Tíminn - 03.01.1991, Page 5

Tíminn - 03.01.1991, Page 5
Fimmtudagur 3. janúar 1991 Tíminn 5 Kolvitlaust veður við Snæfell í gær: SEX NORÐFIRÐINGA LEITAÐ í GÆRDAG Sex manna frá Norðfíröi á tveimur jeppum var leitað í allan gærdag á svæðinu við Snæfell, en ekkert hafði frést til þeirra síðan á sunnudag. Þeir höfðu ætlað sér að koma heim á nýársdag. Björgunar- og hjálpar- sveitir af Héraði voru í gær á tveimur snjóbflum á leiðinni inn að Snæ- felli og átti að athuga hvort mennirnir væru í skálum sem þar eru. Lögreglu var tilkynnt í gærmorgun að mannanna væri saknað og lögðu björgunarsveitarmenn þá af stað. Þegar Tíminn fór í prentun í gær- kvöldi voru leitarmenn á snjóbílum komnir að svokallaðri Svartöldu og héldu sig á Landsvirkjunarveginum en miðaði hægt í vondu veðri og nær engu skyggni. Meðal ferðahraði þeirra var 2-3 kílómetrar á klukku- stund en á köflum urðu þeir þó að stöðva alveg vegna þess að ekkert skyggni var. Til marks um veðrið má nefna að þegar leitarmenn komu að Grenisöldu um miðjan dag í gær var skyggni svo slæmt að þeir sáu ekki húsin. Eftir að hafa miðað út stað- setningu þeirra á lórantæki kom síð- an í ljós að þeir voru ekki nema um 15 metra frá þeim. Björgunarsveitarmenn ætluðu sér fyrst að fara að skála við Laugabúðir og fylgja veginum sem var því sem næst auður, en ef mennimir væm ekki þar ætluðu leitarmenn að skipta liði og átti einn hópur að fara í Snæ- fellsskála vestan Snæfells en hinn í Snæfellsbúðir sem eru austan þess. Mennirnir sem leitað er eru með tal- stöð í öðrum jeppanum en ekki hef- ur náðst samband við þá í gegnum hana og er talið að hún sé biluð. í gærkvöldi var því spáð að veður ætti að ganga niður í nótt og var jeppa- sveit til taks að aka inn að Laugabúð- um ef skyggni skánaði, því vegurinn var víðast auður. -sbs. Rekstrardeildum Sambandsins breytt í hlutafélög: Sambandið fært í nútímalegra horf Steinar Sigurjónsson hlaut aö þessu sinni styrk úr Rithöfundasjóði Ríkisútvarpsins er honum var úthlutaö í 35. skipti á gamlársdag. Tekjur sjóðsins sem nú komu til úthlutunar voru 350 þúsund krónur. Á myndinni sést Steinar Sigurjónsson (th) veita styrknum viötöku úr hendi Jónasar Kristjánssonar, formanns sjóðsstjómar. GS/Tfmamynd: Ámi Bjama. Öllum aðalrekstarardeildum Sam- bandsins var breytt í sex sjálfstæð hlutafélög nú um áramót. Að sögn Guðjóns B. Ólafssonar, for- stjóra Sambandsins, er hér tvímæla- laust um að ræða mestu breytingar sem orðið hafa á starfsemi Sam- bandsins frá upphafi. „Það er verið að færa rekstur Sambandsins í nú- tímalegra horf og meira í átt til þess sem þjóðfélagið kallar á í dag,“ segir Guðjón. „Síðan er meiningin að leita út á markaðinn og breyta nokkrum þess- ara fyrirtækja í almenningshlutafé- lög. Auk þess er tilgangurinn að skerpa starfsemina og gera hana markvissari á hverju sviði fyrir sig. Þannig að ég held að menn horfi hér björtum augum til framtíðar og hugsi til þess að nú skapist betri Hlutabréfakaup aldrei meiri en 1990: Ríkið tapar milljarði Forsvarsmenn verðbréfafyrirtækja áætla að kaupendur hlutabréfa hafi verið einhvers staðar á bilinu 15 til 20 þúsund manns árið 1990, eða þrefalt til fjórfalt fleiri en 1989. Þetta gæti þýtt að ríkissjóður þurfi að punga út allt að 1 milljarði í end- urgreiðslu skatta í ágúst nk. En það svarar til um 8% af áætluðum tekj- um ríkissjóðs af tekjuskatti einstak- linga nettó á árinu 1991, eða eins mánaðar