Tíminn - 10.01.1991, Qupperneq 20

Tíminn - 10.01.1991, Qupperneq 20
AUGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300 NUTIMA FLUTNINGAR Halnartiusinu v Tryggvogolu, S 28822 SAMVINNUBANKINN L I BYGGÐUM LANDSINS I NISSAIM Réttur bíll á réttum stað Ingvar Helgason hf. Sævartiðfða 2 Slmi 91-674000 Iíniimi FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 1991 Jóhannes Nordal, formaður stjórnar Landsvirkj- unar, um samninga um raforkusölu til Atlantsáls: Álsamningar eru að nást íslendingar stríösbúast Jóhannes Nordal, formaður stjórn- ar Landsvirkjunar, sagði í samtali við Tímann að góðar líkur væru á að hægt yrði að Ijúka samningum um orkusölu til Atlantsáls í þessum mánuði. í dag lýkur þriggja daga fundi um orkumálin, sem er hald- inn í London. Jóhannes sagði að mikið hefði verið unnið á fundun- um og margt hefði skýrst. Árangur væri góður, en ljóst væri að nokkur atriði yrðu að bíða til næsta fundar, sem verður haldinn í lok þessa mánaðar. Paul Drack, forstjóri Alumax, sagði í samtali við Morgunblaðið um síð- ustu helgi að mikilvægt væri að góður árangur næðist á fundunum í London. Svo er að sjá sem svo hafi orðið. Framundan eru tveir mikil- vægir fundir. Annar verður í New York síðar í mánuðinum, en þar munu hittast aðalforstjórar álfyrir- tækjanna þriggja og fara yfir samn- ingana í heild. Á hinum fundinum er vonast eftir að hægt verði að ljúka gerð raforkusamningsins. Talsvert hefur verið rætt um þær breytingar, sem hafa orðið á alþjóð- legum Iánamörkuðum á síðustu vikum, m.a. vegna áhrifa frá Persa- flóaófriðnum. Jóhannes Nordal sagði að því væri ekki að neita að ástandið á alþjóðlegum Iánamörk- uðum væri erfiðara og ófriðurinn við Persaflóa hefði áhrif á bankana. Hann sagðist hins vegar ekki trúað- ur á að menn settu þetta fyrir sig. Áhugi Atlantsáls-fyrirtækjanna á að byggja álver á Keilisnesi væri eftir sem áður mikill. -EÓ Hagvamarráö á fýrsta fbrmlega fundl sínum í gær. Ráöiö skipa ráðuneytlsstjórar og forstjóri Almannavama rfkis- Ins. Guðmundur Benediktsson, ráöuneytlsstjóri í forsætisráðuneytinu, er talsmaður ráösins. Hann sítur fyrir enda boröslns ásamt Þorstelnl Geirssynl í dómsmálaráðuneytinu. Tímamynd: Áml Bjama Hagvarnarráð fundaði í fyrsta sinn í gær. Eldsneytisbirgðir duga 2-3 mánuði: Akureyri: Verksmiðja Viking Brugg hf. innsigluð - opnuð aftur í dag Hagvamarráð kom saman í gær á sínum fyrsta fundi. Ráðið skipa ráðuneytisstjórar allra ráðuneytanna og er verkefni þess m.a. að sjá til þess að nægar birgðir séu til hér á landi ef til stríðsátaka eða náttúruhamfara kemur. Um er að ræða elds- neyti, matvæli, lyf og fleiri nauðsynjar. Stríð gæti haft áhrif á aðgang okkar að slíkum nauðsynjavörum og var megintilgang- ur þessa fundar að kanna birgðastöðu í landinu, ef tii hugsan- legs stríðs kemur við Persaflóa. Guðmundur Benediktsson, kom fram hjá ráðuneytisstjóra í ráðuneytisstjóri í forsætisráðu- viðskiptaráðuneytinu að elds- neytinu, sagði að á fundinum neytisbirgðir eru óvenju miklar. hafi birgðastaða í landinu verið T.d. eru nægar birgðir gas- og fyrst og fremst til umræðu og þá svartolíu til tveggja mánaða, einkum eldsneytisbirgðir. „Það bensíns til þriggja mánaða og þotueldsneytis til tveggja og hálfs mánaðar," sagði Guð- mundur. Guðmundur sagði jafnframt að aðrar birgðir hefðu einnig verið til umræðu, en ekki lægju fyrir nákvæmar upplýsingar um ein- stök atriði, þó að útlit væri fyrir að nægar birgðir væru til. „Við fylgjumst með þessu áfram og komum svo saman eftir því sem þurfa þykir," sagði Guðmundur jafnframt í samtali við Tímann í gær. —GEÓ Hafnarfjörður: Fnykurinn er á undanhaldi Heimilismenn á Grund og í Ásbyrgi 394 Heimilismenn á Elli- og hjúkr- unarheimilinu Grund voru um áramótin 276,189 konur og 87 karlar. Á dvalarheimilinu Ási/Ásbyrgi voru heimilismenn samtals 118 um áramótin, 45 konur og 73 karlar. Á Grund komu á árínu 1990, 39 konur og 25 karlar, en sautj- án konur fóru og 8 karlar. 