Tíminn - 19.10.1990, Side 3

Tíminn - 19.10.1990, Side 3
Föstudagur 19. október 1990 Tíminn 3 Flugmálastjóm leggur til við fjárveitinganefnd að breyta flug- málaáætlun til að rétta af rekstrarhalla Flugmálastjórnar: Frestun framkvæmda uppá 77,2 milljónir en Flugmálastjórn innheimtir sjálf sínar tekjur. Ýmislegt hafi rýrt rekstrarfé Flugmálastjórnar. Þar má til dæmis nefna greiðsluerfið- leika Arnarflugs. Þessi mál eru nú í skoðun í nefnd en niðurstaða ekki fengin enn. Stærsta framkvæmdin, sem Flug- málastjórn leggur til að fresta, er við Egilsstaðaflugvöll og nemur um 30 milljónum króna auk 20 milljóna viðbótarframkvæmda á Austfjörðum. Jón sagði það vera vilja Alþingis að staðið yrði við þá áætlun sem gerð var í ár. „Samgönguráðherra lýsti því yfir við umræðuna að leit- að yrði samninga um tilteknar framkvæmdir, sem eftir væru á þessu ári. En þess ber að geta að það er undir hælinn lagt hvað hægt er að framkvæma á þessum tíma sem eftir er ársins." -hs. Ráðstefna um brunavarnir og brunamál. Ýmsar nýjungar: Tðlva sýnir brunahönnun hússins á leiðinni í útkall Hrólfur Jónsson, varaslökkviliðsstjórí, við tölvuna. Flugmálastjórn hefur farið þess á leit við fjárveitinganefnd Al- þingis að framkvæmdum upp á 77.2 milljónir, sem gert var ráð fyrir í flugmálaáætlun, verði frestað til næsta árs. Jón Kristjáns- son, þingmaður Framsóknarflokksins í Austurlandskjördæmi, vakti athygli á þessu máli á Alþingi í gær. Jón telur það lítt veij- andi að gerðar skuli tillögur um tilfærslur án þess að samráð sé haft við þingið eða einstaka þingmenn í viðkomandi kjördæmum. Jón benti á, að tilfærslur við t.d. vegaáætlun væru yfirleitt gerðar með samþykki og í samráði við þingmenn í viðkomandi kjördæmi. „Það var ekki gert í þessu tilfelli, en um það hefur verið beðið, enda hlýtur slíkt samráð að teljast nauð- synlegt. Ég deili á í þessu sam- bandi að slíkt samráð er allt of seint á ferðinni og þingmenn hafa lítið svigrúm." Jón sagði stutt vera eftir af þessu ári og óvíst væri með þær framkvæmdir sem ekki eru enn hafnar. „Fjárveitingar, sem eru geymdar á milli ára, fara ekki sjálf- krafa á næsta ári inn í flugmála- áætlun, heldur er það háð sam- þykki Alþingis. Þessi vinnubrögð deili ég á og vil að þetta verði leið- rétt.“ Ástæðan fyrir frestunarbeiðni Flugmálastjórnar er að ýmsar framkvæmdir hafa farið framúr áætlun og er 75 milljónum ætlað að ná endum saman. Þá er í beiðn- inni rakinn rekstarvandi Flug- málastjórnar, meðal annars vegna þess að tekjur hafi komið seint inn, Jón Kristjánsson alþingismaöur. Dagskrárgerðarmaður á Byigjunni finnur skjöl, merkt trúnaðarmál, frá utanríkis- ráðurteytinu í sorpgámi. FURÐU LOSTINN Utanríkisráðuneytið hefur sent frá scr fréttatilkynningu, þar sem seg- ir að kassar þeir, sem Jón Ársæli Þórðarson, dagskrárgeröarmaður á Bylgjunni, rakst á í sorpgámi þann 17. október sl., hafi veríð skoðaðir og farið í gegnum öll skjöl sem í þeim voru. Það var Jón Ársæli Þórðarson sem fann skjölin og fletti f gegn- um þau og sagði hann frá þessum fundi f síðdegisþætti sínum á Bylgjunni, ísland í dag. Jón Ársæll sagði við Tímann aö hann hefði verið furðu lostinn og bæði hissa og relöur þegar hann fann skjölin. „Ég var hissa á því að rekast á ríkisleyndarmól og skjöl merkt trúnaðarmál í bak og fyrir bæði á ensku, fslensku, dönsku og norsku og reiður yfir drullusokks- hættinum í stjómkerfinu og því hveraig við erum með allt niöur um okkur í vamar- og öryggismál- um.