Tíminn - 02.03.1991, Qupperneq 3

Tíminn - 02.03.1991, Qupperneq 3
Laugardagur 2. mars 1991 Tíminn 3 Hætt við stofnun nýs orkusölufyrirtækis? Minni líkur eru nú taldar á aö stofnað verði sérstakt fyrirtæki um þær virkjanir sem ráðast þarf í ef af byggingu álvers verður á Keilis- nesi. Jóhannes Nordal, formaður stjórnar Landsvirkjunar, sagði að ef þessi leið yrði farin myndi lánsfé verða dýrara og virkjunarfram- kvæmdirnar dýrari. Þess vegna færi áhugi manna á þessari leið minnkandi, en ekki væri þó búið að afskrifa hann með öllu. Ýmsir telja að það sé skynsamlegt að stofna nýtt orkuöflunarfyrirtæki sem sjái um að virkja og selja orku til stóriðju. Með því verði dregið úr áhættu. Bent hefur verið á að óæski- legt sé að blanda saman sölu á raf- magni sem íslendingar nota sjálfir og orkusölu til stóriðju. Eitt orkusölu- fyrirtæki til stóriðju tryggi að við- skiptin við hina erlendu aðila standi ein undir kostnaði við virkjunar- framkvæmdir. Ekki verði hætta á að almenningur verði látinn niður- greiða rafmagn til stóriðju, en sumir telja að það hafi verið gert, en aðrir mótmæla því. Ef stofna á nýtt orku- sölufyrirtæki yrði það fyrirtæki að taka lán á hærri vöxtum en Lands- virkjun vegna þess að um nýtt og eignalaust fyrirtæki yrði að ræða. Nýja orkusölufyrirtækið yrði þá í svipaðri stöðu og Atlantsál sem á að byggja og reka álverið. Atlantsál á að- eins kost á dýrum og óhagstæðum lánum og það er ein af ástæðunum fyrir því að samningar um byggingu álvers hafa tafist. Horfur eru á að mjög litlar fram- kvæmdir verði á vegum Landsvirkj- unar á Fljótsdalshéraði og við Búrfell í sumar, en fyrirhugað var að fram- kvæma þar fýrir milljarða í sumar. Nú eru hins vegar Iitlar líkur á að gengið verði frá álsamningum fyrr en í haust. Ekki hefur verið tímasettur neinn samningafundur við Atlantsál, en stjórn Landsvirkjunar er þó í sam- bandi við álfyrirtækin þrjú. -EÓ Ráðstefna um jöfnun atkvæðisréttar Samtök sveitarfélaga á höfuð- borgarsvæðinu og Samband sveit- arfélaga á Suðurnesjum halda ráð- stefnu um jöfnun atkyæðisréttar laugardaginn 2. mars í íþróttahús- inu í Bessastaðahreppi. Til hennar er boðið öllum alþing- is- og sveitastjórnarmönnum í Reykjavíkur- og Reykjaneskjör- dæmum. Ráðstefnan hefst kl. 10. Þorkell Helgason prófessor og Jón Steinar Gunnlaugsson flytja ræð- ur. Þar á eftir lýsa efstu menn á framboðslistum þeirra stjóm- málaflokka, sem eiga þingmenn í kjördæmunum, viðhorfum sín- um. Að lokum verða umræður. (Fréttatilkynning) Ingi B. Ársælsson vekur athygli á meintum rétt- indabrotum í tengslum við þing Norðurlandaráðs: ISLENDINGUR KYNNIR MAL SITT ERLENDIS Ingi B. Ársælsson, fyrrum starfsmað- ur ríkisendurskoðunar, hefur verið í Kaupmannahöfn á þingi Norður- landaráðs og vakið þar athygli þing- fulltrúa og fréttamanna á málarekstri sem hann stendur í hér heima. Það mun vera einsdæmi að einstak- lingur frá íslandi telji sig þurfa að leita réttar síns með