Tíminn - 01.02.1991, Blaðsíða 14
14 Tíminn
Föstudagur 1. febrúar 1991
MINNING
S. Einarsdóttir
frá Dal
Anna
Fædd 30. júlí 1911
Dáin 17. janúar 1991
í huga okkar sækja fram myndir frá
liðinni tíð, nú eftir að dánarfregn
önnu Einarsdóttur, húsfreyju í Dal,
barst okkur. Þessar minningar hafa
leitað á hugann áður, þegar aðrir
eldri sveitungar hafa fallið frá. Allar
þessar hugsanir eru tengdar ljúfum
og einlægum samskiptum sem
sveitungar þess tíma áttu hverjir við
annan og þeirri djúpu virðingu sem
þeir báru fyrir manngildinu.
Hjónin Halldór Erlendsson og
Anna Sigríður Einarsdóttir bjuggu
allan sinn búskap í Dal. Hrísdalur,
jörð foreldra okkar, og Dalur liggja
saman, aðeins Straumfjarðará skil-
ur á milli. Aldrei varð þó áin til að
hindra þær tíðu ferðir sem náin vin-
átta og frændskapur þessar fjöl-
skyldna kallaði á. Ana þekktum við
systkinin frá fyrstu tíð. Þegar við
vorum börn, vanfær um að vaða
strauminn ein, vorum við leidd af
okkur eldri og reyndari. Við lærðum
að þekkja strauminn og besta vaðið,
hvernig yfirborð árinnar sagði okk-
ur að dýpra vatn væri framundan og
hvenær áin hefði vaxið svo að ófært
væri. Að vetri til var oft farið yfir á ís.
Anna fluttist frá Reykjavík vestur í
Miklaholtshrepp ung að aldri. Hún
kom sem kaupakona að Skógarnesi,
þar sem hún kynntist Halldóri
manni sínum. Þau hófu búskap í Dal
árið 1931 í sambýli við foreldra okk-
ar, en Halldór og Sigurður faðir okk-
ar voru hálfbræður.
Árið 1932 fluttist Sigrurður með
fjölskyldu sína vestur fyrir ána að
Hrísdal. Fyrsta ferð okkar út af bæ
var farin að Dal, kannski var það
jólaboð, og áin komin á góðan ís.
Snemma var þar komið hljóðfæri,
harmonikka sem Einar sonur þeirra
eignaðist mjög ungur, og við lærð-
um ný lög til að syngja í baðstof-
unni.
Að Dal vorum við sendar ef heimil-
ið varð uppiskroppa með nauðsynjar
og Anna beðin að lána um tíma.
Hver ferð var ævintýri, hvernig yrði
að fara ána, myndi hún verða stíg-
vélatæk eða þyrfti að vaða hana ber-
fættur því ekki var til siðs að bleyta
sokka og stígvél. Eitt áttum við víst,
Önnu hittum við brosandi, ljúfa og
ræðna. Hún talaði skýrt og gott mál
og hló klingjandi hlátri. í hennar
návist hvarf feimnin sem annars var
mikil. Þegar veikindi bar að á okkar
fjölmenna heimili, sem stundum
voru alvarleg, þá var talað um að
sækja hjálp og oft leitað að Dal. Kom
þá Anna eða þau bæði hjónin. Mikið
létti á barnssálinni þegar grannarnir
komu að bera óvissuna og óttann
með okkur. Fleiri bænir stigu til
himna og hjálpin var mikil, bæði
Guðs og manna.
Vorið 1943 gengu slæmir misling-
ar. Fjölskyldan í Hrísdal bjó enn í
litlum torfbæ, en húsbygging var í
undirbúningi. Faðir okkar veiktist
fyrstur. Átta af systkinunum voru þá
til heimilis og öll áttu eftir að fá mis-
linga. Þegar veikin gerði vart við sig
gengu tvær ungar stúlkur suður að
Dal til að þiggja þar rúm og að-
hlynningu. Þennan erfiða maímán-
uð kom vel í ljós hversu ríkan þátt
hjálpsemi og nágrannakærleikur
áttu í afkomu og heill hvers heimil-
is.
Farskóli var í Dal frá 1942-1946.
Nemendur voru 10-14 ára í einum
bekk, 15-17 talsins. Við systurnar
gengum á milli og frændur okkar
frá Hvammi. Aðrir voru í heimavist
og þröngt máttu sáttir sitja. Anna og
Halldór tóku fullan þátt í stjórnun
nemenda og skólahalds, þar fór ekk-
ert úr böndunum. Halldór kenndi
drengjunum glímutökin og brá upp
fimleikakennslu á bitanum í fjós-
hlöðunni.
