Tíminn - 09.06.1990, Blaðsíða 5

Tíminn - 09.06.1990, Blaðsíða 5
Laugardagur 9. júní 1990 HELGIN 13 gert þetta?“ spurði hann í sjálf- sævisögu sinni. Vitanlega gerðu þeir þetta líka, Bangsímon og Grislingur. Vera má að þama sé og komin sú löngun til að hverfa burtu frá raunveruleikanum, sem búið hafði með Milne löngu áður en hann varð eiginmað- ur og faðir. Hann þver- neitaði líka alltaf að sonurinn, Robin, tengd- ist sögunum á hinn minnsta hátt. Þó em sögumar af Bangsímon auðvitað ekki með öllu ósnörtnar af hinum fullorðna manni. Fyndni og háð sögumannsins er sann- arlega ekki bamalegt. Hið vemdaða umhverfi er alltumlykjandi í bók- unum. Það er dæmigert fyrir Milne. Þótt hann vildi skera sig úr fjöld- anum var hann blýfast- ur í því vanabundna. Af þessari ástæðu fannst honum hann stöðugt á flótta og komast hvergi — og ekki bara eins og þegar Bangsímon var fastur í holumunnanum hennar Kaniku. Sterk- asta minning hans frá því er hann tók þátt í bardögun- um við Somme var um ungan foringja, sem klæddist nokkurs konar brynvesti úr keðjum, sem móðir hans hafði gert honum. Það átti að vemda hann fyrir byssustingjunum. Hann var sprengdur í tætlur fyrsta daginn sem hann var á vígstöðvunum. Það hve ákafur friðarsinni Milne gerðist eftir 1930 var enn ein misheppnuð tilraun til þess að ganga á hólm við það sem krafist er að menn eigi að binda skilyrðislausa tryggð við. En um leið og stríðið braust út breyttist tónninn og hann hvatti alla til að ganga á hólm við Hitler. Tókst honum með miklum eftirgangs- munum að fá Robin, son sinn, tekinn í herinn, þótt honum hefði verið hafnað vegna heilsubrests. Aðrir friðarsinnar fylltust skelf- ingu vegna svika hans. En þeim sást yfir að taka með í reikning- inn ákafa þörf hans fyrir vin- sældir og Graham Green sagði að væri þess valdandi að hann hlypi jafhan á eftir við- teknum þjóðfélagslegum gildum. Milne brá ónotalega við þessi um- mæli. Með eftirminnilegri persónum í ævisögu Milne er bamfóstra Ro- bins, Olive Rand. Henni var drengurinn miklu nákomnari en foreldrum sínum. Milne var nokk- uð afbrýðisamur út í hana og vildi líta á hana sem bamapíu af hvers- dagslegasta tagi. En Oli- ve rækti tryggð við Ro- bin, svo að hún leyfði sér ekki að giftast fýrr en hann fór í heimavistar- skóla. Þá var hún orðin of fullorðin til þess að eignast böm og þess í stað fyllti hún garðinn sinn af steinlíkneskjum af bömum og var eitt þeirra eftirmynd Ro- bins.“Þessi böm okkar em óþekktarangar,“ sagði maður hennar í spaugi. „Þau koma aldr- ei inn á kvöldin.“ Þetta kald- hæðnislega smáatvik má nefna hér, vegna þess að það tengist því gjaldi sem greitt var fyrir hann Bangsímon. Margir muna eftir honum Bangsímon, sem var vinsæl stjarna barnatíma útvarpsins á fyrri árum og á sér eflaust marga góða vini enn hérlendis meðal barna, þótt þeir hafi sjálf- sagt verið niiklu fleirl þegar þær Helga og Hulda Valtýsdætur fluttu sögurnar af honum í leikformi fyrir 1960. En um höfund Bangsímons vita færri margt, en hann var breski rithöfundurinn A A Milne, sem hér er frá sagt í tilefni af ævisögu hans eftir Ann Thwaite, sem út er komin fyrir skömmu og hefur vakið athygli erlendis. Lúðrasveit Hafnarfjarðar. Lúðrasveit Hafnarfjarðar 40ára Á þessu ári eru 100 ár iiðin ffá því að fyrst var stofnuð lúðrasveit i Hafharfirði, en hún starfaði aðeins í nokkur ár. Þann 31. janúar 1950 var gerð ijórða tilraunin til þess að halda uppi lúðrasveit í bænum og hefur hún starfað óslitið síðan. Fyrsti formaður var Friðþjófur Sigurðsson, scm enn er starfandi í sveitinni og fyrsti stjómandinn var Albert Klahn. Á þessum tíma hefur sveitin átt sín góðu ár, þegar 40 — 50 hljóðfæra- leikarar hafa tekið þátt í starfinu, og einnig hafa verið nokkur árin, sem líf sveitarinnar hefur hangið á bláþræði. En með þrautseigju félaganna og góðum stuðningi bæjarstjómar Hafnarfjarðar á hveijum tíma hefur tekist að halda starfinu áfram. Afmælisárið er eitt af erfiðu