Tíminn - 01.05.1990, Blaðsíða 13
Þriðjudagur 1. maí 1990
Tíminn 13
m.a. í samvinnu við nágrannabændur.
En Þórarinn var kallaður til fleiri
verka.
Hann var verkstjóri við sláturhús KL
á Þórshöfn 1936-1955. Hann var
hreppsneíhdannaður í Svalbarðs-
hreppi 1942-1982 og oddviti 1958-
1982. Endurskoðandi KL á Þórshöfh
ffá 1946 og ffam á síðustu ár. Organ-
leikari í Svalbarðskirkju 1945-1985
og formaður Kirkjukórasamb. N-
Þing. 1974-1982.
Hann var formaður UMF Aftureld-
ingar 1933-1946 og starfaði mikið í
Iþróttasambandi N-Þing. og síðan í
Ungmsamb. N-Þing. og var þar at-
kvæðamikill bæði sem keppandi og
félagsmaður.
Þá var hann fyrsti formaður Fjár-
ræktarfél. Þistils, formaður Búnaðar-
fél. Þistilfj. 1950-1981, búnaðar-
þingsfulltrúi 1962-1982 og form.
Ræktunarsamb. N-Þing. austan heið-
ar 1955-1972.
Þórarinn var einn þriggja ritnefhdar-
manna að útgáfu bókarinnar Land og
fólk - byggðasaga Norður- Þingeyjar-
sýslu. Hann tók saman Niðjatal Þór-
arins Benjamínssonar og Vilborgar
Sigurðardóttur og gaf út skráð með
eigin hendi. Þá átti hann í fórum sín-
um fullunnið handrit að sögu Kaup-
félags Langnesinga.
Þessi upptalning sem er engan veg-
inn tæmandi ber það með sér að á
Þórarinn hlóðust trúnaðarstörf og
hann var off til kallaður þar sem
vandinn krafðist félagslegrar úr-
lausnar. Hann var enda samvinnu- og
félagshyggjumaður ekki aðeins í orði
heldur fyrst og ffemst í verki og kom
það ekki síst fram í búrekstri þeirra
bræðra hans og Áma sem vom svo
samrýmdir að þeir vom nánast sem
einn maður. En samvinnuhugurinn
var ekki bundinn við fjölskyldubúið
og nánasta nágrenni, hann var ein-
staklega vakandi fýrir þörfum sinnar
byggðar og nauðsyn samvinnu í
verslun, ræktun og ýmsum fram-
kvæmdum. I öllum greinum bar hann
hag heildarinnar fyrir bijósti af sann-
gimi og brennandi réttlætiskennd.
Sérhagsmunapot, valdafíkn og eigna-
græðgi átti hann einfaldlega ekki til
og ég hef engum manni kynnst jafn-
Qarri ýmsum mannlegum brestum,
svo sem öfund, eyðslusemi, drambi
og hégómleika. Hann var lítillátur og
ljúfgeðja en þaultaminn skaphiti ólg-
aði undir.
Gaman var að ræða þjóðfélagsmál
við Þórarinn og minnist ég þess ffá
unglingsárum mínum þegar ég hreifst
sem ákafast af róttækum sósíalískum
hugsjónum og hlýddi á talsmenn
þeirra að mér fannst hugmynda-
grundvöllur Þórarins sem alltaf
fylgdi þó Framsóknarflokknum
kannski róttækastur allra.
Þórarinn var mikill hófsemdarmaður
að öllu leyti, orðvar og umræðugóð-
ur, bindindismaður og gerði ekki
kröfur sér til handa. Eina „óhófíð"
sem hann leyfði sér var hugarflugið
þegar rætt var um ffamfaramál og
ffamtíðarsýn. Hugsun hans var mjög
mörkuð af græskulausri gamansemi,
orðatiltæki hans og athugasemdir
með sérkennilegum talanda vöktu ofl
kátínu og hlátur.
Þórarinn var mjög tónhneigður og
sérstaklega söngelskur, fátt snart við-
kvæma strengi í brjósti hans meira en
fagur söngur. Þegar systkinin úr Holti
komu saman var jafnan sungið,
stundum „fjárlögin“ nær öll og sum
mörgum sinnum með meiru og þar
lagði „Doddi“til djúpa, mjúka og
sterka bassarödd. Ymsar þær stundir
eiga sér nú sess meðal minna ljúfustu
minninga og nú er Þórarins sárt sakn-
að úr „Holtskómum“.
Þórarinn kvæntist ekki og átti ekki
böm en systkinaböm hans og fleiri
sem tengdust fjölskyldum þeirra
fengu sannarlega að kynnast bam-
gæsku hans og fátt var honum meira
tilhlökkunarefni en að fá þau í heim-
sókn. Og Þórarinn kunni að hlakka
til. Frændsystkinin sem vom á þriðja
tug komu flest ef ekki öll í Holt til
lengri eða skemmri sumardvalar og
helmingur þeirra var þar ámm saman
allt sumarið og síðan tóku böm þeirra
við. Öllum er minnisstætt hvemig
tekið var á móti þeim í Holti og ekki
síst átti Doddi ffændi hlýtt faðmlag
og yngstu bömin þurfti hann að
faðma fast og kyssa oft en þá kvört-
uðu sumir í gamni undan stingandi
skeggbroddum sem fengu að þrifast
lengur en vanalega í sauðburðar- og
heyskaparönnum.
