunni. Aburðar- verksmiðjan í Gufunesi var því óskabam allra þeirra er grasnytjar stunduðu. Hversu fjarlæg var ekki kona bílsins á hlað í Gemlufalli, bæ viö hin ystu mörk hins byggilega heims, þar sem stjömur himinsins vom við hlið englamynda á jóla- kortum og áttu enga aðra viðmiðun bama á þeim bæ. Hversu íjarlægt var það ekki þeim að eftir skamma tíð sæju þau með sömu augum að bíl var ekið um sjálfan mánann á himingeimnum, já, raunverulega á því sama augnabliki og það var gert. Svona stærðir em þrátt fyrir stað- reyndir eins fjarlægar og þær að litlu bami fyndist skifta máli hvar símastaur stóð við bæjarvegg. Ég kom fyrst til Reykjavíkur þeg- ar Hringbraut var svo að segja ystu byggðamörk í Reykjavík, Kópa- vogur var sumarbústaðaland og Öskjuhlíðin berjamór. Nú er efna- verksmiðjan í Gufunesi komin í þéttbýli. Öll emm við þrælar hins hraða tíma, það má sjá á bílaeign, flugvélum og ógnarlega stómm og mörgum húsum. Við höfum notað ógnmikinn kraft til að spara tíma. Yfirsjónir em mishættulegar. Ríkis- valdið, yfirstjómir í borg og bæjum hafa veitt fjármagni til fram- kvæmda, oft meira af kappi en for- sjá, það er málið. Það hafa einstak- lingar líka gert. Að hrópa úlfur, úlfur er ekkert sniðugt í raun, þótt það veki að vísu eftirtekt og gæti jafnvel tekið á sig mynd úrbóta. Það breytir engri stöðu að segja „ég vissi það, ég vildi það“, það sem var gert eða ekki gert er það sem eftir stendur. Fréttaflutningur af geyminum í Gufunesi gat verið af upphafi stærsta harmleiks í sögu þjóðar okkar ef allt hefði farið á versta veg. Mannleg mistök em talin al- gjörlega geta verið til staðar, hvernig svo sem að er hlúð eða undir búið. Ég er gömul kona, við fréttina um eldinn í Gufunesi greip mig skelf- ing, fyrri umræða um slíkt tilfelli gerði mig algjörlega vanmáttuga, ég sá börnin mín fyrir mér, ein- hvem veginn, ég veit ekki hvemig, mér varð kalt og ég skalf. Hættu- ástandi sem aldrei var boðað, því var aflýst, en það dugði ekki minni aumu sál. Núna veit ég að frétt sem hefði hljóðað á þann veg að slökkviliði Reykjavíkur hefði tekist með fram- göngu af fullkomnu öryggi, snar- ræði og djörfung hugrakks manns, sem vann verk sitt sem óttalaus hetja, að slökkva eld sem logaði ofan á ammoníaksgeyminum í Gufunesi, þá hefði ég fyllst gleði og þakklæti og sál min engan hnekk beðið. Maðurinn sem fór fyrir í því vcrki að slökkva eldinn er í mínum augum þjóðhetja. Ég er afar þakklát stjórnun Al- mannavama fyrir að hafa sýnt ýtr- ustu gætni og yfirvegun, hleypa ekki af stað þeirri ógn sem ennþá meiri hinni fyrri var og til lítils gagns að auki. Við öll emm líka í þakkarskuld við starfslið Aburðarverksmiðjunn- ar frá fyrstu tíð, það hefur lagt bæt- andi hendur á það sem betur hefur mátt fara, það sýndu málsvör þess á fundi með framsóknarmönnum sem þeir efndu til, til umræðu um eldsvoðann og annað sem fjölmiðl- ar hafa talað um án nægrar þekk- ingar. Það er á allra vitorði að fleira hef- ur tekið á sig aðra mynd en sýn og samanburður frá hlaðinu á Gemlu- falli. Það getur ekki annað verið en að við flytjum verksmiðjuna frá Gufunesi. Við emm búin að króa hana þar inni, við erum búin að skilja að peningar leysa ekki þann ugg úr huga manns sem þegar er fyrir hendi, það er meira að segja fyrir löngu búið að útrýma virð- ingu manns fyrir þeim upphæðum þeirra þegar þær em teknar úr okk- ar sameiginlega sjóði, hvar svo sem á er litið, það er í það minnsta skoðun mín. Ég geri það að tillögu minni að hús þau sem eftir munu standa í Gufunesi verði fengin okkur nábú- um hennar til þess að endurvinna það sem í daglegu tali er nú kallað sorp. Dagur jarðar er nýgenginn, við börn hennar erum ekki búin að þurrka þann blett af augum okkar sem í dag er stærstur og hylur alla þá sýn sem jörðin okkar þarfnast í dag, sem er að fjarlægja það eitur sem þegar ógnar henni og hætta að bæta við það, við emm að byrja að lyfta hendinni og það er vel. Fyrsta bók Móse er enn þann dag í dag í gildi, það væri ráð að taka hana til greina, hún þolir alveg hina nýju sýn. Ég heyrði Kristján heitinn Frið- riksson, forstjóra Últímu, fyrstan manna segja þessa gullvægu setn- ingu að við hvert og eitt skyldum „setja manngildið ofar auðgildinu". Væri svo í reynd að við gerðum það hefði hjarta mitt ekki þurft að skelfast svo sem fyrr er lýst. Munum það að við eigum jörðina og að hún er móðir okkar. „Hugs- um áður en við hendum.