Tíminn - 13.12.1990, Page 4
4 Tíminn
Fimmtudagur 13. desember 1990
HH! ÚTLÖND 1
Persaflói:
Sovétmenn verða ekki
með í hernaðaraðgerðum
Bduard Shevardnadze, utanríkisráðherra Sovétríkjanna, sagði á
þriðjudagskvöldið að ekki kæmi til greina að Sovétríkin tækju þátt í
hemaðaraðgerðum við Persaflóa. Hann sagðist binda mikla von við
viðræður Bandaríkjamanna og íraka um fríðsamlega lausn á deil-
unni.
Þegar hernaðaríhlutun hefur borið
á góma til lausnar á Persaflóadeil-
unni, hafa Sovétmenn látið lítið á
sér bera, en þetta er í fyrsta sinn sem
þeir iýsa yfir stefnu sinni afdráttar-
laust. Fréttaskýrendur telja að þessi
yfirlýsing Shevardnadzes komi til
með að grafa undan samningsstöðu
Bandaríkjanna þegar þeir munu
ræða við íraka um friðsamlega lausn
á deilunni.
Nú eru allir þeir erlendu borgarar,
sem vilja fara frá írak og Kúvæt,
farnir. Þeir seinustu fóru í gær.
frakar hafa nú yfir 500 þúsund her-
menn í Kúvæt, þar af 20 þúsund ný-
komna og óþreytta. Fjölþjóðlegi
herinn í Saudi-Arabíu er 480 þús-
und menn, helmingurinn Banda-
ríkjamenn, að sögn bandaríska
varnarmálaráðuneytisins. Frakkar
sögðust á þriðjudaginn ætla að
senda 4 þúsund hermenn til viðbót-
ar þeim 6 þúsund hermönnum sem
þeir hafa þegar sent.
Saddam Hussein skipaði nýjan
varnarmálaráðherra í gær. Sá sem
tekur við heitir Saadi Tu’ma Abbas
og kemur í staðinn fyrir Abdul- Jab-
bar Shanshal sem verður hermála-
ráðherra. Shanshal, sem er 70 ára,
var orðinn of gamall til að vera varn-
armálaráðherra, að sögn Saddams.
Breskt dagblað sagði á sunnudag að
verið væri að semja um lausn á deil-
unni, þannig að írakar fengju að
halda litlum hluta Kúvæts innan
sinna landamæra. Þessu var harð-
lega neitað í Baghdad og sagt að ír-
akar myndu aldrei gefa þumlung
eftir af Kúvæt.
Reuter-SÞJ
Sovétmenn ætla ekki að veita
hemaðarstuðning, ef til átaka
kemur við Persaflóa.
Pólland:
Tyminski fór
Ríkissaksóknari í Póllandi lofaði í
gær forsetaframbjóðandanum og
milljónamæringnum Stanislaw
TVminski að fara til Kanada, eftir að
hafa borgað 100 þúsund dollara
tryggingu.
Tyminski þarf að snúa aftur til Pól-
lands vegna rannsóknar á því hvort
hann hafi brotið lög með ásökunum
á hendur Mazowiecki forsætisráð-
herra. Hann kemur aftur til Póllands
þann fimmta janúar.
FRETTAYFIRLIT
Baghdad - Saddam Hussein for-
setl Iraks skipaði reyndan hers-
höfðingja I stöðu varnarmálaráð-
herra í stað Abdul-Jabbar Shansh-
ai, aö sögn útvarpsstöðvar f
Baghdad.
Brussel - Iraskur stjórnmálamað-
ur hitti Giulio Andreotti, forsætis-
ráðherra Italíu, að máli I Róm og
sagði hann að (rakar myndu ekki
yfirgefa Kúvæt, nema Palestínuar-
abar fengu málum slnum eitthvað
framgengt.
Belgrad - Einn stúdent hefur látið
lífið og margir særst nú á seinustu
tveimur dögum I átökum við iög-
reglu I Tirana, höfuðborg Albaníu,
að sögn júgóslavnesku fréttastof-
unnar Tanjug.