“ f fréttatilkynningu utanríkis- ráðuneytisins segir að fyrrverandi embættlsmaður þess hafi verið fyrr í vikunni að grisja búslóð og farga m.a. persónulegum gögnum. Meðal þess, sem hann hcfði hent, voru afrit nokkurra fundargerða vegna landhelgismála, 16 til 40 ára gamlar, sem merktar voru trúnaðarmál á sínum tíma. Jón Ársæll sagði að fljótleg rann- sókn hans á skjölunum, áður en hann aflienti fulltrúum utanríkis- ráöuneytisins kassana þijá, hefði leitt annað í Ijós en komi fram í fréttatilkynningu utanríkisráðu- neytislns. „Þeir segja að leyndar- stimplinum af þessum skjölum hafi verið afiétt og þeir virðast h'ta þetta mun mildari augum en ég og þeir geta nánast sagt mér hvað sem er.“ Jón Ársæll sagði að sum skjölin hefðu verið frumrit og önnur afrit. Jón sagði að hann heföi bara verið að fara eins og hver annar borgari með rusl í ruslagáminn suður f litla Sketja- fjörðinn og í myrkrinu á miðviku- dagskvöldið hrándi í hausinn á honum kassi og út úr honum ultu þessi skjöl. „Ég kíkti upp í gáminn og þá sá ég þar tvo aðra kassa sem ég greip með mér en vafalaust hafa þeir verið fleiri.“ -SE Rúmlega eitt hundrað manns sitja nú ráðstefnu um brunavamir og brunamál sem hófst á Hótel Sögu í gær. Á ráðstefnunni er gerð grein fyrir ástandi brunavarna og bruna- mála almennt í Svíþjóð jafnframt því sem sagt er frá evrópskum stöðlum og reglugerðum á því sviði. Meðal fyrirlesara á ráðstefnunni eru tveir helstu sérfræðingar Svía á sviði brunavarna og brunamála, Anders Rynderman, forstjóri rann- sóknastofnunar sænska byggingar- iðnaðarins, og Sven Erik Magnus- son, prófessor í brunavarnaverk- fræði við háskólann í Lundi. í gær fjallaði Hrólfur Jónsson, vara- slökkviliðsstjóri í Reykjavík, um afar athyglisverða nýjung á sviði bruna- varna og slökkvistarfa hérlendis. Hrólfur sagði að þessi nýjung fælist í því að húseigendur gætu látið gera sérstakar brunateikningar af húsum sínum sem sýndu helstu brunavarn- arþætti í húsunum, t.d. hvar slökkvitæki og neyðarútgangar væru staðsett, hvar eldfim efni væru geymd og yfirhöfuð hvernig bruna- hönnun hússins væri. Síðan væri hugmyndin sú aö húseigendur kæmu með þessa teikningu til þeirra og þeir myndu setja hana inn í tölvu og í bílunum á leiðinni í út- kall væri hægt að kalla fram teikn- ingu af viðkomandi húsi og ákveða í samræmi við brunahönnun hússins hvernig staðið yrði að slökkvistarfi. Hrólfur sagði að ef vel til tækist myndi þetta auka öryggi þeirra sem skilað hefðu inn teikningu og gera slökkvistarf mun markvissara og ör- uggara. Þá væru önnur forrit sem ekki yrðu í slökkvibílunum en með þeim væri hægt að skoða hvert hús eða hverja teikningu fyrir sig og meta frá áður gefnum forsendum hvað gerast myndi ef eldur kviknaði í ákveðnu herbergi. Tölvan gæti þá reiknað út hvað langan tíma tæki að tæma hús- ið ef ákveðið margir væru inni í einu herbergi. Þar að auki væri hitastig og reykmagn alls staðar í kring gefið upp og hefði það sýnt sig eftir fjöl- margar tilraunir að þessir útreikn- ingar stæðust að miklu leyti í raun- veruleikanum. ( Hrólfur sagði að til stæði að semja við tryggingafélögin um lækkun á iðgjöldum þeirra sem skiluðu inn teikningu og því myndi kostnaður- inn við