“ Hugsum um það hversu óendanlega margt er á okkar valdi. Jafnvel þótt hið óviðráðanlega sé stórt í sniðum. 1. maí ávarp verkalýðsfélaganna 1. maí ávarp fulltrúaráðs Verka- lýðsfélaganna í Reykjavík, Banda- lags starfsmanna rikis og bæja og Iðnnemasambands Islands. 1. maí er dagur nýrrar sóknar og nýrrar vonar. Heil öld er nú liðin síðan verkafólk kom fýrst saman á baráttudegi verkafólks. Á slíkum tímamótum á vel við að meta ár- angur af starfi verkalýðshreyfing- arinnar, hvar okkur hafi miðað áfram og hvar við höfum staðið í stað. Kjarasamningar eru mikilvægasta verkefni verkalýðshreyfingar hverju sinni. Þeir samningar, sem gerðir voru í febrúar sl., marka upphaf nýrrar sóknar í atvinnu- og eíhahagslífi þjóðarinnar. Með víð- tækri samstöðu, samvinnu og áræðni félagsmanna ASI og BSRB tókst að gera kjarasamning sem felur í sér nýja sókn. Það þurfti kjark og þor til að bregða út af hefðbundinni leið. Það var niður- staða launafólks eftir rækilega um- ræðu í aðdraganda samninganna að rétt væri að reyna leið lægri kaup- hækkana, stöðugs gengis, minnk- andi verðbólgu og lækkandi vaxta. Vert er að vekja athygli á því að það er fyrst og fremst fyrir frum- kvæði stærstu heildarsamtakanna á vinnumarkaðinum að svo víðtækt samkomulag tókst um að reyna að breyta efnahagsumhverfinu hér á landi. Launafólk, atvinnurekendur, ríkisstjórn, sveitarfélög, bænda- samtökin í landinu og bankar og sparisjóðir sameinuðust um að- gerðina. Með frumkvæði í svo víðtækri og djarfhuga aðgerð sýnir verkalýðs- hreyfingin enn á ný að hún er afl í þjóðfélaginu sem lætur að sér kveða. Árangur samninganna er nú að koma ffam. Nafnvextir hafa lækk- að. Þó eru raunvextir allt of háir og er það skýlaus krafa verkalýðs- hreyfingarinnar að þeir lækki í samræmi við minnkandi verð- bólgu. Þá lofar lítil hækkun fram- færsluvísitölunnar í síðasta mánuði góðu. Fyrirtæki og stofnanir hafa dregið úr og hætt við verðhækkanir að kröfu verðlagseftirlits verka- lýðsfélaganna. Það er nauðsynlegt að verkafólk haldi vöku sinni og fylgist grannt með þróun verðlags. Með lækkandi verðbólgu glæðist á ný verðskyn neytenda. Við fögnum því að það mikla Ijöldaatvinnuleysi sem spáð var að hér yrði í upphafi árs 1990 virðist úr sögunni. Við erum í sókn. Stóru verkefnin eru framundan. Okkur ber að nýta þann árangur sem nú er í sjónmáli. I skjóli lækkandi verðbólgu eigum við að sækja aukinn kaupmátt í takt við batnandi þjóðarhag. Jafn- framt skulum við standa vörð um þau félagslegu réttindi sem verka- lýðshreyfingin hefur knúið fram á löngum tíma. I síðustu samningum var gerð til- raun með launabótum til að hækka hina tekjulágu umfram aðra launa- menn. Áfram verður að halda á þeirri braut að bæta afkomu þeirra sem búa við lökust kjör í þjóðfé- laginu. Við eigum að gera meiri kröfur til fyrirtækjanna í landinu en hingað til. Allt of mörg íslensk fyrirtæki standast enga samkeppni vegna slælegrar stjórnunar, fyrirhyggju- lausra rjárfestinga og ómarkvissrar markaðssetningar. Það er ekki hlut- verk verkalýðshreyfingarinnar að styðja við bakið á illa reknum fyr- irtækjum og vanhæfum stjómend- um. Þess vegna þarf launafólk að efla þekkingu sína á starfsemi fýr- irtækjanna og hafa meiri áhrif á stjómendur þeirra og stefnumörk- un. Við mótmælum þeim fýrirætlun- um útgerðarauðvaldsins á Islandi að slá eign sinni til frambúðar á fiskinn í sjónum. Auðlindir hafsins eru sameign allra Islendinga og mega