Tíminn - 13.12.1990, Page 20
AUGLÝSINGASIMAR: 680001 & 686300
RÍKISSKIP
NUTIMA FLUTNINGAR
Halnarhusinu v Tryggvagotu,
S 28822
AKTU EKKI UT
í ÓVISSUNA.
AKTUÁ
Ingvar
Helgason hff.
Sævartiöfða 2
Sími 91-674000
Tíniinn
FIMMTUDAGUR13. NÓVEMBER1990
Rúmlega 230 ungmenni undir umsjón og eftirliti Fangelsismálastofnunar:
25. hver 16 ára peyi
fengið frestun ákæru
Alls 233 ungmenni á höfuðborgarsvæðinu, Reykjanesi og Suð-
urlandi, sem fengið höfðu skilorðsbundna frestun á ákæru vegna
játaðra afbrota, voru undir umsjón og eftirliti Fangelsismála-
stofnunar í upphafi þessa árs. Piltar eru í miklum meirihluta,
199 talsins, eða 85%. Nær þriðjungur þeirra, eða 61, voru sex-
tán ára að aldri.
Sá fjöldi svarar til þess að um 4%,
eða 1 af hverjum 25 sextán ára pilt-
um í þessum landshluta, hafi játað
á sig afbrot, langoftast þjófnað, og
fengið skilorðsbundna frestun
ákæru. Af stúlkunum voru einnig
um þriðjungur úr 16 ára árgangn-
um.
Upplýsingar þessar koma fram í
fýrstu ársskýrslu Fangelsismála-
stofnunar ríkisins sem tók til starfa
í ársbyrjun 1989.
Eftir að 15-21 árs ungmenni hafa
játað framin brot sín er ríkissak-
sóknara heimilt að fresta ákæru til
refsingar út af því um tiltekinn
tíma, þ.e. þegar högum sakbom-
ings er þannig háttað að aðrar ráð-
stafanir en refsing eru taldar væn-
Iegri til árangurs og broti ekki svo
varið að almannahagsmunir krefj-
ist saksóknar.
Skilorðstíminn er yfirleitt ákveð-
inn 2 ár, þannig að þau 233 ung-
menni sem hér um ræðir (þar af
140 búsett í Reykjavík) hafa fengið
frestun ákæm á árunum 1988 og
1989. Yfir landið í heild er um mun
fleiri ungmenni að ræða, vegna
þess að til Fangelsismálastofnunar
er aðeins vísað málum frá Reykja-
víkursvæðinu, byggðunum á suð-
vesturhorninu og Suðurlandi.
Um 10% unglinganna höfðu um
áramót rofið skilorðið með nýju
broti. Og miðað við reynslu fýrri
ára er áætlað að 20% rjúfi skilorð
innan þeirra tveggja ára sem skil-
orðstíminn yfirleitt er.
Afbrotin ungmennanna em lang-
flest auðgunarbrot. Piltarnir hafa
flestir (165) framið þjófnaði, en
meirihluti stúlknanna (22) skjala-
fals.
Af piltunum er um helmingur í
vinnu, 37% í skóla og 14% at-
vinnulausir. Heldur lægra hlutfall
stúlknanna er í vinnu, fjórðungur-
inn í skóla og 29% atvinnulausar
eða veikar.
Sem fýrr segir var stærsti hluti
hópsins (30%) 16 ára í byrjun
þessa árs og alls helmingurinn á
aldrinum 15 og 16 ára. Aðeins 14%
var orðinn 19 ára eða eldri.
Um þriðjungur þessara ung-
menna hefur aðeins iokið 8. bekk
gmnnskóla og að mati Fangelsis-
málastofnunar er Ijóst að stór hluti
þeirra fer ekki í meira nám. Helm-
ingur telur sig hafa lokið 9. bekk
og um fimmtungur er í framhalds-
námi.
Hvað fjölskylduástæður varðar
kemur fram að aðeins rúmlega
helmingur (53%) á foreldra í sam-
búð. Hversu stór hluti þessara
ungmenna á við áfengis- eða ann-
an fíkniefnavanda að stríða, segir
Fangelsismálastofnun ekki fýrir-
liggjandi tölur um. - HEI
Rútubifreið með 25 manns innanborðs fauk út af veginum
við Brynjudalsá og valt. Kristinn Jón Friðþjófsson farþegi:
„RUTAN SEIG UT AF
VEGINUM OG VALT“
Rúta frá Hópferðabðum Helga
Péturssonar, sem var í áætlunar-
ferð frá Reykjavflc tll Snæfelis-
ness, fauk út af veginum og valt á
hliðina ofan í fjömborðið við
Brynjudalsá laust fýrir kl. 10:001
gærmorgun. Rútan var á leið vest-
ur og í henni voru 25 farþegar.
Engin alvarleg meiðsl urðu á fólki
og aðeins einn farþeganna slasað-
ist lítillega.
Koivitlaust veður var í Hvalfirð-
inum þegar slysið átti sér stað og
glerhált á veginum. SkÖmmu eftir
að rútan valt fauk tengivagn flutn-
ingahifreiðar á hliðina þversum á
veginum og lokaði honum.
