Tíminn - 10.01.1991, Side 8

Tíminn - 10.01.1991, Side 8
8 Tíminn Fimmtudagur 10. janúar 1991 TEKKOSLOVAKIA Krukkum með ösku 49 komm- únista var úthýst úr þjóðargraf- hýsinu í Prag eft- ir „flauelsbylting- una“ og þá upp- hófust vandræði, sem Kommún- istaflokkurinn varð að takast á við. Lausnin varð sú að kaupa grafreit í kirkju- garði í Prag og hola krukkunum þar niður í kyrr- þey. Líkamsleifar fyrrum flokksbrodda jarð- settar í kirkjugarði Lausná viðkvæmu máli í Tékkóslóvakíu Marmarakrukkumar með ösku Gottwald- hjónanna em bæði þungar og fýrirferðamiiklar. Á Vitkov-hæðinni, hæstu hæð Prag, stóð árla morguns nýlega Skoda- pallbíll og fjórir kraftalega vaxnir menn á skyrtunum einum báru tvær níðþungar marmara- krukkur á bílpallinn undir stjórn starfsmanns Kommúnistaflokks- ins. Skömmu síðar stansaði þessi óvirðulegi flutningabíll við bygg- ingu miðstjórnar flokksins við götu sem hefur hlotið nafnið „Gata hinna pólitísku fanga“ eftir pólitísku umskiptin í Tékkóslóv- akíu. Þar lögðu mennirnir til bráðabirgða frá sér þennan óþægilega flutning á auðri jarð- hæðinni. f krukkunum voru jarð- neskar leifar Klements Gottwald, sem fyrstur kommúnista tók sér forsetavald í Tékkóslóvakíu eftir valdarán 1948, og Mörtu konu hans. Eins og með flestum þjóðunum, sem áður byggðu hin svokölluðu „austantjaldslönd" jafngildir nú í augum Tékka og Slóvaka góður kommúnisti dauðum kommún- ista. En hvað Gottwald varðar, sem var ábyrgur fyrir a.m.k. 8000 pólitískum morðum, nær sú skil- greining ekki einu sinni til hans þótt dauður sé. Því var það auð- velt verk fyrir fyrsta lýðræðislega kosna eftirmann hans, Vaclav Ha- vel, að úthýsa rauða harðstjóran- um úr dýrð þjóðlega grafreitsins. Masaryk vildi ekki hvíla í þjóðargraf- reitnum Grafreiturinn rekur sögu sína allt til ársins 1907, þ.e. löngu fyr- ir valdatíð kommúnista. í fýrstu var einungis fyrirhugað að minn- ismerkið yrði til dýrðar Hússíta- leiðtoganum Jan Zizka frá Trocnov, sem ásamt fámennu liði sínu vann sigur á fjölmennum her rómversk-þýska keisarans Si- egismund árið 1420. Eftir fyrri heimsstyrjöld, þegar Tékkóslóvakía var orðin lýðveldi, þótti almenningi við hæfi að gera þar þjóðargrafreit, til tákns um baráttuna fyrir frelsun þjóðar- innar. í nóvember 1928 lagði Tomas G. Masaryk, fyrsti forseti fyrsta tékkneska lýðveldisins, horn- stein að minnismerkinu með við- höfn. Samkvæmt nýju hugmynd- unum stóð til að nýi forsetinn skyldi hljóta sinn hinsta hvílu- stað í stórkostlegr? > tfingunni, ásamt yfirmönnur knesku fylkingunni, sem hafði barist fýr- ir sjálfstæði landsins í fyrri heimsstyrjöld. Masaryk var ekki frábitinn við- hafnarsiðum en valdi þó að láta jarða sig í garðinum við sumar- setrið sitt, Lany-höll. Minnis- merkið íburðarmikla á Vitkov- hæð var áfram tómt. Þýska her- námsliðið notaði hýsið sem birgðageymslu og mósaíkskreyt- ingarnar í hetjusalnum féllu í niðurníðslu meðan þeir réðu þar ríkjum. Kommúnistar