Tíminn - 12.07.1990, Síða 3
Fimmtudagur 12. júlí 1990
Tíminn 3
Blankheit fyrirtækja og einstaklinga norðanlands:
Margar gjaldþrota-
beiðnir á Akureyri
Allt stefnir í að gjaldþrot einstaklinga og fýrírtækja á
Akureyri verði fleiri á þessu ári en nokkru sinni fyrr.
Þegar eru komnar fram 63 gjaldþrotabeiðnir hjá bæj-
arfógetanum á Akureyri, en voru 72 allt árið í fyrra.
Þegar hafa 17 úrskurðir um gjaldþrot verið kveðnir
upp á móti 25 á síðasta ári. 15 beiðnir hafa gengið til
baka, en afgangurinn er óafgreidd mál.
Að sögn Amars Sigfussonar hjá
bæjarfógetanum á Akureyri, er
umtalsverð aukning á gjaldþrota-
beiðnum frá í fyrra, svo mikil að
starfsmenn bæjarfógeta hafa ekki
undan að afgreiða þær beiðnir sem
berast. Síðasta ár var slæmt hér á
Akureyri, en árin þar á undan vom
nauðungarsölur á Akureyri mun
færri. Amar sagði að fram til árs-
ins 1984 hefðu gjaldþrotabeiðnir
verið nánast óþekkt fyrirbæri á
Akureyri. Það ár fjölgaði gjald-
þrotabeiðnum nokkuð. Síðan var
þetta nokkuð svipað þangað til í
fyrra að beiðnunum fjölgaði til
muna, og i ár virðist ætla að verða
stökkbreyting til hins verra. Amar
sagði að hlutfall beiðna og raun-
vemlegra gjaldþrotaskipta hefði
verið nokkuð jafnt undanfarin ár,
en nú virtist heldur vera að síga á
ógæfuhliðina.
Amar sagði að algengustu orsakir
gjaldþrotabeiðna kæmu fram
vegna atvinnurekstrar og almennr-
ar offjárfestingar eignalítils fólks
sem væri að kaupa á afborgunar-
kjömm sem það réði ekki við. Þeir
einstaklingar sem verða fyrir því að
verða teknir til gjaldþrotaskipta
mega engar eignir eiga næstu 10 ár
á eftir. Eða eins og lögin segja:
Skuldir sem standa á viðkomandi
einstakling og fást ekki greiddar,
standa í 10 ár á eftir og á þeim tíma
er hægt að ganga að þeim ef við-
komandi eignast eitthvað.
hiá-akureyri.
Leitarleikur um borgina á vegum Apple og Bylgjunnar:
Sá á fund sem finnur
í tilefiú af 10 ára afmæli Apple tölva á
íslandi efnir umboðsaðili Apple á ís-
landi, Radíóbúðin, til leitarleiks í
Reykjavik.
Leikurinn fer ffam í samvinnu við
Bylgjuna á FM 98,9 og felst í þvi að
fólk reynir að finna þijár Macintosh
Plus tölvur sem faldar hafa verið hver á
sínum stað einhvers staðar i Reykjavík.
Leikurinn hefst á Bylgjunni eftir há-
degið í dag, fimmtudag, en þá verður
gefin vísbending um hvar tölvumar eru
faldar. Vísbendingar verða síðan gefn-
ar fram eftir degi en nákvæmar stað-
setningar verða gefhar kl. 18, hafi tölv-
umar ekki verið fúndnar áður. Sérstak-
ir bónusvinningar verða veittir. Þeir em
50 dósir af Mackintosh sælgæti sem
faldar verða nálægt felustöðum tölv-
anna þriggja.
1 tilefni af tíu ára afmælinu veitir Rad-
íóbúðin sérstakan afslátt af Macintosh
Plus tölvum og ýmsum fylgihlutum og
hugbúnaði fyrir þær. -—sá
Mótorhjólalögga með klippumar á lofti á Akureyri í fýrradag.
Tímamynd HlÁ
MIKIÐ KLIPPT
ÁAKUREYRI
Lögreglan á Akureyri hefúr verið
með klippumar á lofti undanfama
mánuði og ekki hefúr virst vanþörf á,
því þess em dæmi að klippt hafi ver-
ið af 30 bílum á einni nóttu. Sam-
kvæmt upplýsingum lögreglunnar er
aðallega um að ræða bíla sem trassað
hefúr verið að færa til skoðunar.
