Tíminn - 03.01.1991, Síða 20
AUGLÝSINGASÍMAR: 680001 & 686300
RÍKISSKIP
NUTIMA FLUTNINGAR
Halnarhusmu v Tryggvagolu,
» 28822
SAMVINNUBANKINN
í BYGGÐUMIANDSINS
J
X \ i
•
NORÐ- AUSTURLAND , f \
AKTU EKKI ÚT í ÓVISSUNA. AKTUÁ
SUBARU MSm
a Ingvar l il j Helgason hf. Sævartiöföa 2 Sími 91-674000
m
I íniiiin
FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 1991
LOGREGLAN KÆRÐ FYR-
Ungur piltur hefur kært lögregluna í Reykjavík vegna áverka
sem hann hlaut þegar hann var handtekinn aðfaranótt fimmtu-
dagsins 27. desember sl. Pilturinn hlaut skurð við augað, glóð-
arauga auk þess sem sjö tennur brotnuðu. Samkvæmt lögreglu-
skýrslu datt pilturinn með þessum afleiðingum en vitni sem
voru að atburðinum eru á öðru máli. Málið fór í gær til Rann-
sóknarlögreglu ríkisins sem rannsakar málið.
Pilturinn, Sigurður Sævarsson,
vildi í gær lítið tjá sig um málið
þar sem hann hefði verið meðvit-
undarlaus þegar hann hlaut þessa
áverka og vissi því lítið um það
hvernig hann hefði fengið þá.
Hann sagði að iögregluþjónn hefði
tekið sig haustaki með þeim af-
leiðingum að hann missti meðvit-
und. Vitni segðu að hann hefði
verið látinn detta í götuna rænu-
laus með fyrrgreindum afleiðing-
um.
Forsaga málsins er sú að lögregl-
an var kvödd að húsi við Berg-
þórugötu klukkan þrjú umrædda
nótt. Gleðskapur var þá í húsinu
og fylgdi háreysti. Húsráðandi var
beðinn um að hafa hemil á sam-
komugestum og hafa lægra. Um
klukkan fjögur kom lögreglan aft-
ur en þá hafði hávaðinn aukist
frekar en hitt. Fólk var þá beðið
um að yfirgefa íbúðina sem það og
gerði og safnaðist það saman fyrir
framan og fór heldur ófriðlega
samkvæmt lögregluskýrslu. Kast-
aði það m.a. snjóboltum að lög-
reglubflnum. Lögreglan handtók
því nokkra samkomugesti. Sigurð-
ur, sem samkvæmt lögregiu-
skýrslu var einn af samkomugest-
unum, gekk að lögreglubflnum
þegar verið var að færa menn inn í
bflinn og var beðinn um að fara
fram fyrir bflinn. Að sögn Guð-
mundar Guðjónssonar, fulltrúa
hjá lögreglunni í Reykjavík, vildi
pilturinn ekki hlíta því og ýtti einn
lögreglumaður honum því í burtu.
Eftir það er hann hávær og endaði
með því að lögreglan tók hann.
„Síðan er honum sleppt og hann
fellur fram yfir sig og enginn hefur
svigrúm til þess að grípa hann áð-
ur en hann fellur í götuna,“ sagði
Guðmundur. Pilturinn var síðan
fluttur í fangageymslur en um
morguninn var hann færður á
slysadeild þar sem gert var að sár-
um hans.
—SE
Skiptar skoóanir
á reykingabanninu
Reykingabannið á Landspítalan-
um, sem stjómamefnd Ríkisspít-
alanna setti og tók gildi nú ára-
mótin, fer vel af stað, þó að það
mælist misjafnlega fyrir bæöi
meðal sjúklinga og bjúkmnar-
fólks. „Þetta hefur gengið vel í
dag og engin sérstök vandræði
komið upp. En það er raunar ekk-
ert hægt að segja til um þetta
ennþá,“ sagði hjúkrunarforstjóri
á Landspítalanum í samtali við
Tímann í gær.