aldrei verða séreign nokkurra útgerðarmanna og fjölskyldna þeirra. Islenskt verkafólk mun aldrei þola atvinnuleysi. Það er skýlaus krafa verkalýðshreyfingarinnar að öllu atvinnuleysi verði útrýmt. Is- lenskt Iaunafólk fagnar öllu frum- kvæði í atvinnumálum. Við eigum að nýta alla möguleika okkar til at- vinnusköpunar í landinu, þ. á m. aukinn stóriðjurekstur. Nauðsyn-' legt er að reka sem fiestar stoðir undir íslenskt atvinnulíf og tryggja með því lífskjörin betur en ella hefði orðið. Jafnframt ber okkur að hefja nýja sókn í umhverfismálum. Taumlaus auðhyggja í mörgum rikjum heims hefur skilið eftir djúp sár á móður jörð og auðlegð hafsins er einnig í hættu vegna mcngunar og fyrir- hyggjulausrar umgengni mannsins við hafið. Hér á landi eigum við að taka upp markvissa stefnu um nátt- úruvemd og bæta landinu upp þau landspjöll sem orðið hafa á liðnum öldum. Á baráttudegi verkafólks 1990 er þeirri spumingu varpað fram hér hver sé framtíð stéttarfélaga og heildarsamtaka þcirra. Áratugum saman hafa heildarsamtök okkar barist fyrir launakjömm og félags- legum réttindum. Allir þjóðfélags- þegnar hafa notið ávaxtanna af launabaráttunni. Félagslegu rétt- indin hafa smám saman orðið rétt- indi allra þjóðfélagsþegna án tillits til skoðana þeirra, aðildar að stétt- arfélögum cða hvort þeir hafi áunnið sér réttindin með vinnu- framlagi sínu. Þannig hefur hreyf- ing launafólks ætíð staðið með þeim veiku í okkar liði andspænis þeim sterku sem hafa oft viljað neyta aflsmunar. Nú þcgar við Islendingar stöndum frammi fyrir þátttöku í stærri og öflugri markaðsheildum en við höfum áður kynnst mun reyna á hreyfingu okkar á nýjan hátt. Er ekki rétt að beina þeirri spumingu einnig inn á við til félaga okkar um hvernig þeir geta eflt samtök sín frammi fýrir öflugri og stærri fýrir- tækjum og harðari markaðskröfum en við höfum áður tekist á við. Áróður atvinnurekenda hefur verið sá að rýra eigi vald stéttarfélag- anna og sjálfstæði þeirra. Við vís- um þeim áróðri á bug. Um leið ber okkur að leggja á ráðin um öfluga uppbyggingu verkalýðshreyfingar- innar frammi fyrir nýjum aðstæð- um í efnahagsmálum V-Evrópu. Þetta leiðir hugann að því að um þessar mundir eiga sér stað miklar breytingar á efnahagslífi Evrópu. Stefnt er að því að koma á einum sameiginlegum markaði Evrópu- bandalagsríkjanna tólf og jafnvel í sameiginlegu markaðssvæði allra ríkja V-Evrópu. Mikil afskipti verkalýðshreyfingarinnar í Evrópu hafa tryggt okkur ffamgang félags- mála í þessari þróun, en brýnt er að áfram verði unnið af alefli að þess- um málum til þess að ekki verði gengið á rétt launþega á nokkurn hátt. ASÍ og BSRB hafa unnið mjög náið með verkalýðshreyfingunni á Norðurlöndum um að tryggja að hinn félagslegi þáttur fái verðugan sess í Evrópu framtíðarinnar. Verkalýðshreyfingin fagnar batn- andi samskiptum stórvelda í austri og vestri og tekur undir kröfu ís- lendinga um afvopnun í höfunum um leið og samið er um fækkun kjamorkuvopna og samdrátt í heíð- bundnum vopnabúnaði. íslenskt launafólk fagnar hruni fá- mennisstjórna í ríkjum Austur- Evrópu. Ástæða er til að fagna því að aukið lýðræði hefur tekið við í þessum rikjum. Berlínarmúrinn er fallinn og harðsvíruð leynilögregla í sumum ríkjum hefur verið svipt miklum áhrifum sínum. Vakin er athygli á hrikalegum að- stæðum Palestínumanna sem svipt- ir em mannréttindum til vinnu, fé- lagafrelsis og dvalar i landi for- feðra sinna. Minnt er einnig á ástandið í S- Afríku. Islensk stjómvöld eru hvött til að halda fast við viðskiptabann á S-Afríku þar til apartheid-stefhan hefur verið afnumin með öllu. íslenskt verkafólks um allan heim um réttinn til vinnu, ffelsis og jafn- réttis. Baráttudagur verkafólks er nú haldinn undir kjörorðunum ný sókn. Ný sókn endurspeglar kröfur okkar um bætt lífskjör. Við sækjum fram til jafnréttis, frelsis og bræðralags.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.