Tíminn - 19.10.1990, Page 1
íslendingar keyptu áfengi og tóbak af
ÁTVR fyrir rúma 10 milljarða króna í
fýrra. Alverið í Straumsvík sem átti
óvenju gott ár í fyrra tókst að velta
álíka miklum tjármunum og ÁTVR.
Þetta þýðir einfaldlega að þjóðin
eyddi álíka miklu í brennivín og tóbak
og álverið fékk fýrir framleiðslu sína í
góðu ári. Álverð var nefnilega óvenju
hátt í fýrra og skilaði ísal 50% veltu-
fjáraukningu frá því sem var árið á
undan. Velta ÁTVR jókst um 39%
milli sömu ára. Samkvæmt útreikn-
ingum Seðlabankans hækkuðu
greidd laun í landinu hins vegar um
aðeins 12% milli áranna 1988 og
1989. Þannig stækkaði því sá hluti
heildarlauna íslendinga sem fór til
kaupa á vamingi ÁTVR milli fýrr-
nefndra ára um 1,3% og fór úr 5% í
6,3. Hefðu íslendingar hins vegar lát-
ið við það sitja að auka áfengis- og
tóbakskaup sín um sömu krónutölu
og laun þeirra hækkuðu um, eða
12%, hefði sala ÁTVR orðið um 2
milljörðum króna minni en raunin
varð. Það hefði þýtt að meðalfjöl-
skyldan hefði verslað fýrir 31 þúsund
krónum minna í ríkinu en hún gerði.
• Blaðsíða 5
—
STEINGRÍMUR J. Sigfússon samgönguráðherra úthlutaði í gær Flugleiðum
hf. áætlunarflugleiðum Amarflugs til Amsterdam og Hamborgar. Jafnframt
rýmkaði ráðherra talsvert heimildir til leiguflugs með farþega á áætlunarleiðum
milli íslands og útlanda og afnam hömlur á leiguflug með vörur. Myndin er tekin
þegar samgönguráðherra tilkynnti ákvörðun sína. Honum á hægrí hönd er Hall-
dór S. Krístjánsson, skrífstofustjórí í samgönguráðuneytinu. ,
Tímamynd: Pjetur # BQKSIOB
Velta ÁTVR og ísals í Straumsvík var ámóta mikil á síðasta ári:
Drekkum fyrir ígildi
veltu álversins á ári