Tíminn - 12.01.1991, Síða 2
2 Tíminn
Laugardagur 12. janúar 1991
Sölufyrirtæki SH í Japan:
MARKAÐURINN NffiGUR
EN FISKINN VANTAR
í nóvember sl. var formlega opnað í Tókýó í Japan sölufyrir-
tæki á vegum Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna. Hennar
markaðssvæði eru Asíulönd og er markaðurinn nægur, en á
hinn bóginn vantar meira hráefni til sölu og að sögn Helga
Þórhallssonar, forstöðumanns fyrirtækisins, veldur það því
að ekki verður fyrirsjáanleg aukning hjá fyrirtækinu í bráð.
„S.H. hefur um alllangt skeið selt
afurðir til Austurlanda fjærog þá
einkum loðnuafurðir, en síðan hafa
bæst við karfi, grálúða, langlúra og
fryst smárækja. Við höfum reynt
ýmislegt annað, en ekki í miklum
mæli. Laxinn var reyndur árið 1989,
árið sem Flying Tigers flaug hingað.
Það gekk ágætlega til að byrja með,
en markaðurinn fór í niðursveiflu á
því ári, en hafði verið góður þangað
til. Síðan Flying Tigers hætti flugi
hingað varð fraktin mun dýrari og
markaðurinn hélt áfram að slakna,
þannig að við höfum látið þetta eiga
sig. En þetta er náttúrlega allt sam-
an sveiflukennt og hugsanlega get-
um við komið aftur inn seinna
meir,“ segir Helgi Þórhallsson.
Hann segir fyrirtækið vera ágæt-
lega kynnt í Japan og áður en það
opnaði formlega hafi það þá þegar
eignast hóp viðskipavina. „Okkar
vandamál hefur aðallega verið að
hafa ekki nóg til að selja, eins og hin
fyrirtæki S.H. þekkja jafnvel og við.
Við höfum aðallega selt stórum inn-
flutningsfyrirtækjum sem selja síð-
an til heildsala og fullvinnslufyrir-
tækja, en nánast allur fiskurinn,
sem við seljum, fer í fullvinnslu. Við
seljum ekki í neytendapakkning-
um.“
„Ég er ekki búinn að fá niðurstöð-
urnar fyrir árið 1990. En það varð
samdráttur á Japansmarkaði í fyrra
og ástæðan var að bæði loðnu- og
grálúðuvertíð brugðust. Þetta eru
tegundir sem við byggjum mikið á.
Fyrir utan Japan seljum við líka á
Taiwan og þar háði það okkur líka að
grálúðuframleiðslan brást, því það
er það eina sem við seljum þangað.
Síðan seljum við líka til Kóreu og
þar er takmarkaður markaður eins
og í Taiwan, því þeir taka ekkert
nema heilfrystan karfa. Sá markað-
ur er enn opinn, en við gátum ekki
fullnægt honum á síðasta ári vegna
óhagstæðrar gengisþróunar."
Á heildina litið segir Helgi að ekki
sé að búast við auknu magni á Asíu-
markað, en í staðinn þurfi að skapa
meira verðmæti úr því sem fyrir sé.
Reynt hafi verið með ýmsar óvenju-
legar tegundir, s.s. gellur, karfa-
marning, grásleppuhrogn, ígulker
og tindabykkjubörð. „En við höfum
ekki reynt við tegundir einsog
þorsk, ýsu og karfa," segir Helgi.
Hann segir jafnframt að það, sem
hái starfinu í Japan, sé fyrst og
fremst að ekki sé nægilegt framboð
á þeim tegundum, sem nú þegar
hafa verið markaðssettar, og bætir
við: „Þegar maður sér ekki fram á
aukningu í því magni, sem við get-
um boðið, þá er ekki mikill þrýsing-
ur á mann að finna nýja kaupendur,
það þýði bara meiri skömmtun til
þeirra sem fyrir eru.“
-sbs.
Samningar um sérfræðilæknishjálp utan sjúkrahúsa ekki
staðfestir af hálfu stjórnvalda:
Sjúklingar greiða
sérfræðingunum að
fullu frá mánudegi
Samningur, sem gerður var í desember um sérfræðilæknishjálp ut-
an sjúkrahúsa, verður ekki staðfestur af Tryggingaráði, að sögn
Læknafélags íslands. Þar með verður enginn samningur í gildi fyr-
ir störf sérfræðinga á eigin stofum og þess vegna verða sjúklingar
að greiða sérfræðilæknishjálp að fullu sjálfír frá og með mánudeg-
inum. Sjúklingar verða síðan að leita til IVyggingastofnunar með
endurgreiðslu.
Fulltrúar Læknafélags íslands
héldu blaðamannafund í gær vegna
þessa og sögðust vonsviknir yfir
þessari niðurstöðu, en þeir áttu
fund með Tryggingaráði í gærmorg-
un þar sem kom fram að samning-
urinn yrði ekki undirritaður af hálfu
stjórnvalda, sem telja hann brot á
þjóöarsátt.
