Tíminn - 03.01.1991, Blaðsíða 3

Tíminn - 03.01.1991, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 3. desember 1991 Tíminn 3 Alþjóðlegt ráðgjafafyrirtæki skilar Atlantsálsfyrirtækjunum nýrri skýrslu um kostnað-við byggingu nýs álvers: Kostnaöaráætlun hækkar um 20% við endurskoðun Alþjóðlega verkfræði- og ráðgjafafyrirtækið Bechtel hefur endur- skoðað eins og hálfs árs gamla kostnaðaráætlun vegna byggingar ál- vers hér á landi. Fyrirtækið telur að kostnaðurinn sé um 20% hærri en fyrri áætlun gerði ráð fyrir. Að langstærstum hluta skýrist þessi hækkun af gengisfalli dollara gagnvart Evrópumyntum. Ekki er tal- ið að þessi niðurstaða hafí veruleg áhrif á fyrirætlun Atlantsáls fyr- irtækjanna að byggja álver á Keilisnesi. Bechtel er eitt stærsta og virtasta fyrri útreikninga og miða við að fyrir- fyrirtæki á sínu sviði í heiminum. Fyrirtækin í Atlantsálshópnum leit- uðu til þess á sínum tíma og báðu það um að meta kostnað við að byggja álver á íslandi. Niðurstaðan lá fyrir vorið 1989. Smíði verksmiðj- unnar var talin kosta um einn millj- arð Bandaríkjadollara. Þá var miðað við að álverið yrði byggt í Straumsvík í samvinnu við Aluswisse. Forsendur hafa breyst á þessu eina og hálfa ári sem liðið er. Hætt var við að byggja í Straumsvík en ákveðið að byggja sjálfstætt fyrirtæki á Keilisnesi. Eftir að staðsetning álversins lá fyrir í september síðastliðnum báðu Atl- antsál fyrirtækin Bechtel að fara yfir tækið yrði byggt á Keilisnesi. Bechtel skilað sinni skýrslu fyrir tíu dögum og þar kemur fram að byggingar- kostnaðurinn er áætlaður nærri 20% hærri í doliurum talið en áður var talið. íslensk stjórnvöld hafa ekki fengið upplýsingar um efni skýrslu Becht- els. Það er hins vegar Ijóst að gengis- fall dollarans gangvart Evrópugjald- miðlum skiptir hér mestu máli. Einnig er talið hugsanlegt að verð á tækjum og vélum, sem notaðar verða í álverinu, hafi hækkað eitthvað, en það skýrist m.a. af gengisbreyting- um. Ekki er talið að kostnaðurinn hér innanlands hafi hækkað óeðli- Verðhækkanir langmestar á fiski og fatnaði á sl. ári: Föt hækkað allt að 30% en gengi 1 -5% Algengast er að verð fatnaðar og skófatnaðar hafí hækkað um 16- 20% á umliðnu ári og sumt jafnvel allt að 30% samkvæmt upplýsing- um Hagstofunnar um breytingar verðlags á höfuðborgarsvæðinu frá nóvember 1989 til nóvembermánað- ar á þessu ári. Álíka verðhækkanir eru heldur ekki ótíðar á algengum heimilistækjum. Á sama tíma hefur meðalgengi er- lendra gjaldmiðla aðeins hækkað um 1,4% (en 5% frá septVsept. og 3% okt.okt.). Verð fatnaðar og heimilis- tækja hefur því hækkað margfalt umfram gengishækkanir. Launavísi- tala hækkaði um 6% á tímabilinu nóvj'nóv. en vísitala framfærlsu- kostnaðar um 9,2%. Að undanskildum algengustu teg- undum af fiski og svínakjöti, sem hækkuðu um 15-20%, er algengast að verð á matvælum hafi aðeins hækkað um örfá prósent (algengt 2- 6%) á árinu og margar þeirra jafnvel lækkað í verði, sérstaklega þó græn- meti og ávextir. Verðhækkanir á ým- iss konar þjónustu eru sömuleiðis al- gengastar á bilinu 5-11%. Þó vekur sérstaka athygli að klipp- ing á konuhári hefur hækkað um rúmlega 25% á árinu þótt karlar og börn þurfi aðeins að borga 5% dýrari klippingu en í fyrra. Fyrrnefndar verðhækkanir á fatnaði eru þó það sem hvað helst stingur í augu í verðupplýsingum Hagstof- unnar. Gallabuxur og khakibuxur hafa t.d. hækkað um 26-27% á þessu eina ári. Kuldaskór og gúmmístígvél enn meira, eða 28 og 30%. Herra- skyrta, jakkaföt, sokkar og sokkabux- ur, kvenkjóll, ullarkápa, nærföt, peysa og hanskar og kvenskór hefur allt hækkað á bilinu frá 15%, algeng- ast 17-19% og upp í 21% frá því í nóvember f fyrra. Áðeins trimmgall- ar, æfingaskór og leðurjakkar hafa hækkað um 7-8% á tímabilinu. Af heimilistækjum er það