Tíminn - 25.01.1991, Page 6

Tíminn - 25.01.1991, Page 6
6 Tíminn Föstudagur 25. janúar 1991 Tíminn MÁLSVARi FRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og Framsóknarfélögin í Reykjavík Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason Ritstjórar: Indriði G. Þorsteinsson ábm. Ingvar Gíslason Aðstoðarritstjóri: Oddur Ólafsson Fréttastjórar: Birgir Guðmundsson Stefán Ásgrlmsson Auglýsingastjóri: Steingrlmur Glslason SkrifstofurLyngháls 9,110 Reykjavik. Síml: 686300. Auglýslngasími: 680001. Kvöldsíman Áskrift og dreifing 686300, ritstjóm, fréttastjórar 686306, Iþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: Tæknideild Tlmans. Prentun: Oddi hf. Mánaðaráskrift kr. 1100,- , verð 1 lausasölu kr. 100,- og kr. 120,- um helgar. Grunnverð auglýsinga kr. 725,- pr. dálksentimetri Póstfax: 68-76-91 Móðurmál er mannréttindi Enginn vafí er á því að Alþingi lagði svo fyrir þegar það samþykkti ný útvarpslög árið 1985 að íslenskar útvarps- stöðvar notuðu íslensku sem tungumál sitt. Þetta er grundvallarregla, sem ekki þarf að deila um. Forráða- mönnum útvarps- og sjónvarpsstöðva er fúllkunnugt um þessa meginreglu. Ekki er annað ætlandi en að þeir geri sér grein fyrir rökum þess að löggjafmn bjó þannig um hnútana. Alþingi rýmkaði um rétt til útvarpsstarfsemi, svo að ís- lendingar eru engir eftirbátar annarra þjóða um frelsi í þeim efnum. Þingið lagði eigi að síður þá skyldu á herð- ar leyfíshöfúm að þeir efldu íslenska tungu, virtu móður- málið. Það getur ekki gerst öðruvísi en að útvarpsefni sé flutt og kynnt á íslensku. Þess vegna er skylt að þýða eða kynna á íslensku allt sem fram fer í íslenskum útvarps- og sjónvarpsstöðvum. Þýðingarskyldan er óhjákvæmileg. Dr. Kristján Amason málfræðingur, formaður íslenskr- ar málnefndar, hefúr við ýmis tækifæri gert skýra grein fyrir rökum þeirrar málstefhu sem Alþingi hefúr markað með útvarpslögum og gilda skal í rekstri íslenskra ljós- vakamiðla. Hann flutti nýlega um þetta erindi á ráðstefnu málnefhdar og útvarpsréttamefndar sem efnt var til um þýðingarskyldu ljósvakamiðlanna. í grein í Morgunblað- inu í gær ræðir hann þetta efni. Þar víkur hann að því að andmæli gegn þýðingarskyldunni hafi gosið upp í kring- um það ffamtak Stöðvar 2 að endurvarpa efni bandarísku sjónvarpsstöðvarinnar CNN, en víkjast jafnffam undan að þýða efnið í skjóli fféttafrelsis og framfara í ffétta- tækni. Það var m.ö.o. reynt að láta málið horfa þannig við, að þýðingarskyldan væri andstæð málfrelsi, mann- réttindum og tækni. Um þetta segir Kristján Ámason m.a.: „Eg hef heyrt því haldið fram að það væri einhvers kon- ar skerðing á mannréttindum að heimta það að allt efni sem útvarpað er sé textað, ekki megi banna mönnum að taka við ensku efni heima hjá sér. Slíkt tal er á misskiln- ingi byggt. Það er enginn sem bannar einstaklingum að kaupa sér skerm til þess að taka á móti erlendu sjónvarps- efni sem kemur beint frá gervihnöttum ... En það er grundvallarmunur á þessu framtaki einstaklinga til að bera sig eftir því sem hrýtur af borðum erlendrar menn- ingar og því að reka innlenda starfsemi sem dreifir svona efni.