Tíminn - 01.05.1990, Blaðsíða 20

Tíminn - 01.05.1990, Blaðsíða 20
AUGLÝSINGASÍMAR: 680001 - RÍKISSKIP NÚTÍMA FLUTNINGAR Hafnarhúsinu v/Tryggvagölu, S 28822 ^érrrélen.omrf^ UERDBREMVWSKIPn SAMVINNUBANKANS SUÐURLANDSBRAUT 18, SlMI: 688568 PÓSTFAX TÍMANS 687691 LONDON - NEW YORK - STOCKHOLM Kringlunni 8-12 Sími 689888 ríiiiiiin ÞRIÐJUDAGUR 1. MAÍ1990 HBBB Skaut á lögreglubifreið út um glugga í grunnskólanum á Olafsfirði. Víkingasveitinni fiogið norður til að yfirbuga manninn: Samræmdu próf i af lýst vegna byssumannsins Kalla þurfti til Víkingasveit lögreglunnar í Reykjavík í gærmorgun, þar sem ungur maður á Ólafsfirði, sem brotist hafði inn í grunnskólann á staðnum, skaut að lögreglubíl í tvígang í gærmorgun. Annað skotið hæfði lögreglubílinn, en engar skemmdir urðu á honum. Eftir aðflogið hafði verið með Víkingasveitina norður og hún umkringt skólahúsið, gafst maðurinn upp og gaf sig fram við lögreglu. Samræmt próf í stærðfræði átti að fara fram í skólanum í gær- morgun, en af því varð ekki vegna þessa. Að sögn Hrólfs Kjartans- sonar deildarstjóra hjá skrifstofu samræmdra prófa var ákveðið í samráði við skólastjóra skólans að af samræmdu prófi í stærðfræði yrði ekki í skólanum og væri það í höndum kennara skólans að meta frammistöðu nemendanna í vetur. Tilkvnning barst til lögreglunn- ar á Olafsfirði, um klukkan sjö, þess efnis að skothvellir heyrðust frá skólanum. Jón Konráðsson lögreglumaður á Ólafsfirði, sem var á vakt ók að skólanum og var þá skotið að bílnum á um 30 til 50 metra færi, í gegn um rúðu á skólahúsinu. Höglin buldu á bílnum, án þess að hann skemmdist. Þegar maðurinn skaut aftur að lögreglubílnum, þá af styttra færi, hæfði hann ekki. „Ég sá hann í glugganum þegar hann beindi byssunni að mér þegar ég keyrði fram hjá. Þegar ég var kominn í skjól stoppaði ég bílinn og hafði samband við bæjarfóget- ann, sem tók þá við stjórninni," sagði Jón. Kjartan Þorkelsson bæjarfógeti á Ólafsfirði sagði í samtali við Tímann að þeir hafi þegar í stað kallað út björgunarsveitina á staðnum til að Ioka svæðinu af og Víkingasveit lögreglunnar í Reykjavík. Atvikið var einnig til- kynnt rannsóknarlögreglunni og voru þaðan sendir tveir menn. Svo vel vildi til að fyrir utan lögregiu var enginn á ferli á þessu svæði þegar maðurinn skaut af byssunni, sem er tvíhleypt hagla- byssa. Björgunarsveitin lokaði af stóru svæði í grennd við skólann, þar til Víkingasveitin var komin á staðinn um klukkan hálf tíu. Þá var skólahúsið umkringt og um hálftíma síðar, eftir að Víkinga- sveitarmenn höfðu rætt við manninn, gafst hann upp og kom út. Að svo búnu fóru Víkinga- sveitarmenn af vettvangi með flugi. Maðurinn var færður til yfirheyrslu á lögreglustöðinni og rannsóknarlögreglan tók við mál- inu. Fjölmargir Ólafsfirðingar fylgd- ust með framgangi mála úr fjarlægð, enda báðir skólarnir lok- aðir, heilsugæslan og hótelið inn- an þess svæðis sem lokað var allri umferð. Maðurinn skaut fjölmörgum skotum bæði inni í skólahúsinu og út úr því. M.a. skaut hann á 1000 lítra fiskabúr sem stóð í anddyri skólans. I því voru um 800 lítrar af vatni sem runnu um 'ganga og fjölmargir skrautfiskar lágu eins og hráviði um gólf. Þá braut hann nokkrar hurðir og