Tíminn - 13.12.1990, Síða 7

Tíminn - 13.12.1990, Síða 7
Fimmtudagur 13. desember 1990 Tíminn 7 111111 BOKMENNTIR Njósnir á styrjaldarárum Ásgeir Guðmundsson, Önundur Bjömsson: Með kveðju frá Sankti Bemharðshundinum Halldóri Skjaldborg 1990 Málefni íslands í síðari heimsstyrj- öld og á árunum fyrir styrjöldina hafa verið könnuð af ýmsum mæt- um fræðimönnum og sagnfræðing- um nú hin síðustu ár og ber þar á meðal einkum að nefna rannsóknir dr. Þórs Whitehead. Bækur sem um efnið fjalla hafa vakið verulegan áhuga almennings og er það í sjálfu sér ekki furðulegt, þar sem sitthvað nýtt hefur verið að koma upp á yfir- borðið sem menn ekki renndu grun í áður. Dæmi um vakandi áhuga al- mennings eru þær viðtökur er bókin „íslenskir nasistar" eftir Hrafn og Illuga Jökulssyni hlaut er hún kom út fyrir tveimur árum. Eftir sem áð- ur mun stórvirki Gunnars heitins M. Magnúss „Virkið í norðri" verða meginritið um ísland í báli ófriðar- áranna, en velflestu því er menn síð- ar hafa verið að rannsaka eru gerð þar a.m.k. allgóð skil. Bók þeirra Ásgeirs Guðmundssonar og Önund- ar Björnssonar ber undirtitilinn „ís- lendingar í þjónustu þriðja ríkisins" og er ekki óskiljanlegt að það efni veki áhuga. Einna athyglisverðast af efni bókarinnar þótti undirrituðum þó frásagan af skiptum þeirra Guð- brands Jónssonar og dr. Alexanders Jóhannesonar við Þýskaland í fyrri heimsstyrjöld og á næstu árum eftir hana og all kostulegur hráskinns- leikur bresk- og þýsksinnaðra manna hérlendis í því sambandi. Er ekki ótrúlegt að einmitt þessi kafli utanríkismálasögunnar með ívafi tilrauna til að efla flugsamgöngur í landinu verðskuldi að áhugasamur sagnfræðingur geri sér hana að bók- arefni. Hér er svo rakin saga ýmissa ein- staklinga sem af mismunandi ástæðum urðu innlyksa í Danmörku eða þá í Þýskalandi á stríðsárunum og eru þessar frásagnir vissulega markverðar. Þó verður ekki hjá því komist að benda á (sem höfundum er auðvitað manna Ijósast) að frá- sagnirnar eru flestar meira og minna vel kunnar. Trúlegt er að ýmsum þyki mest nýjung að lesa sögu Péturs Thomsen, sem var ljós- myndari á vegum þýska hersins langan tíma, en saga hans er hin æv- intýralegasta og hefur ekki oft verið tíunduð það vér best vitum, a.m.k ekki jafn vel og hér. En höfundar hafa vissulega gert sér far um að leita fyllri upplýsinga um fjölmarga þætti fleiri og ætti bókin fyrir það að verðskulda að áhugafólk um efnið kynnti sér hana. Langítarlegast er fjallað um Arctic-málið og harm- sögu áhafnarmanna og hafa höfund- ar farið yfir dómskjöl og ýmis erlend gögn, til þess að frásögnin megi verða sem ljósust og sannfróðust. Ávinningur er að því hve vel hefur tekist til um öflun myndefnis í þess- ari bók, svo af mönnum sem öðru er frásögnina varðar. Þannig eru vinnubrögð og frágangur efnisins til fyrirmyndar. Ákafir áhugamenn um sögu landsins á stríðsárunum munu finna hér sitthvað nýtt og þeir er annars lítt eða ófróðir um þessa at- burði taka sér bókina í hönd mun efalaust þykja hún bæði læsileg og spennandi frá upphafi til enda. AM slendingar þjónustu triðja iki&íns Munafullur Halldór í DVALARHEIMI Höf: Halldór Kristjánsson Útg: Líf og saga, 1990. í Dvalarheimi er afmælisrit Hall- dórs Kristjánssonar frá Kirkjubóli frá því í haust. Heitið er sótt í Sólar- ljóð þar sem segir: „Dvalarheim / hefur Drottinn skapað / munafullan mjög.