tekjuskatti. Talið er að allt að þriðjungur kaupenda, eða 5-6 þús., hafi keypt sín bréf nú milli jóla og nýárs. Verðbréfasalar búast þó ekki við að margir þeirra komi með bréf sín í endursölu næstu daga, né heldur að nýir hlutabréfaeigendur þurfi að óttast verðlækkun nú í byrj- un árs, raunar kannski þvert á móti. Pétur Blöndal hjá Kaupþingi telur t.d. að það kunni að koma til verð- sprengingar á hlutabréfum fyrirtækja á næstunni, þar sem hlutabréfasjóð- irnir komi til með að slást um þau bréf sem til eru eða koma í sölu. Pét- ur áætlar að sala á bréfúm hlutabréfa- sjóðanna hafi aukist um 500 til 1.000 milljónir á milli jóla og nýárs. Þetta sé allt í lausu fé, hvar af sjóðimir þurfi að festa a.m.k. 45% í hlutabréfum. Sjóðimir þurfi því að kaupa hlutabréf fyrir um 300 milljónir a.m.k. á næst- unni. Gengi á bréfúm hlutabréfasjóðanna segir Pétur hins vegar geta lækkað eitthvað, en það ráðist af því hve mik- ið af þeim komi aftur í sölu nú á næst- unni. Hann sagðist hins vegar ekki eiga von á mikilli innlausn. Heldur að flestir muni eiga sín bréf áfram. Við opnun hjá Kaupþingi í gærmorgun biðu raunar 6 manns með hlutabréf fyrir hálfa aðra milljón til að selja þau. En engir fleiri bættust síðan við það sem eftir var dagsins. Sagðist Pétur búast við að kannski 10 til 20 milljón- ir í bréfum komi til innlausnar næstu daga eða vikur. Hjá Kaupþingi sagði Pétur um helming af árssölu hlutabréfa hafa verið í desember og þar af um 60% Tveir menn og drengur villtust á jeppa uppi á Fjarðarheiði á nýárs- kvöld. Mennimir höfðu tilkynnt að þeir ætíuðu að vera komnir tíl byggða um kvöldmatarleytið en leit að þeim hófst klukkan ellefu þar sem ekkert hafði þá spurst til þeirra. Þrátt fyrir mjög slæmt veður og vont skyggni fundu leitarmenn mennina eftlr aðeins tveggja tíma leit. Jeppinn var þá staddur rnn 300 metra frá veginum uppi á Fjarðarheiði með mennina og drenginn innanborðs. khg. milli jóla og nýárs, eða um 30% af allri hlutabréfasölu ársins. Hjá Verðbréfamarkaði íslandsbanka keyptu á þriðja þúsund manns hluta- bréf milli jóla og nýárs, eða hátt í þriðjungur allra þeirra sem þar keyptu hlutabréf á árinu 1990, að sögn Sigurðar B. Stefánssonar. Spurður um hugsanlega verðlækk- un á bréfum þegar eftirspumin dettur niður í byrjun árs, segir Sigurður ekki um slíkt að ræða hjá VIB, þar sem VÍB hafi kaupendur að öllum hlutabréfum sem kynnu að koma inn. Sigurður reiknar ekki með mik- illi endursölu bréfa fremur en Pétur, enda hafi hlutabréf gefið betri ávöxt- un en flest önnur verðbréf. Sala hlutabréfa nú fyrir áramótin var langmest hjá hlutabréfasjóðunum. Fyrir ári var aðeins til einn slíkur sjóður (Hlutabréfasjóðurinn hf.) en síðan hefur þeim síðan fiölgað í fimm á árinu 1990. Að sögn Sigurðar hafa þessir sjóðir virkað sem eins konar jöfnunarsjóðir á framboð og eftirspum bréfa al- menningshlutafélaganna. Þeir hafi komið í veg fyrir mikla hækkun á verði hlutabréfa sem annars hefði getað orðið vegna mikillar eftirspum- ar fyrir áramótin. Og síðan komi þeir í veg fyrir lækkun eftir áramót með kaupum á þeim bréfum sem koma til sölu. Tilkoma þessara sjóða sé því fremur jákvæð en hitt. Ávöxtun hlutabréfa kemur jafnan að verulegum hluta fram í jöfnunar- hlutabréfum og greiddum arði. En varla fá þeir jöfnunarbréf eða arð sem aðeins eiga hlutabréf í 1-2 vikur kringum áramót? Sigurður segir það meginreglu, að arð og jöfnunarbréf fai sá sem á