ámnum, en menn horfa með bjartsýni til framtíðarinnar, eftir að bæjarstjómin leysti húsnæðisvanda sveitarinnar á síðasta ári, og allar líkur benda til að inn- an fárra ára bætist henni liðsstyrkur úr Lúðrasveit Tónlistarskóla Hafh- arijarðar. Nokkrir stjómendur hafa leitt lúðrasveitina yfir þetta tímabil, en lengst var Hans Ploder stjómandi eða 25 ár samfellt. Hann lét af því starfi í fyrra og við tók Stefán Omar Jakobsson, tónlistarkennari, sem einnig er formaður sveitarinnar nú. Laugardaginn 9. júní nk. heldur Lúðrasveit Hafnarfjarðar stutta síðdeg- istónleika í Hafnarborg kl. 15.00. Hans Ploder mun stjóma tveimur verkum sem gestur. Allir em velkomnir meðan húsrúm leyfir og er að- gangur ókeypis. „Og Ijóðin á skáldanna tungu“ Kristján Jónsson frá Snorrastöðum skrifar vegna þáttar af Þorsteini Erlingssyni Eftirfarandi upplýsingar hafa okkur borist frá Kristjáni Jónssyni frá Snorrastöðum, vegna þáttar okkar hér á dögunum um Þorstein Erlingsson. Þökkum við Kristjáni forvitnilegt bréf hans, en hann seg- ir: _ „í Helgarblaði Tímans 12 — 13 maí sl. er greinileg — æ, allt of greinileg frásögn finnst mér jafn- vel, þar sem getið er um orsökina til þess að stórskáldin Steingrímur og Matthías styrktu Þorstein Er- lingsson til náms og giskað á að Jón söðli hafi komið þar við sögu. Eg hef heyrt um það aðra sögn, stómm skemmtilegri og allt eins trúlega vil ég segja. Hún er svolát- andi: Eitt sinn bar það við að skáldjöframir riðu saman í Þórs- mörk og höfðu að fýlgdarmanni stálpaðan strák úr Fljótshlíðinni. Þegar í Þórsmörkina kom fóm skáldin að bera saman bækur sínar og ljóð. Steingrímur hafði þá ný- lega ort „Þú vorgyðja svífur“ og las það fyrir Matthías. En Stein- grími líkaði ekki vel ein hendingin í þriðja erindinu. Allt i lagi með þrjár íyrstu hendingamar: „Svo frjáls vertu móðirsem vindur á vog og vötnin með straumunum þungu. Sem himinsins bragandi norðljósalog..." Þorsteinn Erlingsson En þá kom hending ekki nógu góð. Vildi hann nú fá aðstoð Matthíasar við lagfæringuna. Og þama sátu góðskáldin og bám hverja hend- inguna eftir aðra við, en líkaði engin. Fljótshlíðarstrákurinn hlýddi á. Og skyndilega gall hann við og segir: „Því segið þið ekki bara „og ljóðin á skáldanna tungu?“ Skáldin sáu fljótlega hvar feitt var á stykkinu og skráðu hendinguna. En strákurinn var Þorsteinn Er- lingsson. Og þetta vakti athygli hinna frægu skálda á unga skáld- inu, svo þau studdu piltinn til mennta. Nú liggur næst fyrir að færa fram einhver rök fyrir því að þetta geti a.m.k. verið satt, jafnsatt og það að Jón söðli muni hafa skrifað. Guðmundur hét maður Svein- bjamarson og hann bjó hér í Borg- amesi, þegar ég þekkti hann, en hafði áður búið vestur í Álftanes- hreppi. Guðmundur var maður sem ekki flíkaði algerri markleysu sem sannindum, enda vissi ég ekki ann- að en að honum væri trúað flestum betur. Hann sagði þetta raunar ekki sem öruggan sannleika en vel mögulegan. Eg hafði enga gáninga á að inna Guðmund eftir heimild- um, en treysti því bara að hann færi ekki með marklaust fleipur. Ég fór eitt sinn til sonar Þorsteins Erlingssonar, Erlings háls- nef- og eymalæknis, vegna meins í eyra. Sagði ég honum þá þessa sögu. Hann kannaðist ekki við hana, en vissi að þessi skáld höfðu styrkt foður sinn til náms. Ekki alls fyrir löngu var ég með í ferð á Njálu- slóðir. Leiðbeinandi var hinn margfróði maður Haraldur Matthí- asson frá Laugarvatni. Ég sagði honum þessa sögu um hendingu ljóðsins, og mér sýndist á svip hans að hann kannaðist við sög- una, en þá varð hann að sinna ein- hverju í sambandi við sitt starf mjög skjótlega og mig skorti áhuga til að inna hann betur eftir þessu, þegar tími vannst til, en sé nú eftir því. Ekki er ég að mælast eindregið til að þessi skrif mín séu birt í blað- inu. Legg það bara í vald þeirra sem þar ráða. Kristján Jónsson frá Snorrastöðum, nú á Dvaiarheimili aidraðra í Borgarnesi.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.