Vfn - Kommúnistaflokkur Albaníu
leyfði starfsemi annarra stjórn-
málaflokka á þriðjudaginn og strax
i gær var nýr stjómmálaflokkur
stofnaður.
Dhaka - Her og lögregla I Bangla-
desh handtóku I gær fyrrverandi
forseta Iandsins, Ershad.
Gdansk - Lech Walesa sagði af
sér formennsku Samstöðu I gær,
eftir að hafa verið formaður 110 ár
eða allt frá þvl að óháðu verka-
lýðssamtökin vorn stofnuð.
Stokkhólmur - Sænska þingið
samþykkti í gær að sækja um aðild
að EB áriö 1991.
Búkarest - Forsætisráðhen-a
Rúmeníu, Petre Roman, sagði að
ríkisstjóminni yrði breytt og er
hann þá að bregöast við gagnrýni
sem ríkisstjómin hefurfengið á sig.
I gær fóru kennarar, hjúkrunarkon-
ur og læknar i verkfall.
París - Frakkar sögðu ( gær að
þeir ætluðu að senda fleiri her-
menn, skriðdreka, orrustufiugvélar
og þyrlur til Saudi-Arabíu áður en
árið er liðiö.
London - Sjö sjómanna frá Skot-
landi var saknað eftir óveður sem
gekk yfir Norðursjó.
Nikósía - frönsk „góðgerðastofn-
un“ hefur endurtekið tilboð sitt um
að greiða þeim manni, sem drepur
rithöfundinn Salman Rushdie,
milljón dollara. Rush-díe kom fyrst
fram opinberlega fyrir fáeinum
dögum, en hann fór f felur fyrir
nærri tveimur árum, þegar stjóm-
völd í Teheran dæmdu hann til
dauða. Reuter-SÞJ
Albanía:
Nýr stjórnmála-
flokkur stofnaður
tjm það bil 50 þúsund Albanir
stofnuöu nýjan stjómmálaflokk
síðdegis í gær, aðeins degi eftir
að kommúnistar, sem hafa veríð
einráðir í landinu, sögðust vera
reiðubúnir að taka upp fjöl-
flokkakerfl.
Stúdentar, verkamenn og
margir menntamenn komu
saman á lóð háskólans í Tirana
til að stofna lýöræðisflokk sem
heitir einfaldlcga Lýðræðis-
flokkurinn. Kommúnistaflokk-
urínn hefur verið einráður allt
frá árinu 1944 þegar Enver
Hoxha komst til valda.
„Ég er mjög ánægður með að
við getum sýnt heiminum fram
á að það er hægt að koma á lýð-
ræðiskerfl án ofbeldis," sagði
Gramoz Pashko, 35 ára hag-
fræðingur. Hann sagði að flokk-
urinn mundi taka þátt í þing-
kosningunum sem fram fara
þann 10. febrúar. Reuter-SÞJ
USA afléttir
viðskiptabanni
George Bush Bandaríkjaforseti hef-
ur ákveðið að aflétta viðskiptahöml-
unum á Sovétríkin til að hjálpa
þeim í efnahagsörðugleikum þeirra,
að sögn stjómvalda í Bandaríkjun-
um í gær.
Aðgerðin tekur til svonefndra Jack-
son-Vanik-laga sem voru sett vegna
takmörkunar Sovétmanna á ferða-
frelsi þegna sinna og þá sérstaklega
vegna Gyðinga, en nú hafa Sovét-
menn leyft þúsundum Gyðinga að
fara til ísraels. Lögin eru skírð í höf-
uðið á höfundum sínum, Henry
Jackson og Charles Vanik demókröt-
um. Reuter-SÞJ
Lech Walesa, nýkjörinn forseti Pól-
lands, sagði af sér formennsku hjá
Samstöðu í gær, en hann hefur verið
formaður í tíu ár eða allt frá því að
óháðu verkalýðssamtökin voru
stofnuð árið 1980. Formaður verður
kosinn innan tveggja mánaða. Þang-
að til verður annar tveggja aðstoðar-
formanna samtakanna formaður til
bráðabirgða, Lech Kaczynski eða
Stefan Jurczak.
