Tíminn - 05.10.1990, Page 7

Tíminn - 05.10.1990, Page 7
Föstudagur 5. október 1990 Tíminn 7 VETTVANGUR Jón Sigurðsson, Samvinnuháskólanum: Samvinna í fullu gildi í öllum atvinnurekstrí skiptast skin og skúrir á. Eins og annar atvinnurekstur eiga samvinnufélög misgóðu gengi að fagna og stundum miðar vel og stundum miður. Hið sama á við um önnur rekstrarform, og það eru ekki aðeins samvinnuíyrirtæki sem hafa farið á hausinn á íslandi á síðustu árum. Mörg dæmi má nefna um hlutafélög og einkafyrirtæki o.fl. sem hafa átt í erfiðleikum og jafnvel farið á hausinn — án þess að menn tali um að þau rekstrarform séu endilega úrelt þess vegna. Rekstrarformið skiptir miklu áherslu að íslensku samvinnufé- máli en ekki öllu í þessu sambandi. Það skiptir vitanlega langmestu máli hvernig á er haldið, hvernig fyrirtækjunum er stjórnað, hvort meiri eða minni ráðdeild og fyrir- hyggja ræður ákvörðunum. A því leikur ekki vafi að a.m.k. sum sam- vinnufélög hafa lent í erfiðleikum vegna þess að stjórnendur treystu sér ekki til þess að framfylgja óvin- sælum ákvörðunum eða létu und- an þrýstingi um að reka fyrirtækin eins og nokkurs konar atvinnu- bóta- og félagsmálastofnanir. Það dregur enginn góðan vilja þessara stjórnenda í efa — en það er önnur saga. Eftir slíkan rekstur lendir hvert einasta fyrirtæki í erfiðleikum, m.a. við útvegun rekstrarfjár. Það er fráleitt að halda því fram að traust og sterkt samvinnufyrirtæki sé í einhverjum sérstökum vand- ræðum með rekstrarform sitt við útvegun fjár. Ef íslensku sam- vinnufélögin eru f vandræðum vegna fjármála, þá er það af öðrum ástæðum. Með þessum orðum er ekki verið að gera lítið úr stjórn- endum þeirra, nema síður sé, en rétt verður að vera rétt. Hafa menn sofið? Á það verður að Ieggja sérstaka lögin hafa flest verið notuð sem tæki samfélagsins á sviði landbún- aðarstefnu og byggðastefnu. Á það verður að minna, að það er ekki samvinnuforminu að kenna að þessi félög lenda síðan í erfiðleik- um af þessum ástæðum. Vel má vera að það sé orðið alveg úrelt að reka í senn úrvinnslu og sölu land- búnaðarvöru, úrvinnslu og út- flutning sjávarafurða, viðgerða- og vélaþjónustu, flutningaþjónustu, svo og dagvöruverslun neytenda allt í einu og sama fyrirtækinu. En þetta er ekki það sama og að sagt sé að samvinnurekstur yfirleitt sé orðinn úreltur. Hefur forysta samvinnufélaganna sofið á verðinum? Benda má á að samvinnufélög í langflestum lönd- um, þ.á m. nágrannalöndunum, eru sérgreind. Eitt starfar við verslun, annað við búvöru, þriðja við vélaþjónustu, fjórða við sjávar- útveg, fimmta er sparisjóður, sjötta húsnæðisfélag, sjöunda vinnustaður í eigu starfsmanna o.s.frv. — hvert sem sjálfstætt fé- lag með eigin félagsmönnum, stjórnendum o.s.frv. Sum þeirra eru svo í sérstöku sambandi með skyldum félögum en önnur standa alveg utan slfkra tengsla yfirleitt. Það má líka spyrja hvort stjórn- endur samvinnufélaganna hafa haldið of lengi í hefðbundna hér- aðaskiptingu, löngu eftir að fram- farir í samgöngumálum o.fl. höfðu útrýmt skiptingu sögulegra þjón- ustu- og framleiðslusvæða í land- inu. Vel má vera að svo sé, en sam- vinnuforminu verður ekki kennt um slíka blinda íhaldssemi. Alveg á sama hátt má beina