Gagnmerk var sú ögun sem hann
veitti nemendum sem og öðrum í
snyrtilegri umgengni og umhverfis-
vernd, sem nú er nefnd svo. Hann
bar djúpa virðingu fyrir ríki náttúr-
unnar og krafðist þess af öðrum.
Anna hafði mikið yndi af þessum
skólatíma. Hún var fróðleiksfús,
bókhneigð og víðsýn. Frítfma sinn
frá þessu stóra heimili notaði hún til
að segja nemendum til við námið og
ræða við þá. Samvinna hjónanna og
samábyrgð með kennaranum var
einstök og skilaði okkur börnunum
haldgóðri menntun þótt skólatím-
inn væri aðeins átta mánuðir frá 10
ára aldri til fermingar.
Bjöm Gunnlaugsson
frá Brimnesi, Skagafirði
Fæddur 2. júlí 1926 - Dáinn 24. desember 1990
/ tuttugu ár við töltum sama veg
á túni og möl víst bæði þú og ég.
Nú ertu horfinn, sorg í brjósti ber.
Býsn er tómt, þú ert ei lengur hér.
Þú vannst þitt starf af trúmennsku og tryggð,
um tún við skepnur, eða reykvísk byggð
átti verk þín, vinur kœri minn.
Og víst er margt sem fór um huga þinn.
Þú undir þér við lestur Ijóðs og máls
og lærðir aldrei neitt bara til hálfs.
Þú lékst þér við að grúska í gömlum fræðum.
Gæðablóðið rann í þínum œðum.
Þú lánaðir með Ijúfu geði hreinu,
en lést þó ekki nokkum vita af neinu.
Vexti ei tókst né tryggingu aðra neina,
en trú á manninn, því er ekki að leyna.
Þú réttir mörgum þrengdum hjálparhönd
af höfðingsskap þú leystir þeirra strönd
og fjölda annarra reyndist raunagóður
því ríflegur varþinn ferðamanna sjóður.
Vertu sæll, þú sést ei lengur hér
og söknuður mun ríkja œ hjá mér.
Minn hugur leitar Ijúft en skýrt til þín
og leiftrar þegar blessuð sólin skín.
Þegar sveitasími kom fækkaði eitt-
hvað ferðum á milli bæja, en kon-
urnar tóku þessa tækni í sína þjón-
ustu. Mamma tók sér gjarna hvfld
um nónbil, settist við símann og
hringdi, oft eina langa og stutta sem
var að Dal og talaði við Önnu, sem
var létt um mál og hafði mikla og
skemmtilega frásagnarhæfileika.
Þær töluðu saman lengi og bar
margt á góma. Þessum sið héldu
þær meðan báðar lifðu. Að heyra
hvor í annarri var þeim mikils virði,
enda lágu þær ekki í ferðalögum
þessar konur.
Enn í dag, þegar önnur kynslóð
hefur tekið við búsforráðum á þess-
um nágrannabýlum, ríkir sama
frændræknin og velviljinn sem til
var sáð fyrir 60 árum. f janúar á síð-
asta ári lést Halldór í hárri elli. Hafði
hann alla tíð verið heilsuhraustur.
Nú í janúar kveður Anna, húsfreyj-
an í Dal. Hún hafði átt við veikindi
að stríða síðustu árin. Traust vinátta
og öryggið sem hún veitti okkur öll-
um sem uxum úr grasi í Hrísdal lifir
áfram sem hluti af okkur, þótt fólkið
sem hana skóp hverfi til annarra
heima.
Blessuð sé minning mætra ná-
granna. Ásdís og Olga frá Hrísdal
Far þú í friði, friður guðs þig blessi. Hafðu
þökk fyrir samfylgdina. Af henni varð
margur ríkari sem tölti með þér örfá spor.
Jóna S. Gísladóttir frá Kirkjubóli,
Ketildalahreppi, Amarfirði
Rnnur IngóHsson
Framsóknarvist
Framsóknarvist verður spiluð sunnudaginn 3.
febrúar í Danshöllinni (Þórskaffi) ki. 14.00.
Veitt verða þrenn verðlaun kvenna og karta.
Finnur Ingólfsson formaður fulltrúaráðs
framsóknarfélaganna I Reykjavlk ffytur stutt ávarp
(kaffihléi.