Slökkviliðið í Reykjavík hafði
mikinn viðbúnað þegar tilkynnt
var um slysið og sendi þrjá sjúkra-
bfla og dælubfl á vettvang, en
dælubflnum og tveimur sjúkrabif-
reiðanna var snúið við þegar Ijóst
var að slys höfðu ekki orðið mikil
á fólki. Mjög erfitt var fýrir lög-
reglu að athafna sig á slysstað og
komu bflar frá vegagerðinni með
sand til að dreifa á veginn á vett-
vangi. Sá farþegi sem slasaðist lít-
illega var fluttur með sjúkrabif-
reið til Reykjavflcur, en nokkur
dráttur var á því að sjúkrabifreiöin
kæmist aUa leið að rútunni vegna
tengivagnsins sem lá þversum á
veginum.
Fólkinu í rútunni var ekið í lög-
regubflum, sk. „maríum“, til
Kristinn Jón Friðþjófsson og Þorbjörg Alexandersdóttir voru ferþegar
í rútunni sem valt í veðurofsanum í Hvalfirðl í gær. Tímamynd pjetur
Reykjavflcur og kom fýrstí hópur-
inn þangað um kl. 13:00 í gær og
sá síðasti um klukkustund síðar.
Hjónin Þorbjörg Alexandersdótt-
ir og Kristinn Jón Friðþjófsson
frá Rifi sögðu að ástæður óhapps-
ins hefðu verið fárviðri og fljúg-
andi hálka. „Bflstjórinn keyrðí
mjög gætilega, en hann réð ekki
við bflinn,“ sagði ÞorbjÖrg. „Rút-
an seig einfaldlega rólega út af og
valt. Aðdragandinn var þannig að
við eiginlega sáum hvað var að
gerast og gátum aðeins reynt að
skorða okkur af,“ sagði Kristinn.
„Það voru fullorðin bjón í sætinu
fyrir framan okkur og þau Ientu
undir miklu af farangri sem var í
bflnum og við héldum fyrst að
konan hefði lent undir rútunni,
því rúðumar hreinsuðust hrein-
lega úr bflnum. En sem betur fer
fór nú elcki svo,“ sagði Þorbjörg.
Þau Þorbjörg og Kristínn héldu tíl
í rútunni í u.þ.b. klukkustund eft-
ir að hún vait, þar tíl þau gátu leit-
að skjóls í bfl.
Þegar veðrinu slotaði síðdegis í
gær var rútan rétt við og henni
síðan ekið tii Reykjavíkur. Hún er
mikið skemmd.
—BG
Tillaga Alfreðs Þorsteinssonar í borgarstjórn um
að láta kanna ýmsar leiðir við hálkueyðingu:
Áætlun veröi gerð
um upphitaöar götur
Alfreð Þorsteinsson Framsóknar-
flokki lagði tíl á fundi borgarstjóm-
ar s.I. fimmtudag að unnið verði að
áætíun um upphitun gatna í
Reykjavík. Þar með gæti verið úr
sögunni vandamál sem tengjast
salt- og sandburði á götur borgar-
innar tíl vamar hálku.
í tillögu Alfreðs segir að með til-
komu Nesjavallavirkjunar sýnist
tímabært að hefja áætíunargerð um
upphitun gatna í Reykjavík, einkum
þar sem hálkumyndun veldur sér-
stökum erfiðleikum á fjölförnum
akstursleiðum. „Má í því sambandi
nefna brattar brekkur eins og á Bú-
staðavegi við Öskjuhlíð og Höfða-
bakka í aðkomu að Hólahverfi í
Breiðholti," segir í tillögunni. Alfreð
leggur til að við gerð næstu fjár-
hagsáætlunar verði veitt fjármagn í
tilraunaskyni til snjóbræðslu á áð-
urnefndum götum eða á öðrum
akstursleiðum, sem gatnamálastjóri
telur að eigi að hafa forgang í þessu
verkefni.
Tillaga Alfreðs fékk góðar undir-
tektir í borgarstjórn og var sam-
þykkt að vísa málinu áfram til fjár-
hagsáætlunar. Eins og fram hefur
komið, þá samþykkti borgarstjórn á
sínum tíma að kannað yrði hvort
sandur gæti leyst salt af hólmi við
hálkueyðingu í höfuðborginni. Það
virðist ekki mælast vel fyrii* og á
mánudagskvöldið s.l. hættu strætis-
vagnastjórar að aka á ákveðnum
leiðum vegna mikillar hálku. Þeir
kröfðust þess að salti yrði dreift á
göturnar í stað sands, en því var ekki
sinnt. í gær samþykkti gatnamála-
stjóri að salti skyldi dreift á þær göt-
ur sem strætisvagnastjórar óskuðu,
enda stefndi annað umferð í hættu.
Ef hins vegar borgarstjórn samþykk-
ir leið Alfreðs í þessu máli, þá virðist
vera komin ný lausn á því vandamáli
sem mikil háíka er. -hs.
Stúfur
er kominn
í nótt kom Stúfur til byggða
en hann er minnstur af þeim
jólasveinabræðrum. Stúfur
ætlar að koma við í Þjóð-
minjasafninu í Reykjavík í
dag kl 11:00. í nótt kemur
svo fjórði jólasveinninn til
byggða en hann heitir
Þvörusleikir.