Sjálfur var ég aðeins eitt sumar i
Holti sem bam en synir mínir urðu
þar sumrungar og við höfum feðgar
saman nágrennis vegna átt því láni að
fagna að geta stundum létt þeim
bræðmm vor- og sumarannir. Við ffá-
fall Þórarins er okkur söknuður í
huga en eftir stendur björt og hlý
minning og engan skugga að finna.
Eg leyfi mér fyrir hönd sumargest-
anna allra að votta innilegt þakklæti
og samúð. Hugur okkar er heima í
Holti hjá systkinunum sem eftir lifa
og syrgjandi ástvinum.
I dag, 1. maí, verður Þórarinn Krist-
jánsson frá Holti borinn til moldar að
Svalbarðskirkju í Þistilfírði. Þar
munu ættingjar hans, vinir og sveit-
ungar fjölmenna og verður eflaust
mörgum hugsað á þá leið semkveðið
var í gömlu erfiljóði:
„Finnst oss Þistiljjörður
fátœkari en áður".
Angantýr Einarsson.
Sigríður Böðvarsdóttir
Ijósmóðir
Fædd 29. ágúst 1912
Dáin 19. aprfl 1990
Mig langar til að minnast ömmu með
fáeinum línum. Það koma margar
minningar upp í hugann en erfitt að
festa þær á blað.
Amma var alltaf svo sterk og svo fjarri
manni að einhver sjúkdómur ætti eftir
að buga hana enda þegar ég kom heim
til Islands síðastliðið haust og hitti hana
í veikindum sínum þá minntist ég á að
það væri nú ekki svo langt að heim-
sækja okkur þegar henni liði betur, ó já
hún ætlaði sér að verða ffísk og þegar
sá tími kæmi þá væri nú hægt að taka
það til athugunar.
Eg var aðeins nokkurra ára gömul
þegar amma og afi fluttu til Reykjavík-
ur en hún var alltaf „amma í sveitinni"
hjá mér ffam á unglingsaldur þar til
mér var bent á að það væri nú ekki
hægt að kalla hana „ömmu í sveitinni“
þegar hún byggi í Reykjavík og væri
búin að búa þar í mörg ár. Eg hætti svo
smátt og smátt að kalla hana „ömmu í
sveitinni“ þó að í huganum væri hún
það alltaf þvi allar sögur sem hún sagði
mér ffá pabba, hans systkinum og
hennar eigin uppvexti tengdu mig
sterkum böndum til Laugarvatns. Og
reyndar er það svo í dag að bömin mín
kalla ömmu og afa „langömmu og
langafa í sveitinni".
Amma kenndi mér að passa upp á
náttúruna og ég ætti að vemda hana. í
bústað ömmu og afa „inni í dal“ plönt-
uðu þau grenitré fyrir hvert bamabam
og bamabamabam og sem bam var ég
svo stolt yfir því hvað tréð mitt óx vel,
eins og dóttir mín var síðan stolt yfir
sínu tré.
Tónlistaráhugi minn kviknaði hjá
ömmu og afa. Þau áttu píanó sem
Gunnar frændi spilaði á og þótti mér
ljúfl að hlusta á hann spila svo það varð
úr að ég byrjaði að læra á píanó. Fyrsta
árið æfði ég mig hjá þeim og fékk
margt hrósið fyrir það litla sem ég gat
spilað.
Elsku afi, við hér í Vejle, Halli, Fríða,
Böðvar og Barði vitum að mikill sökn-
uður og tómleiki mun vera hjá þér, en
biðjum Guð að styrkja þig.
Sigríður Böðvarsdóttir
Kveðja frá Ameríku
Eins og blóm án blaða
söngur án raddar
skyggir dökkur fugl heiðríkjuna.
Vorið, sem kom i gœr,
er aftur orðið að vetri.
(Magnús Jóhannsson frá Hafnamesi)
Nú þegar amma er dáin, viljum við í
fáeinum orðum þakka fyrir allt sem
hún gerði fyrir okkur. Þakka íyrir hvað
hún var yndislega góð amma.
Að eiga minningar um slíka ömmu er
eins og að eiga gullkistu sem aldrei
tæmist, jafhvel þó sífellt sé tekið úr
henni.
Amma hefur verið okkur til fyrir-
myndar í óendanlega mörgu. Hún var
óþreytandi við að segja okkur sögur af
uppvexti sínum á Laugarvatni og síðar
búskap þeirra afa í Laugardalnum, þeg-
ar mamma og bræður hennar vom að
alast upp. Fyrir bragðið fannst manni
afskaplega merkilegt að alast upp á
Laugarvatni, þar sem ættaróðalið var
fyrmm. Af ömmu lærðum við betur að
meta náttúruna og fegurð hennar.
Síðari árin hafa tengslin við Laugar-
vatn haldist með sumarbústaðaferðum,
sem em margar hveijar ógleymanlegar.
