Tíminn - 12.01.1991, Side 10
22 Tíminn
Laugardagur 12. janúar 1991
Sextugur á morgun:
Stefán Yngvi Finnbogason
tannlæknir
Þegar ég frétti að bekkjarbróðir
minn og vinir til fleiri ára yrði sex-
tugur á morgun, þann 13. janúar,
komu mér í hug erindi úr Hávamál-
um:
Eldur er beztur
með ýta sonum
ogsólarsýn,
heilyndi sitt
ef maður hafa náir
án við löst að lifa.
Leiðir okkar lágu saman þegar í
Menntaskólanum á Akureyri, en
kynni okkar í millum hófust eigi að
marki fyrr en við settumst í sömu
deild eitt haust og höfðum þar sam-
flot þrjá vetur. Svo vildi til að vetur
okkar hin síðasta í skólanaum hafði
ég fengið Ieigt í húsi einu í Brekku-
götu og á hinni efri hæðinni bjuggu
foreldrar hans Finnbogi Bjarnason,
áður kennari og bóndi á Merkigili
og Sveinsstöðum, Lýtingsstaða-
hreppi í Skagafirði, og víðar miklu,
m.a. á Hrauni í Öxnadal. Sigrún hét
móðir Stefáns Eiríksdóttir, einnig
úr Lýtingsstaðahreppi upp runnin.
Sölvanes var býli foreldra hennar og
er allt þetta fólk skagfirskra ætta.
Naut ég alúðar og vinsemdar þeirra
hjóna, jafnan hæglát voru þau og
vönduð, grandvör í ferð, og er hér
var komið gegndi faðir Stefáns
verslunarstjórastarfi á Akureyri,
ugglaust hjá KEA, þótt ég muni eigi
eða vissi aldrei.
Af samferðamönnum minnist ég
vart manns er nær kæmist hófstill-
ingu eða hógværð þeirri er hinir
gömlu Hellenar mátu svo mjög en
Stefán og jafnaðargeð hans og þol-
inmæði er meira en mörgum er gef-
ið. Má ímynda sér að þeir hæfileikar
séu hverjum tannlækni nauðsyn-
legir, ekki síst þeim er gera við
tennur smáfólksins, en Stefán varð
barnatannlæknir í Reykjavík 1975,
hafði enda stundað framhaldsnám í
þeirri grein og varð yfirskólatann-
læknir hjá Reykjavfkurborg ári síð-
ar. Ýmis trúnaðarstörf voru honum
á höndum löngum og var hann
þannig kennari um skeið við tann-
læknadeild Háskóians, varaformað-
ur Tannlæknafélags íslands, o.fl.
o.fl., sat m.a. í Stúdentaráði Há-
skóla íslands eitt sinn á okkar yngri
árum.
Stefán mun snemma hafa orðið
hugfanginn af sinni fræðigrein og
sé ég í skrám að hann hefur samið
greinar og ritgerðir á útlendum
tungumálum er birst hafa m.a. í
tímariti norska tannlæknasam-
bandsins. Er ekki að efa að sam-
viskusamlega er að unnið og álykt-
anir allar teknar af grandvarleika og
rökvísi, en niðurstöður eigi birtar
utan að baki liggi ítarleg rannsókn.
Skal ekki um það fjallað, en hitt veit
ég manna best að vel hafa þær tenn-
ur mínar enst er hann gerði við fyr-
ir hálfum fjórða áratug eða svo.
Betri félagi er eigi auðfundinn.
Minnist ég þess enn, er við sátum á
herbergi hans uppi, ásamt fleiri fé-
lögum, og var oftlega kátt á hjalla
heldur en ekki. Stefán er vel hag-
mæltur og á létt með að kasta fram
stöku. Mun hann hafa ort í Carm-
ínu, svo og skólablöð ef mig mis-
minnir ekki. Einnig lék hann á
hljóðfæri, mandólín, og er liðtækur
mjög í söng og músík yfirleitt, geðs-
lagið þægilegt og návist hans góð.