sjón- um til höfuðborgarsvæðisins. Menn tala um að samvinnuversl- unin þar standi á brauðfótum. En sannast sagna er að stórbylting hefur orðið f verslunarmálum höf- uðborgarinnar á síðustu árum. Fjöldamörg verslunarfyrirtæki, sem í rekstri voru frá fyrri tíma, hafa lent í erfiðleikum og sum hafa orðið að Ioka — án þess að um samvinnurekstur hafi verið að ræða. Rétt er að samvinnumenn á höfuðborgarsvæðinu hafa gert til- raun með ákaflega hraða og stór- brotna útrás, og á reynsla eftir að sýna hvort bjartsýni þeirra og áræðni var jafnvel of mikil. En svo sannarlega hafa fleiri verslanir lent í vandræðum þar en samvinnufé- lögin ein. Nú hafa mörg samvinnufyrirtæki lent í erfiðleikum hér á landi á síð- ustu árum. Ein algengasta for- senda þess erlendis, að starfsmenn stofni samvinnufélag um vinnu- stað sinn, er sú að fyrirtækið er komið í vanda og eigendurnir gef- ast upp. — Er það ekki einkenni- legt, að svo virðist sem engir for- ystumenn íslenskra samvinnufé- laga hafi látið sér starfsmannasam- vinnu til hugar koma, þegar dótturfyrirtæki o.s.frv. hafa staðið frammi fyrir lokun? Slík starfs- mannasamvinnufélög skipta nú þúsundum í nágrannalöndunum báðum megin hafsins og hafa mörg náð góðum árangri. Sérstök mannúðleg markmið Eins og fram kemur í grein Áskels Einarssonar í Tímanum 3. október sl. eru sumir fræðimenn þeirrar skoðunar að samvinnustefna eigi betur við á einu þjóðfélagsskeiði en öðru. Þetta kann að vera rétt, en hitt skiptir þó mestu máli að sam- vinnurekstur eykur mjög fjöl- breytni og valkosti í atvinnulífi og hefur af þeirri ástæðu — þó ekki væri annað — gildu hlutverki að gegna hvenær sem er. Aftur á móti verða lög og reglur um slíka starf- semi vitanlega að fylgja framvindu samfélagsins til þess að hér verði um raunverulega virkan valkost að ræða. Þar fyrir utan er það löngu sýnt og sannað að samvinnurekstur hentar sérstaklega vel þeim hóp- um sem standa höllum fæti að ein- hverju leyti, hvort sem eru Iág- launaneytendur í borg, smáfram- leiðendur í dreifbýli, lágtekjufólk sem berst fyrir þaki yfir höfuðið, fiskimenn eða handverksmenn o.fl. með smáfyrirtæki, starfsmenn á verkstæði o.s.frv., svo og ótölu- lega fjölbreytilegir smáhópar áhugamanna um hvað eina sem taka höndum saman, við lítil efni hver um sig, um að bæta hag sinn og lffskjör með samhjálp til sjálfs- bjargar. Því verður fullyrt að samvinnu- rekstur á ævinlega mikinn rétt á sér. En samvinnustefna miðar að sérstökum félagslegum og mann- úðlegum markmiðum, fyrir hönd tiltekinna aðila, eins og hér var Iauslega vikið að. Það er t.d. hvar- vetna gert ráð fyrir því að sam- vinnufélög séu beinlínis hindruð í hvers konar braski og fjármála- vafstri, kauphallarviðskiptum, söfnun einkahagnaðar o.s.frv. Með þessu er alls ekki verið að gera lít- ið úr ijármálaumsvifum annarra aðila — þau eru einfaldlega ekki í verkahring samvinnufélaganna. Eins og ég reyndi að sýna fram á í grein í Tímanum í miðjum sept- ember sl. eru almennir skilmálar samvinnustarfs ákaflega þjálir og gefa kost á að tillit sé tekið til margs konar sérstakra aðstæðna, óska og hagsmuna. Enn á ný skal það ítrekað að samvinnurekstur, samvinnuform og samvinnustefna eru í fullu gildi. Tímabundnir