ætl- uðu að varðveita Gottvvald í grafhvelf- ingunni Eftir að kommúnistar sölsuðu undir sig völdin fékk minnis- merkið nýtt hlutverk. Til að sýna fram á hvaða hug þeir bæru til sögulegs samhengis létu þeir bygginguna hýsa sem óþekkta hermanninn einn sem féll í bar- dögunum um Dukla-skarð, fyrstu orrustu sovéska hersins á tékkneskri grund. Þar að auki sáu þeir fýrir sér að „mikilvægir fulltrúar verkalýðsins" fengju sitt síðasta legurúm í grafhýsinu. Þegar einu ári síðar dó einn þeirra mikilvægustu óvænt, sjálf- ur Gottwald, og þá fengu hug- myndasmiðirnir enn nýja hug- mynd. Rétt eins og hinn mikli Lenín lá í glerkistu sinni í Moskvu skyldi tékkneska þjóðin geta litið Gottwald látinn augum. Því miður gekk þessi hugnæma hugmynd þeirra ekki eftir. Annað hvort voru smurningsmennirnir, sem ráðnir voru til að ganga frá líkinu, skemmdarvargar eða klaufar, eða kannski var um að kenna raka í loftinu í grafhvelf- ingunni. Það fór svo, þrátt fyrir mikla umhyggju alls 70 sérfræð- inga, að nár hins mikla manns þoldi ekki geymsluna. Því varð að hætta við áætlunina um varðveislu. Lík Gottwalds var brennt, leynilega, og krukkunni með ösku hans komið fyrir í graf- hýsinu í október 1962, að við- stöddum flokksbroddum. Þar voru m.a. flokksleiðtoginn og forseti landsins Antonin Novot- ný, en líka maður sem þá var ókunnur almenningi en átti síðar eftir að verða umbótaflokksfor- maðurinn Alexander Dubcek. 49 látnir flokks- broddar verða hús- næðislausir Nýlega leiddi talning í ljós að 49 háttsettir kommúnistar höfðu fengið hinsta hvílustað í grafhýs- inu, þ.á m. eftirmenn Gottwalds, Antonín Zapotocký og Ludvík Svoboda, sem var forseti á valda- tíma Dubceks. Aðeins 19 fjölskyldur fengu fyrir- skipunina frá stjórn Havels um að fjarlægja líkamsleifar hinna látnu ættingja. Sennilega eiga hinir 30 enga að á lífi. Dóttir Gottwalds sendi núverandi stjórnarherrum þau skilaboð að Kommúnista- flokkurinn hafi svo oft ráðskast með ösku föður hennar, án þess að spyrja hana, dóttur hans, ráða, að einnig í þetta sinn verði flokk- urinn að finna lausn án hennar af- skipta. Og nú er lausnin fundin. Tékk- neski kommúnistaflokkurinn hef- ur keypt legstað í aðalkirkjugarði Prag, Olsany, og hyggst koma þar fyrir í kyrrþey öskukrukkum Gottwald-hjónanna og þeirra kommúnistabrodda sem ekki hef- ur tekist að koma í hendur ætt- ingja. Enn hefur ekki verið komist að niðurstöðu um hvað gera eigi við þjóðarminnismerkið. Endurreisn þess myndi kosta 130 milljónir marka (yfir 300 milljónir ísl. kr.). Verði ákveðið að það verði áfram hetjugrafreitur, á líka að koma þar fyrir líkamsleifum hermanna sem féllu í baráttunni fyrir frjálsri Tékkóslóvakíu í síðari heimsstyrj- öld. Auk þeirra vill Borgaravett- vangur, stærsti stjórnmálaflokkur Tékkóslóvakíu, votta þeim virð- ingu sem látið hafa lífið vegna andstöðu við kommúnísk stjórn- völd.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.