Tíminn - 11.09.1990, Blaðsíða 15

Tíminn - 11.09.1990, Blaðsíða 15
Þriðjudagur 11. september 1990 Tíminn 15 ÍÞRÓTTIR Hlynur Stefánsson skoraöi eitt marka Eyjamanna í leiknum gegn Víkingum á laugardag. Islandsmótiö í knattspymu: KR-ingar nýttu færin Leikur KR og ÍA á Akranesvelli var skemmtilegur á að horfa, þó svo að hvass vindur og blautur völlur settu sitt mark á leikinn. Bæði liðin áttu nokkur dauðafæri og heföi sigurinn hæglega getað lent hvorum megin sem var. Það fór þó svo að KR-ing- ar sigruðu í jöfrium og spennartdi leik. í hálfleik var staðan 0-0, hvorugt lið- ið hafði náð að skora, þrátt fyrir góð tækifæri. Gísli Sigurðsson sýndi oft snilldartakta í marki Skagamanna, en Sigurður Björgvinsson og Ólafur Gottskálksson sáu um að halda marki KR-inga hreinu í fyrri hálfleik. Síðari hálfleikur byijaði með miklum lát- um. Á þriggja mínútna kafla í byijun hans náðu bæði lið að skora. Bjarki Gunnlaugs- son skoraði fyrst fyrir Skagamenn. Bjarki fékk góða sendingu inn í tciginn og var skyndilega einn í miðjum vítateignum og skoraði af stuttu færi. Skömmu síðar náði Ragnar Margeirsson að jafiia eftir sendingu ftá Bimi Rafhssyni. Ragnar lék í gegnum vöm ÍA og skaut undir Gísla f markinu. Fljótlega eftir það náði Bjöm Rafiisson að skora mark en Bjöm braut í leiðinni á Gísla í markinu og var markið því réttilega dæmt af. Sigurður Björgvinsson náði að skora löglegt mark skömmu eftir það. Eftir hom- spymu barst boltinn til Sigurðar sem skor- aði með góðu skoti úr teignum. Skagamenn sóttu grimmt eftir annað mark KR-inga og tvívegis í sömu sókninni náðu KR-ingar að bjarga á línu. Bjarki Gunnlaugsson átti skot i utanverða stöngina og KR-ingar vom svo sannarlega heppnir að fá ekki á sig mark þegar Skagamenn vom í þessum ham. Það vom þó KR-ingar sem náðu að skora næsta mark. Ragnar Margeirsson gaf stungusend- ingu á Bjöm Rafnsson sem hljóp inn i teig- inn. Þegar Bjöm var búinn að draga að sér þijá vamaimenn þá gaf hann boltann þvert yfir teiginn á Gunnar Skúlason sem renndi boltanum á Ragnar Maigeirsson sem þrum- aði knettinum í þaknetið. Stórglæsileg sókn hjá KR-ingum. Eftir þriðja mark KR-inga gáfiist Skagamenn hreinlega upp cnda ekki nema um þijár mínútur til leiksloka. Bestur í liði KR-inga var Ragnar Mar- geirsson. Sigurður Björgvinsson var mjög traustur í vöminni og eins sýndi Óiafiir Gottskálksson góða markvörslu og þá sér- stakiega I síðari hálfleik. Guðbjöm Tryggvason var eins og klettur i vöm Skagamanna. Eins vora bræðumir Bjarki og Amar Gunnlaugssynir mjög góðir og einnig Bjarki Pétursson. Dómari leiksins var ÓlafUr Ragnarsson og dæmdi hann vel. Skagamenn vom mjög óheppnir að ná ekki að skora fleiri mörk i leiknum og mið- að við gang leiksins hefði jafntefli verið sanngjöm úrslit. —SE Stjörnumenn gáfust upp Framararunnu stórsigur á Stjömunni 1- 6 er liðin mættust í Garðabæ á laugar- dag. Þessi úrslit gefa engan veginn rétta