Tíminn - 25.01.1991, Blaðsíða 1
Tíníinn
Formaður utanríkismálanefndar þjóðþings Lithaugalands
hefur mætt skilningi íslenskra ráðamanna:
Islendingar skilja
sjálfstæðisbaráttu
„Ég er mjög ánægður með þessa heimsókn. Hér er
ég í fýrsta skipti meðal manna sem skilja hvað það
er að vera lítil þjóð í sjálfstæðisbaráttu,“ sagði Em-
anuelis Zingeris, formaður utanríkismálanefndar
þjóðþings Lithaugalands, í gærkvöld. íslensk
stjómvöld og alþingismenn allra flokka hafa for-
dæmt aðgerðir hins sovéska heríiðs í Eystra-
saltslöndunum og ítrekað stuöning sinn og Alþing-
is við baráttu ríkjanna. Þrír fulltrúar ríkisstjómar Is-
lands fara til Eystrasaltsríkjanna n.k. fimmtudag og
munu dvelja þar í nokkra daga, kynna sér ástandið
og sýna með heimsókninni stuðning íslendinga við
baráttu þeirra.
• Baksíða
Emanuelis Zingeris, fbrmaöur utanríkismálanefridar þjóöþings Uthauga-
lands, í Reykjavík í gær. Tímamynd: Pjetur