Tíminn - 11.09.1990, Síða 2
2 Tíminn
Þriðjudagur 11. september 1990
Sveitarfélög innan Akureyrar:
Kosið um sameiningu
hreppanna 6. október
Akveðið hefur veríð að kosningar um hvort sameina skuli hrepp-
ana 3 innan Akureyrar, Hrafnagilshrepp, Saurbæjarhrepp og
Önguisstaðahrepp, fari fram laugardaginn 6. október. Hljóti sam-
einingin meiríhlutafýlgi, verður boðað til nýrra sveitarstjómar-
kosninga laugardaginn 17. nóvember. Auglýst hefur veríð eftir
nafríi á tilvonandi sveitarfélag, og er ætiunin að gera skoðana-
könnun samhliða sameiningarkosningunum á nokkrum nöfnum.
Að sögn Stefáns Ámasonar, starfs-
manns á sameiginlegri skrifstofu
hreppanna þriggja, hefur verið unnið
af krafti að sameiningarmálinu í
hreppunum þremur allt ftá því skoð-
anakönnun var gerð s.l. vor. Þá lýsti
mikill meirihluti íbúanna, eða um
80%, áhuga sínum á þvi að áfram
verði unnið að sameiningu hreppanna.
Málið á sér þó lengri aðdraganda, og
segir Stefán' að umræðan hafi verið
meira og minna í gangi s.l. 10 ár. Á
þessum tima hefúr samvinna hrepp-
anna sífellt aukist, sérstaklega á sviði
félags- og heilbrigðismála, og undan-
farin ár hafa hreppamir þrír rekið sam-
eiginlega skrifstofu. Hreppamir em
nánast orðnir ein félagsleg heild, og í
raun má segja að aðeins sé formsatriði
að sameina þá. Stefán segir að með
sameiningunni náist ffam aukin hag-
ræðing, og einnig sé um fjárhagslegan
ávinning að ræða.
Samkvæmt íbúaskrá 1. desember
1989 vora 406 íbúar í Öngulsstaða-
hreppi, 316 íbúar í Hrafnagilshreppi
og 273 íbúar í Saurbæjarhreppi. Sam-
eiginlega er íbúafjöldi hreppanna um
1000 manns, og sem heild hefúr sveit-
arfélagið mun sterkari stöðu en ella.
Stefán segir að sveitarstjómimar
muni að öllum líkindum bjóða fram
sameiginlegan lista til sveitarstjómar-
kosninga í sameinuðu sveitarfélagi.
Hvemig hlutfoll verða milli hreppa á
listanum er ekki ákveðið. Fari svo að
listinn verði einn í kjöri, telst hann
sjálfkjörinn, en þrátt fýrir það þarf að
auglýsa fyrirhugaðan kjördag og
leggja fram kjörskrá. hiá-akureyri.
Harður
árekstur
á Akureyri
Haröur árekstur varð á mótum
Brekkugötu og Oddej'rargötu á
Akureyri um kL 5.00 aðfaranótt
sunnudags. Tveir voru fluttir á
sjúkrahus, en meiðsli þeirra reynd-
ust minni háttar og fengu þeir að
fara heim að lokinni skoðun. Báðir
bflarnir eru ónýtir.
Samkvæmt upplýsingunt liigreglu
voru máisatvik þau að lítilli biireið
var ekið á talsverðum hraða vestur
Gránufélagsgötu og inn í Oddeyr-
argötu. Ökumaðurinn virti ekki
biðskyldu á homi Brekkugötu og
Oddcyrargötu og ók á bfl scm ekið
var norður Brekkugötu.
Að öðru leyti var róieg helgi hjá
lögreglunni, helst að „fastakúnn-
amir“ væm að ergja þá eitthvað.
hiá-akureyri.
Þjóðarflokkurinn:
Kosningabar-
áttan hafin
Kosningabarátta Þióöarflokksins vegna komandi alþingiskosninga er
nú formlega hafin. I byrjun þessa mánaðar var stofnað Kjördæmisfélag
í Norðurlandskjördæmi eystra. Stjóm flokksins vinnur nú að undirbún-
ingi fyrir stofnun sambærilegra félaga í öðrum kjördæmum. Stefrít er að
því að kjördæmisfélög verði stofnuð í öllum kjördæmum landsins fyrir
landsfund Þjóðarflokksins sem haldinn verður í lok októbermánaðar.
Framboðsmálin og stefría flokksins í landsmálum almennt verða helstu
mál fundarins.
í fréttatilkynningu frá Þjóðar-
flokknum segir að tilgangur félagsins
sé að vinna að samstarfi fólks um
framboð til Alþingis, og standa fyrir
stjómmálaumræðu milli kosninga.
Félagið hefúr þegar hafið störf og
mun vinna að undirbúningi næstu
kosninga, sem e.t.v. dynja yfir með
skömmum fyrirvara.
