Tíminn - 12.07.1990, Blaðsíða 12

Tíminn - 12.07.1990, Blaðsíða 12
12 Tíminn KOMUM HEIL HEIM Fjölskyldan farin að undirbúa kvöldbatinn. Foreldramir em úti en strákurinn að rannsaka gastækið nánar. Eldurinn gýs upp og breiðist út á svipstundu um tjaldið. Pabbi kemur í loftköstum og bjargar stráknum á síðustu stundu. Tjaldið brennur til kaldra kola og allt sem í því er. Ferðin verður öðm vísi en ætlað var. Þetta hefði getað farið enn verr. Förum gætilega með eld. Gastæki em hættuleg og tjöld og viðlegubúnaður em búin til úr eldfimum efnum. Örlítil gætni grtur skipt sköpum og skilið á milli lífs og dauða. Fimmtudagur12. júlí 1990 Sumartónleikar Skálholtskirkju: 15 ára afmælishátíö Sumartónleikar í Skálholtskirkju hefjast laugardaginn 14. júlí og munu standa yfir fimm helgar í júlí og ágúst líkt og undan- farin ár. I tilelhi 15 ára afmælis verður tónleikaskráin í sumar sérstaklega glæsi- leg en eins og ávallt er ókeypis aðgangur að öllum tónleikunum. Dagskráin hefst kl. 15:00 á laugardegin- um með því að sungið verður upphafsstef og latnesku andstefin úr aftansöng Þor- lákstíða. Kl. 17:00 sama dag verða flutt tónverk byggð á stcfjum úr Þorlákstíðum. Einnig verða frumflutt tvö ný verk eftir Mist Þorkelsdóttur og önnur tvö eftir Þorkel Sigurbjömsson. Á sunnudcginum 15. júlí verða síðan seinni laugardagstón- leikamir endurfluttir kl. 15:00 og við messu kl. 17:00 verða flutt atriði frá tón- leikum helgarinnar. Sumarsýning í Nýhöfn Þessa dagana stendur yfir árleg sumar- sýning í Listasalnum Nýhöfh. Á sýning- unni, sem er sölusýning, eru málverk og skúlptúrar eftir nokkra helstu núlifandi listamenn þjóðarinnar. í Nýhöfn em auk þess ávallt til sölu verk cftir látna meist- ara. Opnunartími í Nýhöfn meðan á sum- arsýningunni stcndur er frá kl. 10:00 til kl. 18.00 virka daga. Lokað um helgar. Sýningunni lýkur 25. júlí. Endurfundir Eiöamanna Þann 15. sept. nk. ætla þeir sem stimd- uðu nám við Alþýðuskólann á Eiðum á árunum 1980-81 og 1981-82 að hittast í Reykjavík og gera sér glaðan dag. Til þess að hafa veg og vanda að pessari sam- komu hefúr verið skipuð sérstök endur- fundanefhd sem veita mun allar nánari upplýsingar fyrir 20. júlí nk. Hana skipa Óli N. Sigmarsson í síma 91-22031, Björgólfúr Hávarðsson i síma 91- 35922, Reynir Hauksson f síma 91- 42085 og Vigfús M. Vigfússon i síma 91-642108. Tímaritið Þroskahjálp Þriðja tölublað Þroskahjálpar 1990 er komið út. Utgefandi er Landssamtökin Þroskahjálp. Í þessu tölublaði kynnumst við samskipan fatlaðra og ófatlaðra for- skólabama og því hve miklum árangri er hægt að ná þegar saman fer áhugi, þekk- ing og kunnátta. Tímaritið Þroskahjálp kemur út sex sinnum á ári. Það er sent áskrifendum og fæst í lausasölu í bóka- búðum, á blaðsölustöðum og skrifstofu samtakanna að Suðurlandsbraut 22. Áskriftarsíminn er: 91-679390. Grönn allt lífiö á Vopnafirði Grönn er nú á hringferð um landið með námskeið fyrir ofætur (bæði karla og kon- ur) sem vilja hætta ofáti. Ofát getur falist í því að borða og lítið of mikið eða of óreglulega. Við lítum á ofátið sem sjúk- dóm, fyllilega sambærilegan við alkóhól- isma. Aðferðirnar sem við beitum til að öðlast frelsi frá ofátinu cru því á margan hátt líkar þeim aðferðum sem S.Á.Á. bcita á alkóhólisma. Námskeið verður haldið í félagsheimilinu Miklagarði á Vopnafirði sunnud. 22. júlí kl. 9:00-17.00 ásamt dögunum 23, 24, og 25. júlí (þrjár klst. hvert kvöld). Alls stcndur það yfir í u.þ.b. 16 klst. og þáttökugjald er 6.000,- fyrir manninn. Kynningarfyrirlestur verð- iu haldinn í félagsheimilinu Miklagarði á Vopnafirði, mánudaginn 16. júlí kl. 21:00. Hann stendur yfir u.þ.b. klukkustund og aðgangur er ókeypis og öllum opinn. Skráning á námskeiðin fcr fram á fyrir- lestrinum og mikilvægt er að væntanlegir þáttakcndur mæti á fyrirlesturinn til að námskciðið nýtist þeim til fulls. Leiðbcin- andi á námskeiðunum er Axel Guð- mundsson. Ferðafélag íslands Helgarfcrðir 13.