Tíminn - 10.01.1991, Blaðsíða 9

Tíminn - 10.01.1991, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 10. janúar 1991 Tíminn 9 Hörkulega New York-löggan með höndina í biðstöðu við byssuna í hulstrinu, barði ákveðið að dyrum. Það var í morguns- árið í Bronx sem lögregluþjónninn og félagi hans komu óforvarandis í heimsókn og gáfu ekkert eftir við að vekja húsráðendur sem komu svefn- drukknir og ráðvillt- ir til dyra. „Er þetta sorpið ykkar?“ spurði lögreglu- þjónninn strangur. Það kann að vera að stórborgin rambi á barmi gjaldþrots, og borg- arstjórinn getur ekki náð í nóga peninga til að ráða fleiri lögreglu- menn til að hafa eftirlit á götunum þar sem framin eru fimm morð á degi hverjum, en íbúarnir geta dregið andann rólega í rúmum sínum. Ef einhver þarna úti fyrir afhendir ekki úrganginn sinn til endurvinnslu er nýjasta lögreglu- sveitin á hælunum á honum. Þung viðurlög við að bijóta 19 mánaða ruslflokkunarlög k ■' \ 811ifl8l Sorptunnulöggan ber að dyrum hjá ruslabrotamönnum í morgunsárið. Það er dýrt spaug í New York að henda firá sér óflokkuðu rusli Þrátt fyrir allan efnahagsvanda sem steðjar að New York hefur borgin komið sér upp lögreglu- sveit sem hefur þann eina tilgang að fara í gegnum rusl almennings árla morguns í leit að dósum, pappír og pappa, sem 19 mánaða gömul lög skylda almenning til að henda í sérstakar bláar ruslatunn- ur. Ef Iöggan finnur eitthvað af þessu í almennu rusli má sekta eiganda þess um 1500 ísl. kr. við fyrsta brot en allt upp í eina millj- ón króna fyrir síendurtekin brot. Sá sem kom til dyra í Bronx var að fremja sitt fyrsta brot. í ákæru lög- regluþjónsins kemur fram að í öskutunnunni hans hefði fundist fjöldinn allur af brotlegu drasli, þ.á m. 17 málmdósir, ein glerflaska og „u.þ.b. tveir þumlungar af hrein- um dagblöðum". Lífið í endurvinnslusveitinni get- ur verið hættulegt. Þar sem glæpa- tíðnin í New York er eins mikil og dæmin sanna eru margir íbúanna lítið hrifnir af því að 83 lögreglu- þjónar skuli ekki sinna öðru en að vera á verði gagnvart rusli borgar- búa, og hella oft óbótaskömmum yfir þessa trúu starfsmenn. Til að tryggja sig gegn hættulegri árás- um, sem jafnvel gætu orðið ban- vænar, bera margir lögregluþjón- arnir skotheld vesti, auk byssanna sinna. Gúmmíhanskamir ómissandi Kannski er þó mikilvægasta vopn lögganna gúmmíhanskar, það er ekki skemmtilegt starf að gramsa í úrgangi New York búa, en stór- borgin er trúlega sú aldrullugasta sem finna má í vestrænum heimi. Lögregluþjónarnir viðurkenna að fyrir komi að ódaunninn af fúlli spaghetti-sósu, úldnum eggjum og öðrum illaþefjandi úrgangi geti verið yfirþyrmandi. „Venjulega grettir fólk sig þegar ég segi því við hvað ég vinn, en það tilheyrir bara starfinu," segir Jesus Marerro, sem á vakt í Brooklyn. „Fólkið á götunni sendir okkur Ruslatunnulöggan í New York leiðir ýmis- legt gruggugt í Ijós undarlegt augnaráð þegar það sér okkur gramsa í sorpinu. En ein- hver verður að gera það.“ Eins og í öðru spæjarastarfi þróa lögreglumennirnir smám saman nef fyrir hvar líklegt sé að finna megi brotamenn. Þeir halda aug- unum opnum fyrir vísbendingum um óhlýðni við sorplögin, s.s. eins og ef ekki sjást bunkar af dagblöð- um og tímaritum fyrir utan rík- mannleg fjölbýlishús. Oftast nær bendir það til þess að verið sé að brjóta lögin. Erfiðleikar við að finna brotamennina Eitt stærsta vandamálið sem lag- anna verðir verða að kljást við er að komast að því úr hvaða íbúð ruslið er upprunnið. Sem þeir fín- kemba poka með illaþefjandi úldn- um mat og óhreinum bleium gera þeir sér vonir um að rekast á