Framsóknarfélag Reykjavíkur
Akranes —
Bæjarmál
Opinn fundur um flárhagsáætlun Akraneskaupstaðar fyrir árið 1991 verð-
ur haldinn I Framsóknarhúsinu við Sunnubraut miövikudaginn 6. febrúar
kl. 20.30. Gfsll Glslason bæjarstjórí gerír grein fyrír áætluninni.
Auk bæjarstfóra situr Ingibjörg Pátmadóttir fyrfr svörum.
Bæjarmilarið.
Boi
B
I vetur verður oplð hús á mánudagskvöldum frá kl. 20.30-22.30 á skrifstofu
Framsóknarflokksins aö Brákarbraut 1.
BæjarfulHrúarflokkslns I Borgamesl veröa á staðnum og heltt á könn-
unnl.
Allir sem vilja fylgjast með og hafa áhrif á málefni Borgames-bæjar eru
velkomnir.
Framsóknarfélag Borgamess.
Þorrablót -
Akranes og nærsveitir
Framsóknarfélögin á Akranesi halda Þonablót I Kiwanishúsinu
föstudaginn 8. febrúar kl. 20.
Forsala aðgöngumiða er I Framsóknarhúsinu mánudaginn 4. febnjar
kl. 20,30 tilkl.22. Slmi 12050.
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Framsóknatfélögin i Akranesl.
Framsóknarfólk
Húsavík
Framvegis verður skrifstofan I Garðari opin á laugardagsmorgnum kl. 11-
12. Létt spjall og heitt á könnunni.
FramsóknariHag Húsavíkur
SUF-arar athugið!
Hittumst öll að Hafnarstræti 20, 3. hæð, kl. 20,30 föstudaginn 1. febrúar.
Þaöan förum viö á veitingahús I nágrenninu og ræöum undirbúning
kosninganna.
Framkvœmdastjóm SUF
Kópavogur
Skrifstofa Framsóknarfélaganna I Kópavogi er opin á mánudags- og mið-
vikudagsmorgnum kl. 9-12. Slmi 41590.
Sljóm fuHtrúaráðs
Félagsvist
Spiluð verður félagsvist að Eyravegi 15, Selfossi, 5. febniar kl. 20.30.
Kvöldverðlaun. - Heildarverðlaun. Fjölmennum
FramsóknariHag Selfoss
Suðurland
Skrifstofa Kjördæmasambandsins á Eyrarvegi 15, Selfossi, er opin á
þriöjudögum og fimmtudögum kl. 15.00-17.00. Slminn er 22547.
Félagar eru hvattir til aö Ifta inn.
K.S.F.S.
Reykjanes
Skrífstofa kjördæmasambandsins að Hamraborg 5, Kópavogi, er opin
mánudaga til fimmtudaga kl. 17-19. Slmi 43222.
K.F.R.
Reykjanes
Launþegaráð
Aöalfundur launþegaráðs KFR verður haldinn mánudaginn 4. febrúar kl.
20.30 I Félagsheimili framsóknarmanna að Hverfisgötu 25, Hafnarfirði.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjómin.
Reykvíkingar
Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi veröur til viötals
4. febrúar nk. á skrifstofu Framsóknarflokksins að
Hafnarstræti 20, kl. 15:00 til 18:00.
Allir velkomnir.
Borgarmálarið.
Sigrún M.
Keflavík - Opin skrifstofa
Félagsheimili framsóknarmanna að Hafnargötu 62 er opiö alla virka daga
milli kl. 17 og 18.
Starfsmaður framsóknarfétaganna, Guðbjörg, veröur á staðnum.
Sfmi 92-11670.
Framsóknarfólögin.
Kópavogur
Opið hús að Hamraborg 5 alla laugardaga kl. 10-12. Heitt á könnunni.
r. ii , i f ii i
rUHWUBfBOtO
Norðurland vestra
Skrifstofa Einherja, kjördæmisblaðs framsóknarmanna, hefur verið flutt frá
Sauðárkróki á heimili ritstjóra að Ökrum I Fljótum. Hægt er að ná I ritstjóra
alla daga I slma 96-71060 og 96-71054.
K.F.N.V.
Þorrablót - Reykjavík
Laugardaginn 9. febrúar verður hið landskunna þorrablót Framsóknarfé-
laganna I Reykjavlk haldið I Norðurljósasal I Þorskaffi.
Verð miða er kr. 3500.
Upplýsingar og miðapantanir fást hjá Þórunni eða Önnu I sfma 624480.
MUNIÐ
að skila tilkynningum í flokks-starfið
tímanlega - þ.e. fýrir kl. 4 daginn fyrir
útkomudag.