Tíminn - 25.01.1991, Qupperneq 4
4 Tíminn
Föstudagur 25. janúar 1991
Breytingar á herstjórnarlist Saddams Husseins:
IRASKI FLUGHERINN
LÆTUR TIL SÍN TAKA
íraski flugherínn gerði atlögu að bandamönnum í gær, en án árang-
urs. Tvær íraskar flugvélar voru skotnar niður þegar þær reyndu að
gera árás á herskip bandamanna á Persaflóa og aðrar tvær voru
skotnar niður yfir suðurhluta íraks.
Sovésk MiG-29 Fulcrum orrustuflugvél. Talið er að írakar eigi tæplega 50 slíkar vélar. Þær jafnast á við bestu
orrustuflugvélar Bandaríkjanna.
Tvær íraskar orrustuþotur af MiG-
gerð (sovésk framleiðsla) voru skotnar
niður þegar þær nálguðust flota
bandamanna á Persaflóa, að sögn
fréttamanns BBC sem er staddur í
bresku freigátunni London. Þetta var
síðan staðfest af talsmönnum Banda-
ríkjahers. MiG-þoturnar voru að fylgja
íraskri sprengjuflugvél af Mirage F-1
gerð (frönsk framleiðsla), en hún flúði
aftur til íraks. Það var saudi-arabísk F-
15- orrustuþota sem skaut írösku orr-
ustuþotumar niður áður en þær kom-
ust nógu nálægt til þess að skjóta
flugskeytum að flotanum. Mirage-
sprengjuflugvélin skaut flugskeytum
sínum áður en hún sneri til balá, en
þar sem hún var ekki komin nógu ná-
lægt ollu þau engu tjóni. Tálið er að
Mirage- sprengjuflugvélin hafí borið
Exocet- flugskeyti sem eru frönsk og
þykja mjög góð. Argentínumenn
studdust mjög mikið við slík flug-
skeyti í Falklandseyjastríðinu árið
1982 og þeir sökktu m.a. freigátunni
Sheffield með þeim.
Þá skaut F-15-orrustuþota saudi- ar-
abíska hersins tvær íraskar MiG- orr-
ustuþotur niður yfir suðurhluta íraks.
Bretar misstu tvær Tomado-
sprengjuflugvélar í gær. Þeir hafa þá
misst sjö slíkar flugvélar alls. Bretar
ákváðu í gær að senda hálfa sveit af
Buccaneer-sprengjuflugvélum til
Persaflóa til að fylla í skarðið sem
Tomado-vélamar skilja eftir sig.
Hermálasérfræðingar töldu að
mögulegt sé að árás írösku þotanna á
flotann hafi verið sjálfsmorðsárás.
Þeir töldu að tilgangur með þessum
árásum flughersins væri að sýna hve
skeinuhættur íraski flugherinn gæti
verið, en það hafi augljóslega farið fyr-
ir ofan garð og neðan. Svona árásir
séu að skapi bandamanna, því þetta
gefur þeim tækifæri á að draga úr
mætti íraska flughersins áður en
landherjunum lýstur saman, en erfið-
lega hefur gengið að eyðileggja íraskar
herflugvélar, þar sem þær eru flestar
geymdar í traustum flugskýlum í
norðurhluta íraks.
„Eyöimerícurstonnurinn“
gengur samkvæmt áætlun
George Bush, forseti Bandaríkjanna,
sagði í gær að „Eyðimerkurstormur-
inn“ gengi samkvæmt áætlun, en tók
skýrt fram að stríðið ætti eftir að verða
langt og erfitt.
Colin Powell hershöfðingi, yfirmaður
bandaríska herráðsins, sagði: „Við er-
um að fást við óvin sem er útsjóna-
samur, óvin sem veit hvernig á að
bregðast við árásum, óvin sem er
snjall." Hann sagði að landherinn
mundi ekki sækja fram fyrr en „gríð-
arlegar skemmdir" hefðu verið unnar
á Iandher íraka. „Fyrst ætlum við að
gera hann (íraska landherinn) óvirkan
og síðan útrýma honum."
Irakar sögðu að ákvörðun Japana um
að styrkja fjölþjóðaherinn um 600
milljarða ísl. kr., nóg til að borga
stríðsreksturinn í 18 daga, gerði þá að
óvinveittri þjóð og þeir mundu skjóta
niður allar herflugvélar Japana sem
nálguðust írak, en farþegaflugvélar
yrðu látnar óáreittar. Japanir ætla að
senda farþegaflugvélar til þess að ná í
1.000 flóttamenn í Kairó, en ef það
gengur ekki, ætla þeir að nota her-
flugvélar.
Saddam Hussein, forseti íraks, heim-
sótti á miðvikudag hermenn sína í
fremstu víglínu, að sögn írönsku
fréttastofunnar IRNA.
Þjóðverjar vísuðu í gær 28 íröskum
sendiráðsmönnum úr landi. Hans-
Dietrich Genscher utanríkisráðherra
Þýskalands, sem er nú í opinberri
heimsókn í fsrael, gaf út skipun um
brottvísun írakanna.
Reuter-SÞJ
Stríðsreksturinn:
Japanir leggja
til 600 milljarða
Japan ætlar að leggja um 500
milljarða ísl. kr. til stríðsrekstr-
ar bandamanna við Persaflóa til
viðbótar þeim 100 milljörðum,
sem þeir höfðu áður ákveðið að
leggja fram.