Gyða Baldursdóttir hjúkrunar-
fræðingur og meðlimur í starfs-
hópi um undirbúning reyklausra
ríkisspítala sagði að vitanlega væri
ekki enn komin mikil reynsla á
hvernig til heföi tekist, dagurinn í
gær, 2. janúar, hefði í rauninni
verið fyrsti dagurinn. Sjálf sagðist
hún líta á þetta sem langtímaverk-
efni. Hún sagði að afstöðuna til
þessa hafa tekið í tvö horn, með og
á móti, og nefndi hún þar meðal
annars undirskriftalista gegn
banninu sem 500 starfsmenn spít-
alans skrifuðu undir. Gyða segir
að sjúklingar geti fengið undan-
þágur frá banninu en afstöðu til
þess verði að taki í hverju tilfelli
og ekki sé hægt að fylgja einhverri
meginlínu. Taka verði meðal ann-
ars tillit til þess hve lengi sjúk-
lingurinn eigi að liggja inni og
þannig fái sá sem eigi að liggja
inni til Iangdvalar frekar undan-
þágu en sá sem verði í fáeina daga.
Gagnvart starfsfólki og heimsókn-
argestum verði hins vegar engar
undanþágur veittar.
„Mér finnst þetta bann vera brot
á mannréttindum. Það er alveg
hægt að útvega lítil herbegi þar
sem fólk getur reykt. Það skapar
ábyggilega hættu þegar fólk er að
laumast til að reykja hér og þar,“
sagði undanþágusjúklingur sem
Tíminn talaði við á göngum Land-
spítalans í gær. Hann sagðist vera
36 ára og hafa reykt einn pakka á
dag síðan hann var 11 ára.
-sbs.
Þessum sjúklingi á Landspítalanum hafði tekist að verða sér úti um
„vottorð" sem heimilaði honum að reykja. Til öryggis hafði hann vott-
orðið á borðinu við hliðina á öskubakkanum. Timamynd: Ami Bjama
Leitað að loðnu
Rannsóknaskipin Bjarni Sæmunds- sigldu sex Ioðnuveiðiskip úr höfn í
son og Árni Friðriksson héldu úr sömu erindagjörðum á miðnætti.
Reykjavíkurhöfn um tvöleytið í gær GS/Timamynd: Ámi Bjama
til loðnuleitar á miðum. Auk þeirra
SVAR BARST
FRÁ ARAFAT
í Ijós er komið að bréf það sem
Steingrímur Hermannsson forsæt-
isráðherra sendi Yassar Arafat, for-
ystumanni PLO, þar sem Stein-
grímur fór fram á að Arafat beitti
sér fyrir því að Gísli Sigurðsson,
læknir, yrði látinn laus frá írak,
hafði árangur í för með sér.
Hannes í 2. sæti
Hannes Hlífar Stefánsson tapaði í
gær úrslitaskák gegn Norðmann-
inum Runo Djurhus á Evrópu-
meistaramóti unglinga er haldið
er í HoIIandi. Hannes var hálfum
vinningi fyrir ofan Norðmanninn
áður en skákin var til lykta leidd
og hefði nægt jafntefli til að sigra
á mótinu. Arangur Hannesar er
engu að síður mjög góður og sá
besti sem íslendingur hefur náð á
þessu móti til þessa. GS.
Bréfi Steingríms var svarað
munnlega frá skrifstofu PLO í
Stokkhólmi tveimur dögum áður
en lýst var yfir að allir gíslar í írak
mættu fara frjálsir ferða sinna. í
svarinu var sagt að Gísli yrði látinn
laus ef fulltrúi íslenskra stjórn-
valda myndi sækja hann til Bagdad.
Ráðgert var að Jóhanna Kristjóns-
dóttir blaðamaður, sem stödd var í
írak um svipað leyti, myndi sinna
þeim erindum fyrir hönd stjórn-
valda. Þó var einnig inni í mynd-
inni, samkvæmt heimildum Tím-
ans, að Jón Sveinsson, aðstoðar-
maður forsætisráöherra, myndi
sækja Gísla. En á því reyndist ekki
þörf.
Þess ber að geta að bréf Stein-
gríms til Arafats var sent að beiðni
ættingja Gísla og var aðeins ein
leið af mörgum sem reyndar voru
til að fá Gísla lausan.