um- slag sem skrifað er utan á heimilis- fang brotamannanna svo að hægt sé að kæra þá. Annað vandamál er að sá mögu- leiki er fyrir hendi að einhver ann- ar hafi komist í ruslið á undan þeim. Ef skilinn er eftir plastpoki fullur af drasli á götu í New York yfir nótt má ganga að því sem vísu að einhverfjir) af þeim þúsundum heimilisleysingja sem ráfa þar um göturnar hafa álitið sér frjálst að leita þar að dósum og flöskum, sem má skila í búðir gegn fimm senta skilagjaldi. Lögregluþjónarnir Frank Diaz og Louis Otarola, sem urðu að gang- ast undir sálfræðiprófanir og fræðslu í skotæfingastöðvum lög- reglunnar áður en þeir fengu að klæðast einkennisbúningum sín- um, hafa eftirlit með 80 húsalengj- um á Manhattan. „Það getur stundum verið erfitt að negla ná- kvæmlega niður hver á hvaða rusl,“ segir Diaz. „En við reynum að vera eins réttsýnir og við get- um, sérstaklega ef fólk virðist al- veg óvart hafa hent dagblaðinu eða einhverju öðru endurvinnsluhæfu með öðru rusli." Dýrt og tímafrekt að sanna sakleysi sitt Einn íbúinn í austurhluta borgar- innar varð skelfmgu lostinn þegar hann fann 100 dollara sektarmiða límdan á útihurðina á fjölbýlishús- inu sínu um miðjan dag, eftir að sendlar höfðu lagt frá sér pappa- kassa fyrir utan dyrnar. Þessi náungi var svo heppinn að geta áfrýjað sektinni, en eins og varðar öll lagaleg ágreiningsmál í New York varð hann að fá aðstoð lögfræðings, sem tekur 200 dollara á tímann, til að skrifa yfirlýsingu um tildrög pappakassamálsins, sem hann sendi svo til viðeigandi borgarapparats. Enn sem komið er hefur úrskurður ekki verið felldur í málinu. En þó að einhverjum verði stund- um á mistök einhvers staðar virð- ist svo sem herferðin beri nokkurn árangur. í Brooklyn, þar sem íbú- arnir eru betur þekktir fyrir annað en einstaka löghlýðni, segja rusla- löggurnar að jafnvel þeir sem starfrækja „krakk-hús“ séu farnir að hlýða umhverfisverndarlögun- um. Á hverri viku sé nú að finna snyrtilegan dagblaðabunka, bund- inn saman með spotta, og dósir í sérpoka fyrir utan þekkta eitur- lyfjabúllu í nágrenninu. Þar sé greinilega á ferð einhver umhverf- issinnaður glæpamaður. Reyndar sé líka tiltæk önnur skýring á þessu, sem sé sú að íbúar hússins kæri sig ekkert um að hafa of náin samskipti við lögregluna og forðist því eins og heitan eldinn að beina athygli ruslalöggunnar að sér. „Líklega sýnir þetta að fólkið þarna les blöðin," segir löggan. Lítíll árangur og sektir innheimtast illa En þó að umhverfissinnar hafi hrósað þessu endurvinnslufram- taki yfirvalda New York, sem á ekki sinn líka í öðrum stórborgum Bandaríkjanna, hefur það borið lít- inn raunhæfan árangur. David Dinkins borgarstjóri er þegar búinn með allar fjárveiting- ar til flestra mikiivægari verkefna borgarinnar eins og að koma fleiri lögreglumönnum út á göturnar til að gæta lífs og lima borgarbúa. Reyndar eru fjárveitingar til ruslalögreglunnar líka uppurnar. Síðan herferðin hófst hafa hreins- unarlögregluþjónar gefið út 1100 sektarmiða. Aðeins 291 þeirra hef- ur verið greiddur og í sjóði borgar- innar hafa einungis runnið 7.330 dollarar frá ruslasökudólgum, upphæð sem varla er til mikils gagns til að að draga New York upp úr fjárhagskreppunni. „Markaðsfærslu- vandamál“ Af því leiðir að dagblöð og dósir sem safnað hefur verið saman eru nú í haugum í geymslu úti um alla borg og bíða þess að verða endu- runnin. Yfirmaður hreinsunar- deildar borgarinnar kallar þetta „markaðsfærsluvandamál" og við- urkennir að hann geri sér ekki al- veg ljóst hvernig megi leysa það!

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.