“ Kristján Ámason dregur í þessum orðum fram kjama málsins. Það er fráleit hugsun, hvemig sem á er litið, að sú menningarstefna sé látin viðgangast í landinu að ís- lenskar sjónvarpsstöðvar (eða útvarpsstöðvar yfírleitt) séu reknar til þess að endurvarpa efni útlendra stöðva. Slíkt er ómennska og á ekkert skylt við frelsi og mann- réttindi. „Það á í rauninni að snúa réttindaumræðunni við,“ segir Kristján Ámason. „Það á að benda á að það sé óréttlátt að útvarpa efni sem ekki allir geta notið vegna tungumáls- ins. Því þrátt fyrir allt talið um enskukunnáttu þjóðarinn- ar, er fjöldi manns í landinu sem ekki skilur ensku eða hefur nógu gott vald á henni, og það er skylda þess sem býður fram þjónustu sína að gera hana aðgengilega sem flestum neytendum.“ Til þess má ekki koma að þýðingarskyldu á sjónvarps- efni verði fargað af tómri hvatvísi. Þvert ofan í skoðanir nútímastjómleysingja er þýðingarskyldan umfram allt mannréttindamál. GARRI wwr Útsýnishús Hitaveitu Reykjavíkur í Ösýuhlíft í Reýkfavík er nú að verda að minnisvarða utn elnhvem tilgangslausasta austur af al* mannafé sem um getur. í gaer sagði Tíminn af því fféttír að í ár hafi verið gert ráð fyrir að eyða um 45 milf jón krónum í útsýnishúsið en nú hafi sú áíetlun heidur hækk- króna! Jafnframt var uppfyst að áætlað hafi verið að eyða»útsýnls- hústð árin 1990 og 1991 um 340 milljÓnum en nú er húist við að í það fari um 600 milljónir króna. Garri hefði vissulega eldri haft neitt á móti jþví að spara sér eitt- hvað á þriðja tug þúsunda í hita- veitureikningum ogiáta þess i stað gamia útsýniö á öskjuhiíðinni duga, er hann þó ekki slík nánös að fara að gera sérstakt veður út af því. En Garri getur þó á engan hátt sætt sig við þá skilgreiningu yfir* stjóraar Hitaveitunnar, með borg* arstjórann í fararbroddi, að brýnna sé fyrir fyrirtekið að byggja þetta mikla gleihús en að sjá til þess að heitt vatn renni um dreifikerfi Hitaveitunnar. Þcgar menn eru famir að stilla hlutunum upp í sllka forgangsröð er Ijóst að vaida- píramítinn í stjórakeril Reykjavík- urborgar befur steinrunnið með slfkum hætti að til hættuástands horfir, ekld einvörðungu fyrir framtíð almannafyrirtelrisins Hitaveitu Reylqavíkur heldur fyrir framtíð höfuðborgarinnar. Samkvæmt kenningum hins heimskunna sagnfræðings Gord- ons Child, voru píramítarair mlklir öriagavaldar í hinni fomegypsku siðmenningu og urðu tíl þess að hún féJI að lokum. Ástæðuna segir Chlld vera þá, að þegar fram liðu stundir vora flottheitin orðin slík að bygging ptramílanna sogaði til sín svo miidð af framleiðsluget- unni og verðmætasköpun samfé- lagsins aö hin glæsta siömenning sér og stóð ekki undir sjáifri eins Dvergútgáfu af þessu feríi virðíst mega sjá hjá Hitaveitu Reykjavíkur. Þar hefur verið ráðist í að byggja hið mllda útsýnishús, sem Morg- unblaðið kallar „Periuna" í ösldu- hiíð þó sumir vtíjl raunar taia um „Bóluna" á Öslduhiíðinni og enn aðrir tala um „Kuldaboluna" á Öskjuhiiðinni. Er nú svo komið að iíkt og hjá Egyptum til foma hefur það fé sem að öllu jöfnu ætti að fara inn I rekstur fyrirtælrisins ver- ið tekið út úr því og það sett í óarð- bæra framkvæmd, bygglngu sem iftið notagildi hefur arrnað en að þjóna hégómagirnd þeirra - eða þess - sem ferðinni raeður. A sama tíma fúna undirstöðumar. f Ijós hefur komið að fyrir löngu ertírna- bært að endumýja mikiivægar hitaveituæðar í dreifikerfi Hita- veitu Rejdqavikur. Það hefur hins vegar verið iátið bíða og þegar svo Nesjavallavatninu er hleypt á kerfið eftir ótrúiega slakan undtrbúning og stór hluti drelfikerfis Hitaveit- unnar stíflast fcemur enn betur í Íjós að forgangsröð verkefna hefur verið undarieg. En á meðan þús- undir mega búa við óupphituð hús, fcalt hitaveituvatn og sprungnar leiðslur, stendur ekki á viðbrögð- um frá þeim sem ráða ferðinni hjá Hitaveitu Reyfcjavikur og heldur eru svörin kuldaieg. I»að á einkum við um þann sem á toppi valdapír- amítans fajónar, sjálfán borgar- stjórann. Hann telur sig þess ura- kominn að réttlæta af sínum al- kunna btyssingi forgangsröð verk- efna hjá Hitaveitunni Borgar- arfulltrúi minnlhlutaflokkanna, Sigrún Magnúsdóttir, sem fyrstur og einn hefur spurt krefiandi spuminga um starfsemi fyrírtek- isins sé að reyna að tefja hitaveitu- framkvæmdir í höfuðborginni og að ef flokkur þess borgarfuUtröa hefði eihverfu fengið ráðið væri engin hítaveita f höfuðstaðnum! Rökafþessu tagi temja sér einung* is menn sem löngu em hættir að þurfa að hafa áhyggjur af þvt að standa ábyrgir gerða sinna gagn- vart almenningi eða hugsa um lýð- ræðisieg vinnubriigð. Það að standa ábyrgir gerða stnna var raunar heldur ekki áhyggjuefni þeim sem byggðu píramíta f Eg- yptaiandi tii foma. Slðmenning sem lýtur stjóro þeirra sem svo hugsa féll um sjálfa sig í Egypta- Jandi til foma og eflaust má full- yrða að það sama gUdi um al- mannafyrirteki í Reykjavík í dag, sem lúta stjóra stjómenda sem svona hugsa. Garri VÍTT OG BREITT H■BHBHi Mi— Vandrötuð leið til frelsis Þeir sem trúa á gjörbyltingar vakna stundum upp við vondan draum þegar þeir átta sig á að umbylting- amar lenda í einhverjum alít öðr- um farvegi en ætlað var að óreyndu. Glámskyggnir menn á Vesturlönd- um fylltust hrifningu og bjartsýni þegar kommúnisminn hrundi í Mið-Evrópu og frelsisómur fór jafn- vel að berast frá sjálfum Sovétríkj- unum. Þótti einsýnt að frjálst markaðskerfi og kristið lýðræði væri í uppsiglingu í ríkjum þar sem alræðið hefur tröllriðið lífsstíl og hugsun í fleiri mannsaldra. Senn er von á Gorbatsjov leiðtoga ti! Noregs til að flytja friðarræðu og þakkir fyrir Nóbelsverðlaunin sem norska stórþingið veitti honum í vetur. Sovéski herinn er meðal fjölþjóða- sveitanna sem eru að frelsa Kúveit þessa dagana og hafa risaveldin snúið bökum saman við það verk- efni. Söguskoðun á hvolfi Sovétherinn er einnig í viðbragðs- stöðu í nokkrum lýðvelda Sovét- ríkjanna og er að frelsa útvarps- stöðvar og stjórnarbyggingar úr höndum heimamanna. Heraflinn er einnig