Tíminn - 12.07.1990, Blaðsíða 10

Tíminn - 12.07.1990, Blaðsíða 10
10 Tíminn Fimmtudagur 12. júlí 1990 Fimmtudagur 12. júlí 1990 Tíminn 11 Svavar Gestsson menntamálaráöherra hefur lagt fram tillögur um að breyta skólastarfi á Laugarvatni Á Laugarvatni eru tveir framhaldsskólar starfræktir, Mennta- skólinn og íþróttakennaraskólinn. Áhugi er hjá yfirvöldum menntamála að gera íþróttakennaraskólann að háskóla og jafnframt að tengja betur saman starfsemi skólans við menntaskólann. Þannig fæst betri nýting fýrir þau skóla- mannvirki sem eru á Laugarvatni og samtengingin gæti styrkt stoðir skólastarfs á staðnum. Skiptar skoðanir eru um þessar hugmyndir og fáum við að kynnast umræðunni hér á eftir. Einkum virðast forráðamenn menntaskólans vilja fara var- lega í sakimar. Á Laugarvatni eru nú starfandi fjórir skólar, grunnskóli, íþróttakennaraskóli, héraðsskóli og menntaskóli. Þá var einnig starfandi húsmæðraskóli á Laugarvatni en íýrir nokkrum árum dróst svo mjög úr að- sókn í hann að ekki reyndist unnt að halda uppi kennslu. Húsnæði húsmæðraskólans var þá nýlega byggt en síðan þá hefur íþróttakennaraskólinn haft það að mestu til afhota. „Laugarvatnsskólinn“ Ekkert samkomulag liggur fyrir milli þessara skólastofhana, sveitarfélagsins og Menntamálaráðuneytisins um framtíðar- þróun Laugarvatns. Svavar Gestsson menntamálaráðherra hefur viðrað ákveðn- ar hugmyndir um þróun skólamála á þar. Svavar telur að gera þurfi ffamtíðarskipu- lag fyrir skólastarfið á Laugarvatni þar sem reynt verði að ná utan um skólamálin öll í senn. „Hugmyndin gengur út á það að búin verði til stofnun sem ég hef gefið vinnuheitið „Laugarvatnsskólinn“. Þar væri um að ræða grunnskóla, framhalds- skóla með mjög miklu íþróttavali og íþróttakennaraskóla sem væri að hluta til á háskólastigi. Þannig myndi þessi skóli spanna öll formlegu skólastigin.“ Svavar sagði hugmynd sína auk þess vera þá að á Laugarvatni yrði skipulagt veru- legt kennslustarf eða námskeið fyrir íþróttafélög og fleiri sem væri í tengslum við íþróttahreyfinguna. „Það væri þá ekki síður fullorðinsmenntun," sagði Svavar. Vísir að þeirri starfsemi ernú kominn með Iþróttamiðstöðinni, sem nú er starfrækt á Laugarvatni allt árið um kring. íþróttir samnefnari Svavar segist hafa haldið tvo fúndi í ráðuneytinu um þetta mál og auk þess kynnt það fyrir nokkrum þingmönnum Suðurlands og heimamönnum. „Eg var núna á dögunum að ráða mann á vegum Menntamálaráðuneytisins til þess að vinna að þessu verki og undir- búa eitthvað sem ég kalla samkomulag um Laugarvatnsskólann. Það er að segja sam- komulag milli allra aðila um skipan mála í ffamtíðinni. Ég sé það þannig fyrir mér að til þess að ljúka málinu þarf að setja ein heildar lög sem næðu til allrar þessarar starfsemi.“ Svavar sagði að samnefhari fyrir alla skólana yrði íþróttimar og þær myndu gera þennan Laugarvatnsskóla töluvert öðruvísi en skólar em yfir leitt. „Rökin fyrir þessu em ekki fyrst og fremst þau að bjarga þurfi Laugarvatni þó það kunni að vera mikilvægt. Heldur þau, að það verður kallað á starfsemi af þessu tagi í framtíðinni hvort sem er námskeið fyrir íþróttaþjálfara eða fleira i þeim dúr. Éf slík starfsemi verður ekki byggð upp á Laugarvatni þá gerist það einhvers staðar annars staðar og íþróttakennsla verður þess vegna staðsett tvist og bast um land- ið. Slíkt yrði miklu dýrara fyrir þjóðfélag- ið,“ sagði Svavar. Hann benti á að á Laug- arvatni væri öll aðstaða sem þyrfti til stað- ar. Aukin áhersla á íþrótta- kennslu í menntaskólanum Varðandi menntaskólann virðast hug- myndir Svavars ganga í þá átt að leggja vaxandi áherslu á íþróttastarf í skólastarf- inu og nýta þannig góða