Tíminn - 13.12.1990, Qupperneq 9
Fimmtudagur 13. desember1990
Tíminn 9
L , ^ JUg& m vBHB ||P " ; íwi
ÁGÚSTA ÁGÚSTSDÓTTIR Sumar á Sóllieimum
Fjölbreytt útgáfa
Hildar
Reynsla undir leiðsögn eftir Síló
(Mario Luis Rodriguez Cobos).
1989 kom út bókin „ Að gera jörð-
ina mennska" eftir Síló. Sú bók
hefur notið mikilla vinsælda. I
þessari nýjustu bók Sílós er gerð
ný bókmenntaleg tilraun, og það
gerist vissulega ekki á hverjum
degi.
íslensk alþýðuskáld I. Engin er
sú listgrein sem jafnmikið og al-
mennt er stunduð, sem orðsins
list, og það eru íslensku alþýðu-
skáldin, sem að meginhluta hafa
plægt jarðveginn fyrir þá menn-
ingaruppskeru sem á íslandi
þrífst. I þessari bók eru ljóð, mis-
mörg og mislöng, eftir 100 höf-
unda. í flestum tilfellum hafa
ljóðin ekki birst áður á prenti.
Steinunn Eyjólfsdóttir safnaði til
þessarar útgáfu og ritar formála.
Annalísa eftir Ib H. Cavling. Enn
á ný kemur út bók eftir hinn sí-
vinsæla danska höfund Ib H.
Cavling, sem vart þarf að kynna
íslenskum, svo þekktar og vin-
sælar eru bækur hans hér á landi.
Vemdargripur Sets eftir Söru
Hylton. Þetta er þriðja bók Söm
Hylton sem út kemur á íslensku.
Ensk stúlka, dóttir fomleifafræð-
ings, er gædd yfirskilvitlegum
hæfileika til að upplifa í draum-
um sínum mörg þúsund ára
gamla atburði úr lífi egypskrar
prinsessu. Hörkuspennandi bók
frá fyrstu til síðustu blaðsíðu.
Sumaf á Sólheimum. Bók eftir
höfund sem ekki hefur áður
kvatt sér hljóðs, Ágústu Ágústs-
dóttur, söngkonu og prestsfrú að
Holti í Önundarfirði. í bókinni
lýsir höfundur viðburðaríku
sumri krakkanna í dalnum, sem
er á mörkum sveitar og þorps við
vestfirskan fjörð. Hugnæm og
sérlega skemmtileg bók fyrir alla
aldurshópa.
Bókina prýðir fjöldi teikninga
eftir Sigrúnu Sætran.
Ný sögubók á
léttu máli
Hjá Námsgagnastofnun er komin
út ný sögubók í léttu máli, svo-
kölluð léttlestrarbók.
Saga sú sem hér um ræðir, Ugla
sat á kvisti... eftir Kristínu Steins-
dóttur er einkum ætluð börnum
og unglingum á aldrinum 11-14
ára sem eiga erfitt með að lesa
langan, samfelldan texta; að sjálf-
sögðu geta aðrir haft ánægju af
lestri hennar. í umræðum sem
tengjast ári læsis og lestri al-
mennt hefur verið lögð mikil
áhersla á nauðsyn þess að þessi
lesendahópur eigi völ á lestrar-
efni við sitt hæfi.
Sögunni er skipt í fjögur hefti, 27-
40 bls. hverju. Þau nefnast Ugla
sat á kvisti..., Átti böm og
missti..., Eitt, tvö, þrjú..., Og það
varst þú! Heftin em seld saman í
fallegri öskju.
Sagan kemur einnig út á hljóm-
böndum til lestrarþjálfunar. Auk
þess er fáanleg vinnubók með
hverju hefti. Höfundur vinnu-
bóka er Guðfinna Guðmunds-
dóttir. Námsgagnastofnun ann-
aðist útlit, umbrot og setningu.
Steinholt hf. prentaði.
Námsgagnastofnun hefur á und-
anfömum sex ámm gefið út 18
léttlestrarbækur fyrir böm og
unglinga á ýmsum aldri.
Léttlestrarbókum Námsgagna-
stofnunar er ávallt vel fagnað og
svo verður áreiðanlega um hina
nýju bók Kristínar Steinsdóttur,
Ugla sat á kvisti...
A bláþræði
Komin er út hjá Vöku-Helgafelli
nýjasta bók metsöluhöfundarins
Victoríu Holt, Á bláþræði. Þetta
er rómantísk spennusaga í þeim
stíl sem aflað hefur höfundinum
einstakra vinsælda um allan
heim. Víst er að bókin mun ekki
valda hinum fjölmörgu aðdáend-
um höfundarins hér á landi von-
brigðum.
í bókinni segir frá Elenóru sem
eyðir barnæsku sinni í húsi hinn-
ar valdamiklu Sallonger-ættar í
Bretlandi. Uppmni hennar er
leyndardómur sem hún fær ekki
vitneskju um fyrr en hún er orðin
gjafvaxta. Þá tekur líf hennar
miklum breytingum og hamingj-
an ríkir um sinn.
Moskva:
Upplýst um hið
Loks hefur verið flett ofan af
einkalffl Fidels Castro, kommún-
istaleiðtoga Kúbu. Hann á eigin-
konu í leyni og fimm böm, þrjár
lystisnekkjur, 32 hús og 9,700 líf-
verði, þ.á m. 122 kafara, sem
gaumgæfa hafsbotninn í leit að
sprengjum áður en hann leggst til
sunds.