“ Bókin er að verulegu leyti samsafn greina og pistla Halldórs og ættu lesendur Tímans að sjá þar eitt og annað kunnuglegt ef þeir hafa fylgst lengi með skrifum hans. Ekki hefur þó allt birst áður og er að finna í fyrri hluta hennar grein um höfundinn, uppruna hans, líf og starf, eftir Kristján G. Guðmunds- son. Gefur hún ágætt yfirlit yfir lífs- hlaupið, en til baga er að betur hefði mátt vanda prófarkalestur af hálfu útgefanda á þessari grein. Málfar Halidórs er öðrum til eftir- breytni og gefa greinar hans, frá- sagnir og Ijóð, góða mynd af því. Stíll hans er jafnan kjarnyrtur. Er það allt ritað undir merkjum ung- mennafélagshugsjóna sem því mið- ur hafa átt undir högg að sækja á síðari tímum. Ljóð hans frá árinu 1985 er góð yfirskrift yfir markmið Halldórs í lífinu: ,Að finna í glaum- inum farsæla leið, / að fylkja til varnar og dáða, / að sætta sig aldrei við sjálfráða neyð / en sannleikann kalla til ráða: / Til þess er vort frelsi, til þess er vort starf / er þjónustu- hugsjónir tókum í arf.“ í ljósi þess óeigingjarna og vand- aða starfs sem Halldór hefur skilað um tíðina hefði ég kosið að sjá meiri natni við frágang afmælisbókar hans. Er umbrot á ljóðasíðum t.d. alls ekki nógu gott. Hvað sem því líður er efni bókarinnar gott og markmiðin munafull til heiðurs merkum manni á stórafmæli. Krístján Björnsson FRA TYRTAJOSI TIL KRISTJÁNS EINN DAG ENN (jóöabók Höf: Krislján Ámason Útg: Mál og menning, Reykjavík 1990. Það hefur verið frekar hljótt um ljóðaþýðingar í öllu því ljóðabóka- flóði sem verið hefur á markaðn- um í haust. Með ljóðabók sinni, Einn dag enn, leitast Kristján Árnason við að leiðrétta þennan halla sem er á ljóðaskiptajöfnuði við fjarlægari lendur Ijóðrænna til- burða. Hefur hann helgað síðasta hluta bókar sinnar þýddum Ijóðum eftir Sapfó, Goethe, Heine, Rilke, Lorca, Auden og marga fleiri. Spanna Ijóðaþýðingarnar ekki að- eins breitt svið f landfræðilegum skilningi heldur er aldursdreifing Ijóðanna mikil. Er hún allt frá TVrtajos um 675 fyrir Krist, sem yrkir áþekkt Orðskviðunum, og fram til Roberts Graves og Philips Larkin, sem báðir lifðu til ársins 1985. Margt er skondið í þessum þýddu ljóðum Kristjáns og margt er afar djúprist. Dauðinn og hið ljúfa líf er hlið við hlið í bókinni rétt eins og í lífinu sjálfu. Samband kynjanna, uppeldið, ellin og svipleg örlög. Sjálfur er Kristján alls ekki einlit- ur höfundur. Hann hefur til að Kristján Ámason. bera þá nauðsynlegu víðsýni yfir menningarálfur og fjölbreytileika mannlífsins sem því miður sér allt of sjaldan stað í nýjum ljóðabók- um. Hann vill greinilega bæta og fegra mannlífið, enda er hann kennari uppvaxandi kynslóða og sannur í sínum ljóðum. Þetta framlag hans er vel úr garði gert og nægir að nefna frágang bókarinnar til vitnis um það. Á forsíðunni er þrískipt mynd í fjölda lita til ábendingar um að bókin skiptist í þrjá kafla. Ég hef þegar minnst á þriðja kafl- ann, Þýdd ljóð. Hinir eru Undir ósonlagi og Þrettán þankabrot um lífið. Það er samstæður Ijóðabálkur undir sonnettuhætti, þar sem höf- undur tekst óhræddur á við ýmsar hégiljur um lffið, svo sem að það sé skóli, draumur, gabb, saga sögð af vitleysingi og „flakk um hina og þessa hami“. Þegar tólf neitunar- greinum er lokið kemst hann að þeirri niðurstöðu að enginn ætti að lá sér fyrir að grípa til orða Jó- hannesar guðspjallamanns: „... Hver sem ekki hatar / sitt líf í þess- um heimi og honum deyr, / hann hreppir ekki það sem varðar meir / en leysist upp og sálu sinni glatar." í heild er þetta bók sem skilur mikið eftir við lestur og verður gott að geta gripið til hennar á íhugunarstundum og til uppbygg- ingar, ekki síður en til afþreyingar. Hér ber mikið á glettni og alvöru lífsins, tímanlegum og síðstæðum viðfangsefnum. Umfram allt er hann sannur og hollráður, líkt og sumir þeirra ljóðahöfunda sem hann þýðir í þessari ágætu bók. Kristján