Tíminn - 09.06.1990, Blaðsíða 6
14 Tíminn
Laugardagur 9. júní 1990
Sigurður Geirdal oddviti framsóknarmanna
í Kópavogi og væntanlegur bæjarstjóri:
Það eru seigir innviðir
í Framsóknarflokknum
Eins og kunnugt er var myndaður nýr
meirihluti í bæjarstjóm Kópavogs íyrir
skömmu af Framsóknarflokki (1) og
Sjálfstæðisflokki (5). Flokkamir hafa
gert með sér málefhasamning og skipt
með sér embættum og kemur það í hlut
Sigurðar Geirdal, bæjarstjómarfulltrúa
Framsóknarflokksins að taka við emb-
ætti bæjarstjóra, en Sigurður hefur verið
ffamkvæmdastjóri Framsóknarflokksins
ffá 1986. Sigurður er fæddur í Grímsey
4. júlí 1939 og hefur búið í Kópavogi
síðan 1962, þar sem hann hefur tekið
mikinn þátt í félagsmálum.
Sigurður var fyrst beðinn að greina frá
málefnasamningi milli Framsóknar-
flokksins og Sjálfstæðisflokksins i
Kópavogi.
„Þetta er óvenju ítarlegt samkomulag í
10 köflum um helstu framkvæmdarmál í
bænum. Það var unnið þannig, að við
skoðuðum kosningasteftiumál flokk-
anna, athuguðum hvað rakst á og hvað
fór saman. Málflutningur okkar fyrir
þessar kosningar var mjög líkur, við
deildum á fjármálastjómun í Kópavogi
sem hefur verið slæm. Bærinn skuldar
of mikið og skuldin er óheppilega sam-
ansett því mikið er af skammtímalánum.
Einnig deildum við á meirihlutann
vegna þess að stöðnun hafði átt sér stað
hvað varðar verklegar ffamkvæmdir.
Bæði er mikið af hálfklámðum verkefn-
um og m.a. hefur lítið verið gert til þess
að halda gömlu götunum við. Við ffam-
sóknarmenn settum það sem skilyrði
fyrir meirihlutaviðræðum að ráðast í
endurbætur á þeim, sem margar hveijar
eru orðnar 20-30 ára gamlar og lítið hef-
ur verið gert fyrir.
Ýmislegt þurfti að ræða
í sambandi við
íþróttahöllina
Viðkvæm mál milli okkar og sjálfstæð-
ismanna voru ekki mörg. Um íþrótta-
höllina þurfti reyndar ýmislegt að ræða.
Sjálfstæðismenn töluðu mikið um end-
urskoðun samningsins við ríkið, eða
jafhvel að rifta honum. Við lögðum
áherslu á þá stefhu, að höllin risi fyrir
1995 og um það náðist samkomulag,
jalhframt því sem samið verði við ríkið
um aukið framlag til hallarinnar. Að
mínu mati er umræðugrundvöllur fýrir
því, ef það kemur í ljós að veigamiklir
þættir í hönnuninni voru ekki í mynd-
inni þegar samið var um fjármálin.“
Aróður fyrrverandi meirihluta fyrir
þessar kosningar gekk út á að þeim hafí
tekist að gera Kópavog að félagsmálabæ
og sá árangur væri í hættu ef meirihlut-
inn félli. Er það rétt?
„Félagsmálasaga Kópavogs er mjög
falleg saga. Hún hófst 1970 með þeim
meirihluta sem þá var myndaður, en
hann setti strax á fót vinnu við að endur-
skipuleggja stjómkerfí bæjarins, sem
fólst m.a. í því að sameina ýmsar nefhd-
ir með skyld mál. Þess vegna voru
nokkuð margar nefhdir sameinaðar und-
ir eitt félagsmálaráð. Sett var á fót sér-
stök félagsmálastofhun og ráðinn full-
trúi til þess að sinna þessum málaflokki,
sem var Kristján Guðmundsson. Það
sem gleymist hins vegar þegar A-flokk-
amir em að hæla sér af þessu er, að
framsóknarmenn og sjálfstæðismenn
vom þá í meirihluta.
Ekki ágreiningur
um félagsmál
Um félagsmál í Kópavogi er ekki
ágreiningur á milii flokka og núverandi
meirihluti mun halda áfiram að sinna
þessum málum. Við teljum að „Kópa-
vogsmódelið“ sé að mörgu leyti góð fyr-
irmynd, en vandamálið er að það hefur
borið af leið. Það ríkir of mikil ofstjóm
og nauðsynlegt er að stytta boðleiðir,
þannig að hver króna nýtist sem i félags-
málin er sett.“
Við erum ekki varadekk
Annar möguleiki varðandi meirihluta-
myndun í Kópavogi virtist koma til
greina, en hann var sá að þið fæmð í
samstarf við A- flokkana. Hvers vegna
völdu ffamsóknarmenn ekki þá leið?