Sextugum sendi ég þér mínar
bestu kveðjur héðan úr vestri. Og
þótt leiðir okkar hafi ekki legið
saman nema örfáum sinnum þessi
mörgu ár er liðin eru síðan við
gengum frá prófborðum Háskólans,
höfum við vitað hvor af öðrum og
búum báðir að sameiginlegum
minningum.
Stefán tannlæknir hefur verið far-
sæll í starfí og persónulegu lífi.
Hann gekk ungur að eiga konu
sína, Guðnýju Hólmfríði Arnadótt-
ur, þingeyska konu, og ólu þau upp
og tóku sem kjörbörn Leif og Kol-
brúnu. Eru þau hjón samhent um
hvaðeina um heimili þeirra hið
myndarlegasta í hvívetna.
Lifið heil, þökkum góð kynni,
bestu kveðju frá okkur hjónum.
Baldur Vilhelmsson
prófastur, Vatnsfírði
Helgi Hóseasson
prentari
Fæddur 12. mars 1918
Dáinn 1. janúar 1990
Svanirfljúga hratt til heiða,
huga minn til fjalla seiða.
Vill mér nokkur götu greiða?
Glóir sól um höf og lönd.
Viltu ekki, löngun, leiða
litla bamið þér við hönd?
(Stefán frá Hvítadal)
Helgi Hóseasson prentari lést 1.
janúar sl. á Landspítalanum eftir
nærri tíu ára baráttu við erfiðan
sjúkdóm.
Helgi fæddist 12. mars 1918 að
Þorvaldsstöðum í Skeggjastaða-
hreppi í Norður-Múlasýslu. Foreldr-
ar hans voru Hóseas, bóndi á Þor-
valdsstöðum, f. 26. ágúst 1863, d. 2.
janúar 1935, Árnason, bónda að
Miðfjarðarnesseli fyrst, síðar Þor-
®REYKJMIÍKURBORG
ÞJÓNUSTUIBÚÐIR ALDRAÐRA
DALBRAUT 27
Staða heimilislæknis við Þjónustuíbúðir aldr-
aðra, Dalbraut 27, er laus til umsóknar, um hluta-
starf er að ræða. Nánari upplýsingar gefur for-
stöðumaður í síma 685377 fyrir hádegi virka
daga.
BORGARSKIPULAG REYKJAVÍKUR
BORGARTÚN 3 - 105 REYKJAVÍK. - SÍMl 26102
Skipulag háskólasvæðis
Samstarfsnefnd Reykjavíkurborgar og háskóla-
ráðs um skipulag lóða Háskóla Islands auglýsir
hér með til kynningar tillögu að heildarskipulagi
lóða Háskólans, vestan og austan Suðurgötu.
Teikningar ásamt greinargerð og líkani verða til
sýnis á Borgarskipulagi, Borgartúni 3, 3. hæð
frá þriðjudeginum 15. janúar til 5. febrúar 1991.
Þeir sem vilja koma á framfæri athugasemdum
eða ábendingum geri það skriflega til Borgar-
skipulags fyrir 5. febrúar 1991.
valdsstöðum, Þorkelssonar, og kona
hans Guðrún, f. 8. október 1881, d.
2. apríl 1960, Þórðardóttir, bónda að
Hóium í Biskupstungum, síðar að
Hliði á Álftanesi, Þórðarsonar.
Helgi fluttist til Hafnarfjarðar ung-
ur að árum og hóf prentnám í Prent-
smiðju Hafnarfjarðar 1. júlí 1933.
Prentsmiðjan hætti störfum 1935
og hélt Helgi því áfram námi í Ríkis-
prentsmiðjunni Gutenberg 1. okt.
1936 og lauk því 15. nóvember 1938
og varð félagi í HÍP 8. janúar 1939.