skaut að minnsta kosti tvær rúður úr. Vakt var um skólahúsið í nótt þar sem rannsókn var fram haldið í dag. Maðurinn sem hér var að verki er heimamaður og hefur komið við sögu lögreglu á staðnum áður. -ABÓ Jón Konráðsson, lögreglumað- urinn sem skotið var að, á leið inn á lögreglustöð. Tímamynd ES Stjórnendur Olíufélagsins vilja bjóða há peningaverðlaun fyrir upplýsingar sem leitt geta til handtöku ódæðismannanna: RLR neitar verólaunafé Tíminn hefíir örugga vitneskju um aö stjómendur Olíufélagsins h.f. vilji heita verölaunum til þess sem veitt gæti upplýsingar sem leiddu til handtöku ódæðis- mannsins eða mannanna er myrtu Þorstein Guðnason stöðv- arstjóra á bensínstöð félagsins við Stóragerði. Stjómendumir munu hafa ráðgast um þetta við RLR en RLR hafnað hugmyndinni alfarið. Tímanum tókst ekki að ná tali af stjómendum rannsóknar- innar og bera undir þá af hverju þeir neituðu hugmynd stjómenda Olíufélagsins h.f. Tíminn hefur fyrir því öruggar heimildir að yfir- stjóm Olíufélagsins hafði hugsað sér háar peningaupphæðir til að bjóða þeim er gæti veitt upplýs- ingar er leiddu til handtöku ódæð- ismannsins. Morðið á bensínafgreiðslunni við Stóragerði er enn óupplýst. RLR mun vinna að því að rannsaka morð- málið út frá þeirri kenningu að tveir menn hafi framið glæpinn og hafi þeir verið allvel kunnugir verklagi og vinnuháttum á bensínstöðinni. Svo virðist sem mennimir hafi vitað að uppgjör og afrakstur bensínsölu seinni vaktarinnar á stöðinni daginn áður var geymdur í stöðvarhúsinu og að fyrsta verk vaktstjóra um morgun- inn myndi vej:a að.tærpa bensínsjálf- Frá fmmrannsókn við Stóragerði. salann og gera sölu næturinnar upp áður en stöðin opnaði kl. 7.30 um morguninn. Þeir hafi beðið með að láta til skarar skríða þar til vaktstjór- inn; Þorsteinn heitinn Guðnason lauk uppgjörinu. Þorsteinn hafði lokið við að gera sjálfsalann upp og hafði verið búinn _ að skipta um prentrúllu í sölukassa stöðvarinnar og farinn inn í bakher- bergi þar sem hann var að undirbúa að hella upp á kaffi þegar ódæðis- maðurinn eða mennimir létu til skar- ar skríða. Þeir tóku síðan bíl Þorsteins og óku niður í miðbæ þar sem þeir lögðu honum. Á leiðinni hafa þeir dundað sér við að flokka ávísanir ffá reiðufé sem var i peningatöskunum sem þeir rændu úr peningaskáp bensínstöðv- arinnar. Ávísanimar fundust síðan allar í bílnum þar sem hann stóð á stæði bak við Hlaðvarpann að Vest- urgötu 3. Eftir því sem Tíminn kemst hafa morðingjamir haft upp úr krafs- inu um 300 þúsund krónur. ES/SÁ Viöræður umnýjan búvöru- samning Formlegar viðræður um nýjan búvörusamning eru að hefjast. Forystumenn Stéttarsambands bænda og fulltrúar landbúnaðarráðu- neytis héldu fund í gær, en þar var skipað niður í nefnd- ir og ákveðið hvernig staðið verður að viðræðum. Land- búnaðarráðherra sendi Stéttarsambandinu nokkra umræðupunkta fyrr í apríl- mánuði, en um eiginlegar viðræður hefur ekkl verið að ræða fyrr en nú. liaukur Halldórsson for- maður Stéttarsambands bænda segir að markmiðið sé að ná fram einhverri nið- urstöðu í viðræðunum í haust svo að aðalfundur Stéttarsambandsins geti tek- ið afstöðu til málsins. ^ _____________

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.