Tíminn - 12.01.1991, Side 16
AUGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300
SAMVINNUBANKINN
BYGGÐUM LANDSINS
RÍKISSKIP
NUTIMA FLUTNINGAR
Hatnarhusmu v Tryggvagotu.
S 28822
IMISSA
I
Réttur bíll á
réttum stað
Ingvar
Helgason hf.
Sauvarhöföa 2
Sími 91-674000
VIRÐISAUKASKATTUR
Endurgreiðsla
virðisaukaskatts
40* '
til íbúðarbyggjenda
Hvað er endurgreitt?
Virðisaukaskattur af vinnu manna sem
unnin er á byggingarstað íbúðarhús-
næðis er endurgreiddur. Endurgreiðsl-
an nærtil virðisaukaskatts af:
• Vinnu manna við nýbyggingu íbúðar-
húsnæðis.
• Hluta söluverðs verksmiðjufram-
leiddra íbúðarhúsa hér á landi.
• Vinnu manna við endurbætur og við-
hald á íbúðarhúsnæði í eigu umsækj-
anda.
Endurgreiðslubeiðni
Sækja skal um endurgreiðslu á sér-
stökum eyðublöðum til skattstjóra í því
umdæmi sem umsækjandi á lögheimili.
Eyðublöðin eru:
• RSK 10.17: Bygging íbúðarhúsnæðis
til sölu eða leigu.
• RSK 10.18: Bygging, endurbætur og
viðhald íbúðarhúsnæðis til eigin nota.
Uppgjörstímabil
Hvert uppgjörstímabil ertveir mánuðir,
janúar og febrúar, mars og apríl, maí
og júní, júlí og ágúst, september og
október, nóvember og desember.
Skiladagur
Endurgreiðslubeiðni skal berast skatt-
stjóra fyrir 15. dag næsta mánaðar eftir
að uppgjörstímabili lýkur.
Sérstakt uppgjörstímabil
vegna endurbóta og við-
halds á árinu 1990
Beiðni um endurgreiðslu vegna við-
halds og endurbóta íbúðarhúsnæðis
sem unnið var 1990 skal skilað í einu
lagi til skattstjóra í síðasta lagi 20.
janúar 1991. Athygli skal vakin á því að
frumrit sölureikninga skal fylgja um-
sókn um endurgreiðslu vegna vinnu
við endurbætur og viðhald.
Hvenær er endurgreitt?
Hafi beiðni um endurgreiðslu verið
skilað á tilskildum tíma fer endur-
greiðslan fram eigi síðar en 5. dag
næsta mánaðar eftir skiladag vegna
nýbygginga og eigi síðar en 20. dag
næsta mánaðar eftir skiladag vegna
endurbóta og viðhalds.
Launamiðar og
húsbyggingarskýrsla
Athygli skal vakin á því að þeir sem
sækja eða hafa sótt um endurgreiðslu
virðisaukaskatts af vinnu manna við
íbúðarhúsnæði á árinu 1990 skulu fylla
út launamiða (RSK 2.01) fyrir 20. janúar
1991 vegna greiddra launa og verktaka-
greiðslna. Launamiðann skal senda til
skattstjóra.
Þeir sem sótt hafa um endurgreiðslu
vegna nýbyggingar skulu einnig senda
skattstjóra húsbyggingarskýrslu (RSK
3.03) með skattframtali sínu.
I
Tíniinn
LAUGARDAGUR12. JANÚAR1991
Stefán Hilm-
arsson banka-
stjóri látinn
Stefán Hilmarsson. fyrrv. banka-
stjóri Búnaðarbanka Islands, lést að
heimili sínu í Garðabæ í fyrrakvöld á
sextugasta og sjötta aldursári.
Stefán fæddist 23. maí 1925 og
voru foreldrar hans Hilmar Stefáns-
son bankastjóri og kona hans
Margrét Jónsdóttir. Stefán lauk
lagaprófi frá Háskóla íslands árið
1951 og starfaði eftir það sem blaða-
maður um skeið, en hóf störf hjá ut-
anríkisþjónustunni 1953. Þar starf-
aði hann til ársins 1962, síðast sem
sendiráðsritari og sendifulltrúi við
sendiráð íslands í Washington.
Stefán var ráðinn bankastjóri Bún-
aðarbankans árið 1962 og tók við
stöðunni af föður sínum. Stefán
gegndi bankastjórastöðunni þar til
hann lét af störfum um síðustu ára-
mót en vann að sérstökum verkefn-
um fyrir bankann þegar hann lést.
Stefán lætur eftir sig eiginkonu,
Sigríði Kjartansdóttur, og þrjár upp-
komnar dætur.
Kaldalóns-
tónleikar
Karlakór Keflavíkur og Kvennakór
Suðurnesja ásamt einsöngvurum
halda Kaldalónstónleika í Lang-
holtskirkju laugardaginn 12. janúar
kl. 17 í tiíefni þess að 110 ár eru lið-
in frá fæðingu Sigvalda Kaldalóns
tónskálds og læknis.
Flutt verða sönglög eftir Sigvalda
Kaldalóns, dóttur hans, Selmu, og
Sigvalda Snæ Kaldalóns. Meðal ein-
söngvara er Anna Margrét Kalda-
lóns, sem er barnabarnabarn tón-
skáldsins. '
Sunnudaginn 13. janúar verða tón-
leikarnir haldnir í Ytri-Njarðvíkur-
kirkju og hefjast þeir kl. 20.30, og f
Grindavíkurkirkju á mánudaginn
kl. 20.30. Stjórnandi á tónleikunum
er Sigvaldi Snær Kaldalóns.
Rannsóknin
á lokastigi
Mál piltsins, sem kærði lögregluna
í Reykjavík vegna ákverka sem hann
hlaut þegar lögreglan handtók hann
aðfaranótt 27. desember, er þessa
dagana í rannsókn.
Lögreglumanninum, sem kærður
var, hefur verið veitt ótímabundið
leyfi frá störfum á meðan mál hans
verður rannsakað. Það gerir Rann-
sóknarlögregla ríkisins og er rann-
sókn málsins á lokastigi, að sögn
Helga Daníelssonar, yfirlögreglu-
þjóns RLR. -sbs.