þessum hætti. Ingi og lögmaður hans telja að brot- in hafi verið á Inga mannréttindi, en stjórnvöld og æðstu embættismenn hér á íslandi hafa ekki sinnt málinu eða vísað því frá sér. Málarekstur Inga B. er við fjármálaráðuneytið og varðar meinta fýrirvaralausa brott- vikningu Inga úr starfi hjá Ríkisend- urskoðun og samninga sem gerðir voru í kjölfar þess um starfslok. Að sögn Inga B. Ársælssonar hafa nokkrar erlendar fréttastofur sýnt máli hans áhuga, einkum vegna hugsanlegrar tvöfeldni hjá íslend- ingum sem væru í fararbroddi til stuðnings mannréttindum í Eystra- saltsríkjunum. Það hafi því e.t.v. ekki komið á óvart að sovéska press- an virtist einna áhugasömust, þó fleiri fréttastofur væru að kanna málið. Á Alþingi liggur fýrir fýrirspurn frá nokkrum þingmönnum sem varðar mál Inga B. Ársælssonar, m.a. um það hvernig opinbert skjal úr fjár- málaráðuneyti geti horfið og tilvist þess verið neitað fýrir dómi og síðan nokkrum árum síðar komi skyndi- lega fram staðfesting á tilvist þess frá fjármálaráðuneytinu. Eftir því sem Tíminn kemst næst mun dómsmála- ráðherra svara þessari fýrirspurn í næstu viku. Amfetamínsmyglarinn: Dómari úrskurðaði í gær, að kröfu lögreglunnar, mannlnn sem handtekinn í iýrradag með rúmt kfló af amfetamínl í fórum sínum. Hann var úrskurðaður í 14 daga gæsluvarðhald. Síðdegis í fyrradag var umrædd- ur maður handtekinn fyrir utan heimili sitt í Þingholtunum í Reykjavík. Þá var hann að koma frá úr flugfraktafgreiðslu Flug- leiða þar sem hann sótti lítið stofuborð en í botni þess var góssið falið. Sendingin kom frá Luxemborg en talið er að efnið hafi verið keypt í Hollandi. Mað- urinn hefur viðurkennt að hafa staðið að innilutningi þessum. Tveir menn til viðbótar voru handteknir vegna þessa máls en að sögn Bjöms Halldórssonar hjá fíkniefnalÖgreglunni þóttu ekki nægileg rök til að krefjast varð- halds á þeim. Magnið sem hér um ræðir er 1.050 grömm og því um 1.000 til 2.000 skammtar. Algengasti í nefið, en cinnig eru sprautur notaðar. Amfetamín er í einstaka tilfell- um notað hér á landi sem lyf til dæmis gegn svefnsýki en þá með sérstöku leyfí landlæknis. Ann- ars telst það vera fíkniefni sem mikil ávanahætta fylgir. Það get- ur valdið ofsóknaihugmyndum, auk þess sem það verkar öreandi á míðtaugakerfið. -sbs. > í* Ssg 5j. I'ap $ ■ j 'W y fwwwá illiw s ® * W ’ m i i m. WliW M . r m m m m mw w m m m STÓRKOSTLEGIR PÁSKAR í Páskaferðin okkar í ár er ekki af verri endanum. Farið verður til Túnis og dvalið á lúxushóteli, HOTEL ROYAL SAHARA BEACH. Þá lúxusaðstöðu sem hótelið hefur upp á að bjóða er of langt mál að telja upp, en þ.am. eru tennis- og golfvellir, kvöldskemmtanir, og kabarettar fyrir unga sem aldna. Farið verður 26. mars og dvalið í hálfan mánuð eða þrjár vikur, komið heim 9. eða 16. apríl Leitið upplýsinga hjá skrifstofunni FERDA&WLhf LINDARGÖTU14 -105 REYKJAVÍK SÍMAR 14480 -12534

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.