Formaður Kjördæmisfélags Þjóðar-
flokksins á Norðurlandi eystra er
Benedikt Sigurðarson Akureyri, en
aðrir í stjóm em: Anna Helgadóttir
Kópaskeri, Þórdís Vilhjálmsdóttfr
Húsavík, Klara Geirsdóttir Akureyri
og Gunnlaugur Sigvaldason Svarfað-
ardal.
í fréttatilkynningunni segir ennffem-
ur að vegna frétta í ýmsum fjölmiðl-
um um ffamboðsmál Þjóðarflokksins,
vilji þjóðarflokksmenn koma eftirfar-
andi yfirlýsingu á ffamfæri: Engar
formlegar viðræður hafa farið ffam
milli Þjóðarflokksins og annarra
stjómmálasamtaka um ffamboð við
næstu alþingiskosningar. Þjóðar-
flokkurinn mun bjóða ffam í öllum
kjördæmum landsins við næstu kosn-
ingar. Einstaklingar og skipulögð
samtök þeirra sem em reiðubúin til að
vinna að ffamgangi stefhumála
flokksins em nú sem fyrr boðin vel-
komin til samstarfs um ffamboð
Þjóðarflokksins. hiá-akureyri
koh*
'* 0V*ST
ÍRIN
SEM KOM*
I* OVART
IÁRIH
SS.M KOMA
Á OVART
nr SMiA. ÓVA® ^ 1
Þessi mynd var tekin á sölustað bókarinnar í Kringlunni, en þar var hún fýrst kynnt á föstudaginn var.
VmuDm?
Kennslustaðir: Auðbrekku 17, Kópavogi og
„Hallarsel“ við Þarabakka 3 í Mjódd.
Kennum alla samkvæmisdansa: suðurameríska,
standard og gömlu dansana.
Einnig barnadansa fyrir yngstu kynslóðina.
Einkatímar eftir samkomulagi.
Innritun og upplýsingar mánud. - iaugard.
kl. 10:00 -19:00 dagana 1.-12. sept. í síma: 64 1111.
Kennsla hefst fóstud. 14. sept.
Kennsluönn er 15 vikur, og lýkur með jólaballi.
Hinir frábæru SUPADANCE skór fyrir dömur og herra
í öllum stærðum og gerðum.
/
FID Betri kennsla - betri árangur.
Dansskóli Sigurðar Hákonarsonar
Bók fyrir foreldra
jafnt sem unglinga
Út er komin bók sem ætluð er sem kennslubók handa foreldrum
og einnig sem námsefni handa bömum.
Bókin, sem gefin er út í samvinnu Vímulausrar æsku, Foreldra-
samtakanna, Lionshreyfingarinnar á íslandi og menntamála-
ráöuneytisins, heitir,.Árin sem koma á óvart“.
Tilgangurinn með útgáfú bókarinnar
er að stuðla að heilbrigðum og eðlileg-
um þroska sérhvers bams og unglings.
m.a. með tilliti til þess að auka skilning
þeirra á því hve mikils virði það er að
forðast neyslu hvers konar ávana- og
fíkniefha, en þó einkum á uppvaxtarár-
unum. Bókin er efrrnig tilvalin fyrir
alla foreldra, þar sem hún gefúr ráð til
lausnar á hvers kyns vandamálum í
umgengni foreldra og bama, einkum
þegar komið er ffam á unglingsárin og
bamið breytist og verður ólíkt sjálfú
sér og jafhvel erfitt í umgengni.
Stórt upp
Skúla G. Johnsen borgarlækni þótti
Tíminn smytja fúll þykkt þegar blað-
ið hafði eftir honum í fýrirsögn að
sjúkdómum fjölgaði eftir því sem
meiri fjármunum er varið í heilbrigð-
isþjónustu.
Fyrirsögnin er Tímans og er undir-
strikun á því sem borgarlæknir hélt
Búið er nota bókina í tilrauna-
kennslu i hinum ýmsu skólum lands-
ins um nokkurt skeið, en nú vonast
aðstandendur bókarinnar að hún verði
notuð til kennslu í öllum gmnnskól-
um landsins. Þó nokkuð margir kenn-
arar hafa hlotið sérstaka þjálfun við
kennslu bókarinnar.
Bókin verður afhent að kostnaðar-
lausu þar sem hún verður notuð til
kennslu, en aðrfr sem áhuga hefðu á
að nálgast hana geta keypt hana á
kostnaðarverði eða 900 kr. eintakið.
- khg.
í sig tekið
ffam, að eftir því sem ffamboð á heil-
brigðisþjónustu eykst, þá eykst eftir-
spumin enn ffekar, og leggur Tíminn
honum heldur sterk orð í munn í fyr-
irsögninni. Hið ágæta viðtal við
borgarlækni er kórrétt og ber Tíminn
einn ábyrgð á fyrirsögninni, sem ekki
er nú svo vitlaus þrátt fyrir allt.