Tíminn - 08.11.1990, Blaðsíða 10

Tíminn - 08.11.1990, Blaðsíða 10
10 Tíminn Fimmtudagur 8. nóvember 1990 Fimmtudagur 8. nóvember 1990 Tim Kirkjuþing vill benda ungu fólki á mikilvægi vfgðrar sambúðar: OSKRA SAMBÚ Eftir Guðrúnu Erlu Ólafsdóttur GETUR ÞREFALT LÖGBROT Staöa og mikilvægi hjónabandsins í þjóðfé- Iaginu er eitt þeirra mála sem kirkjunnar menn taka fyrir á 21. kirkjuþingi þjóðkirkj- unnar sem stendur yfir um þessar mundir. Tilgangur umræðu þessarar mun vera að vekja athygli á þeim réttindum sem hjúskap- ur veitir og að gera hjónabandið mikilvægara í augum ungs fólks. í þingsályktunartillögu sem lögð var fyrir þingið, um réttarstöðu fólks í vígðri sambúð, kemur fram að óvígt sambúðarform veiti möguleika á að sniðganga lög þannig að „fólk í óvígðri og óskráðri sambúð getur leitað leiða til þess að njóta réttinda sem einstæðir for- eldrar hafa að lögum“. Með því að rangfæra hjúskaparstöðu sína og/eða segja rangt til um lögheimili geta einstaklingar sem í raun búa í sambúð notið réttinda sem hugsanlega auka ráðstöfunartekjur þeirra nokkuð. Þingsályktunartillaga þessi er helsta niður- staða nefndarálitsgerðar, sem unnin var af þriggja manna nefnd sem skipuð var af kirkju- ráði eftir síðasta kirkjuþing árið 1989. í þess- ari nefnd áttu sæti þau séra Birgir Snæbjörns- son prófastur, Jónína Jónasdóttir lögfræðing- ur og Ragnhildur Benediktsdóttir skrifstofu- stjóri. í álitsgerðinni eru fyrrgreind mál tekin fyrir, svo og er rætt um tíðni hjónaskilnaða og hjónabanda undanfarin ár, skattamál, hús- næðismál, tryggingamál fólks í hjónabandi, óvígðri sambúð og einstæðra foreldra, ásamt fleiru. Sambúð sem brýtur þrenn lög í tillögunni kemur fram að þegar fólk „býr og á heimili saman í raun, en skráir sig á tveim stöðum með lögheimili í auðgunarskyni, er það í raun að brjóta a.m.k. þrenn lög, þ.e. lög um lögheimili, lög um almannatryggingar (ef um bótagreiðslur er að ræða) og skattalög1'. Öllum ber, samkvæmt lögum, að skrá sig þar sem heimili viðkomandi er. En eins og kemur fram í álitsgerðinni, þá hefur orðalag þessara laga gefið færi á hentisemi og hringlanda við ákvörðun lögheimilis. En til þess að stemma stigu við lögbrotum af þessu tagi munu ný lög um lögheimili taka gildi 1. janúar 1991, þar sem um er að ræða breytingu á lögheimilis- hugtakinu. í þeim er kveðið svo á um að mað- ur eigi lögheimili þar sem hann hefur fasta búsetu. í þingsályktunartillögu kirkjuþingsins segir að þeir muni styðja aðgerðir yfirvalda til að koma í veg fyrir hvers kyns misferli, og að lög- brot sem þessi jafngildi lagabrotum varðandi undandrátt frá skatti, „hvort heldur um beina eða óbeina skatta er að ræða sem og trygg- ingasvik. Þau kunna einnig að tengjast lána- fyrirgreiðslu úr sjóðum“. En jafnframt segir að „þingið lítur svo á, að möguleiki til slíkra lögbrota réttlæti ekki að lögbundinn réttur þeirra, sem í raun eru einstæðir foreldrar, verði skertur". Mismunur á hjúskaparstöðu Ávallt hefur verið gerður greinarmunur á fólki eftir hjúskaparstöðu í almannatrygg- ingakerfinu, eins og kemur fram í álitsgerð- inni. „Þannig hafa einhleypingar fengið hærri greiðslur en hjón/sambúðarfólk tiltölulega. Þetta hefur verið rökstutt með því að það kosti hlutfallslega meira fyrir einhleyping að framfæra sig en hjón eða fólk í óvígðri sam- búð.