32 konur iétust og 17 karlar eða samtals 49 manns. í Ás/Ásbyrgi komu 19 konur og 22 karlar á árinu 1990. 26 konur fóru frá heimiiinu á ár- inu og 23 kariar. Ein kona lést í Ási/Ásbyrgi á árínu 1990. khg. „Það virðist að menn séu að komast fyrir vandann og þetta hafi verið eitthvert einangrað fyrirbæri. Við getum ekkert fullyrt, en við vitum hins vegar að aðvörunarkerfi í olíu- gildru á bensínstöð Esso var óvirkt og það hafði gleymst að hreinsa hana. Það er hugsanlegur sökudólg- ur,“ sagði Kristinn Magnússon á skrifstofu bæjarverkfræðings í Hafnarfirði í gær, þegar hann var spurður um olíufnykinn sem hefur angað í nokkrum götum Hafnar- fjarðar síðustu daga. Kristinn sagði ennfremur að verið væri að íhuga útskolun á holræsa- kerfinu, en bíða ætti með það í nokkra daga á meðan beðið væri eft- ir því hvað gerðist. Útskolun væri töluvert mál og það þyrfti að gera á fjöru. „Það er óheppilegur tíma- punktur á sólarhringnum þessa dag- ana. Það er ekki fyrr en á föstudag, sem við getum farið að gera það með góðu móti og þá verður þetta senni- lega orðið gott, því lyktin hefur minnkað verulega," sagði Kristinn Magnússon. -sbs. Bæjarfógetinn á Akureyri innsigl- aði á þriðjudag bjórverksmiðjuna Viking Brugg h.f. á Akureyri. Björn Rögnvaldsson hjá bæjarfógetaemb- ættinu á Akureyri sagði að fyrirtæk- ið hefði verið innsiglað vegna mikilla skulda við ríkissjóð, en vildi ekki gefa upp hversu háa upphæð væri um að ræða. Páll G. Jónsson, aðaleigandi Viking Brugg h.f., sagði í samtali við Tím- ann að búið væri að ganga frá mál- unum og verksmiðjan yrði opnuð aftur í dag. Páll sagðist hafa átt von á að fá aðeins lengri frest, en fyrst gripið var til þessarar fyrirvaralausu lokunar var málunum bjargað í snarhasti. Páll sagði ennfremur að unnið væri að framtíðarlausn mála verksmiðjunnar. Viðræður væru í gangi um kaup og eignaraðild norð- lenskra aðila í verksmiðjunni. Hins vegar væri of snemmt að segja hvaða aðilar þetta væru, svo og hvenær samningaviðræðum lyki. „Við erum að ganga frá sölu á gosdrykkjaverk- smiðju Sanitas. Okkur tókst ekki að ljúka þeim málum fyrir áramót, eins og til stóð, en um leið og þeim mál- um verður lokið verður farið á fúllt í málefni Viking Brugg h.f. Framundan er þrotlaus vinna við úrlausn ýmissa mála. Verksmiðjan er vel staðsett á Akureyri og á vel að geta gengið á Akureyri, og mér er efst í huga að hún verði þar áfram,“ sagði Páll G. Jónsson að lokum. hiá-akureyri. Tíminn og Notað og nýtt: AFBRAGÐS VIÐTOKUR Smáauglýsingablaðið Notað og nýtt kom í fyrsta sinn út í gær sem fýigirit Tímans. Not- að og nýtt mun framvegis koma út á miðvikudögum og fá áskrífendur Tímans blaðið ókeypis. Notað og nýtt verður einnig sem áður seít í Íausa- söiu á blaðsöiustöðum. VÍðtökur voru afbragðs góð- ar við þessari nýjung í ís- Íenskrí biaðaútgáfu í gær og fjölmargir gerðust áskrifend- ur Tímans eftir útkomu hans og Notaðs og nýs í gær. Tím- inn býður þá velkomna í áskrífendahópiun.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.