Tilkynningin kom eftir margra
klukkustunda viðræður leiðandi
stjórnmálamanna í Japan eftir að
Bandaríkjamenn höfðu lýst yfir
óánægju sinni með þá upphæð sem
Japanir höfðu áður ætlað til stríðs-
rekstrarins. Japanir ákváðu fyrst að
styrkja hernaðaraðgerðirnar með
100 milljörðum, en síðan veita 100
milljarða til viðbótar ef kostnaður-
inn yrði mjög mikill. Bandaríkja-
mönnum fannst það ekki nóg og
skírskotuðu til þess að stríðsrekst-
urinn kostaði 25-30 milljarða á dag.
Mjög skiptar skoðanir eru í Japan
um ákvörðun stjórnvalda um að
auka við framlagið. Tálið er víst að
skattar hækki í kjölfar þessarar
ákvörðunar stjórnvalda og eru
margir því mjög óánægðir. Japanska
þjóðþingið kemur saman í dag og er
búist við hörðum deilum milli
stjórnarinnar og stjórnarandstöðu.
Leiðtogar stjórnarandstöðuflokk-
anna hafa lýst því yfir að þeir muni
reyna að koma í veg fyrir að þessi að-
stoð verði samþykkt á þinginu.
Japönsk stjórnvöld sögðust einnig
ætla að senda um næstu helgi flug-
vélar til Miðausturlanda til að flytja
1.000 víetnamska flóttamenn frá
Kairó til Víetnams. Þau ætla fyrst að
reyna að nota farþegaflugvélar, en ef
það gengur ekki, þá munu herflug-
vélar verða sendar. Sendiherra íraks
í Tókýó hótaði að írakar mundu
skjóta niður japanskar herflugvélar,
sem yrðu sendar til svæðisins.
Reuter-SÞJ
Hryðjuverk Araba:
Útför Noregs-
konungs tilvalin
Mikill fjöldi kóngafólks og hátt- Gennady Yanayev varaforseti Sov-
settra embættismanna mun votta étríkjanna, Karl Bretaprins, Naru-
Ólafi Noregskonungi virðingu hito krónprins Japans, Karl Gúst-
sína og vera við jarðarfór hans, af Svíakonungur og Margrét
sem fram fer í Osló þann 30. Danadrottning.
janúar. Þetta er talið tilvalið tæki- Norðmenn hafa í framhaldi af yf-
færi fyrir hiyðjuverkamenn til að iríýsingum traskra stjómvalda efit
framkvæma ódæðisverk, en írakar öryggisgæslu við landamæri, við
hafa hvatt arabíska hryðjuverka- eríend sendiráð, flugvelli og aðra
menn til að láta til sín taka um all- staði sem líklegt þykir að hryðju-
an heim. verk verði framin á. En útför Ol-
Meðal þeirra, sem hafa tilkynnt afs konungs veldur norsku lög-
komu sína í jarðarförina, eru: Dan reglunni óneitanlega áhyggjum.
Quayle varaforseti Bandaríkjanna, Reuter-SÞJ
Sovéskir ráðgjafar enn í Irak:
Hjálpa Sovétmenn Irökum?
Sovéskir heraaðarráðgjafar eru
enn eftir í írak og hjálpa íröskum
hermönnum að beita flóknum sov-
éskum vopnabúnaði gegn banda-
mönnum, að sögn útvarps BBC í
gær. Útvarpið sagði að fréttin væri
byggð á upplýsingum frá Pentagon.
BBC sagði að allt að 100 sovéskir
hernaðarráðgjafar hefðu verið í írak
í mjög langan tíma og náð góðum
tengslum við íraska herinn. Þeir
hefðu kosið að verða eftir og hjálpa
írökum að nota þann vopnabúnað
sem sovéski herinn hefði útvegað.
Þar á meðal eru nokkrir tugir MiG-
29 Fulcrum orrustuþotna, sem jafn-
ast á við bestu orrustuþotur Banda-
ríkjanna.
Leitað var til nokkurra hernaðar-
sérfræðinga í kjölfar fréttar BBC.
Þeir sögðu að stefna sovéska hersins
gagnvart írak gengi oft þvert á
stefnu stjórnvalda. Herinn vildi
halda nánu og löngu sambandi við
írak. Þeir sögðu að það væri mjög
líklegt að nokkrir sovéskir hernað-
arráðgjafar væru enn í írak.
Sovétríkin taka opinberlega þátt í
viðskiptabanni Sameinuðu þjóð-
anna á írak og segjast styðja aðgerð-
ir bandamanna gegn írökum.
Moskva neitar
Sovétmenn neituðu frétt BBC um
að sovéskir hernaðarráðgjafar væru
enn að hjálpa írökum.
„Seinasti sovéski hernaðarráðgjaf-
inn fór frá írak 9. janúar. Þessi frétt
er ósönn,“ sagði talsmaður sovéska
varnarmálaráðuneytisins.
Á miðvikudag tilkynnti sovéska ut-
anríkisráðuneytið að allir sovéskir
hernaðarráðgjafar, sem hefðu verið í
írak, væru farnir þaðan og aðeins 41
starfsmaður sovéska sendiráðsins
væru eftir í landinu.
Reuter, Sky - SÞJ