Þessar óvenjulegu upplýsingar eru
ekki runnar frá kúbverskum útlög-
um á Miami, sem á almannavitorði
er að hafa megna andstyggð á Ca-
stro og skirrast ekki við að mála
hann sem svörtustum litum. í þetta
sinn eru það Rússar, sem eitt sinn
voru nánustu bandamenn Castros,
sem beina spjótum sínum að hon-
um.
Einkalíf Castros gæti
átt heima í
sápuóperu!
í grein í Komsomolskaya Pravda,
einu af frjálslyndustu dagblöðum
Moskvu, eru upptalin svo mörg
smáatriði um daglegt Iíf í fjölskyldu
Castros að það dygði til að halda
uppi heilli sápuóperu. Þar er það
gefið í skyn að Kúbuleiðtogi eigi
„leyni“konu, sem hafi alið honum
fimm börn. Og nöfn þeirra allra
byrja á A.
Höfundur greinarinnar er Alexei
Novikov, sem áður var fréttaritari
blaðsins í Havana, en Castro er
sagður hafa brugðist ókvæða við
birtingu hennar, enda hefur hann
ekki kært sig um frásagnir af einka-
lífi sínu. José Ramon Cabrera,
sendiherra Kúbu í Moskvu, brást
líka reiður við og greip til þess
óvenjulega ráðs að rita bréf til
Pravda, sem er nokkurs konar hús-
bóndi Komsomolskaya, til að bera
fram kvörtun. „Hvílíkur uppspuni!
Fyrir að rita grein af þessu tagi væri
höfundur dreginn fyrir rétt í mörg-
um ríkjum veraldar," segir þar.
Kúba og Castro
lítillækkuð í fjölda
blaðagreina
Þessi grein er bara nýjasta viðbót-
in við fjölda greina í sovéskum fjöl-
miðlum að undanförnu þar sem
Kúba er lítillækkuð og niðurlægð.
T.d. má nefna að fyrir skemmstu var
Castro lýst sem „Saddam Hussein
Karíbahafsins" í Moskvufréttum og
sýnir það glöggt hversu samskipt-
um Kúbverja og Sovétmanna hefur
hrakað mikið.
Castro náði völdum í byltingu íyr-
ir 30 árum og á sama tíma og Mík-
hail Gorbatsjov reynir að leiða ríki
sitt í átt til frjáls markaðskerfis ríg-
heldur Castro í gamaldags komm-
únismakerfi. Hann orðaði álit sitt á
heimsmálunum þannig fyrir
skemmstu: „Marx- lenínismi eða
dauði.“
En ef dæma má eftir grein No-
vikovs eru Castro og fjölskylda hans
ekki á þeim buxunum að leyfa hug-
Fidel Castro hefur veríö tryggur fýlgismaöur kommúnismans allt frá
því hann komst tii valda viö byltingu á Kúbu fyrír 30 árum. Nú eru rúss-
neskir Qölmiölar í óða önn að segja af honum og ríki hans ófrægingar-
sögur.
sjónasannfæringu sinni að koma í
veg fyrir örlitla rómantík í lífinu. í
greininni segir m.a. að Fidelito,
sonur Fidels úr hjónabandi sem
viðurkennt er að hann var í en end-
aði á sjötta áratugnum, sé ekki eft-
irbátur föður síns þegar hann er að
skvetta úr klaufunum. „Fidelito var
giftur sovéskri konu,“ segir No-
vikov, „síðan átti hann ævintýri
með kúbverskri konu og nú ætlar
hann að giftast, eða hefur þegar
gengið að eiga, konu af spænskri
aðalsætt."
Og ekki gengur það
síður fjörugt til hjá
Raoulbróður
Á sama tíma er Raoul, yngri bróð-
ir Castros sem almennt er álitinn
arftaki hans, í slæmri klípu. Sagt er
að hjónaband hans og félaga í kúb-
versku forsætisnefndinni hafi runn-
ið út í sandinn fyrir fimm árum.
Hins vegar hefur Fidel heimtað að
parið léti líta svo út sem þau búi í
sátt og samlyndi. En að sögn No-
vikovs hefur það ekki komið í veg
fyrir að Raoul hafi gifst búlgarskri
konu ólöglega og getið dóttur við
annarri konu sem kynnir sjón-
varpsþætti á Kúbu.
En það er erfitt að ímynda sér að
Castro-fjölskyldan eigi mikið einka-
líf, miðað við frásögn Novikovs. Því
er haldið fram að Fidel Castro hafi
9,700 lífverði í þjónustu sinni og
þar af starfi 2,800 í höfuðborginni
einni. Það er vitað að hann er með
öryggismál sín á heilanum eftir fjöl-
mörg banatilræði á vegum CIA.
Hann sefur sjaldan tvær nætur í röð
á sama stað og í margnefndri grein
er því haldið fram að hann eigi 32
hús, auk tveggja neðanjarðarbyrgja
þar sem rými er fyrir hann og 57
hershöfðingja ef neyðin ber að dyr-
um.
En öryggisreglunum er stífast
framfylgt þegar Castro fer að synda
eða sigla á einhverri þriggja lysti-
snekkjanna sinna. Þá segir Novikov
að 122 kafarar grandskoði hafs-
botninn, hvern einasta fersenti-
metra, í leit að neðansjávarsprengj-
um og gildrum.