mynd af gangi leiksins, Stjömumenn vom steikari aðilinn í fyrri hálfleik og vom ákveðnari í upphafi síðari hálf- leiks. Eftiir að Framarar komust i 2-1 gáftist Stjömumenn hreinlega upp og eftirleikurinn var auðveldur hjá Fram. Pétur Oimslev kom Fiam yfir á 9. mín. með marki beint úr aukaspyma Stjömumenn reyndu ákafl að jafiia og fengu til þess nokk- ur færi. Ragnar Gíslason átti fast skot rétt framhjá markstöng Framaia á 21. mín. og á 34. mín. vaiði Biridr Kristinsson naumlega I hom þrumuskot Ingólfs Ingólfssonar, sem var á auðum sjó í vitateignum. Upp úr hom- spymunni jöfnuðu Stjömumenn. togólfur tók homspymuna sjálfur, sendi á kollinn á Magnúsi Bergssyni scm skallaði knöttinn í netið við nærstöngina. Stjömumenn vora nálægt því að komast yf- ir í upphafi síðari hálfleiks. Ámi Sveinsson gaf fyrir maridð fiá vinstri á Sveinbjöm Há- konarson sem skallaði í hliðametið utanveit Þar sluppu Fiamarar með skrekkinn. En nú var komið að Safamýrardrengjunum að sækja. Anton Maricússon kom inná í hálf- leik fyrir Guðmund Steinsson og við það gjöibreyttist allur leikur Framaia. A 59. mín. einlék Baldur Bjamason inní vítateig Stjöm- unnar og skoraði 1 -2. Þrcmur mín. síðar vom þeir báðir á auðum sjó í vítateignum, Jón Er- ling Ragnarsson og Rikharður Daðason, eftir að Steinar Guðgeiisson lék upp hægri kant- inn. Þeinri sókn lauk með þvi að Jón Erling skoiaði 1-3. Á 68. mín. vippaði Anton bolt- anum yfir Jón Otta markvörð, Jón Otti hálf varði en Jón Erling fylgdi vel á eftir og skall- aði í marldð 1-4. Anton skoraði fimmta maridð sjálfiir á 77. min. eftir að sendingu fiá Jóni Erling 1- 5. Ríkbarður átti síðasta orðið í leiknum skömmu fyrir leikslok, cftir að An- ton vann boltann af Stjömumönnum 1-6. Stjömuliðið gafst upp eins og áður segir þeg- ar á móti blés og fyrir vildð er vait hægt að hæla nokkmrn leikmanni liðsins. Fiamarar vom mjög sprækir eftir að Anton kom inná, en hann átíi var án efá besti maður hðsins í leikn- um. Jón Erling, Baldur, Steinar og Ríkharður léku einnig vel og aðrir stóðu fyrir sínu. Með sama leik um næstu helgi verða Stjömumenn Eyjamönnum auðveld bráð. Framarar fá væntanlega meiri mótspymu þegar þeir mæta Val, en með sigri í þeim leik geta þeir tiyggt sér íslandsmeistaratitilinn. ÓIi Ólsen, dómari leiksins, var ákveðinn, cn sumir dóma hans vöktu furðu. BL Staðan í 1. deild - Hörpudeildinni: Fram 1711 2 4 36-14 35 KR 1711 2 4 29-17 35 ÍBV 1710 4 3 35-29 34 Valur 1710 3 4 27-18 33 Stjarnan 17 8 2 7 22-23 26 FH 17 6 2 9 22-28 20 Víkingur 17 4 7 616-20 19 KA 17 5 1 11 18-26 16 Þór 17 3 3 11 9-23 12 ÍA 17 3 2 12 18-34 11 Knattspyrna — 1. deild: Eyjamenn unnu stóran sigur Lániausir og áhugalausir Vík- ingar voru Eyjamönnum auð- veld bráð á laugardaginn. Þrátt fyrir að Víkingar væru meira með knöttinn framan af leiknum og ættu nokkur hættuleg færí, voru það Eyjamenn sem nýttu færín og gerðu út um leikinn. Sigurlás