„Þessir flokkar mynduðu meirihluta ffá
1978-1986 og allt gott um það að segja.
Alþýðuflokkur og Alþýðubandalag
virðast hins vegar líta niður á Fram-
sóknarflokkinn og þegar A-flokkamir
höfðu fengið aukinn styrk 1986 og
þurftu ekki nauðsynlega á Framsóknar-
flokknum að halda var honum sparkað
út. Látum það vera. En með því var
Framsóknarflokkurinn þurrkaður út úr
öllum nefhdum og margir ffamsóknar-
menn í Kópavogi hafa átt mjög erfitt
með að fyrirgefa A- flokkunum þetta.
Núna koma þessir sömu menn töltandi
yfir til okkar eins og ekkert hafí gerst og
fara ffam á samstarf. Tónninn var þann-
ig að það væri nóg fyrir þá að veifa
hendi til okkar, þá kæmum við. Viðhorf-
ið var svipað og við væmm varadekk í
skottinu. Ef það springur þá er bara að
skutla dekkinu undir og vona að ekki sé
langt á næsta viðgerðarverkstæði."
Vom allir framsóknarmenn í Kópavogi
sammála þeirri leið sem siðan var farin?
„Nei, það vom ekki allir, en yfírgnæf-
andi meirihluti var samþykkur þessari
ákvörðun. Við kölluðum saman fulltrúa-
ráð þar sem kynntar vom óskir ffá bæði
Sjálfstæðisflokki og A-flokkunum um
formlegar viðræður. í fulltrúaráði vom
aðeins örfáir sem greiddu atkvæði gegn
því að snúa sér til Sjálfstæðisflokksins.
Og síðar samþykkti fulltrúaráðið með
yfirgnæfandi meirihluta drög að mál-
efhasamningi milli flokkanna.“
Nú bendir allt til þess að þú verðir
næsti bæjarstjóri. Lögðuð þið áherslu á
það, í viðræðum við sjálfstæðismenn, að
fá bæjarstjóraembættið?
„Nei, svo var ekki. Það var ljóst að
Sjálfstæðisflokkurinn myndi ekki vilja
ráða bæjarstjóra vinstri meirihlutans og
það vissu allir sem við þá ræddu. Spum-
ingin sem ég þurfti að fá svar við, hvort
sem það var ffá A-flokkunum eða Sjálf-
stæðisflokknum, var hvemig það yrði
tryggt að ég, sem einn bæjarfulltrúi á
móti fímm, týndist ekki. Strax var ljóst
að Sjálfstæðisflokkurinn vildi ganga að
samstarfinu á þeim gmndvelli að tveir
flokkar ynnu saman, en ekki fímm bæj-
arfulltrúar á móti einum og það leist
okkur best á.
Tvö lykilembætti em mikilvæg í bæjar-
stjóm, þess vegna var eðlilegt að þeim
yrði skipt á milli flokkanna. Efsti maður
á lista Sjálfstæðisflokksins er verkfræð-
ingur, sem verður formaður bæjarráðs,
ég er viðskiptafræðingur og því er þessi
verkaskipting ekki óeðlileg."
Verðum ekki
bornir ofurliði
Þið emð sem sagt ekki hræddir um að
verða bomir ofurliði í þessu samstarfi?
„Alls ekki og að sjálfsögðu höfum við
samkomulag sem hefur að hluta til snú-
ist um þetta atriði. Um samstarf meiri-
hlutans verður fjallað í sérstökum
vinnuhópi, svokallaðri ffamkvæmda-
nefnd sem í em fimm efstu menn á
hvomm lista. Þar rikir algert jafhræði og
ég hef ekki orðið var við annað en menn
gangi alveg heilir til þessa tveggja
flokka samstarfs, sem sést best á því
hversu stóran hlut við fáum í nefhdum
og ráðum. Skiptingin er þannig að við
fáum helminginn af öllum nefndarfor-
mönnum og einn mann í allar nefhdir.“
Hvert verður framnald deilu Kópavogs
og Reykjavíkur um lagningu Fossvogs-
brautar?
„Þessar deilur um Fossvogsdalinn vom
allar óþarfar. í samningnum sem var
gerður á sínum tíma vom skýr ákvæði
um að Fossvogsbraut yrði ekki lögð
nema með samþykki beggja aðila. Mál-
ið var hins vegar blásið upp af klaufa-
skap og gert að leiðindamáli að ástæðu-
lausu. Þannig að Fossvogsbraut er ekki,
né verður, á dagskrá hjá þessum meiri-
hluta.“
Seigir innviðir í
Framsóknarflokknum
Þú hefur verið ffamkvæmdarstjóri
Framsóknarflokksins ffá 1986. Hvemig
lítur þú stöðu flokksins eftir þessar
kosningar, annars vegar á landinu öllu
og hins vegar í Kópavogi?