Björnsson Vönduð Ijóð og ævintýra legar sögur Halldór Kristjánsson frá Kirkju- bóli. Oddný Sv. Björgvins: Þegar prentljósin dansa (ljóð), Níu nornaljós (smásögur), Skákprent, Rv. 1990. Oddný Sv. Björgvins er nýtt nafn í íslenskum bókmenntaheimi. Hún kveður sér nú hljóðs, ekki með einni bók heldur tveimur, annarri ljóðabók og hinni smá- sagnasafni. í Ijóðabókinni er Ijóst að hún fer þær slóðir sem hefðbundnar mega orðið teljast í íslenskri ljóðagerð. Hún yrkir stutt og hnitmiðuð ljóð undir frjálsu formi, sem einkum fela í sér myndir eða stemmning- ar. Af slíkum ljóðum er búið að yrkja heil reiðinnar býsn síðustu árin og áratugina, svo að nýja- brumið af þeim er út af fyrir sig orðið lítið. En aftur á móti er það greinileg- ur styrkur hennar í ljóðunum að hún hefur mjög gott vald á málinu og beitingu þess. Gott ef hún hef- ur ekki beinlínis lagt sig eftir því að leita að sterkum og merkingar- þrungnum orðum, sem gera myndir hennar á tíðum töluvert áhrifameiri en við eigum að venj- ast í ljóðum sem þessum. Að því er efni snertir er líka sitt- hvað nýstárlegt þarna. Það felst fyrst og fremst í því að hún er greinilega víðförul og hefur komið á marga fjarlæga staði. Af því leið- ir að myndasafnið þarna er tölu- vert alþjóðlegra en gerist og geng- ur. Og jafnvel örlar þarna á pólitík, þar sem er ljóðið Bjarminn yfir Rússlandi og fjallar um pere- strojkuna þar eystra. Það vekur þó athygli að hún yrkir þarna síður en svo af nokkurri pólitískri heift, heldur er þar nánast um eina sam- an mynd að ræða. Á tveimur stöðum má einnig segja að hún hlaupi út undan sér og brjóti upp smáljóðaformið. Það er í tveimur ljóðum (Við erum bergnumin og Öður til indverskr- ar konu) sem eru töluvert lengri en hin. Ég held að það fari ekki á milli mála að þar sé hún á réttri braut. Smásögur Oddnýjar verða aftur á móti mun frekar að teljast af ætt ævintýra. Það er sameiginlegt ein- kenni þeirra að þær eru óraunsæj- ar og gerast miklu fremur inni í hugskoti sögupersóna heldur en úti í hinum harða heimi. Og þær Oddný Sv. Björgvins. einkennast líka af því að yfirleitt er þar dansað á ystu mörkum þess sem raunverulega er á ferðinni í þjóðfélaginu í kringum okkur og hins sem eingöngu á sér vettvang í mannlegu hugskoti og í einhvers konar ævintýraheimum. í rauninni má þá segja að hér séu á ferðinni verk í ætt við andskáld- söguna eða antirómaninn sem höfundar hér hafa ræktað töluvert síðustu tvo til þrjá áratugina. En eigi að reyna að finna eitthvert sameiginlegt meginþema í sögun- um, þá má segja að þar sé víðast hvar fjallað um angistina og hræðsluna við að einangrast frá öðru fólki. Með slík efni er vandmeðfarið og auðvelt að ofleika. Og má vera að höfundur fari hér af og til yfir þau mörk. Hins vegar fer ekki á milli mála að hér eru á ferðinni sterkar og vel samdar sögur sem grípa at- hygli lesandans og halda henni allt til loka. Ég nefni sérstaklega sögu sem nefnist í skini rauða kjólsins og er að ég held án nokkurs efa hin áhrifamesta í bókinni. Þar er á býsna haglegan hátt fléttað saman lýsingu á fátækt, ást, örvæntingu og örþrifaráðum ungrar stúlku, og verður rauður kjóll þar að mið- lægri táknmynd sem tengir alla þræði. Þar er á ferðinni skáldskap- ur sem verður að taka alvarlega. Ég held að það fari ekki á milli mála að Oddný Sv. Björgvins hafi hér kvatt sér hljóðs með þeim hætti að óhjákvæmilegt sé að tek- ið verði eftir. Hún kemur fram í báðum bókunum sem þroskaður höfundur með gott vald á máli og stíl. Það verður forvitnilegt að fylgjast með henni framvegis. Eysteinn Sigurðsson.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.