Þorleifsson skoraði eftir um 15 min. leik i fyrri hálfleik og í síðari hálfleik tóku Eyjamenn völdin og bættu við þremur mörk- Knattspyrna - 2. deild: Breiðablik í góðum málum Breiðabiiksmenn úr Kópavogi stigu mikilvægt skref í átt að 1. deildarsæti á laugardaginn er þeir sigruðu helstu keppinauta sína, Fylkismenn, 2-1 á Árbæjarvelli. Það var Grétar Steindórsson sem gerði bæði mörk Blikanna í leikn- um, en Indríði Einarsson minnkaði muninn fýrír Fylki undir iok ieiksins. Blikamir þurfa nú að sigra Tindastól á heimavelli í síðasta leik sínum á laugardaginn, en á sama tima mæta Fylkismenn Grindvíkingum á útivelli. Botnlið deildarinnar, KS og Leiftur, unnu bæði mikilvæga sigra á laugar- daginn og sluppu því við fall í 3. deild, a.m.k. um stundarsakir. KS vann 2-1 sigur á ÍR á Siglufirði og Leiftur vann 1-3 sigur á ÍBK í Keflavík. Tindastólsmenn tóku á móti meistur- um 2. deildar, Víði, og töpuðu 1-2. Á Selfossi unnu heimamenn 1-0 sigur á Grindvíkingum.. Staðan í 2. deild Víðir Breiðablik Fylkir Selfoss Keflavfk ÍR Tindastóll Grindavík KS Leiftur - PEPSI-deildinni: 17 12 4 1 37-17 40 17 9 4 4 24-14 31 17 9 3 5 34-19 30 17 7 3 7 33-28 24 17 7 3 7 16-18 24 17 7 2 8 18-23 23 17 5 4 8 19-27 19 17 5 2 10 18-31 17 17 5 1 11 20-30 16 17 4 4 9 15-27 16 um. Huginn Helgason skoraði þriðja markið, Ingi Sigurðsson það þriðja og á lokamínútu leiksins bætti Hlynur Stefánsson fjórða markinu við. Möguleikar Eyjamanna á titli eru enn fyrir hendi. Þeir eiga að leika gegn Stjömunni á laugardaginn, en þeir verða að treysta á að Fram og KR tapi bæði stigum. Valsmenn lifa enn í voninni Valsmenn unnu 2-0 sigur á FH á Hlíðarenda á laugardaginn og halda því enn í veika von um ís- landsmeistaratitilinn. Til þess þurfa þeir að sigra Fram á laugar- daginn og KR og ÍBV verða að tapa stigum. Þórður Birgir Bogason gerði fyrra mark Vals í fyrri hálfleik, en Anthony Karl Gregory bætti öðra við í siðari hálfleik. KA-menn sluppu þrátt fyrir tap Þórsarar unnu granna sínu úr KA 2- 1 á laugardaginn. Þar sem Skagamenn töpuðu fýrír KR, sluppu meistaramir úr KA við að falla í 2. deild. Það kom í hlut ÍA og Þórs að þessu sinni. Þórsarar komust yfir í fyrri hálfleik, Ámi Þór Amason gaf fyrir mark KA og Ormarri Örlygssyni mistókst að hreinsa frá og boltinn fór þess í stað í markið. Jón Grétar Jónsson jafnaði fyrir KA um miðjan síðari hálfleik, en sigurmark Þórs gerði Láms Orri Sigurðsson rétt fyrir leikslok er hann þmmaði knettinum í markhomið hjá Islandsmeisturunum. Þór vann því enn einn sigurinn á KA í 1. deild og varða KA-menn því enn um sinn að biða eftir sínum fyrsta 1. deildar sigri á KA. BL Vinningstölur laugardaginn 8. sept. ’90 VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA 1. 5af 5 2 1.089.129 2. <rM S 9 42.043 3. 4af 5 124 5.263 4. 3af 5 4.861 313 Heildarvinningsupphæð þessa viku: 4.730.750 kr. UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.