Tíminn - 11.09.1990, Blaðsíða 10
10 Tíminn
Myndbandagerð
Vídeó - Nýtt námskeið
Sjö vikna námskeið í myndbandagerð hefst 17.
september næstkomandi. Kennt verður 2 sinnum
í viku, mánud. og miðv.d. kl.^9-22. Megin áhersla
er lögð á: kvikmyndasögur myndbyggingu, eðli og
notkun myndmáls í kvikmyndum, handritsgerð
ásamt upptöku, klippingu og hljóðsetningu eigin
myndefnis nemenda.
Kennari er Ólafur Angantýsson og verður kennt í
Miðbæjarskólanum. Kennslugjald er kr. 7.600,-.
Innritun í símum 12992 og 14106 kl. 10-19.
Námsflokkar Reykjavíkur
Kransar, krossar, kistu-
skreytingar, samúðarvendir
og samúðarskreytingar.
Sendum um allt land á opnunartíma frá kl.
10-21 alla daga vikunnar.
Miklubraut 68 S13630
Útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa
Gunnlaugs Ólafssonar
:ofustjóra
Bimum 50
týnverandi sl
Alfhei
verður gerð frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 11. september kl.
13.30.
Oddný Pétursdóttir,
AHtún Gunnlaugsdóttir,
Ólafur Gunnlaugsson, Margrét Ingimarsdóttir,
Gylfi Gunnlaugsson, Ragnhildur Hannesdóttir
og bamaböm
t
Móðir okkar, tengdamóðir, stjúpmóðir og amma
Ólöf Helgadóttir
Sólheimum 30
andaðist laugardaginn 8. september.
Ragnhildur Björnsdóttir
Helgi Björnsson
Erlendur Björnsson
Gyða BJörk Björnsdóttir
Birna Björnsdóttlr
og
/
Ólafur Ófeigsson
Sofffa Wedholm
Þórunn Júlíusdóttir
Bjarni Valur Guðmundsson
Guðmundur Þorsteinsson
barnabörn.
JEPPA-
HJÓLBARÐAR
Hágæða hjólbarðar
HANKOOK frá KÓREU
235/75 R15 kr. 6.650,-
30/9,5 R15 kr. 6.950,-
31/10,5 R15 kr. 7.550,-
33/12,5 R15 kr. 9.450,-
Örugg og hröð þjónusta
BARÐINN hf.
Skútuvogi 2, Reykjavfk
Símar: 91-30501 og 84844
BÍLALEIGA
með útibú allt ( kringum
landið, gera þér mögulegt
að leigja bfi á einum stað
og skila honum á öðrum.
Reykjavík
91-686915
Akureyri
96-21715
Pöntum bfla eriendis
interRent
Europcar
Ein af myndunum sem verða á sýningunni f Hlaðvarpanum.
Svona leit Skaftafell í Öræfum út er það fékk nafnið Skaftafell.
Þriðja sýningin á þessu ári
Valdimar Bjamfreðsson heldur einka-
sýningu á verkum sínum í Hlaðvarpan-
um, Vesturgötu 3 i Reykjavik. Þetta er
einkasýning og verður hún opnuð hún i
dag, 11. september. Valdimar heiur hald-
ið tvær aðrar sýningar á verkum sinum, í
Listasaíhí alþýðu og Hafnarborg í Hafh-
arfirði.
Á sýningunni eru 50 myndir í olíu og
akríl. Flestar eru myndirnar fengnar með
bollaspá, bollalestri eða bollasýnum.
Sýningin verður opin virka daga milli kl.
12 og 18 en á laugardögum milli kl. 10 og
16.
Leiðrétting
í minningargrein Tómasar Ámasonar um
Geir Hallgrimsson var greint frá bömum
hans. í prentun blaðsins féll niður nafn
Áslaugar, sem er doktor í jarðfræði.
Er beðist velvirðingar á þessum mistök-
um.
Leiðrétting
Tvær ágætar minningargreinar birtust um
iþróttafrömuðinn Stefán Kristjánsson i
laugardagsblaði Tímans. Svo óhöndug-
lega tókst til að föðumafn höfundar siðari
greinarinnar misritaðist en það er Þor-
steinn Einarsson, fyrrverandi íþróttafull-
trúi ríkisins, sem ritaði greinina og leið-
réttast mistökin hér með.
11. september 1990
Leiðréttingar
Minningargreinar um Friðjón Svein-
bjömsson, sparisjóðsstjóra, og mynd af
honum urðu viðskila þegar hans var
minnst í Tímanum s.l. laugardag. Enn-
ffemur misritaðist setning í grein Magn-
úsar Sigurðssonar, en þar átti að standa:
„Eftir skólagöngu starfaði hann um litla
hríð hjá Kaupfélagi Borgfirðinga, en
réðst 1957 til Sparisjóðs Mýrasýslu og
vann þeirri stofhun œ síðan. “
Hér er gerð siðbúin bragarbót og iika
birt myndin af Friðjóni. Em hlutaðeigandi
beðnir afsökunar á þessum leiðu mistök-
Frföjón Svelnbjömsson.
