Tíminn - 15.08.1990, Qupperneq 7
1
Miðvikudagur 15. ágúst 1990
Tíminn 7
Ernst Jiinger
Martin Mayer: Emst Junger. Carl
Hanser Verlag 1990.
Emst Junger: Die Schere. Klett-
Cotta 1990.
Das Echo der Bilder — Emst
Júnger zu Ehren. Herausgeben
von Heimo Schwilk. Klett-Cotta
1990.
Martin Mayer, höfundur þessa ítar-
lega rits um Emst Jiinger og verk
hans, er blaðamaður við Neue
Ztircher Zeitung, sem er meðal virt-
ustu blaða Vestur-Evrópu. Hann
hefur ritað allmikið um bókmenntir
og skrifar að jafnaði kjallaragreinar
um menningarmál í blað sitt.
Þessi bók er mikið rit, um 700
blaðsíður. Mayer ritar formála og
hefst hann á þessum orðum: „Tutt-
ugasta öldin mun ekki verða talin
öld húmanisma, upplýsingar
[Aufklárung] og skynsemi í sögu
mannkynsins.“ Tuttugasta öldin er
öld mikilla uppfyndinga, tækni-
undra og gífurlegrar framleiðslu-
aukningar, einnig öld nýstárlegrar
listsköpunar og bókmennta, en jafh-
framt er þetta öld hrikalegustu
stétta- og þjóðamorða, öld pyntinga
og viðurstyggilegs sadisma, öld
andlegrar forpokunar og þrælslegrar
kúgunar. Á þessari öld hefur mörg-
um þjóðum verið haldið í skefjum
með lygum og ríkisstöðlun og hafa
þannig verið sviptar öllum ffumrétt-
indum einstaklingsins og því að geta
um frjálst höfuð strokið. Lygamar-
tröðin hefur lagst yfir grónustu
menningarriki Evrópu og henni létti
ekki í nokkrum þessara ríkja fyrr en
eftir 40 ára hrylling.
Emst Junger segir söguna um
valdatöku óffeskjanna í hinni mögn-
uðu skáldsögu sinni, „Auf den
Marmorklippen", sem kom út 1939.
Sú saga hafði gerst áður með bylt-
ingunni 1917 í Rússlandi. Þar náðu
hliðstæð fyrirbrigði völdunum og á
svipaðan hátt og 1933 á Þýskalandi.
Ástæðumar fyrir pólitískri atburða-
rás 20. aldar era mörgum augljósar,
öðmm ekki, og koma þá oft til kenn-
ingar af hugmyndafræðilegum toga.
Skýringar út ffá „sögulegri nauð-
syn“ em vissulega hæpnari nú eftir
að „sögulegri nauðsyn" lauk með
byltingunum seinast á síðast liðnu
ári. Söguleg slys og tilviljanir eða
ókyrrleiki í dulvitundinni? Kenning-
amar em margvíslegar, en þeir sem
hafa lifað og hrærst í stormviðrum
aldarinnar eins og Emst Jiinger em
nærtækustu vitnin.
Jiinger hefúr lifað mjög viðburða-
ríku lífi og íhugað atburðarásina
öðmm ffemur. Bækur hans era vitn-
isburðir um aldarandann. Hann
gerðist sjálfboðaliði i þýska hemum
við upphaf fyrri heimsstyrjaldar,
hélt dagbækur og gaf út sína fyrstu
bók, „Stahlgewitter", 1920, sem var
byggð á dagbókunum. I þeirri bók
leitast hann við að koma til skila
reynslu hermanns, sem lifir stál-
regnið. Jtinger sagði i viðtali löngu
síðar að heimssfyrjöldin 1914-18
hafi verið siðasta styijöldin, þar sem
maðurinn mátti sín einhvers gegn
vélvæðingunni. Hann sýndi það
sjálfur í raun, þar sem hann hlaut
æðsta heiðursmerki þýska hersins
fyrir ffamgöngu sína gegn stálkjöft-
unum. Viðfangsefni Jtingers er æ of-
an í æ, maðurinn á ystu nöf, einn
gegn öllum. í bókmenntum þræddi
hann eigin leiðir, stíll hans ber
stundum keim af stálregninu, hann
er agaður og nákvæmur. Hann er ar-
istókratinn meðal þýskra höfúnda.