Reuter-SÞJ
Gísli Sigurðsson í viðtali við BBC. Fyrsta vettvangslýsing Vesturlandabúa af hernámi íraka á Kúvæt:
Fólk af !H Fal r ■ 1 VI iður-
vist fjöl Is ky lur inar
Frá David Keys,
fréttaritara Tímans i London.
Einn af gíslum Saddams Hussein,
íslenski læknirinn Gísli Sigurðs-
son, er fyrsti Vesturlandabúinn til
aö gefa nákvæmar upplýsingar um
líflát yfirmanns íraska hemáms-
liðsins í Kúvæt og um banatilræði
við forystumann borgaralegrar
leppstjómar íraka í Iandinu.
Gísli Sigurðsson greindi frá at-
burðum í viðtali við heimsútvarp
breska útvarpsins, BBC World Serv-
ice, og sagði að herstjóri hefði verið
felldur utan við húsið sem hann bjó
í og sagði síðan: „Komið var með
manninn helsærðan í sjúkrahúsið
þar sem ég starfaði. Hann var það
mikið særður að ekki reyndist unnt
að bjarga honum."
Gísli greindi einnig frá misheppn-
uðu banatilræði andspyrnumanna
við íraska landstjórann í Kúvæt. Það
hafi átt sér stað við Hiltonhótelið í
Kúvæt og í því féllu nokkrir íraskir
stjórnarerindrekar. Landstjórinn
hefði hins vegar yfirgefið hótelið
nokkrum mínútum fyrr. Tilræðið
var að sögn Gísla gert með bíl-
sprengju. Hann gat þess einnig að
slíkar bílasprengjur hefðu sprungið
oftar og hefðu beinst gegn Irökum,
Gísli Sigurðsson við komuna til fs-
lands í gær. Tímamynd: Ami Bjama
bæði hermönnum og borgurum og
greinilega gerðar af kunnáttu.
Gísli sagði líklegt að andspyrnu-
hreyfmgin hefði nú bækistöðvar sín-
ar utan Kúvæt, Því að undir lok
september hefði írökum tekist að
brjóta á bak aftur andspyrnuhreyf-
inguna innanlands. Andspyrnu-
menn kæmu því nú yfir landamærin
til að koma fyrir bflasprengjum eða
gera árásir á íraka.
Á sjúkrahúsi Gísla voru bæði írask-
ir og kúvæskir sjúklingar. Þeim yar
haldið aðskildum, að sögn Gísla. ír-
akarnir voru flestir lagðir inn vegna
skotsára sem þeir höfðu hlotið í til-
ræðum andspyrnumanna. Þá
greindi Gísli frá sjálfsmorðs-
sprengjutilræðum gegn írökum,
meðal annars einu þar sem kona ók
bíl hlöðnum sprengiefni á tankbfl
sem sprakk í loft upp. „Ég kom á
staðinn nokkrum mínútum síðar,"
sagði Gísli.
Hann greindi einnig frá afdrifum
fjölmargra andspyrnumanna: „Þeir
voru gripnir hver eftir annan, yfir-
heyrðir, pyntaðir og síðan farið með
þá heim til þeirra þar sem þeir voru
drepnir fyrir framan heimili sín í
augsýn fjölskyldna sinna. Ég veit
þetta með vissu, því að írakar létu
líkin liggja á götunni. Ættingjarnir
höfðu engin úrræði önnur en að
koma með þau á spítalann. Þar sá ég
að fólkið hafði allt verið drepið á
sama hátt: skotið í höfuðið aftan við
eyrað,“ sagði Gísli.
Viðtal BBC við Gísla átti sér stað í
bústað íslenska sendiherrans. í því
kom fram að hann hefði fengið fjöl-
mörg atvinnutilboð. í því sambandi
sagði Gísli að eitt væri víst: hann
hefði ekki áhuga á að starfa í Mið-
austurlöndum.