Hann fékk sveinsbréf 28. janúar
1940 og vann í Gutenberg til 31.
desember 1941. Vann síðan í AI-
þýðuprentsmiðjunni frá 1941 til
1945 er hann hóf störf í Prentsmiðju
Þjóðviljans. Skömmu eftir að Þjóð-
viljinn tók upp offsetprentun og
prentaður í Blaðaprenti hætti Helgi
störfum í prentsmiðjunni og vann
hjá Prentbergi, Setbergi og síðast
hjá Leiftri, allt til miðs árs 1984,
þegar sjúkdómurinn, sem leiddi
hann til bana, ágerðist mjög.
Helgi var vélsetjari, hraðvirkur og
vandvirkur svo orð fór af. Hann var
frábær íslenskumaður, sem kom sér
vel í starfi hans. Margir, sem sótt
hafa þjónustu til þeirra prentsmiðja
sem Helgi vann hjá, minnast þessa
framúrskarandi verkmanns sem var
jafnvígur á handverkið og málið.
Helgi var mikill ljóðaunnandi og
kunni mikið utanbókar auk þess
sem hann var vel að sér í okkar
bestu bókmenntum öðrum. Hann
var náttúruunnandi og var í essinu
sínu upp til fjalla í vinahópi og þá
gjarnan við veiðivötn, enda slyngur
veiðimaður. Hann var félagshyggju-
maður frá unga aldri og vann ýmis
trúnaðarstörf. Hann var meðstjórn-
andi í HÍP 1944-45, ritstjóri Prent-
arans 1945-47, var í skemmtinefnd
HÍP 1942-44 og endurskoðandi
reikninga 1963. Hann vann ýmis
trúnaðarstörf fyrir Knattspyrnufé-
lagið Val á yngri árum og í stjórn
MIR um árabil.
Helgi var róttækur í skoðunum og
lét aldrei bilbug á sér finna þótt móti
blési. Hann var þess fulviss að fé-
lagshyggjan myndi sigra í heimin-
um að lokum þótt leiðin yrði tor-
sótt. Hann hugsaði ekki í dögum,
heidur til lengri tíma, vitandi að
mistök mannanna, sérdrægni þeirra
og sundurlyndi er sá dragbítur sem
tefur framþróunina til fegurra
mannlífs og réttláts þjóðfélags.
Við Helgi höfum þekkst og verið
vinir í hálfa öld og er margs að
minnast sem lýsir mannkostum
hans, en þar sem hann var andsnú-
inn öllu lofi sér til handa, mun ég
láta þar við sitja, að benda enn á
hver smekkmaður hann var á ís-
lenskt mál og mikill unnandi ís-
lenskrar náttúru, sem lýsir sér best í
vali hans á tveim kvæðum sem hann
óskaði að yrðu lesin við útförina.
Það voru kvæðin Vorsól eftir Stefán
frá Hvítadal og Er hnígur sól eftir
Jóhannes úr Kötlum, en upphafser-
indi þessara kvæða fylgja hér í upp-
hafi og í lok þessarar greinar. Þessi
kvæði, sem Baldvin Halldórsson las
við útförina, lýsa einnig þeim hug-
sjónum sem Helga voru svo hjart-
fólgnar.
Við Gróa og fjölskyldur okkar send-
um vandamönnum hans og vinum
öllum samúðarkveðjur með sér-
stakri þökk til starfsfólksins á 13D á
Landspítalanum fyrir einstæða um-
hyggju um árabil.
Utför Helga fór fram í kyrrþey 9.
janúar sl. samkvæmt ósk hins látna.
Er hnígur sól að hafsins djúpi
og hulin sorg á brjóstin knýr
vér minnumst þeirra, er dóu í
draumi um djarft og voldugt ævin-
týr.
(Jóhannes úr Kötlum)
Halldór Jakobsson
Kvöld-, nætur- og helgidagavarsla
apóteka í Reykjavík 11.-17. janúarer
í Laugamesapóteki og Árbæjar-
apóteki. Það apótek sem fyrr er nefnt
annast eitt vörsluna frá kl. 22.00 að
kvöldi til kl. 9.00 að morgnl virka daga
en kl. 22.00 á sunnudögum. Uppiýs-
ingar um læknis- og lyfjaþjónustu eru
gefnar í síma 18888.