“ Einstæðir foreldrar njóta sérstöðu varðandi barnabætur, barnabótaauka og vaxtabætur. í álitsgerðinni kemur fram að barnabætur ein- stæðra foreldra séu hærri en samanlagðar barnabætur hjóna, í sumum tilfellum helm- ingi hærri. „Tekjumörk barnabótaauka eru lægri en hjá hjónum og hvað vaxtabótum við- víkur njóta einstæðir foreldrar hærri bóta en einstaklingar, en lægri en hjón.“ Er rangfærð hjúskaparstaða algeng? Samkvæmt heimildum Tímans, þá eru ekki til neinar tölur um tíðni lögbrota af þessu tagi, en þó þau geti ef til vill verið stunduð, þá séu þau líklega ekki algeng. Nefna má sem dæmi, að samkvæmt upplýsingum frá Hag- stofunni, þarf að skila til þeirra bréfi frá við- komandi fógeta, ef um sambúðarslit er að ræða. Því dugar ekki að annar aðilinn tilkynni um nýtt lögheimili, ef fólk hefur verið í sam- búð. Munu þessi mál vera sérstaklega athug- uð, ef um er að ræða börn í sambúðinni. í 58. grein almannatryggingalaga, no. 67 frá 1971, segir í íyrstu málsgrein: „Nú hafa bóta- þega verið greiddar hærri bætur en vera bar samkvæmt Iögum þessum. Á þá Trygginga- stofnun endurkröfurétt á hendur honum. Eft- ir almennum reglum má og draga upphæðina frá bótum sem hann síðar kynni að öðlast rétt til.“ Samkvæmt upplýsingum frá Trygginga- stofnun ríkisins, þá er nokkuð algengt að far- in sé sú leið að draga frá þeim bótum sem bótaþegi á rétt á áfram. Annars er fólki sent bréf og það krafið greiðslu, ef slík mál komast upp. I annarri málsgrein sömu laga segir m.a.: „Ef greiðsla samkvæmt lyrstu málsgrein stafar af sviksamlegu atferli bótaþega, getur Trygg- ingastofnun látið hann endurgreiða allt að tvöfaldri þeirri fjárhæð sem ógreidd var.“ En þetta ákvæði mun geta orkað tvímælis um hvenær sviksamlegt atferli hefúr verið framið, og ef einhver vafi leikur á því, þá er því ekki beitt, kom einnig fram í upplýsingum frá Tryggingastofnun ríkisins. Réttur einstæðra foreldra annars vegar og sambúðarfólks eða hjóna hins vegar í álitsgerðinni kemur fram að við samanburð á mismun á réttarstöðu fólks sem er í hjú- skap/óvígðri sambúð annarsvegar og stöðu einstæðra foreldra hinsvegar er einkum um mismun að ræða á sviði skattamála, dagvist- unarmála, varðandi greiðslur úr trygginga- kerfi og möguleika til félagslegra íbúða. Ef fólk býr í óvígðri sambúð eru bætur, skattaafsláttur og aðrar fyrirgreiðslur oft lægri heldur en ef um einstætt foreldri er að ræða. Á hinn bóginn getur fólk sem hefúr ver- ið í sambúð sem hefur varað samfleytt í a.m.k. tvö ár, hefur átt saman barn eða konan er þunguð, átt rétt á að telja fram og vera skatt- lagt sem hjón. „Við álagningu opinberra gjalda er persónuafsláttur sama upphæð fyrir hvern einstakling. Hjónum og samsköttuðu sambýlisfólki er heimilt að nota 80% af ónot- uðum persónuafslætti maka síns.