reiðubúinn að frelsa bygg- ingar þjóðþinga Eystrasaltsríkjanna úr höndum réttkjörinna þing- manna, sem hafast við í þinghúsun- um að ósk ríkisstjórna viðkomandi landa. Jafnvel sjálft Rússneska lýðveldið er komið upp á kant við Sovétríkin og er sú sögulega þróun hvergi nefnd í samanlögðum gáfumanna- skrifum marx- lenínista, svo að von er að sú sögulega nauðsyn komi flatt upp á menn. Allt frá því Gorbatsjov hóf að tala um perestrojkuna sína hefur það verið hald margra að lýðræði og markaðsbúskapur væri að hefja innreið sína í Sovétríkin. Eftir að fyrrum leppríki köstuðu af sér oki sovéskra yfirráða og losuðu sig við kommana hafa verið stigin þar fyrstu skrefin í átt að lýðræðisleg- um viðskiptaháttum. En við ramm- an reip er að draga og á það langt í land að frjáls markaður festi þar rætur. Þegar miðstjómarvaldið í viðskipt- um í Sovétríkjunum lét loks undan tók ringulreiðin við. Ámáttlegar til- raunir til að koma á frjálsum mark- aðsviðskiptum leiða ekki annað af sér en vömskort og allar þær hörm- ungar sem af honum leiða. TVúboðar frjálsa markaðsins senda nú mat og aðrar lífsnauðsynjar til að aðstoða yfirvöld að koma á frjálsu hagkerfi, eða svo heldur frjálshyggjan. Indælt kalt stríð Síðasta hagstjórnartrompið sem Sovétstjórnin sló út er að gera sparifé sovétborgara upptækt. Seðl- ar eru innkallaðir og taka bankar ekki við nema smánarupphæðum og verður megnið í eigu borgar- anna því verðlaust. Mjög er tak- markað hve mikið fólk fær að taka út úr eigin sparisjóðsbókum. Almenningur hefur eignast tals- vert fé, þar sem lítið hefur verið hægt að kaupa, og nú er verið að ræna fólkið öllu því sem því var ráð- legt að leggja fyrir. Tómar verslanir og opinbert rán á öllu sparifé er sá árangur sem pere- strojkan hefur enn sem komið er náð á leiðinni til frjáls markaðskerf- is. Viðurkennt er að verðbólga sé 20% á ári. Þykir nú sumum að heldur hafi slegið í bakseglin á hraðsiglingu sovétanna til frjálsa markaðsins. Sú leið er kannski ekki eins auðrötuð og einföld og látið er í veðri vaka. Og það er víðar en í Sovét sem peningar verða að engu og frjáls markaðskerfi leika margan grátt. Gjaldþrot lánastofnana og umsvifa- mikilla fyrirtækja eru meira en vel þekkt fyrirbæri í hinum alfrjálsa markaösheimi og er það kannski oft aðeins bitamunur en ekki fjár hvort það er sjálft ríkisvaldið sem stendur fyrir skorti og peningaupptöku eða hvort einstaklingar tapa fé sínu og framtíðarvonum vegna kolbrjál- aðra útreikninga lánastofnana og annarra fjármálavelda. Hinir vonglöðu vom um skeið famir að tala um nýja alheimsskip- an og áttu boðberar alfrelsisins þar aðallega hlut að máli. Gallinn er bara sá að gjörbyltingar verða ekki gerðar á þjóðum og grónum menningarhefðum með hraða örtölvunnar. Slíkur gusu- gangur leiðir aðeins til ringulreið- ar, sem enginn veit hvað úr verður. Vonandi kemur samt ekki til þess að farið verði að sakna kalda stríðs- ins, sem þrátt fyrir allt laut þekkt- um lögmálum og var því viðráðan- legt.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.