„Staða Framsóknarflokksins sem þjóð-
málaflokks er i heild afskaplega sterk.
Það sýnir sig best í öllum þeim svipting-
um sem verið hafa undanfarið; stjómar-
myndanir, klofhingar í flokkum og ann-
að slíkt, að flokkurinn hefur alltaf haldið
sínum hlut, hvað sem á gengur. Þar
kemur margt til, hann er ákaflega
stefhufastur flokkur, hefur verið hepp-
inn með forystumenn og vegna þess að
Framsóknarflokkurinn er miðjuflokkur
vita menn alltaf hvar þeir hafa hann. Það
em seigir innviðir í Framsóknarflokkn-
um.
Útkoma flokksins á
Reykjanesi ekki nógu góð
I þessum sveitarstjómarkosningum
kemur það í ljós að flokkurinn endur-
heimtir fyrri styrk, eða eftir að flokkur-
inn fór halloka fyrir fjómm ámm. Erfíð-
asta svæðið fyrir okkur er suð-vestur
homið, þar sem menn virðast dragast
meira í stórfylkingar. Sjálfstæðisflokk-
urinn er auðvitað mest áberandi og
vinstrimenn afskaplega duglegir við að
hjálpa þeim með því að kljúfa sig í smá-
hópa. Á einstöku stað hefur myndast
fylking í kringum Alþýðuflokkinn. Eg
verð að segja að mér finnst útkoma
Framsóknarflokksins í Reykjanesi ekki
nógu góð og við stöndum í stað í Kópa-
vogi. Ástæðan fyrir þessu gengi á
Reykjanesi er kannski fyrst og fremst sú
að við lendum á milli stórfylkinga:
Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks í
Keflavík; einnig í Hafnarfírði og Kópa-
vogi. Samt tel ég að við höfum unnið
dálítið merkilegan vamarsigur í Kópa-
vogi, vegna þess að hvorugur aðilinn
vildi að við næðum inn manni.“
Þú kemur til með að fara úr fram-
kvæmdastjórastöðu stjómmálaflokks
yfir í embætti bæjarstjóra. Áttu ekki von
á því að þetta verði töluverð umskipti?
„Þau störf sem ég hef verið að vinna
em ekki í sjálfu sér pólitisk störf. Mér
sýnist starf framkvæmdastjóra vera
ósköp svipað og starf bæjarstjóra, þetta
er fjármála- og verkstjóm og ég er við-
skiptafræðingur með stjómun sem sér-
svið. Þess vegna er ég óhræddur við að
taka við embætti bæjarstjóra. Ég lít svo
á að staða bæjarstjóra Kópavogs verði
mun sterkari þegar viðkomandi situr
bæði sem bæjarstjómarfulltrúi, með at-
kvæðisrétt á þeim vettvangi og í bæjar-
ráði.“
Hver verður arftaki þinn hjá Framsókn-
arflokknum?
„Sem betur fer á Framsóknarflokkur-
inn mikið af úrvals fólki og einhvers
staðar úr þeim hópi mun næsti fram-
kvæmdastjóri flokksins koma. Það er
hins vegar ekkert farið að ræða málið
ennþá, enda hafa þessi umskipti mín
borið mjög skyndilega að og hvemig
mál hafa þróast eftir kosningar. Fram-
undan em sumarffí og við höfum góðan
tíma fram á haust til þess að ákveða hver
verður næsti firamkvæmdastjóri Fram-
sóknarflokksins.“
Kópavogurvaxandi bær
Að lokum langar mig til þess að spyija
þig hvaða augum þú lítur Kópavog
ffamtíðarinnar?
„Kópavogur er ört vaxandi bæjarfélag
og mun vaxa mikið í firamtíðinni. Bær-
inn er ákaflega vel í sveit settur hér á
höfuðborgarsvæðinu, það er t.d. mun
styttra niður í miðbæ Reykjavíkur úr
Kópavogi en úr sumum hverfum
Reykjavíkur. Kópavogur hefur yfír að
ráða miklu landi og fysilegu fýrir at-
vinnustarfsemi og ég trúi að hingað
muni flytja mikið af fyrirtækjum í ffam-
tíðinni. Kópavogur er miðsvæðis á höf-
uðborgarsvæðinu og við þær aðstæður
mun bærinn óhjákvæmilega gegna stóru
hlutverki.“
Hermann Sæmundsson.