HafnarQörðun Hafnarfjaröar apótek og Norður-
bæjar apótek eru opin á virkum dögum frá kl.
9.00-18.30 og til skiptis annan hvem laugardag
kl. 10.00-13.00 og sunnudag kl. 10.00-12.00.
Upplýsingar I símsvara nr. 51600.
Akureyri: Akureyrar apótek og Stjömu apótek
eru opin virka daga á opnunartlma búða. Apó-
tekin skiptast á slna vikuna hvort að sinna
kvöld-, nætur- og helgidagavörslu. Á kvöldin er
opið í þvl apóteki sem sér um þessa vörslu, til
kl. 19.00. Á helgidögum er opið frá kl. 11.00-
12.00 og 20.00-21.00. Á öðrum timum er lyfja-
fræðingur á bakvakt. Upplýsingar eru gefnar I
síma 22445.
Apótek Keftavfkur Opið virka daga frá k. 9.00-
19.00. Laugardaga, helgidaga og almenna frl-
daga kl. 10.00-12.00.
Apótek Vestmannaeyja: Opiö virka daga frá kl.
8.00-18.00. Lokað I hádeginu milli kl. 12.30-
14.00.
Selföss: Selfoss apótek er opið til kl. 18.30. Op-
ið er á laugardögum og sunnudögum kl. 10.00-
12.00.
Akranes: Apótek bæjarins er opið virka daga til
kl. 18.30. Opið er á laugardögum kl. 10.00-
13.00 og sunnudögum kl. 13.00-14.00.
Garöabæn Apótekiö er opið rúmhelga daga kl.
9.00-18.30, en laugardaga kl. 11.00-14.00.
Læknavakt fyrir Reykjavfk, Sottjamames og
Kópavog er I Heilsuverndarstöö Reykjavlkur alla
virka daga frá kl. 17.00 til 08.00 og á laugandög-
um og helgidögum allan sólarhringinn. Á Sel-
tjamamesi er læknavakt á kvöldin kl. 20.00-
21.00 og laugard. kl. 10.00-11.00. Lokaö á
sunnudögum.
Vitjanabeiðnir, slmaráöleggingar og tlmapantan-
ir I slma 21230. Borgarspftaiinn vaktfrá kl. 08-17
alla virka daga fyrir fólk sem ekki-
hefur heimilislækni eða nær ekki til hans (slmi
696600) en slysa- og sjúkravakt (Slysadeild)
sinnir slösuðum og skyndiveikum allan sólar-
hringinn (slmi 81200). Nánari upplýsingar um
lyflabúðirog læknaþjónustu erugefnar i sfmsvara
18888.
Ónæmlsaðgerðir fyrir fullorðna gegn mænusótt
fara fram á Heilsuvemdarstöð Reykjavikur á
þriðjudögum kl. 16.00-17.00. Fólk hafi með sér
ónæmisskírteini.
Seltjamames: Opið er hjá Tannlæknastofunni
Eiðistorgi 15 virka daga kl. 08.00-17.00 og 20.00-
21.00, laugardaga kl. 10.00-11.00. Sími 612070.
Garðabær Heilsugæslustööin Garðaflöt 16-18
er opin 8.00-17.00, sími 656066. Læknavakt er I
síma 51100.
Hafnarflörður Heilsugæsla Hafnarfjaröar,
Strandgötu 8-10 er opin virka daga kl. 8.00-
17.00, sími 53722. Læknavakt slmi 51100.
Kópavogur Heilsugæslan er opin 8.00-18.00
virka daga. Slmi 40400.
Keflavík: Neyðarþjónusta er allan sólarhringinn á
Heilsugæslustöð Suðumesja. Sfmi: 14000.
Sálræn vandamál: Sálfræðistöðin: Ráðgjöf I sál-
fræðilegum efnum. Sími 687075.