Varðstjóri sem Tíminn haföi tal af
sagði að mönnum væri engin vor-
kunn, þar sem þeir hefðu tveggja
mánaða frest ffam yfir lögboðinn
skoðunarmánuð. Lögreglan á nú
mun auðveldara on áður með að
fylgjast með trössunum, þar sem
lögreglan er í beinu tölvusambandi
við Bifreiðaskoðun Islands og fær
því allar upplýsingar jafnóðum og
þær em skráðar inn. Menn ættu því
að hafa hraðar hendur, hafi þeir
trassað að færa bíla sína til skoðunar,
því að sögn varðstjórans er rólegt að
gera núna og því meiri timi til að
beita klippunum. hiá-akureyri
Talsverð umferð hestamanna á hálendinu
og ástand gott með einni undantekningu:
LAUGAFELL
RÓTNAGAÐ
Ástand á hálendinu eftir umferð
hestamanna, sem í síðustu viku
þeystu á fákum sínum á landsmót
hestamanna á Vindheimamelum,
virðist vera gott. Náttúruvemdarráði
hafði aðeins borist ein ábending um
ágang hrossa að Laugafelli í Skaga-
firði, en svo virðist sem þeim hafi
ekki verið gefið hey þar, að sögn Þór-
odds Þóroddssonar framkvæmdar-
stjóra.
Þóroddur sagði að á Laugafelli upp
af Skagafirði hefðu víst einir tveir
hópar á leiðinni á landsmót komið
við, og samkvæmt þeim upplýsing-
um sem honum hefðu borist liti
svæðið mjög illa út; menn hefðu
greinilega ekki haft neitt hey handa
hrossunum.
„Þetta hefúr gengið mjög vel fyrir
sig. Hey hefúr verið selt héma á öll-
um áningastöðum á Kili, og hestamir
em settir inn i hólf sem engin beit er
inni í,“ sagði Amar Jónsson, land-
vörður á Hveravöllum, í samtali við
Tímann í gær. Hann sagði að umferð
væri mjög mikil og reynt hefði verið
að beina henni á þær leiðir sem þyldu
ágang.
—só
Bústaðaprestakall auglýst laust til umsóknar:
Sóknarbörnin hafna
samt ekki prestinum
Sóknamefnd Bústaðaprestakalls
hefur óskaö eftir því aö prestakall-
ið verði auglýst laust til umsóknar,
en sr. Pálmi Matthíasson var kall-
aðurtil að þjóna söfnuði þess í júlí
1989. Sóknarböm Pálma em hins
vegar ekkert orðin leið á presti
sínum, heldur er hér einungis ver-
ið að framfýlgja lögum.
„Köllunin má vera til ákveðins tíma
og ég var settur til allt að tveggja ára.
Nú er liðið rúmlega ár og þeir töldu
rétt að auglýsa það núna,“ sagði sr.
Pálmi.
Sr. Pálmi sagði að þetta væri gert í
fullu samráði við allt og alla, þetta
væri hlutur sem yrði að gerast innan
tveggja ára. Hann sagði að uppi
hefðu verið hugmyndir að hafa köll-
unina aðeins til eins árs, en það hefði
verið ákveðið að hafa hana til tveggja
ára og að menn gætu haft ftjálsar
hendur innan þess tíma til að auglýsa
það aftur.
„Það er það sem verið er að gera
núna. Það verða ábyggilega einhveij-
ir hissa þegar þetta er auglýst og
skilja ekkert í þessu, en þama er bara
verið að framfylgja bókstaf laganna,“
sagði sr. Pálmi. -—só
Skil á staðgreiðslufé 1990:
EINDAGINN
ER 15.
HVERS MÁNAÐAR
Launagreiðendum ber að skila afdreg-
inni staðgreiðslu af launum og reikn-
uðu endurgjaldi mánaðarlega. Skilin
skulu gerð eigi síðar en 15. hvers mán-
aðar.
Með skilunum skal fylgja greinar-
gerð á sérstökum eyðublöðum, „skila-
greinum", blátt eyðublað fyrir greidd
laun og rautt fyrir reiknað endurgjald.
Skilagrein ber ávallt að skila einnig þó
svo að engin staðgreiðsla hafi verið
dregin af í mánuðinum.
Allar fjárhæðir skulu vera í heil-
um krónum.