erf- iðleikar, íhaldssemi eða mistök o.s.frv., eru af öðrum toga. Þeim á að mæta af alefli og í takt við nýja tíma. BOKMENNTIR Biblían og sjónvarpið Eugen Drewenmann: Tiefénpsychologie und Exegese. Band l-ll. 4. u. 5. Auflage. Walter-Veiiag 1988. Neil Postman: Conscientious Objecti- ons. Stirring Up Trouble About Langu- age, Technology and Education. Heinemann 1989. Djúpsálarfræði og biblíuskýring eða ritskýring eftir Drewermann er mikið rit, tvö þykk bindi, alls um 1426 blaðsíður í stóru broti. Sagt er að höfundurinn skrifi skjótar en gagnrýnendur lesi. Hann er guð- fræðingur og kennir í Paderborn. Hefur skrifað margar bækur um kristindóm og djúpsálarfræði, auk þess sálfræðilegar útlistanir á Grimms-ævintýrum. í þessu verki fjallar hann um „rétt- an“ skilning á sögum Biblíunnar og reisir skoðanir sínar á draumum sem slíkum, telur að draumurinn sé kveikja allra trúarbragða, þaðan sé runnin og eigi sitt upphaf eðlis- læg trúarþörf mannkynsins og sé jafnframt brýnust sálrænna þarfa. Drewermann telur að útilokað sé að skilja trúarlegan texta með því að lesa hann sem játningarrit for- tíðarinnar. Þar með afneitar hann algjörlega kenningum þeirra guð- fræðinga, sem rannsaka biblíutexta frá sögulegu sjónarhorni og leitast við að útskýra textana samkvæmt nútíma skilningi. Nútíma skilning- ur á undrum og kraftaverkum drepur þar með textana og inntak þeirra. Guðfræðin verður „fræði" um Guð, sem er orðinn harla aldr- aður og lifir aðeins í þurrum skræðum. Drewermann skrifar: „Guð án lifandi Guðs, skilinn mennskum skilningi manna sem eru ekki lifandi, þetta eru orð, án tilfinningar, heilar án líkama og sál án sálar, meðvitund án dulvitund- ar.“ Hann skrifar einnig: „Trúarbrögð eru eldri en tungan og þar með eldri en öll guðfræði. Þau eru runn- in upp á þeim tímum fyrir hundr- uðum þúsunda ára, þegar maður- inn hugsaði aðeins í myndum og táknum, löngu áður en maðurinn varð talandi vera.“ Því dreymir menn í myndum og táknum löngu liðinnar fortíðar og þau tákn eru að dómi Drewermanns arktýpur, trú- arlegar arktýpur sem sfðar var reynt að koma til skila með mýtum. Hann telur að kenningar guðfræð- inga um þróun trúarinnar, um kennisetningarnar (dogmurnar) og um skilning þessa séu bundin tím- um mannanna, en að trúartáknin séu eilíf eins og trúin sjálf. Skýring- arnar leiddu til afhelgunar og í lok- in tókst krufningsmönnum, þ.e. biblíuskýrendum, að skilja við biblíuna sem fortíðarbeinagrind, líflausa og rétt steindauða. Þeir sem teljast til bókstafstrúar- manna fá einnig kaldar kveðjur, hjá þeim verður biblían „sem bögglað roð fyrir brjósti mínu“, stokkfreðn- ar og líflausar kennisetningar. Og það eina sem eftir er, að dómi Dre- wermanns, er ritualið, helgitákn og siðir, en þau tákn og siðir ná ekki til nema örfárra; í augum flestra eru þetta aðeins hefðbundnar venjur og forn tákn, þótt táknin og siðirnir séu það eina sem eftir stendur lífs í kirkjubákninu. Það kemur fljótlega í ljós við lest- ur þessa verks, að höfundurinn hef- yr kynnt sér grandgæfilega kenn- ingar C.G. Jungs um trúarbrögð, tákn og dogmur, en þar er að finna sérstæð viðhorf til lykilþátta krist- inna kenninga. Fyrra bindi Drewermanns fjallar um: Sannleika formsins — draum- inn, mýtuna, ævintýrið, söguna og helgisögnina. Síðara bindið um: Sannleika verkanna og orðanna — Undrið, sýnirnar, spárnar, hinn efsta dóm, söguna og samlíking- una. Verk Drewermanns kom fyrst út 1984 og ‘85. Móttökurnar voru þær, að fyrsta útgáfa seldist upp á skömmum tíma og nú eru prentað- ar 4. og 5. útgáfa. Guðfræðingar höfðu margt að segja um Drewer- mann, en jafnframt töldu sumir þeirra þetta vera þarft verk. Verkið er bein árás á guðfræðilega hug- myndafræði og þótt höfundurinn fjalli um trú og vantrú, fordæm- ingu og frelsun, synd og endur- lausn, þá er innsta hugtakið um frum-skelfingu mannsins sem breytist í trúnað, trú. Sala verksins bendir ótvírætt til þess að áhugi almennings um um- fjölluð efni sé meira en lítill. Til- vitnanir höfundar í heimildir eru alls um 60 blaðsíður. .Amusing Ourselves to Death“ kom út 1985 og vakti mjög mikla eftirtekt. Postman réðst ákveðið að efni því sem var/er yfirgnæfandi í bandarísku sjónvarpi og víðar um heim. Þessi bók er framhald þeirrar fyrri með tilbrigðum. Sagt er að sjónvarpsgláp tæmi fólk, sljóvgi það og firri það raunveruleikanum. Postman minnist á athuganir þeirra sem rannsakað hafa áhrif sjónvarpsins á menningarástandið f Bandaríkjunum, og sem eru ugg- vekjandi. Höfundur telur að nið- urkoðnun málsins sé komin á það stig að flestir álíti það ekkert vandamál lengur. Að þessi nið- urkoðnun sé aðeins vegna sjón- varpsgláps er þó ekki öruggt, því að skólakerfið í Bandaríkjunum er einnig talið eiga hér hlut að og hann ekki lítinn: kennarar ófærir margir hverjir til að sinna kennslu og aðferðirnar við kennslu fárán- legar, orðfæðin hrikaleg og hirðu- leysi í hápunkti. Þessi dapurlegi söfnuður virðist hafa fremur hug á annars konar innrætingu en að kenna lykilgreinar. Þegar lélegir skólar, hæfileika- snautt kennaralið og lélegt sjónvarp fer saman, þá er ekki von á mikilli menningarlegri reisn. Lágkúran og afþreyingarþorstinn ræður. Höfundurinn telur að bandarísku sjónvarpi hafi hraðfarið aftur frá upphafsárunum á sjötta áratugin- um. Líklega er hægt að segja það sama um skólakerfið. Rannsóknir á kunnáttu bandarískra grunnskóla- nemenda eru alkunnar og einnig það, að þegar nemendur koma inn í háskólana úr framhaldsskólunum, þá er talsverður hluti þeirra bæði ólæs og óskrifandi og almenn þekk- ing í algjöru lágmarki. Þeir einstaklingar sem telja sig vera varnaraðila skólakerfisins leggja mikla áherslu á, að það séu sjónvarp og fjölmiðlar sem bera ábyrgðina á kunnáttuleysi og sljóvgun nemenda, en þeir góðu menn virðast ekki gera neitt til að hamla gegn þeim neikvæðu áhrif- um innan skólakerfisins. Frekar virðist þar vera aukið á sljóleikann með eftirhermum afþreyingariðn- aðarins. Það er von að Neil Postman sé áhyggjufullur vegna þeirrar and- legu formyrkvunar sem hann telur að liggi yfir samfélagi því, sem hann byggir. Mötunin gengur alla daga, ruslinu er dengt yfir áheyr- endur og áhorfendur og þeir sem ættu að hamla gegn óþrifunum, stuðla fremur að formyrkvuninni með glæpsamlegu afskiptaleysi sínu. Þessar greinar Postmans eru þarf- ar hugvekjur og eiga sannarlega er- indi hér á iandi. Siglaugur Brynleifsson

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.