Tíminn - 01.05.1990, Blaðsíða 17

Tíminn - 01.05.1990, Blaðsíða 17
Þriðjudagur 1. maí 1990 Tíminn 17 rLvi\i\ðg i Mnr 1. maí - Opið hús Kosningaskrifstofa framsóknarmanna í Reykjavík að Grensásvegi 44, verðuropin 1. maí n.k, frá kl. 15.00-18.00. Sigrún Alfreð Kristján Valgerður Ósk Magnúsdóttir Þorsteinsson Benediktsson Sverrisdóttir Aradóttir Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi og Alfreð Þorsteinsson varaborg- arfulltrúi verða á staðnum. Kristján Benediktsson, f.v. borgarfulltrúi, og Valgerður Sverrisdóttir alþingismaður líta inn. Veitingar verða á staðnum undir stjórn Óskar Aradóttur. Allir velkomnir. Kosninganefndin. Árnesingar Jón Helgason Guðni Ágústsson Árlegur stjórnmálafundur og viðtalstími alþingismanna Framsóknar- flokksins verður haldinn í Þingborg, Hraungerðishreppi, þriðjudaginn 1. maí kl. 21.00. Allir velkomnir. Skrifstofa kjördæmissambands Iframsóknarmanna á Vestfjörðum Skrifstofa kjördæmissambands Framsóknarmanna á Vestfjörðum, Framsóknarfélags ísafjarðar og ísfirðings að Hafnarstræti 8 á Isafirði verður fyrst um sinn opin frá mánudegi til föstudags frá kl. 13 til kl. 17. Síminn er 94-3690. Selfoss - Kosningaskrifstofa Kosningastarfið í fullum gangi. Opiö hús að Eyravegi 15, alla virka daga kl. 16.00-22.00, laugardaga kl. 10.00-13.00. Sími 22547 og 22955 Allir velkomnir. - Heitt á könnunni. Framsóknarfélag Selfoss Kópavogur - Kosningaskrifstofa Kosningastarfið er í fullum gangi. Opið hús alla virka daga frá kl. 10.00-19.00 laugardaga frá kl. 10.00-13.00. Sími 41590. Framsóknarfélögin í Kópavogi REYKJANES Skrifstofa Kjördæmissambandsins að Hamraborg 5, Kópavogi er opin þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 17-19, sími 43222. KFR. Framsóknarfólk Húsavík Umræðufundir um mótun stefnuskrár B-listans fyrir bæjarstjórnar- kosningarnar á Húsavík verða haldnir í Garðari sem hér segir: Mánudaginn 30. apríl kl. 20.30. Umhverfis- oq skipulaqsmál. Hafnarmál. Miðvikudaginn 2. maí kl. 20.30. Skólamál. Menningarmál. Fimmtudaginn 3. maí kl. 20.30. Atvinnumál. Fjölmennum. Frambjóðendur. Garðabær - Kosningaskrifstofa Skrifstofa Framsóknarflokksins að Goðatúni 2 er opin alla virka daga frá kl. 17-19 og laugardaga frá kl. 13-15. Sími 46000. Akranes - Bæjarmál Athugið breyttan fundartíma vegna stefnuskrárvinnu í Framsóknar- húsinu, Sunnubraut 21. Fundur um atvinnumál verður 3. maí kl. 20,30. Fundur með eldri borgurum verður sunnud. 6. maí kl. 15.30. Allir áhugamenn velkomnir. Frambjóðendur. Marla Maples er oft kölluð „baðfata- fegurðardrottningin" og um þessar mundir eru slíkar myndir af henni vinsælar forsíðumyndir í amerískum viku- blöðum. Marla Maples, fegurðardrottning og fýrir- sæta, hlaut um síðir frægðina - en það var fyrir að vera ástkona ríkasta auðkýfings í heimi, og aðalþrætueplið í skilnaðarmálum Trump-hjónanna Mikil togstreita um Trump-auðæfin stendur nú á milli Trump-hjónanna. Það var í febrúar, sem auðkýfingur- inn Donald Trump og Ivana, eigin- kona hans um 13 ára skeið og móð- ir tveggja bama þeirra, játuðu því við fréttamenn, að skilnaður þeirra væri væntanlegur. Þá var komið á daginn, að Donald Trump hafði í lengri tíma átt vingott við fyrirsætuna Marla Maples, en hún hafði áunnið sér einhvem feg- urðardrottningartitil. Donald er sagður hafa búist við, að skilnaður við Ivönu gengi fljótt fyr- ir sig, því að þau höfðu gert sérstak- an samning, þegar þau giftu sig. Þar lofaði Donald Tmmp því að borga konu sinni 25 milljónir dollara, eftil skilnaðar þeirra kæmi. Hann hélt sig því hafa allt á hreinu. En þá kom gagnkrafa frá eiginkonunni, þar sem hún fer ffam á tvo og hálfan milljarð dollara! Ivana segist hafa hjálpað til við viðskiptin, m.a. verið hótelstjóri Plaza-hótelsins, sem Tmmp-hjónin áttu meðal annarra stóreigna í New York, og hún hafi tekið þátt í við- skiptamálum þeirra. Nú vom skilnaðarmálin komin í hnút, og lögfræðingar þeirra segja, að það geti tekið mánuði og jafnvel ár að semja um fjármál og skilnað Trump-hjónanna. Sjálfsagt eiga margir lögfræðingar eftir að maka krókinn á þessum skilnaði, svo sem mörgum öðmm slíkum í Bandaríkj- unum. Sagt er að Donald dollarakóngur hafi lýst því hátíðlega yfir, að hann muni aldrei aftur ganga í hjónaband, hvorki Marla Maples eða nokkur önnur geti teymt sig upp að altarinu. Nú er að sögn, ástin farin að kólna hjá Mörlu Maples og Tmmp, og er hann hræddastur við það, að hún muni í vonbrigðum sínum ljóstra einhverju upp, sem notað verði gegn honum í skilnaðarmálunum. Ein- hvem fjármálasamning gerði auð- kýfingurinn við vinkonuna, og svo er unnið að því, að hún komist í kvikmyndabransann. Verður Maria Maples „DALLAS-pía“? Hinn klóki Larry Hagman hefúr úti allar klær til að vekja athygli á DALLAS-þáttunum, sem farið er að dofna yfir eftir öll þessi ár. Nú sá Hagman sér leik á borði að fá Ivana og Donald Tmmp meöan enn lék allt í lyndi og Ivana skartar nýj- ustu gjöfunum frá eiginmanninum, demantshálsmeni og eymalokkum. fallega og fræga konu í Dallas- þættina, því að upp á síðkastið hefur þeim haldist illa á kvenstjömunum. Þær hafa hver af annarri hætt í þátt- unum. Nú er það líklegast, að Marla Maples verði næsta ástkona hins kræfa J.R. í DALLAS.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.