Þvi var það, að Sartre sagðist hata
hann, vegna þess, að hann væri aris-
tókrati, en ekki vegna stjómmála-
skoðana. Stjómmálaskoðanir hans
vom e.t.v. tímaskekkja. Þær koma
ekki síst fram í „Strahlungen“, dag-
bókum hans úr síðari heimsstyrjöld,
Ný bók frá Almenna bókafélaginu:
Blóðugur blekk
ingaleikur
Almenna bókafélagið hefúr gefíð út
bókina Blóðugur blekkingaleikur eft-
ir Ion Mihai Pacepa í þýðingu Olafs
B. Guðnasonar.
Pacepa var um árabil yfirmaður
rúmensku leyniþjónustunnar og einn
nánasti aðstoðarmaður Nicolaes Ce-
ausescus, hins fallna einræðisherra í
Rúmeníu. Hér leysir Pacepa ffá
skjóðunni svo um munar og greinir
ffá baktjaldamakki Ceausescus og
þjóna hans, hvemig þeir skipulögðu
morð og ofbeldisverk á rúmenskum
andófsmönnum, studdu dyggilega
við bakið á ýmsum hryðjuverkasam-
tökum og stunduðu skipulagðar og
víðtækar njósnir um gervallan Vest-
urheim. Samtímis rak Ceausescu um-
fangsmiklar og áhrifarikar blekk-
ingaaðgerðir á Vesturlöndum til að
fegra ímynd sína.
Svo nátengdur var Ion Pacepa öllum
helstu myrkraverkum Ceausescus, að
þegar hann flúði land og gekk á hönd
Bandaríkjamönnum, hmndi rúm-
enska leyniþjónustan, sem hann
hafði stjómað, til gmnna. Útsendarar
hennar um allan heim vom kallaðir
heim, helstu undirmenn hans vom
reknir og gripið var til mestu hreins-
ana í rúmenska embættismannakerf-
inu og kommúnistaflokknum eftir
strið.
Ámi Snævarr, fféttamaður hjá Sjón-
varpinu, sem fylgst hefúr náið með
atburðarásinni í Rúmeníu síðustu
mánuði, segir þetta um bókina: „Þeg-
eða öllu heldur lífsskoðanir, sem em
mótaðar af prússneskum aga og evr-
ópskum húmanisma og virðingu fyr-
ir lífinu. Afstaða hans til þjóðemis-
jafnaðarmanna eða sósíalista kemur
skýrt í ljós í siðustu dagbókunum.
Hann virðist hafa forðast þjóðemis-
jafnaðarmenn, umgengist þá hópa
innan þýska hersins, sem síðar stóðu
að tilræðinu við Hitler, sem hann
nefnir dulnefni i dagbókunum,
„Kniebolo“. Jtinger tók að stunda
náttúmffæði effir fyrri heimsstyij-
öld, einkum skordýraffæði og grasa-
ffæði, og þessa gætir mjög i skrifúm
hans.
Mayer rekur feril Jtingers sem rit-
höfúndar og hugsuðar. Hann er oft
flokkaður til súrrealista með fyrstu
bókum sinum. Síðan rekur Mayer
þær viðhorfsbreytingar sem koma
fram í verkum hans og áhrifin, sem
hann verður fyrir af Spengler, Max
Weber, Heidegger og þau andáhrif
sem verk Walters Benjamin höfðu á
hann.
Hinstu rök em viðfangsefhi hans
og undraheimar náttúmnnar, sem
hann reynir að tengja saman og síð-
ast en ekki sist spumingin: „Hver er
ég?“ Til hvers lifir maðurinn? Tákn
og mýtur falla að því efni sem hann
fjallar um hveiju sinni og draumam-
ir em honum raunveralegri og meiri
þáttur eigin tilvem en almennt er,
einkum í siðari bókum hans.
Honum var fyrr Ijóst en flestum
öðmm, þýðing tækninnar fyrir
mennska meðvitund og líf. í viðtali
fyrir nokkmm ámm taldi hann að
eyðing skordýrafánunnar myndi
valda hrikalegum eftirköstum.
Jtinger er samsinna Heidegger um
hættuna sem mennskunni stafar af
tæknivæðingunni, en hann er þegar
öllu er á botninn hvolft, forlagatrúar
og það skýrir lífshlaup hans og verk.
Síðasta bók Jtingers, „Die Schere“,
kom út þegar höfúndurinn var 95 ára
gamall. Þetta er safh smágreina, alls
284, þar sem höfúndurinn fjallar í
knöppu formi um flest allt það sem
hefúr átt hug hans allan hans rithöf-
undarferil. Hér kennir því margvís-
legustu grasa. Þol mannsins er höf-
uðviðfangsefni Jtingers. Hann hefúr
reynt hrylling omistunnar, hmn evr-
ópsks menningarheims, sökkt sér
niður í djúp eigin dulvitundar og
reynt áhrif deyfi- og eiturlyfja. Sem
náttúmfræðingi er honum vel ljós
hættan sem er samfara öllum til-
raunum líftækninnar og sem hugs-
uði hættan af útþynntri fjölmiðla-
upplýsingu nútimans samfara nið-
urkoðnun málkenndar og skýrleika.
Hann sá hrylling heillar aldar og
andstæðuna og hann telur sig vita,
að öll náttúran leitar jafnvægis og
getur tekið stökkbreytingum, flest
allt er gjörlegt og engin fyrirsjáan-
leg lok eða lausn. í lokaþáttum bók-
arinnar ræðir hann um dauðann og
þess sem er handan mennskrar ver-
undar.