“ í húsnæðismálum er staðan sú að réttur til húsnæðislána hjá hjónum/sambýlisfólki er samanlagður réttur þeirra beggja. En einstak- lingar jafnt sem sambúðarfólk/hjón þarf að hafa greitt iðgjöld til lífeyrissjóðs í 20 mánuði á s.l. 24 mánuðum. Þegar um félagslegar íbúðir er að ræða hafa hingað til gilt reglur sem gera einstaklingum eða einstæðu for- eldri, sem þó hefur næga greiðslugetu, betri möguleika á rétti til að kaupa félagslega íbúð en hjón/sambýlisfólk með lágar tekjur, vegna þess hve viðmiðunartekjur hækka lítið þegar um hjón/sambýlisfólk er að ræða. En með lögum sem tóku gildi 1. júní s.l. er gert ráð fyrir hærra tekjumarki fyrir hjón til að gefa . láglaunahjónum samskonar möguleika og einstaklingum. Samkvæmt álitsgerðinni á fólk í hjúskap eða óvígðri sambúð ekki rétt á dagheimilisvistun fyrir börn sín, einungis einstæðir foreldrar og námsmenn eiga rétt á slfku. Einnig fá ein- stæðir foreldrar niðurgreiðslu á gjöldum dag- heimila, dagmæðra og leikskóla. Réttarstaða einstæðra foreldra í almanna- tryggingakerfinu tekur mið af þörfum for- eldra og barna í sameiningu. ,J4æðra- laun/feðralaun eru greidd ekkjum, ógiftum mæðrum og fráskildum konum, sem hafa börn undir 18 ára aldri á framfæri sínu og eiga lögheimili hér á landi.“ Aukning hjónaskilnaða í álitsgerðinni koma einnig fram tölur úr skýrslum í Hagtíðindum um hjónabönd og hjónaskilnaði árin 1961-1987. Þar kemur fram að hjónavígslur voru flestar árið 1974 eða 1891, og árin 1986-1987 urðu hjónavígsl- ur um 37% færri, eða 1229 árið 1986 og 1160 árið 1987. Hjónaskilnaðir voru flestir árið 1985 af þessum árum sem miðað er við, og hefur þeim fjölgað mikið á undanförnum ár- um. „Sé miðað við árin 1961-65 hafði tala lög- skilnaða hátt í þrefaldast 1987, en tvöfaldast miðað við íbúatölu." Mikílvægi hjónabandsins Eins og fram hefur komið, er meginmarkmið álitsgerðar og þingsályktunartillögu kirkju- þingsins sú ósk þingsins að starfsmenn þjóð- kirkjunnar beiti sér fyrir „aukinni umræðu og fræðslu innan kirkjunnar sem og í þjóðfélag- inu í heild, þar sem vakin er athygli á þeim réttindum sem hjúskapur veitir og gerir hjónabandið þýðingarmeira í augum ungs fólks." Þau atriði, sem kirkjunnar menn telja að sé mikilvægt að benda á f þessu efni, eru: „að hjón eru skylduerfingjar hvors annars og framfærsluskyld hvort gagnvart öðru. Við skipti á búi hjóna gildir helmingaskiptaregla. Hjón njóta ýmissa réttinda skv. lögum um al- mannatryggingar. Eftirlifandi maki á rétt til setu í óskiptu búi. Börn hjóna eru skilgetin. Hjónum er einum heimilt að ættleiða börn. Þær tillögur, sem kirkjan setur fram til að stemma stigu við framangreindum „lögbrot- um“ þeirra sem búa í raun í óvígðri sambúð en njóta samt réttar sem einstæðir foreldrar, eru m.a. þær að „heimiluð verði millifærsla ónotaðs persónuafsláttar þess maka, sem lægri eða engar tekjur hefur, að fullu yfir til hins makans." —GEÓ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.