Tíminn - 31.07.1990, Page 13
Þriðjudagur 31 .júlí 1990
Tíminn 13
Auglýsing
um að álagningu opinberra gjalda
á árinu 1990 sé lokið
í samræmi við ákvæði 1. mgr. 98. gr. laga nr.
75/1981 um tekjuskatt og eignarskatt er hér með
auglýst að álagningu opinberra gjalda á árinu 1990
er lokið á alla aðila sem skattskyldir eru skv. I. kafla
framangreindra laga.
Álagningarskrár verða lagðarfram í öllum skattum-
dæmum þriðjudaginn 31. júlí 1990 og liggja frammi
á skrifstofu hvers skattumdæmis og hjá umboðs-
mönnum skattstjóra í hverju sveitarfélagi dagana
31. júlí-14. ágúst að báðum dögum meðtöldum.
Álagningarseðlar skattaðila, er sýna álögð opinber
gjöld 1990, húsnæðisbætur, vaxtabæturog barna-
bótaauka, hafa verið póstlagðir.
Kærur vegna allra álagðra opinberra gjalda, hús-
næðisbóta, vaxtabóta og barnabótaauka, sem
skattaðilum hefur verið tilkynnt um með álagning-
arseðli 1990, þurfa að hafa borist skattstjóra eða
umboðsmanni hans eigi síðar en 29. ágúst 1990.
31. júlí 1990.
Skattstjórinn í Reykjavík, Gestur Steinþórsson.
Skattstjórinn í Vesturlandsumdæmi, Stefán Skjaldarson.
Skattstjórinn í VestQarðaumdæmi, Ólafur Helgi Kjartansson.
Skattstjórinn í Norðuríandsumdæmi vestra, Bogi Sigurbjömsson.
Skattstjórinn í Norðuríandsumdæmi eystra, Gunnar Rafri Einarsson.
Skattstjórinn i Austuriandsumdæmi, Kari Lauritzson.
Skattstjórinn í Suðuríandsumdæmi, Hreinn Sveinsson.
Skattstjórinn í Vestmannaeyjum, Ingi T. Bjömsson.
Skattstjórinn í Reykjanesumdæmi, Sigmundur Stefánsson.
Auglýsing
um að álagningu launaskatts
á árinu 1990 sé lokið
Tilkynningar (álagningarseðlar), er sýna launaskatt
sem skattstjóra ber að ákvarða, hafa verið póstlagðar.
Hér er annars vegar um að ræða launaskatt skv. 4. gr.
laga nr. 14/1965 um launaskatt með áorðnum breyt-
ingum, þ.e. á reiknuð laun manna við eigin atvinnu-
rekstur eða sjálfstæða starfsemi og á hlunnindi sem
ekki eru greidd í peningum, og hins vegar launaskatt
skv. 3. gr. sömu laga sem greiða bar af greiddum laun-
um á árinu 1989.
Kærur vegna álagðs launaskatts, sem skattaðilum
hefur verið tilkynnt um með álagningarseðli 1990,
þurfa að hafa borist skattstjóra eða umboðsmanni
hans eigi síðar en 29. ágúst 1990.
31. júlí 1990.
Skattstjórinn í Reykjavík, Gestur Steinþórsson.
Skattstjórinn í Vesturlandsumdæmi, Stefán Skjaldarson.
Skattstjórinn í Vestfjarðaumdæmi, Ólafur Helgi Kjartansson.
Skattstjórinn (Norðuriandsumdæmi vestra, Bogi Sigurbjömsson.
Skattstjórinn í Norðuriandsumdæmi eystra, Gunnar Rafri Einarsson.
Skattstjórinn í Austurlandsumdæmi, Karl Lauritzson.
Skattstjórinn í Suðuriandsumdæmi, Hreinn Sveinsson.
Skattstjórinn í Vestmannaeyjum, Ingi T. Bjömsson.
Skattsljórinn í Reykjanesumdæmi, Sigmundur Stefánsson.
Tilkynning til
launaskattsgreiðenda
Athygli launaskattsgreiðenda skal vakin á því
að gjalddagi launaskatts fyrir júlí er 1. ágúst nk.
Launaskatt ber launagreiðanda að greiða til
innheimtumanns ríkissjóðs, í Reykjavík toll-
stjóra, og afhenda um leið launaskattsskýrslu í
þríriti.