Gunnlaugur Olafsson
/ fyrrverandi skrifstofustjóri
Fæddur 28. mars 1908
Dáinn 1. september 1990
Kveðja frá Mjólkursamsölunni
I dag þegar Gunnlaugur Ólafsson,
fyrrv. skrifstofustjóri, verður til
moldar borinn, er hann kvaddur af
starfsfólki Mjólkursamsölunnar með
virðingu og þökk.
Gunnlaugur réðst til Mjólkursam-
sölunnar í ársbytjun 1935 og starfaði
óslitið ffá stofndegi hennar 15. janú-
ar ffam á mitt ár 1979 er hann lét af
störfum fyrir aldurs sakir. Af þessum
orðum má ráða að Gunnlaugur hafi í
reynd verið tekinn til starfa hjá fyrir-
tækinu áður en til formlegrar stofn-
unar kom. Gunnlaugur tók því vissan
þátt i undirbúningi stofnunar og lagði
þannig ásamt öðrum grunn að þeim
þýðingar- og umfangsmikla rekstri
sem ffamundan var. Eftir kynni mín
af Gunnlaugi veit ég að þessi mál
hafa verið í traustum höndum og
hann hafi ffá fyrsta starfsdegi til hins
siðasta lagt sig allan ffam um að
treysta sem best rekstur Mjólkursam-
sölunnar, þvi fyrirtækið var nánast
sem hluti af honum sjálfum.
Gunnlaugur fékk ýmsu áorkað í
starfi. Ástæður fyrir því voru margar.
Starfsárin urðu mörg og þau voru
einnig vel nýtt. Stundvísi og iðni var
honum í blóð borin og reglusamur
var Gunnlaugur í þess orðs fyllstu
merkingu. Fyrst var Gunnlaugur í
Annast dreifingu
á matvörum og
hvers konar
kælivöru um land
allt. Er með
frystigeymslu
fyrir lager.
KÆLIBÍLL
Sími 985-24597
Heima 91-24685
V J
tvö ár umsjónarmaður mjólkurbúða
MS, þá bókari i 4 ár en 1. október
1941 varð hann skrifstofustjóri og
gegndi því starfi í rúmlega 37 ár. Þeir
sem til þekkja vita hve margvísleg-
um og ábyrgðarmiklum störfum í
þágu mjólkuriðnaðar Gunnlaugur
gegndi sem skrifstofustjóri. Hann bar
ekki aðeins ábyrgð á launauppgjöri
við allt starfsfólk Mjólkursamsöl-
unnar sem og öðru bókhaldsuppgjöri
heldur fór einnig tekjuuppgjör við
fjölmarga mjólkurffamleiðendur um
hans hendur. Þá er skylt að minnast
mjög mikilvægra starfa við öflun og
miðlun upplýsinga, sem Gunnlaugur
sá um fyrir verðlagningamefnd bú-
vara. Nákvæmni þessara upplýsinga
gat ráðið úrslitum um hvort bændur
Fyrir sláturtíðina
ARCOS-hnlfar fyrir fagmenn, veit-
ingahús og heimili.
Sterkir og vandaðir hnlfar.
Mjög ódýr sett til heimilisnota:
4 hnlfar og brýni kr. 4.100.-.
Öxi á kr. 1.700.-.
Sendum i póstkröfu.
ARCOS-hnífaumboðið,
Pósthólf 10154,110 Reykjavík.
Simi 91-76610.
fengju tilskilið grundvallarverð greitt
fyrir mjólkina eða ekki. Ég leyfi mér
að efast um að aðrir hefðu staðið
dyggari vörð um þetta hagsmunamál
bænda.
Ég kynntist Gunnlaugi fyrst 1973,
er ég hóf störf hjá Mjólkursamsöl-
unni. Atvik höguðu þvi þannig að
samstarf okkar varð fljótlega mjög
náið. Margs er að minnast þótt sam-
starfsárin yrðu ekki mjög mörg, en
þakkir eru mér þó efstar í huga. Fyrir
mig, óharðnaðan ungan mann á þess-
um tíma, hefði getað reynst erfitt að
stíga fyrstu skrefin í stjómunarstarfi
hjá gömlu og rótgrónu fyrirtæki. Svo
reyndist þó ekki og var Gunnlaugi
ekki hvað síst fyrir að þakka. Hann
reyndist mér ekki aðeins góður
ffændi heldur einnig traustur og
ráðagóður vinnufélagi. Nánari kynni
af Gunnlaugi sannfærðu mig og
vafalítið fleira samstarfsfólk um að
bak við stundum hijúft yfirborð var
tilfmningaríkur maður sem lét sér
mjög annt um fyrirtækið, samstarfs-
fólkið, eiginkonuna sína og böm svo
og aðra vini og vandamenn.
Fyrir hönd Mjólkursamsölunnar
sendi ég eftirlifandi eiginkonu, Odd-
nýju Pétursdóttur, og fjölskyldu
þeirra hjóna innilegar samúðarkveðj-
ur.
Guðlaugur Björgvinsson
LITAÐ JÁRN Á
ÞÖK OG VEGGI
Einnig galvaníserað
þakjárn
, Gottverð.
Söluaðilar:
Málmiðjan hf.
Salan sf.