Skæri Parcae, skæri örlagagyðj-
anna, en þær skapa mönnum örlög
við fæðingu og skæri Parcae hinnar
uppmnalegu fæðingargyðju skera á
naflastrenginn og maðurinn lifir ör-
lög sín og deyr. Jtinger ræðir í þess-
um íhugunum um aðra tegund skæra
sem skera ekki. Menn lifa drauminn,
uppljómunina, algleymið, heima
sem em ekki af þessum heimi. Titill-
inn táknar því skæri Parcae og tví-
heima mennskrar reynslu, og þau
skæri sem aðskilja þá heima án þess
að skera á lifsþráðinn.
„Das Echo
der Bilder“
Titillinn er tekinn að láni frá
Jtinger, úr „Das Abendteuerliche
Herz“ 1938. Bergmál myndanna,
minningin um séðar myndir, fylgja
líkt og lagastef meistaranna og
koma upp aftur og aftur. Tilefhi bók-
arinnar var 95 ára afmæli Jtingers
29. mars s.l. Og höfúndamir, sem
em úr báðum hlutum Þýskalands,
em flestir fæddir eftir miðja öldina
og flest allar samantektimar em áð-
ur óbirtar. Hér em svipmyndir, ihug-
anir og ljóð og eiga það sammerkt
að tengjast textum eða snjallyrðum
Jtingers og hafa mótast fyrir áhrif
bergmálsins af verkum hans. Þetta
em vel skrifaðir textar og vel unnin
ljóð.
Siglaugur Brynleifsson.
ar ég las þessa bók fyrir nokkmm
misserum, taldi ég hana bráð-
skemmtilega ýkjusögu landflótta-
manns. Á síðustu missemm hefúr
komið á daginn, að hér em engar ýkj-
ur á ferð ...“
Hin íslenska útgáfa Blóðugs blekk-
ingaleiks hefúr nokkuð verið stytt
með leyfi höfúndar. Bókin var mán-
aðarbók Bókaklúbbs AB í júlí. Um-
brot og útlit bókarinnar var í höndum
Ritsmiðjunnar, prentun annaðist
Steinholt og bókband Félagsbók-
bandið-Bókfell.
(Fréttatilkynning)
UR VIÐSKIPTALIFINU
LEADINO COMPANIES' MARKET SHARES 1B89 WORLD MARKET 19B9
TOTAL
S9.5bn
„Sport“-fatnaður
sprettir úr spori
Sport-fatnaður bjó við vaxandi
markað á níunda áratugnum, og
nam sala hans í heimi öllum um
15.5 milljörðum $ 1989, skóa um
9.5 milljörðum $ (í stað 4,5 millj-
arða $ 1985) og fatnaðar um 6
milljörðum $. Fram til 1980 höfðu
Vestur- Þjóðveijar frumkvæði um
þann fatnað, einkum Adidas, en
líka Puma. Var Adidas stærsti
framleiðandi sport- fatnaðar fram
til 1989, að Nike skaust fram fyrir
það (en upphafsmaður Nike var
þjálfari við háskólann í Oregon á
síðasta áratugi). Á hælum þeirra er
Reebok, sem framgang hlaut af
„freestyle"- skó sínum til líkams-
æfinga að nýjum sið (aerobics).
Þessi bandarísku fyrirtæki, Nike og
Reebok, óttast, að brátt verði mett-
ur markaður þeirra í Bandarikjun-
um og leita nýrra markaða. Á þeim
skóm em lika japanskir keppinaut-
ar þeirra, Acsis Tiger og Mizano.
Ver Nike 1990 um 195 milljónum
$ til auglýsinga.
Að undanfömu hafa athygli vakið
eigendaskipti í nokkmm helstu fyr-
irtækjum í sport-fatnaði. Franskur
þingmaður og íþróttaffömuður,
Bemard Tapie, festi i fyrrihluta júlí
-
'ÍlíílnélSOÍÍ ’W®**'
Wíi'AHiifiilg
s.l. kaup á Adidas. Hlut sinn í
Puma hefúr Cosa Libermann,
verslunarfélag í Hong Kong, selt
sænsku fyrirtæki, Aritmos. Og fal-
ur er hlutur Pentland Industries,
bresks fyrirtækis, i Reebok.
Markaöur sport-skóa 1989
A. Eftir
heimshiutum (milljarðar $)
Norður-Amerika 5,0
Evrópa 2,5
Asía og Kyrrahaf 1,8
Aðrir_____________________0,2
Alls 9,5
B. Markaðshlut-
deild helstu
framleiðenda
Nike
Adidas
Reebok
La Gear (í Los Angeles)
Puma
Aðrir
Alls
(%)
17
15
12
4
2
_____50_
100
Stígandi