myndlyk- ill fyrir Stöð 2 sem á metið í verð- hækkunum, tæp 25% á árinu. Kæli- skápar og þvottavélar hafa hækkað um 15-20% og sjónvarpstæki og uppþvottavélar um 13%. Mynd- bandstæki er hins vegar aðeins 2% dýrara en í fyrra og geislaspilari 4% dýrari. Verð á þjónustu ýmiss konar hefur yfirleitt hækkað öðru hvoru megin við 10% á árinu. Rafmagnsreikning- urinn hækkaði um tæp 5% á tímabil- inu og hitaveita rúmlega 8% að með- altali. Fatahreinsun hækkaði um 10- 11% og sömuleiðis sundlaugagjald og rútuferðir. Flugferðir og leigubíl- ar hækkuðu um 14-15% en strætó í Reykjavík rúmlega 8%. Að gefa „elskunni sinni" rósir kostar 9% meira en fyrir ári, en aðeins 3-5% meira að bjóða henni í bíó eða leigja vídeóspólu. Dagblöðin hafa hækkað um 10%, afnotagjald að RÚV um 8% en hins vegar um 13% að Stöð 2. Sfmtöl eru nú aðeins ódýrari en í fyrra. Gjöld á bamaheimili og leik- skóla eru óbreytt allt árið. Framangreindar upplýsingar um verðlagsþróun byggjast aðallega á talnaefni sem verðlagsyfirvöld afla fyrir Hagstofuna til mánaðalegra út- reikninga á vísitölu framfærslu- kostnaðar. En sú vísitala hækkaði sem áður greinir um 9,2% á því tíma- bili sem hér um ræðir, nóvember 1989 til nóvember 1990. - HEI lega mikið. Allar stærðir í áliðnaði eru mældar í dollumm og kostnaðaráætlun vegna byggingar álversins á Keilisnesi er í dollurum. Þrátt fyrir að niðurstaða Bechtels komi Atlantsálfyrirtækjun- um ekki algerlega á óvart, þykir Ijóst að niðurstaðan er þeim ekkert gleði- efni. Engar líkur em þó taldar á að skýrslan valdi því að fyrirtækin hætti við byggingu álvers á Keilisnesi. Á síðustu missemm hafa átt sér stað breytingar á alþjóðlegum lánamörk- uðum. Ófriðurinn við Persaflóann hefur haft þau áhrif að bankar em ekki eins viljugir til að lána til stór- framkvæmda. Framboð á lánsfé hef- ur minnkað og vextir og lánskjör em óhagstæðari fyrir þann sem þarf að taka lán. Mjög erfitt er að spá um hvort að breytingar verða á þessum mörkuðum á næstunni. Atburðir við Persaflóann og efnahagsástand í heiminum ráða þar miklu. Óvíst er hvaða áhrif þessar breytingar hafa á stjórnir álfyrirtækjanna þriggja í Atl- antsálhópnum. Bent hefúr verið á að fyrirtækin geri fjárfestingaáætlanir til margra ára og smávægileg raun- vaxtahækkun breyti þeim áætlunum ekki. Álverð á heimsmarkaði hefur farið lækkandi á síðustu mánuðum og sumir segja að það muni draga úr áhuga Atlantsálsfyrirtækjanna á byggingu álvers hér á landi. Ekki er talið að þessi þróun skipti miklu máli þegar fyrirtækin ákveða fjárfestingar til langs tíma. Algengt er að álverð sveiflist upp og niður milli ára, en það er hins vegar heildarþróunin sem skiptir fyrirtækin mestu máli. Spáð er að eftirspurn eftir áli í heim- inum muni aukast, en það þýðir hærra verð. Samningar milli Atlantsálsfyrir- tækjanna og íslenskra stjórnvalda eru mjög langt komnir. Á samninga- fundi sem haldinn var í Atlanta í Bandaríkjunum 9. og 10. desember var gengið frá fjölmörgum atriðum. Enn eru nokkur atriði ófrágengin, s.s. varðandi endurskoðunarákvæði væntanlegs raforkusamnings, fjár- mögnun og tryggingar. Um þessi mál verður fjallað á næsta samningafundi sem verður haldinn í byrjun næsta mánaðar. -EÓ Vinningstölur laugardaginn 29. des. 1990 VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA 1. 5af 5 6 4.940.532 2. m 25 106.859 3. 4af 5 752 6.128 4. 3af 5 26.052 412 Heildarvinningsupphæð þessa viku: 47.656.347 kr. UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002 91-698400 Goðihíhefur tetíðvið rekstri Búvörudeildar Sambandsins. Nýtt símanúmer er nú á skrifetofunni en hinsvegar verður áfram sama númer og áður á söluskrifetofunni við Krlqusand, eða 91- 68 63 66. Gleðilegt nýtt ár! i GOÐI h f. Laugalæk 2 a • 105 Reykjavík

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.