-15. júh' og aðrar ferðir 1. Þórsmörk-Langidalur. Skálagisting eða tjöld. Göngufcrðir fyrir unga sem aldna. Einsdagsferðir á miðvikudögum og sunnudögum kl. 8:00. 2. Landmannalaugar. Gist i sæluhúsinu F.l. Fararstjóri: Jóhannes 1. Jónsson. 3. Kjölur-Hveravellir- útilegumanna- slóðir. Þjófadalir, Kcrlingarfjöll, o.fl. skoðað í fcrðinni. Gist í sæluhúsi F.í. Far- arstjóri: Kristján M. Baldursson. Skógar- Fimmvörðuháls-Þórsmörk um helgina 20.-22. júlí. Upplýsingar og farm. á skrifst. Öldugötu 3. Árgjaldið í Ferðafé- laginu er 2.500 kr. Afsláttur í ferðir er fyr- ir félaga og fjölskyldur þcirra. Aðrar ferðir: 16.-2L júh' Suðurlands- ferð (6 dagar). Fjölbrcytt öku- og skoðun- arferð. Ymsir merkisstaðir skoðaðir á leiðinni, t.d. Pétursey, Systravatn, Vestra- hom, Papós og Landmannalaugar. Gist í svefnpokaplássi. Fararstjóri: Baldur Sveinsson. 20.-26. júU (7 dagar). Náttfaravíkur-Flat- eyjardalur- Fjörður. Góð bakpokaferð í samvinnu við Ferðafélag Akureyrar um svæði ekki síður spennandi en Hom- strandir. 20.-28. júU (9 dagar). Miðsumarsferð á hálendið. Þetta er örugglega hálendisferð sumarsins. Megináheyrsla er lögð á svæð- ið norðan Vatnajökuls með Herðubrciðar- lindum, Öskju, Kverkfjöllum, Hvanna- lindum, Snæfelli o.fl. Ekið norður um Sprengisand og heim um Suðurfirðina. Einnig komið við í Jökulsárgljúfrum (Dettifoss), Fljótsdal (Hengifoss) og á Hallormsstað. Gist í svefnpokaplássi. 1.-8. ágúst. Grænland. Ný og óvænt ferþ á slóðir Eiríks rauða á Suður-Grænlanði er í undirbúningi. Takmarkað pláss. Biskupsstofa Biskup íslands, herra Ólafúr Skúlason, mun heimsækja Þingeyjarprófastsdæmi dagana 8.-19. júlí nk. 1 för með biskupi verða auk Ebbu Sigurðardóttur, biskups- ftúar, prófastshjónin séra Öm Friðriksson og ffú Álfhildur Sigurðardóttir, Skútu- stöðum, Mýrvatnssveit. Tilhögunin verð- ur á eftirfarandi hátt: 12. júlí, fimmtudagurkl. 14.00 Svalbarð. Kl. 20:30 Sauðanes. 13. júlí, fösjudagur kl. 14.00 Skinnastaður. Kl. 20:30 Garður. 14. júlí, laugardagur kl. 14.00 Þórodds- staður. Kl. 20.30 Ljósavatn. 15. júlí, sunnudagur kl. 14:00 Svalbarð. Kl. 14:00 Laufás. Kl. 20:30 Grenivík. 16. júlí, mánudagur kl. 14:00 Háls. Kl. 17.00 111- ugastaðir. Kl. 20:30 Draflastaðir. 17. júlí, þriðjudagur kl. 14:00 Lundarbrekka. 18. júlí, miðvikudagur kl. 14:00 Víðirhóll. KJ. 21:00 Reykjahlíð. 19. júlí, fimmtu- dagur kl. 21:00 Skútustaðir. Félag eldri borgara Opið hús í dag, fimmtudag, Goðheim- um, Sigtúni 3. Kl. 14:00 fijáls spila- mennska. Kl. 19:30 félagsvist. Kl. 21:00 dansað. Margrét Thoroddsen verður til viðtals um tryggingamál í dag, fimmtu- dag, ffá kl. 14.00-16.00. Gönguhrólfar hittast næstkomandi laugardag kl. 10:00 að Nóatúni 17. Útivist Helgarferðir 13/7-15/7. Purkey- Breiðafjarðareyjar. Gist í Purkey, tjöld. Laugardeginum varið í að skoða eyjuna. Utsýnissigling um nærliggjandi eyjar á sunnudag. Fararstjóri Bjöm Finnsson. Brottför kl. 18:30 ffá BSÍ. Fimmvörðuháls-Básar. Fögur göngulcið upp með Skógaá, yfir Fimmvörðuháls, milli Mýrdalsjökuls og Eyjafjallajökuls, og niður á Goðaland. Gist í útivistarskálanum í Básum. Farar- stjóri Helgi Jóhannsson. Básar i Goðaland. Um hverja helgi. Skipulagðar gönguferðir um Goðaland og Þórsmörk þar sem allir finna eitthvað við sitt hæfi. Gist í Útivistarskálanum í Bás- um. Glúfurleit. Fögur gönguleið upp með Þjórsá. Gjár og fossar. Gist í skála. Pant- anir og miðar í helgarferðir á skrifstofu. Fararstjóri Kristinn Kristjánsson. Hornstrandir 18-24/7. Hesteyri. Gróskumikill, litríkur gróður. Tjaldbæki- stöð. Ferð fyrir þá sem vilja kynnast Homströndum en treysta sér ekki í bak- pokaferð. Fararstjóri Þráinn V. Þórisson. Austfirðir 24/7-29/7. Bakpokaferð á nýjar og fáfamar slóðir. Viðfjörður-Sandvík-Gerpir- Vaðlavík. Austfirðir bjóða upp á mikla náttúmfeg- urð, ffiðsæld og veðurblíðu. Fararstjóri Óli Þór Hilmarsson.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.