íþróttaaðstöðu á Laugarvatni eins og kostur er. Aðspurður um þetta sagði Svavar að Menntaskólinn á Laugarvatni myndi ekki breytast neitt nema hvað hann yrði ffamhaldsskóli eins og aðrir ffamhaldsskólar með brautasniði. Þar myndu íþróttir spila mjög stórt hlut- verk i náminu. „Skólinn þarf hvort sem er að aðlaga sig að nýjum veruleika,“ sagði Svavar. „Ég hef ekki orðið var við neitt annað en jákvæðar viðtökur og menn eru mjög fegnir því að það skuli liggja fyrir stefnumótun í málefnum Laugarvatns af hálfu ráðuneytisins. Slík stefhumótim hef- ur ekki legið fyrir áður.“ Menntaskólamenn áhyggjufullir Síðasta vetur voru um 150 nemendur við nám í Menntaskólanum á Laugarvatni og athyglisvert er að nærri 1/4 útskrifaðra stúdenta ffá skólanum sækir um inngöngu í Iþróttakennaraskólann á hverju ári. Kristinn Kristmundsson skólameistari Menntaskólans á Laugarvatni ræddi, við Séð yfir Laugarvatn. skólaslit skólans í vor, um hugmyndir menntamálaráðherra og gætir viss varúð- artóns í máli hans. Kristinn bendir á að við þessar hugmyndir sé margt að athuga í þessu sambandi. Hann segist ekki koma auga á neinar röksemdir sem réttlæti að hróflað verði við því námi sem á Laugar- vatni hefur náð að þróast „og bera árangur sem áhugaverður og vinsæll valkostur innan ffamhaldsskólakerfísins“. Kristinn segir ennfremur að skólinn hafi náð óumdeildum árangri sem menntaskóli og standi fyllilega undir nafhi sem slikur. „Því hljóta menn að spyija hver nauður reki til breytinga sem kippt gætu grund- velli undan því námsffamboði með ein- hvers konar fjölbrautasniði sem væri fyrir- fram dæmt til að kafha undir nafni vegna vanefhda og aðstöðuleysis. Menntaskólinn fengið góóa aósókn Páll Lýðsson er formaður skólanefndar Menntaskólans á Laugarvatni. Hann benti á að menntaskólinn væri sjálfstæð stofhun sem stæði fyrir sínu og fengi alltaf góða aðsókn. „Það er fólk sem fer í heimvist og stundar bekkjarkerfi og tekur alhliða nám sem gerir því kleift að fara sem víðast í framhaldsnám." Páll sagði að í skólana sækti fólk frá öllum landshomum, m.a. til þess að vera í heimavist og stunda sitt nám af kappi meðan það er í skóla. „Mennta- skólinn nær árangri og hann skilar nem- endum ekki síður undirbúnum en aðrir menntaskólar og fjölbrautaskóla.“ Páll sagði að þessi umræða væri lítillega farin af stað á Laugarvatni og fyrr í vetur hafí fúlltrúi ffá Menntamálaráðuneytinu kynnt fyrir skólanefhdinni hugmyndir ráðuneytisins. „Ég held að þetta sé mál sem fari ffam með mikilli hægð, enda hef- ur skólinn ágæta stöðu“ sagði Páll. íþróttakennaraskólinn háskóli Menntamálaráðuneytið setti í vetur nefhd á laggimar og var markmið hennar að kanna möguleika og gera tillögu um að færa Iþróttakennaraskólann á Laugarvatni á háskólastig. Svavar segir að hugmyndin hafi verið sú að þær tillögur ættu að vera hluti af ffamtíðarskipulagi skólastarfs á Laugarvatni. Reynir G. Karlsson er deildarstjóri í Iþrótta- og æskulýðsmáladeild Mennta- málaráðuneytisins og sat hann í þessari nefhd. Hann sagði að nefhdin hafi skilað tillögum til ráðuneytisins. „Það hefur lengi verið hugmyndin að íþróttakennara- skólinn væri á háskólastigi og íþrótta- kennaramenntun yrði efld og hún felld saman við aðra kennaramenntun í landinu eins og hægt væri. Þess vegna gerðum við tillögu um íþróttakennaraháskóla á Laug- arvami sem yrði til að byija með þriggja Eftir Hermann Sæmunds- son ára nám en síðar stefht upp á við. Ég von- ast til þess að um þetta mál verði lagt ffumvarp fyrir Alþingi í haust þar sem öll þessi mál eru tekin saman“ sagði Reynir. Reynir taldi Laugarvatn ákjósanlegan stað fyrir íþróttaháskóla og um það væru flestir sammála. „Á Laugarvatni er nú þegar verulega mikil iþróttamiðstöð og um leið og við viljum bæta menntun íþróttakennara, viljum við bæta menntun þjálfara og leiðbeinenda sem hefúr ekki verið gert til þessa í íþróttakennaraskólan- um. Einnig erum við að tala um endur- mennmn íþróttakennara og fleiri þætti er varða kennaramennmn.