Fjármálaráðuneytið.
Garðsláttur
Tökum aö okkur aö slá garöa.
Kantklippum og fjarlægjum heyið.
Komum, skoöum og gerum verðtilboö.
Afsláttur ef samið er fyrir sumariö.
Upplýsingar í síma 41224 eftir kl. 18.
Geymið auglýsinguna!
LIFÐII SKUGGA
BRÓÐUR SÍNS
- Frank Stallone
Maður hefði haldið að Frank
Stalione ætti greiða leið að frægð-
inni einungis með því að vera
bróðir leikarans Sylvester Stall-
one. En svo er ekki. Frank segir
að frægð bróður síns hafi eyðilagt
margt fyrir sér. Alveg frá því að
Sylvester hlaut frægð fyrir mynd-
ina Rocky árið 1976 hefur Frank
lifað í skugga hans.
Þvert á móti því sem allir halda þá
var Frank kominn í bransann langt á
undan eldri bróður sínum. Hann
kom fram allsstaðar í Bandaríkjun-
um með hljómsveit sinni er hann var
15 ára og á nú 17 myndir að baki.
Allt gekk vel þangað til einn daginn
er Sylvester bróðir hans bað hann
um að semja laglyrir Rocky mynd-
ina sína sem og Frank gerði endur-
gjaldslaust. Myndin hlaut mikla
frægð og eftir það þekktu allir bara
Sylvester en Frank féll í gleymsku.
„Það héldu alltaf allir að ég væri að
notfæra mér frægð bróður míns til
að koma mér áfram og því var ég
aldrei tekinn alvarlega“, segir Frank.
En aðeins núna, 39 ára að aldri
virðist sem hans stóra tækifæri sé
komið. Frank er hljómlistarmaður
og er nú viðurkenndur í þeirri grein.
„I íyrsta skiptið á ég nú mitt eigið
hús og eigin bíl og þarf ekki að hafa
áhyggjur af peningum", segir hann.
Móðir hans sem spáir íyrir fólki hef-
ur sagt að hann verði næsti Sinatra.
Frank er ógiftur en er að leita að
hinni einu réttu. „Konan mín verður
að vera mikið fyrir heimilislíflð og
böm“.
Frank Stallone er ekki ólíkur bróður sínum Sylvester Stallone.
„Ég elska útlit
Rob Lowe kvartar undan því að
karlmönnum liki ekki við hann.
Astæðuna telur hann vera að þeim
finnist hann beinlínis of myndar-
legur og það fari í taugarnar á
þeim. „Eg er mikið vinsælli á með-
al kvenmanna. Flestir karlmenn
sem sjá myndirnar mínar fara
með stelpum í bíó og þá ráða þær
hvaða myndir verða fyrir valinu“,
segir Rob sem nú er 26 ára gamall.
„Karlmenn útiloka mig vegna þess
að þeir þola ekki hvað það er auðvelt
fyrir mig að ná mér í stelpu og bara
hvað mér gengur vel“. Þessi ungi
leikari segir að margar af frægustu
stjömum Hollywood hafi fengið
hlutverk einungis útá fallegt útlit.
„Ég held samt að ég hafi meira uppá
að bjóða“, segir hann. Rob sér enga
ástæðu til að hafna hlutverki sem fel-
ur í sér nektaratriði. „Ég skil ekki
hvað fólk getur gert mkið mál útaf
nektarsenum. Það er skiljanlegt að
fólk leiki ekki í þannig atriðum ef
það er feitt og ljótt. En það er ég ekki
og við hvað á ég þá að vera feiminn".
Það er samt einn ókostur sem Rob
sér við sig og það er að hann lítur
yngri út en hann í raun og vem er.
„Þetta gerir það að verkum að ég fæ
ekki eins spennandi hlutverk. Sjáum
til dæmis Richard Dreyfuss, sem lít-
ur eldri út en hann í raun og vem er,
hann fær fullt af ffábærum hlutverk-
um. Því eldri sem ég verð þvi meiri
von um betri hlutverk og þess vegna
kvíði ég ekki ellinni þó svo ég elski
útlit mitt eins og er“, segir Rob Lowe
að lokum.