að gera teikninguna borga sig upp á nokkrum árum í lækkuð- um iðgjöldum auk þess sem öryggi íbúa og starfsmanna hússins myndi aukast. Hrólfur sagði að einnig væru þeir með tölvuforrit sem notað væri við áhættugreiningu efnaslysa og til að meta afleiðingar bruna og efnaslysa. Á ráðstefnunni flytja þrír íslend- ingar auk Hrólfs erindi. Það eru þeir Haukur Ingason, verkfræðingur hjá rannsóknarstofnun sænska bygg- ingariðnaðarins, Björn Karlsson, hjá brunavarnaverkfræðistofnun háskólans í Lundi, og Jón Viðar Matthíasson, verkfræðingur hjá Fire Safety Design AB í Lundi. Á ráð- stefnunni voru í gær og dag flutt er- indi um menntun brunavarnaverk- fræðinga, helstu þætti brunatækni- legrar hönnunar, brunaeðlisfræði, reyklosun, burðarvirki í bruna, hug- myndir um nýjan frágang teikninga og slökkviáætlanir byggðar á hönn- un hússins, efnahagslegan ávinning brunavarna, vatnsúða og viðvörun- arkerfi, reykútbreiðslu í loftræsti- kerfum, áhættugreiningu, hættuleg efni og fleira. Ráðstefnan er haldin af áhuga- mönnum um brunavarnir og bruna- mál í félagi við Brunamálastofnun ríkisins. —SE Leiksýning fyrir grunn- skólanema Þjóðleikhúsið er nú að fara af stað með leiksýningu sem ætlað er að sýna í grunnskólum. Sýningin er gerð í samvinnu við menntamála- ráðuneytið og fræðsluyfirvöld, en markmiðið er að kynna nemendum list leikhússins og tengja starfsemi Þjóðleikhússins skólakerfinu. Hugmyndin er, að á hverju ári komi leikarar í skólana með leiksýningu, sem með einum eða öðrum hætti tengist námsefninu. Sýningarnar yrðu skólanum að kostnaðarlausu og hugsaðar sem framlag Þjóðleik- hússins til skólastarfsins. Á vorin yrði skólamönnum kynnt sýning næsta skólaárs, og þannig gæfist svigrúm til þess að fella heimsókn leikhússins að kennslunni. Þegar hefur verið frumsýnt leikrit- ið Næturgalinn í Félagsheimili Sel- tjarnarness og var sú sýning ætluð nemendum Mýrarhúsaskóla. Hópur listamanna Þjóðleikhússins hefur samið leiksýningu eftir hinu þekkta ævintýri H.C. Andersens. Næturgal- inn fjallar m.a. um fjölmarga þætti sem drepið er á í samfélagsfræði- kennslu og tekur sýningin 40 mín- útur. Nemendur fá síðan tækifæri til þess að ræða við leikhópinn eftir sýninguna. Þátttakendur í sýningunni eru: Helga E. Jónsdóttir, Jón Símon Gunnarsson, Kristbjörg Kjeld, Margrét Guðmundsdóttir og Þór- hallur Sigurðsson. Tónlist er eftir Lárus Grímsson. Þjóðleikhúsið annast sjálft skipu- lagningu leikferðarinnar í samráði við einstaka skóla. Ekki er þörf að panta leiksýninguna. khg. Vinningar í happdrætti Hjartaverndar Dregið var í happdrætti Hjarta- verndar þann 12. október síðastlið- inn, hjá borgarfógeta. Fyrsti vinningur, til íbúðarkaupa fyrir 1.500.000 krónur, kom á miða nr. 93.233. Annar vinningur, Galant hlaðbakur bifreið árg. 1990, kom á miða nr. 57.779. 3.-5. vinningur, íbúðarkaup fyrir 500.000 krónur, komu á miða nr. 49.328, 59.901 og 90.116. 6.-15. vinningur, bifreiða- kaup lyrir 450.000 krónur komu á miða nr. 16.137, 23.356, 25.048, 25.448, 30.707, 31.500, 48.838, 59.579, 84.292 og 94.720. Vinninga má vitja á skrifstofu Hjartaverndar að Lágmúla 9,3 hæð, sími 83755. khg. í BÆNDATRYGGINGU SJÓVÁ-ALMENNRA SAMEINAST , EINKATRYGGINGAR FJÖLSKYLDUNNAR 0G VÁTRYGGINGAR SNIÐNAR AÐ ÞÖRFUM LANDBÚNAÐARINS SJÓVÁQgALMENNAR

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.