Samningar sérfræðinga urðu laus-
ir s.l. haust og var þá sagt upp með
þriggja mánaða fyrirvara. Hafist var
handa við samningsgerð milli
Læknafélagsins og samninganefnd-
ar ríkisins og tókust samningar í
desember s.l. Sá nýi samningur var
undirritaður af hálfu Læknafélags-
ins, sérfræðinga og annarra þann
24. desember s.L, en þá var enginn
viðstaddur af hálfu stjórnvalda.
Högni Óskarsson, formaður
Læknafélags íslands, sagði á blaða-
mannafundinum í gær að samning-
urinn væri framhald á fyrri samn-
ingi, en auk þess væri í honum leið-
rétting sem fæli í sér taxtahækkanir
fyrir viðtöl sem ekki fylgja rann-
sóknir. Þessi taxtahækkun hljóðar
upp á allt að því 2 einingar, en hver
eining er 116 krónur. Þessi hækkun
er til læknanna, en kemur ekki til
með að hækka hlut sjúklingsins,
sem verður áfram 900 krónur.
„Þessi taxtahækkun er leiðrétting
sem er nauðsynleg til að koma á
móts við síhækkandi rekstrarkostn-
að við læknastofur, en þessi taxti
hefur ekki hækkað um árabil," sagði
Guðmundur Egilsson, formaður
samninganefndar Læknafélagsins.
Ástæðan fyrir því að viðtöl, sem ekki
fela í sér rannsóknir, hækka, en ekki
önnur, er sú að rekstrarkostnaður
hjá læknum, sem að miklum hluta
eða einungis stunda slík viðtöl, hef-
ur hækkað að sama skapi og hjá öðr-
um, en taxtinn ekki, að sögn Guð-
mundar.
Guðmundur benti einnig á það að
sérfræðingar væru verktakar hjá
ríkinu en ekki þar á launaskrá og að
þessi leiðrétting, sem kveðið er á um
í þessum samningi, er vegna kostn-
aðarhækkana en er ekki launahækk-
un.
—GEÓ
TfMANS
PÓSTFAX
(91) 68-76-91
Sími 62-54-44 allan sólarhringinn
Þarftu
stærra
húsnæði?
Ókeypis
auglýsingar
fyrir
einstaklinga
Strand á Rif i
Frá Ægi Þórðarsyni, fréttarítara Tímans á
Hellissandi.
Það óhapp vildi til í gærmorgun að
flutningaskipið Meteor strandaði
við höfnina á Rifi. Skipið, sem er
um 2000 tonn að stærð, var að
koma frá Patreksfirði með salt.
Svo virðist sem skipið hafi ekki náð
beygjunni inn í höfnina og farið of
norðarlega inn í hafnarmynnið með
þeim afleiðingum að það strandaði
við norðurgarðinn. Skipverjar segja
að orsök þess sé sú að annað innsigl-
ingarljósið hafi verið slökkt.
Taugum var komið yfir f suður-
garðinn og tókst skipverjum, sem
einkum eru Svíar og Pólverjar,
ásamt heimamönnum að losa skipið
um kl. 3 í gærdag. Engar skemmdir
urðu á skipinu við strandið, þar sem
sandbotn er í höfninni. Þess má geta
að nýlokið er dýpkun hafnarinnar á
Rifi og hafa stærstu kaupskip komist
um hana vandræðalaust.
Bót á spennutruflunum í Reykjavík:
Ekkert rafmagn
í Stálverið?
Rafveitustjórí Rafmagnsveitu
Reykjavíkur, Aðalsteinn Guðjohn-
sen, hefur lýst því yfir að Lands-
virkjun verði að stöðva raforkusölu
til íslenska stálfélagsins hf. vegna
spennutruflana. Rafveitumar í
Reykjavík og Hafnarfirði hafa feng-
ið margar kvartanir frá íbúum á
Stór-Reykjavíkursvæðinu vegna
þessara truflana.
Orsök truflananna mun vera sú að
spennujöfnunarbúnaður, sem settur
var upp vegna rafbræðsluofns Stál-
félagsins, er ófullnægjandi og vill
Aðalsteinn að raforkusala til Stálfé-
lagsins verði stöðvuð þangað til að
fullvíst sé að búið verði að koma í
veg fyrir truflanirnar.
Að sögn Páls Halldórssonar, fram-
kvæmdastjóra íslenska stálfélagsins,
myndi það þýða dauðadóm fyrir
Stálfélagið ef raforkusala til þess
yrði stöðvuð. „Viðgerð á spennu-
jöfnunarbúnaðinum mun a.m.k.
taka eina til tvær vikur og ef við fá-
um ekkert rafmagn á meðan við-
gerðir standa yfir, mun öll starfsemi
í Stálfélaginu stöðvast." Páll sagði
ennfremur að hann hefði trú á því
að menn myndu snúa bökum saman
og finna lausn á vandamálinu í sam-
einingu, án þess að til stöðvunar á
raforkusölu til þeirra kæmi.
khg.