Þrátt fýrir nýbyggingar var einhvem
veginn alltaf skemmtilegast að fara upp
í gamla sumó, sérstaklega ef afi og
amma vora þar. Það var í raun ólýsan-
lega notalegt að dvelja þar með þeim.
Oftast rigningarsuddi eins og gengur
og gerist á Suðurlandi, en það var bara
þægilegra. Afi stússandi úti í lóðinni og
amma segjandi sögur á milli þess sem
hún var á þönum í eldhúsinu. Yfir öllu
rikti stóísk ró. Hamingjusamt hjóna-
band afa og ömmu vcrður afkomend-
um þeirra enn ein fýrirmyndin úr lifi
þeirra.
Þegar Þórir fæddist var amma strax
boðin og búin til þess að passa. Hann
var ekki nema 7 vikna þegar langamma
tók við bamapíustarfinu. Þetta var
ómetanlegt og ekki hægt að hugsa sér
bamið í betri höndum.
Næstu tvo vetur passaði amma svo
Þóri og fýrir það emm við óendanlega
þakklát. Þórir litli kemur til með að búa
að þessu alla tíð. Þó langt sé síðan, alla
vega mælt í ævi lítils drengs, er víst að
hann man ýmislegt sem gerðist, sumt
kannski eftir ffásögnum, en það er jafn
skemmtilegt fýrir það. Ekkert finnst
honum skemmtilegra en að rifja upp
þegar hann var að dansa við langömmu
sína eða afa við undirleik sinfóníu-
hljómsveitarinnar eða hvað langamma
varð hrædd þegar botninn pompaði úr
rúmi litla karlsins, sem lét sérþó hvergi
bregða heldur hélt bara áfram að sofa.
Allir sem þekktu ömmu koma til með
að sakna hennar, afa missir er þó að
sjálfsögðu mestur og við vottum hon-
um innilega samúð okkar. Víst er að
mikið hefðum við viljað fá að njóta ná-
vistar við hana lengur. Þannig verður
það því miður ekki.
Við verðum að hugga okkur við að
hún fékk að lifa mjög hamingjusömu
lífi. Sé hamingjan í því fólgin að eign-
ast góða fjölskyldu og sjá hana þrosk-
ast og dafna vel, sem víst er að henni
fannst, vom fáir sem hamingjan lék
meira við.
Kristín, Gunnar, Þórir og Gestur
Léft spjall á laugardegi
Laugardaginn 5. maí kl. 10.30 verður létt spjall að Grensásvegi 44,
þar sem rætt verður um staðsetningu Sorpböggunarstöðvarinnar.
Sigrún Magnúsdóttir Alfreð Þorsteinsson
Sigrún Magnúsdóttir og Alfreð Þorsteinsson ræða málin.
Allir velkomnir.
Hll
Sigríður Jóhanna
Hjartar Snorradóttir
Reykjavík - Kosningaskrifstofa
Kosningaskrifstofa B-listans í Reykjavík verður opin virka daga frá kl.
9-22 að Grensásvegi 44, sími 680962 og 680964.
Gestgjafar í dag verða: Sigríður Hjartar og Jóhanna Snorradóttir.
Komið á kosningaskrifstofuna og takið þátt í starfinu með okkur.
Kosninganefndin.
Framsóknarvist
verður spiluð n.k. sunnudag 6. maí kl. 14.00 í
Danshöllinni (Þórscafé).
Veitt verða þrenn verðlaun karla og kvenna.
Haraldur Ólafsson flytur stutt ávarp í kaffihléi.
Framsóknarfélag Reykjavíkur.
Framsóknarfélögin í Kópavogi
bjóða Kópavogsbúum í kaffi að Hamraborg 5, í dag 1. maí frá kl.
15-17. Frambjóðendur B-listans verða á staðnum ásamt varafor-
manni Framsóknarflokksins, Halldóri Ásgrímssyni, og Þórði Ólafs-
syni, formanni verkalýðsmálanefndar Framsóknarflokksins í Suður-
landskjördæmi.
Hafnarfjörður - Kosningaskrifstofa
Kosningastarfið í fullum gangi.
Opið hús að Hverfisgötu 25 alla virka daga milli kl. 17 og 19,
laugardaga frá kl. 10 til 13.00. Sími 51819.
Allir velkomnir, alltaf heitt á könnunni.
Framsóknarfélögin
Framsóknarfólk Norðurlandi vestra
Skrifstofur Framsóknarflokksins og Einherja, Suðurgötu 3 á Sauðár-
króki, verða fyrst um sinn opnar mánudaga kl. 13-17 og þriðjudaga
og miðvikudaga kl. 9-12, sími 36757.
Akureyri
Skrifstofa Framsóknarflokksins er að Hafnarstræti 90, Akureyri. Opin
alla virka daga frá kl. 13.00-19.00.
Kosningastjóri er Sigfríður Þorsteinsdóttir. Síminn er 96-21180.
Senclum félögum okkcir, verkafólki nl
lands og sjávar, bestu kveðjur og ánmð-
aróskir í tilefni 1. maí.
Landssðmbartd
iðnverkafólks