“ Reynir taldi for- sendu fyrir slíkri uppbyggingu skólans vera þá að vera í nánum tengslum við þær stofhanir sem annast kennaramenntun; þ.e. Kennaraháskóla íslands og Háskól- ann. Ágreiningur í nefndinni Ágreiningur hefúr verið í þessari nefnd um ffamtíðarskipan menntunar íþrótta- kennara en fúlltrúar Kennaraháskólans benda á, að Kennaraháskólinn geti tekið yfír mennmn íþróttakennara í grunnskól- um, eins og í öllum öðrum greinum. „Við bentum hins vegar á að eins og málin standa í dag þá sé slíkt ekki raunhæft þar sem Kennaraháskólinn getur ekki útskrif- að svo marga íþróttakennara með þeirri sérmennmn sem við teljum þurfa,“ sagði Reynir. Hann greindi jafhffamt ffá því að mikill meirihluti nefhdarmanna hafí verið sammála um að óffamkvæmanlegt væri að Kennaraháskólinn myndi leysa Iþrótta- kennaraskólann af hólmi. Reynir sagðist skilja vel áhyggjur skóla- meistara Menntaskólans á Laugarvatni af miklum breytingum á starfi skólans og hvað þær gætu haft í för með sér. „Skóli Kristins hefur verið þekktur fyrir sínar ágæm námsbrautir, nemendum verið skil- að þaðan með góðu prófí og þess vegna skal farið með varúð í að breyta Mennta- skólanum á Laugarvami. Að breyta skól- anum í algjöran fjölbrautaskóla gæti þýtt það að hann myndi ekki standast þá sam- keppni sem hann fær ffá Selfossi. Það er mín tilfmning. Þessi nefhd sem ég sat í fjallaði hins vegar aðeins um íþróttakenn- araskólann og það er nauðsynlegt að menn átti sig á því.“ íþróttamiðstöö íslands. Iþróttamiðstöð Islands er nú starfandi á Laugarvatni og hefur svo verið frá því sl. haust. íþróttasamband íslands og UMFÍ reka Iþróttamiðstöðina í samvinnu við Iþróttakennaraskólann, sem leggur til öll íþróttamannvirki. Meiningin er, eins og fram hefur komið, að íþróttamiðstöðin verði hluti af ffamtíðar skipulagi skóla- mála á Laugarvatni þótt ekki sé enn ákveðið með hvaða hætti það verður. Vel virðist samt hafa tekist til með íþróttamið- stöðina og mikill áhugi er á Laugarvatni fyrir starfsemi hennar. „Við höfum mikla trú á að miðstöðin geti gengið“ sagði Reynir. Þráinn Hafsteinsson er ffamkvæmda- stjóri íþróttamiðstöðvarinnar á Laugar- vatni en hann hefúr hingað til verið íþróttakennari við íþróttakennaraskólann. Hann taldi þessar hugmyndir ráðuneytis- ins um samræmt skipulag skólanna á Laugarvatni vera skynsamlegar. „Ég tel að við eigum að sérhæfa staðinn við íþróttir, útivist og umhverfismál. Ég skil ótta for- ráðamanna Menntaskólans á Laugarvatni en ég tel þetta samt vera ástæðulausar áhyggjur. Laugarvatn er frá náttúrunnar hendi kjörinn staður fyrir íþróttaiðkun og þess vegna tel ég kjörið að sérhæfa staðinn við það“ sagði Þráinn. Hvað ber framtíðin í skauti sér? Spumingunni um ffamtíð Laugarvatns er hins vegar ósvarað og þrátt fyrir vilja sumra til að steypa skólum á Laugarvatni saman í eina stofhun eru ekki allir sam- mála um ágæti þess. Hins vegar er ljóst að þróunin á Laugarvatni er á þann veg að þar verður í framtíðinni lögð meiri áhersla á íþróttaiðkun og sennilega mun nafh Iþróttakennaraskólans breytast í íþrótta- kennaraháskóla. Hvort sem það verður hluti af Laugarvatnsskóla vitum við ekki. Það verður tíminn að leiða í ljós. „Ég mun hins vegar ekki taka neitt á þessum málum fyrr en búið er að fara yfír skólamál á Laugarvatni í heild“ sagði Svavar að lok- um.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.