Landspftallnn: Alla daga kl. 15 til 16 og kl. 19 til
kl. 20.00. Kvennadeildin: kl. 19.30-20.00.
Sængurkvennadeild: Alla daga vlkunnar kl. 15-
16. Heimsóknartlmi fyrir feður kl. 19.30-20.30.
Bamaspítali Hringsins: Kl. 13-19 alla daga.
Öldrunariækningadeild Landspitalans Hátúni
10B: Kl. 14-20 og eftir samkomulagi. - Landa-
kotsspitali: Alla virka kl. 15 til kl. 16 og kl. 18.30
til 19.00. Bamadeild 16-17. Heimsóknartlmi
annarra en foreldra kl. 16-17 daglega. - Botg-
arspitalinn f Fossvogi: Mánudaga til föstudaga
kl. 18.30 til 19.30 og eftir samkomulagi. Á laug-
ardögum og sunnudögum kl. 15-18.
Hafriarbúðir Alla daga kl. 14 til kl. 17. - Hvfta-
bandiö, hjúkrunardeild: Heimsóknartimi frjáls
alla daga. Grensásdeild: Mánudaga ti föstu-
daga kl. 16-19.30. - Laugardaga og sunnu-
daga kl. 14- 19.30. - Heilsuvemdarstöðin: Kl.
14 til kl. 19. - Fæðingarheimili Reykjavlkur: Alla
daga kl. 15.30 til kl. 16.30. - KJeppsspítali: Alla
daga kl. 15.30 til kl. 16 og kl. 18.30 til kl. 19.30.
- Flókadeild: Alla daga kl. 15.30 til kl. 17. Kópa-
vogshæiið: Eftir umtali og kl. 15 til kl. 17 á
helgidögum. - Vífilsstaöaspítall: Heimsóknar-
tlmi daglega kl. 15-16 og kl. 19.30-20. - St
Jósepsspitali Hafnarfirði: Alla daga kl. 15-16
og 19-19.30.
Sunnuhlíð hjúkrunarheimili I Kópavogi: Heim-
sóknartlmi kl. 14-20 og eftir samkomulagi.
Sjúkrahús Keflavfkuriæknlshéraðs og heilsu-
gæslustöðvar: Vaktþjónusta allan sólarhring-
inn. Slmi 14000. Keflavfk-sjúkrahúsið: Heim-
sóknartlmi virka daga kl. 18.30-19.30. Um
helgar og á hátlöum: Kl. 15.00-16.00 og 19.00-
19.30. Akureyri- sjúkrahúsið: Heimsóknartimi
alla daga kl. 15.30-16.00 og 19.00-20.00. Á
bamadeild og hjúkrunardeild aldraöra Sel 1:
Kl. 14.00-19.00. Slysavarösstofuslmi frá kl.
22.00- 8.00, sími 22209. Sjúkrahús Akraness:
Heimsóknartlmi Sjúkrahúss Akraness er alla
daga kl. 15.30- 16.00 og kl. 19.00-19.30.
Reykjavík: Seltjamames: Lögreglan slmi
611166, slökkvilið og sjúkrabifreið slmi 11100.
Kópavogun Lögreglan sfmi 41200, slökkviliö
og sjúkrabifreið slmi 11100.
Hafnarfjöröur Lögreglan slmi 51166, slökkvilið
og sjúkrabifreiö simi 51100.
Keflavfk: Lögreglan slmi 15500, slökkvilið og
sjúkrabíll simi 12222, sjúkrahús 14000, 11401
og 11138.
Vestmanneyjar Lögreglan, slmi 11666,
slökkvilið sími 12222 og sjúkrahúsið slmi
11955.
Akureyri: Lögreglan slmar 23222, 23223 og
23224, slökkviliö og sjúkrabifreiö slmi 22222.
Isafjörður: Lögreglan simi 4222, slökkviliö slmi
3300, brunasfmi og sjúkrabífreiö slml 3333.