bréf- in þegar aðalfundur er haldinn, þar sem ávkarðanir eru teknar um jöfn- unarbréf og arðgreiðslur. En sá sem kaupi hlutabréf skömmu fyrir aðal- fund þurfi að greiða fyrir bréfin verð þar sem búið er að áætla fyrir vænt- anlegri arðgreisðlu og jöfnun. Lækki bréfin ekki í verði nú í upphafi árs geta menn hafa hagnast af því, vegna endurgreiðslu á sköttum, að taka víxil nú fyrir áramótin og kaupa bréf sem þeir selja nú strax upp úr ár- mótum, eins og einhver dæmi eru um. Slíkt er að vísu erfitt að gera nema einu sinni. Reynist það þannig að hópur fólks hafi keypt hlutabréf eingöngu í þessum tilgangi flokkast það, að mati Sigurðar, undir misnotk- un á heimildinni til endurgreiðslu skatta. Tilgangur laganna með skatt- endurgreiðslu er sá að reyna að beina spamaði inn í atvinnulífið og hvetja einstaklinga til að gerast þátttakend- ur í því jafnframt því að opna fyrir- tækjum aðra leið til öflunar eigin fiár. Og þessi lög, sem verið hafa í gildi frá 1984, hafi til þessa skilað verulegum árangri. Fari þetta hins vegar út í ein- hverja vitleysu telur Sigurður ekki óeðlilegt að þessar skattafrádráttar- heimildir komi til endurskoðaðar — eins og fiármálaráðherra hefur reynd- ar heyrst drepa á í fiölmiðlum. - HEI möguleikar til að sækja fram í þess- um starfsgreinum," segir Guðjón. -Var Sambandið eins og það var orðið tímaskekkja? „Ég vil ekki orða það þannig. Sam- bandið var að því leyti óvenjulegt fyrirtæki bæði á íslandi og þótt víðar væri leitað að í því voru menn að leitast við að leysa verkefni ólíkra hagsmunahópa í einu fyrirtæki. Það er út af fyrir sig ffamkvæmanlegt þegar vel gengur í öllum greinum og þegar ekki er um að ræða þær miklu stökkbreytingar sem hafa orðið í okkar þjóðfélagi á seinni ár- um og þá í sambandi við háan fiár- magnskostnað, gengisáhættu og fleira sem kallar á áhættufiármagn. Þetta form sem verið hefur á Sam- bandinu gerði það ekki mögulegt að fá inn fiármagn annars staðar frá og þegar á bjátaði, og Sambandið hefur vissulega fengið á sig mörg og þung áföll, þá kom það misjafnlega niður eftir starfsgreinum og það leiddi e.t.v. fram áhættuna sem því fylgir að vinna í einum potti með hags- muni margra aðila," segir Guðjón. Afkoma Sambandsins var mun betri í ár en undanfarin ár og skilaði reksturinn nú hagnaði. Að sögn Guðjóns má m.a. þakka það því að kringumstæður í efnahagslífinu hafa batnað til muna. „Bæði fiár- magnskostnaður minnkaði og stór- áföll í gengismálum sem dundu yfir fyrirtækið tvö árin á undan urðu ekki á seinasta ári. Síðan er búið gera gríðarlegar ráðstafanir í fyrir- tækinu á undanförnum tveimur til þremur árum sem eru vissulega farnar að skila sér. T.d. fækkaði starfsfólki hjá Sambandinu á tveim- ur árum um 600-700 manns og það voru seldar eða lagðar niður eining- ar sem voru búnar að tapa pening- um í fiölda ára,“ segir Guðjón. „Eg get ekki sagt í hvað mörgum millj- óna tugum eða hundruðum þetta hefur skilað sér en þar erum við að tala um umtalsverðar fiárhæðir." GS. Furðulegar hækkanir Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Dagsbrúnar, lýsti í samtali við Tímann í gær yfir furðu sinni vegna hækkana á far- gjöldum SVR og gjaldskrá Raf- magnsveitu Reykjavíkur. Um er að ræða 5% hækkun hjá Raf- magnsveitunni og 9% hækkun hjá SVR. Guðmundur sagðist vera furðu lostinn og ekki skilja forsendur hækkananna. —SE

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.